Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1990, Page 28
FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1990.
Andlát
Guðrún Tómasdóttir, áður að Hæð-
argarði 28, lést á Elli- og hjúkrunar-
heimilinu Grund 22. ágúst sl.
Magnús T. Jónasson, Njálsgötu 104,
Reykjavík, andaðist fimmtudaginn
16. ágúst.
Guðlaug Guðjónsdóttir Westlund
andaðist í Elli- og hjúkrunarheimil-
inu Grund miðvikudaginn 22. ágúst
sl.
Eggert Jochum Víkingur lést í
sjúkrahúsi Akraness þriðjudaginn
21. ágúst.
Jón Sigurðsson frá Stóra-Fjarðar-
homí, Hraunbæ 182, lést á Heilsu-
vemdarstöð Reykjavíkur fimmtu-
daginn 23. ágúst.
Marín Guðmundsdóttir, Barmahlíð
18, lést í Landspitalanum 23. ágúst.
Björg Jónsdóttir, Hringbraut 113,
Reykjavík, lést 22. ágúst í Borgar-
spítalanum.
Jaröarfarir
Jóhannes Guðnason, Hverfisgötu 58,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni
í Reykjavík í dag, fóstudag, kl. 13.30.
Elísabet Tómasdóttir, Tómasarhúsi,
Eskifirði, sem lést á heimili sínu 17.
ágúst, verður jarðsungin frá Eski-
ijarðarkirkju laugardaginn 25. ágúst
kl. 14.
Magnús Guðmundsson, fyrrverandi
blómasali, verður jarðsunginn frá
Fossvogskapellu þriðjudaginn 28.
ágúst kl. 13.30.
Tilkyimingar
Söfnun hjá Filippseyska-
íslenska félaginu
Félagið hefur ákveðið að standa fyrir
fjársöfnun til hjálpar bömum sem eru
illa á sig komin vegna jarðskjálftanna á
Filippseyjum. 100.000 íjölskyldur em
húsnæðislausar og vantar mat og fot.
Hlutskipti þeirra er ólýsanlegt. Fihpp-
seyska- íslenska félagið hefur opnað gíró-
reikning nr. 1193-22-2000 í Sparisjóðnum,
Grindavíkurútibúi. Ykkar hjálp er mikil-
væg. Björgun úr nauð.
EINSTAKÍ Á ÍSLANDI
BLAÐSÍÐUR
FYRIR
KRONUR
/
Úrval
TIMARIT FYRIR ALLA
Menriing
Fréttir
Togarinn Aðalvik, sem Útgerðarfélag Akureyringa keypti frá Keflavik fyrir nokkrum dögum, kom til Akureyrar í
fyrrakvöld. Útgerðarfélag Akureyringa á því orðið sjö togara en einum þeirra verður lagt um næstu áramót, þeim
elsta sem ber nafnið Sólbakur. Nýja skipið, sem er útbúið sem frystiskip, mun frysta aflann um borð til áramóta
en verða á ísfiskveiðum eftir það. DV-mynd gk
Gary Moore - Still Got The Blues:
Listagóður blús
Gary Moore hefur komið víða við í gegnum tíðina
og skapað sér nafn sem mjög frambærilegur rokk-
gítaristi. Sólóplötur hans hafa þó ekki átt miklum vin-
sældum að fagna, enda verið ákaflega misjafnar að
gæðum. Enginn hefur þó dregið í efa hæfileika Moores
sem rokkara og gítarleikara, enda dæmin mýmörg
allt frá dögum han's með Phil Lynott og Thin Lizzy..
En eins ogsvo margir gítarleikarar af kynslóð Gary
Moores á hann rætur sínar að rekja til bandaríska
blúsins og það er kannski dæmi þess að sú eðla tónlist-
arstefna er nú í sókn að Gary Moore helgar þessa
nýju plötu sína blús og blúsrokki.
Og það er skemmst frá því að segja að betri plötu
hefur Gary Moore ekki sent frá sér um dagana. Hann
stekkur hér fram á sviðið sem fantagóður blúsgítar-
leikari, lagasmiður og söngvari og skýtur fyrir mína
parta þungavigtarblúsrokkurum eins og Stevie Ray
Vaughan og Jeff Healey ref fyrir rass hvað blúsinnlif-
un áhrærir. Lag Moores, Still Got The Blues, er magn-
að dæmi um þetta þar sem Moore fer á kostum bæði
sem söngvari og gítarleikari.
Og það er líka til marks um tilfinningu Moores fyrir
blúsnum að þó hann sæki lög víöa að -á þessa plötu
eru það hans eigin lög sem standa upp úr að mínu
áliti. Fyrir utan titillagið, sem ég nefndi áðan, má telja
King Of The Blues og Midnight Blues.
Margir frægir tónlistarmenn koma við sögu þessarar
plötu og meðal þeirra sem Moore hefur fengið til liðs
við sig eru: Albert King, sá frægi blúsgítaristi, og koll-
ega hans og nafni, Albert Colhns, píanóleikarinn Nicky
Hopkins og hljómborðsleikarinn Mick Weaver. Þá
leggur gamh bítillinn, George Harrison, til eitt lag á
Gary Moore er í miklu stuði á Still Got the Blues.
Nýjarplötur
Sigurður Þór Salvarsson
plötuna og leikur þar sjálfur mað á slidegítar og syng-
ur bakraddir.
Still Got The Blues er einhver besta auglýsing sem
rokkblúsinn hefur fengið um langt árabh.
Fjölmiðlar
Fagrit útfararstjóra
Stundum finnst mér að þeir sem
stjórna fjölmiðlum eigi að hta svo á
að íjölmiðlar hafi engan tilgang. Að
þeir hafi hvorki féiagslegan, stjórn-
málalegan né siðferöilegan tilgang
heldur sé tilgangur fjölmiðla sá einn
að seljast og skapa þannig þeim sem
hafa lifibrauð sitt af íjölmiölunum
þokkalega afkomu.
Það er náttúrulega ljóst að flöl-
miðlar yrðu miklu skemmtilegri ef
tilgangurinn væri ekki ahtaf að vefj-
ast fy rix stjórnendum þeirra og
starfsmönnum. Það má taka dæmi
af íslensku þjóðkirkj unni í þessu
sambandi. Eftir að prestar fóru að
spyrj a sjálfa sig að þvíhvaða tilgang
þeir og kirkjan heföu i þjóðfélaginu
hefur þeim tekist að gera Guð leiðin-
legan en að óreyndu hefði ég ekki
trúað að það væri hægt.
En það þarf ekki að fara út fyrir
fjölmiðla tii að finna dæmi þess
hvernig hugmyndir stjómenda
þeirra um tilgang hafa búiö tíl
óheyrileg leiðindi. Þetta er raest
áberandi í Morgunblaðinu enda
virðist mikil útbreiðsla þess hafa
lagst þungt á stjórnendur þess. Þeir
líta ekki á blaðið sem vöru heldur
stofnun í þjóðfélaginu eðajafnvel
þátt í upplagi islendingsins.
Einhverju sinni þegar ég tók
Morgunblaðíð með mér til að lesa
yfir pitsu komst ég að því að tíu síö-
ur af fjörutíu og átta voru lagðar
undir minningargreinar. Þetta var
eins og fagrit útfararstjóra. Þar sem
ég var fijótari að lesa aðra þætti í
blaðinu en að boröa pitsuna reyndi
ég að lesa nokkrar af þessum minn-
ingargreinum. Mér virtustþær ekki
eiga neitt erindí til annarra en
þeirra sem þekktu viðkomandi.
Flestar voru í raun óboðlegt lesefni
þar sem höfundarnir gátu ekki kom-
ið hugsunum sínum eða thfinning-
um th skila heldur festust í ein-
hverjum klisjum og þvargi um eitt-
hvað sem engu máli virtist skipta.
Þar sem ég var ekki enn búinn með
pitsuna endaði ég á því að reyna að
lesa á mhli línanna. Það hefur mér
alltaf fundist hinn endanlegi dauða-
dómur yfir texta; þegar hann er svo
þunnur og misvísandi að lesandinn
neyöist th þess að reyna að bæta
hann áður en honum er kyngt.
Það fyndnasta við þetta allt er að
líkast th eru minningargremarnar
í Morgunblaðinu eín traustasta
stoðin undir veldi þess og út-
breiðslu, Menn geta því líkast til
grætt heilmikið á því að vera leiðin-
legir, hátíðlegir og uppfullir af ahs
konartilgangi.
Gunnar Smári Eghsson