Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1990, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1990, Page 13
FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1990. 13 Lesendur Athugasemd um fram- boðsmál á Vestfjörðum Steinþór B. Kristjánsson skrifar: Þegar maöur flettir dagblöðum eru þar oft fréttir sem manni koma á óvart, og segja kannski annað en maður bjóst við. Ég varð t.d. fyrir þessu í gær í frétt sem sló mig og var viðtal við sjálfan mig. - Þannig er mál með vexti að í seinustu viku hafði blaðamaður á DV samband við mig varðandi framboðsmál Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum og ályktun kjördæmissamtaka ungra sjálfstæðismanna í Vest- íjarðakjördæmi um eðlilega end- urnýjun í þingmannaliöi flokksins. Þótti mér vera farið frjálslega með samtal mitt og blaðamannsins og virðist mér sem fyrirsögnin og andinn í viðtalinu hafi verið ákveð- inn áður en viðtalið fór fram. Þar sem ég tel þetta mjög alvarlegt mál sem rætt var um er ég knúinn til að bæta ýmsu við það sem fram kom í viðtalinu og leiðrétta um leið. í fyrsta lagi segir í greininni að megn óánægja sé meðal ungra sjálfstæðismanna á Vestfjörðum með að Þorvaldur og Matthías ætli aftur í framboð. Þarna er að vísu ekki vitnað í mig, en ég vil taka fram að Matthías hefur lýst því yfir að hann ætli sér ekki í framboð aftur. Einnig vil ég taka fram að ég hafi ekki kynnst þessari megnu óánægju. - Ég t.d. er mikill stuðn- ingsmaður Þorvaldar Garðars og tel að erfitt verði fyrir Vestfirðinga að fmna honum verðugan arftaka. Máli mínu til stuðnings nefni ég framgöngu hans í kvótamáhnu og á landsfundi Sjálfstæðisflokksis sl. haust þar sem hann var sá eini sem stóð við skoðun sína og fylgdi eftir vilja flestra Vestfirðinga um að losna við kvótakerfið. Þvi muna ungir sjálfstæðismenn eftir. - Einn- ig vil ég nefna það að hann er mjög duglegur að heimsækja kjördæmið og gerir það hvort sem kosningar eru á döfinni eða ekki. í öðru lagi er ekkert samhengi á milli þess að ungir sjálfstæðismenn á Vestfjörðum hafi ekki áhuga á baráttusætum í næstu kosningum, og því, að Þorvaldur og Matthías ætli að bjóða sig fram aftur. í þriðja lagi sagði ég að ég teldi að bæði Þorvaldur og Matthías hefðu mikið persónufylgi sem ekki væri víst að skilaði sér til flokksins ef þeir byðu sig ekki fram aftur en það kom aldrei fram í viötaiinu. Auðvitað eru skiptar skoðanir alls staðar um hverjir eiga að vera í efstu sætum framboðslista. Á Vestfjörðum eru margir lausir end- ar varðandi framboðsmál nú og í framtíðinni. Við, ungir sjálfstæðis- menn á Vestfjörðum, ætlum ekki að beina spjótum okkar gegn þing- mönnum okkar og virðum þá og þau störf sem þeir hafa unnið fyrir sitt kjördæmi og landið allt, og vilji þeir bjóða sig fram aftur gerir bara hver og einn upp við sig sjálfan, hvern hann styður. i sima og simi verður að fylgja brefum. Iþróttasalur til leigu Nokkrir lausir tímar fáanlegir á kvöldin og um helgar í íþróttasal skólans. Uppl. fást á skrifstofu skólans í síma 688400. Verzlunarskóli íslands BILAVAL sími 681666 Húsi Alla Rúts, Hyrjarhöfða 2 VANTAR BÍLA Á STAÐINN TIL SÖLU Nissan Pathfinder 4x4, 2ja dyra, svartur, árg. ’88, ek. 21.000. Verð 1.950.000,- Opel Rekord stat., blágrár, árg. ’85, ek. 63.000. Verð 680.000,- Fiat 127, blár, árg. '85, ek. 60.000. Verð 230.000,- M. Benz 230 E., grænn, árg. ’82, ek. 128.000. Verð 750.000,- BMW M-3 sportbíll, svartur, árg. '87, ek. 32.000. Verð 2.900.000,- Chevrolet Beretta, 2ja dyra, blár, árg. ’88, ek. 40.000. Verð 1.300.000,- Ford Sierra XL/4/I, hvítur, árg. ’85, ek. 104.000. Verð 950.000,- Ford Sierra 2000 L, 5 dyra, grár, ’83, ek. 123.000. Verð 450.000,- MMC Galant 2000, 4 dyra, árg. 87, ek. 87.000. Verð 680.000,- Mazda 626 2000, 5 dyra, hvítur, árg. ’87, ek. 86.000. Verð 750.000,- Toyota Corolla 1600 GL, 5 dyra, blár, árg. ’84, ek. 131.000. Verð 390.000,- M. Benz st. 230 TE, dökkgrænn, árg. ’85, ek. 120.000. Verð 1.390.000,- Peugeot 205 GR, rauður, árg. ’88, ek. 10.000. Verð 670.000,- BMW 3181, svartur (toppbíil), árg. ’89, ek. 9.000. Verð 1.800.000,- Sölumenn: Gunnar Haraldsson, Finnbogi Ásgeirsson og Alli Rúts. Ekki spyrja 1 + Segjum frekar „Hvað tókstu marga 1 „Það þurfa allir að ökutíma?“ = 2 HEILBRIGÐ gefa sér góðan tíma Ekki segja SKY.VSEMI! í ökunámi!“ „Ég tókekki ...nema.. . mÉUMFERÐAR Uráo Þýskir flugumferðarstjórar að störfum. starfsbræðra þeirra? Nær þjóðarsáttin til hinna íslensku EINSTAKT A ISLANDI Laun flugumferðarstjóra: Eiga að fylgja þjóðarmynstri Axel hringdi: Það vekur athygh hvað samgöngu- ráðherra er reikandi í launamálum flugumferðarstjóra og þá einnig og ekki síður fjármálaráðherra sem staðhæfir nú skyndilega að nýr launasamningur við þessa hálauna- stétt fari hvergi út fyrir ramma „þjóðarsáttarinnar" sem er að verða að athlægi vegna úrvinnslu ráðherra sjálfra. Hver tekur t.d. mark á því sem fram kemur hjá ráðherrum, að taka verði mið af kjörum erlendra flug- umferðarstjóra? Það má þá alveg eins segja það sama um hjúkrunar- fræðinga sem nú eru boðin störf í Bandaríkjunum með um eða yfir 300 þúsund króna mánaðarlaun. - Og reyndar hvaða starfsstéttir aðrar sem er. Þótt flugumferðarstjórar séu í sambandi við erlendar flugvélar, samkvæmt alþjóðlegu samkomulagi, er engin ástæða fyrir nokkurn hér á landi að hlusta á samanburð í laun- um við starfsbræður erlendis. - Hér verða allir að fylgja sama þjóðar- mynstrinu í launamálum. Ef hér á að gefa eftir eina ferðina enn og klúðra þeim htla áfangasigri sem þó hefur náðst, t.d. með verð- bólguhjöðnun, þá er það alfarið mál þeirra ráðherra sem um laun flug- umferðarstjóranna fjalla. - Þeir verða að svara til saka fyrir linkind- ina. Madonnu-tónleikar áStöð2 Ingibjörg Halldórsdóttir, Hofsósi, skrifar: Ég vil þakka Stöð 2 fyrir frábæra útsendingu frá Barcelona af tónleik- um Madonnu hinn 1. ágúst sl. - Tón- leikarnir voru hreint frábærir. Þó að dagskrá Stöðvar 2 hafi verið frekar leiðinleg síðustu mánuði eru tónleikar Madonnu svo sannarlega spqr í rétta átt. Ég vil einnig þakka Stöð 2 fyrir „Nágranna” og Sjónvarpinu fyrir „Unglingana í hverfinu". - Þetta eru frábærlega góðir þættir. TIMARIT FYRIR ALLA rtSðsöWsia0 Urval sími 27022 • í helgreipum óttans • Ertu örgeója? • Þeim tókst ekki aó deyja • Ríki ryksins • Lótra-Björg • Hver ó aó annast foreldrana? • Þú getur sigrast ó þunglyndi • Krosstölugótan Efni meóal annars: • Ætti aó lögleióa fíkniefnin? • Hvaóa gagn gera trén? • Hann bjó til rifu ó jórntjaldiö • Hinn ógleymanlegi Laurence Olivier • Hugsun í oróum • Meó tímasprengju í höfóinu • Heimshöf in snjóboltar utan úr geimnum? • Dularfullu Michelin-mennirnir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.