Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1990, Síða 8
8
FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1990.
Útlönd__
Svíar komnir
til Tyrklands
Þrjátíu og íjórir Svíar, flestir konur
og börn, fengu að fara frá írak í gær-
kvöldi. Þegar þeir komu í nótt tíl
bæjarins Cizre í Tyrklandi hikuðu
þeir áður en þeir stigu út úr lang-
ferðabifreiðinni, sem þeir ferðuðust
í, því fjöldi fjölmiðlamanna beið
þeirra. Dyrnar voru opnaðar en lok-
að aftur. Nokkrir tyrkneskir blaða-
menn ruddust inn í bifreiðina en var
fleygt út af bílstjóranum sem naut
aðstoðar nokkurra sænskra stjórn-
arerindreka.
Nokkrir Svíanna treystu sér þó til
að svara spurningum fréttamanna
og meðal þeirra var Margareta Berg.
Hún sagöi að þeir fimmtíu og átta
Svíar, sem ekki hefðu fengið að fara
yfir landamærin, myndu snúa aftur
til Bagdad. Sagði hún íraka hafa látíð
Svíana sjálfa ákveða hverjir ættu að
fá að fara úr landi. Mæður með börn
voru fyrst valdar en dregið var um
hina. Margir höfðu þurft að kveðja
fjölskyldumeðlim sem ekki gat fylgt
með yfir landamærin. Um níutíu
Svíar frá Kúvæt og nokkrir tugir frá
írak hafa enn ekki fengið fararleyfi.
Finnarnir sjö, sem fengu að fara frá
írak til Tyrklands, komu til Cizre,
sem er í 42 kílómetra fjarlægð frá
landamærunum, rétt á eftír Sviun-
um. Sérsveitir tyrkneskra hersins
voru við landamærastöðina Habur
og tilkynntu þær sænskum frétta-
mönnum að þeir sem nálguðust stöð-
ina ættu-á hættu að vera skotnir.
Þess vegna hittu fréttamennirnir
ekki Svíana fyrr en í Cizre. Viö Ha-
bur ríkir mikil spenna og hernaðar-
úppbygging. Er farið að útdeila gas-
grímum til tyrknesku hermannanna.
Fjöldi kúrdískra skæruliða er einnig
við landamærin.
Um fjörutíu Danir er nú í alþjóð-
legri bílalest á leið frá Kúvæt til
Bagdad en þijátíu og níu hafa kosið
að vera um kyrrt í Kúvæt af persónu-
legum ástæðum, að því er danska
utanríkisráðuneytið hefur tilkynnt.
Hópur Svisslendinga komst yfir
landamærintilTyrklandsígær. tt
Ánægð feðgin frá Sviss eftir komuna til Tyrklands frá írak í gær.
Símamynd Reuter
Araf at kynnir
friðaráætlun
Yasser Arafat, leiðtogi Frelsissam-
taka Palestínumanna, hefur haft
samband við leiötoga íraks og Saudi-
Arabíu og kynnt þeim nýja friðará-
ætlun. Talsmaður samtakanna segir
að Arafat sé einnig að reyna að fá
Saddam Hussein íraksforseta til að
sleppa vestrænum konum og börn-
um.
Nýja friðaráætlunin er sögð byggð
á ályktun Sameinuðu þjóðanna um
brottflutning herliðs íraka frá Kúvæt
og „allra annarra herliða á svæö-
inu“. í staðinn kæmu friðargæslu-
sveitir Sameinuðu þjóðanna og nefnd
araba myndi reyna að koma á sam-
komulagi milli deiluaðila.
Reuter
Leiðtogi Frelsissamtaka Palestínumanna, Yasser Arafat, reynir nú aö miðla
málum í deilunni við Persaflóa. Símamynd Reuter
Símamynd Reuter
Bandarískir hermenn nýkomnir til Saudi-Arabíu bíða flutninga.
Bandarísk sjónvarpsstöð:
íraskar sérsveit
ir frá Kúvæt
írösk yfirvöld hafa dregið til baka
sérsveitir íraska hersins frá landa-
mærum Kúvæts og Saudi-Arabíu og
sent þangað í staðinn aðrar sveitir.
Þetta kom fram í fréttum bandarísku
sjónvarpsstöðvarinnar NBC sem
hafði það eftir heimildarmönnum
bandarísku leyniþjónustunnar að
líklega væru nú yfir flmmtíu þúsund
menn úr sérsveitum íraska hersins
á leið til Bagdad. Talsmaður banda-
ríska varnarmálaráðuneytisins
kvaðst ekki geta tjáð sig um máliö.
Aö sögn NBC-sjónvarpsstöðvar-
innar er ekki talið ólíklegt aö sér-
sveitimar, sem leiddu innrásina í
Kúvæt 2. ágúst síðastliðinn, hafi ver-
ið kallaðar til baka til að þær yrðu
hreyfanlegri ef árás yrði gerð undir
forystu Bandaríkjamanna. Sá mögu-
leiki er einnig fyrir hendi að mati
sérfræðinga að andstaða sé gegn
Saddam Hussein íraksforseta heima
fyrir og að hann vilji þess vegna hafa
sína traustustu hermenn nálægt sér.
Hlutabréf í Tókýó hækkuðu í verði
í dag í kjölfar fréttarinnar um heim-
kvaðningu írösku sérsveitanna frá
landamærum Kúvæts og Saudi-
Arabíu en undanfarna tvo daga hafði
verð á hlutabréfum lækkað talsvert.
Ekki var þó gert ráð fyrir mikilli
sölu þar sem ekki var litið svo á að
írakar væru að hörfa.
Fulltrúar þeirra fimm þjóða sem
eiga fastasæti í Öryggisráöi Samein-
uðu þjóðanna hafa, eftir margra daga
fundarhöld, samið drög að ályktun
þar sein kveðið er á um heimild til
vopnavalds til að framfylgja við-
skiptabanni gegn írak. Hafa drögin
verið send til stjóma þjóðanna fimm,
Bandaríkjanna, Sovétríkjanna,
Frakklands, Kína og Bretlands, til
samþykkis til að hægt verði að leggja
þau fyrir Öryggisráðiö.
Mikillar reiði gætir nú í Bretlandi
eftir að íraksforseti kom fram í sjón-
varpi í gær með nokkmm breskum
börnum og foreldrum þeirra sem eru
gíslar á mikilvægum stöðum í írak.
Forsetinn, sem birtist í borgaraleg-
um klæöum í fyrsta sinn frá því að
innrásin var gerð í Kúvæt, var um-
kringdur vörðum er hann tjáði fólk-
inu að írakar væru ekki að nota það
sem mannlega skildi gegn mögulegri
árás Bandaríkjanna og bandalags-
ríkja þeirra. Sagöi hann fólkið hafa
verið handtekið til að koma í veg
fyrir stríð. Lítill drengur var leiddur
til Saddams Hussein og spurði forset-
inn hann hvort hann fengi ekki
mjólk og kornflögur og svaraði
drengurinn, augsýnilega hræddur,
játandi. Um þrettán þúsund Vestur-
landabúum er meinað að fara frá ír-
ak og Kúvæt og hafa um tvö hundruð
Bretar, Bandaríkjamenn og Frakkar
verið fluttir til ókunnra staða. Eftir
sjónvarpsútsendinguna, sem bresk
og bandarísk yfirvöld hafa kallað
ógeðslega leiksýningu, tilkynntu ír-
ösk yfirvöld að þau ætluðu að senda
heim fimmtán ára gamlan dreng sem
hafði komið einn síns liðs frá London
og orðið innlyksa í Kúvæt er innrás-
invar gerð.
írar hafa lýst því yfir að frá og með
miðnætti í nótt verði sendiráðum
erlendra ríkja í Kúvæt lokað og eftir
það verði farið með sendiráðsstarfs-
mennina sem óbreytta borgara. Það
getur haft í för með sér að þeir verði
handteknir og fluttir til hernaöarlega
mikilvægra staða og eins og bresku
fjölskyldurnar sem íraksforseti
heimsótti ásamt sjónvarpsmönnum.
Aðildarríki Atlantshafsbandalags-
ins munu ekki loka sendiráðum sín-
um í Kúvæt, að því er háttsettir emb-
ættismenn bandalagsins sögðu í gær.
Öll aðildarríkin eru með sendiráð í
Kúvæt nema ísland og Lúxemborg.
Utanríkisráðherrar aðildarríkja
Evrópubandalagsins tilkynntu á
þriðjudaginn að stjórnir þeirra
myndu ekki hlíta fyrirskipuninni um
lokun sendiráða. Öll Evrópubanda-
lagsríkin eru í Atlantshafsbandalag-
inu nema írland. Japan og Bandarík-
in og nokkur Austur-Evrópuríki eru
einnig meðal þeirra sem ekki loka
sendiráðum sínum.
Flest ríkin liafa þó sent flestallt
starfsfólk sendiráðanna til Bagdad
eða úr landi í þeim tilfellum sem það
hefur verið mögulegt. Aðeins fáeinir
starfsmenn eru í sendiráðunum til
að halda uppi lágmarksstarfsemi.
Reuter
Gasgrímuverksmiðja á Spáni hefur orðið að margfalda framleiðslu sina
vegna mikillar eftirspurnar frá Miðausturlöndum þar sem menn óttast efna-
vopnastríð. Símamynd Reuter