Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1990, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1990, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990. 9 Utlöiid Mohawk-indíánar N . , i ■ ' láta undan síga - hjálpuðu hermönnum að rífa vígi sín í Montreal Öllum á óvart gengu Mohawk- indíánar til liðs við hermenn Kanadastjórnar og aðstoðuðu þá við að rífa niður vígi og vegatálma sem þeir höfðu sjálíir komið upp. í gær stefndi allt í blóðug átök indíánanna við herinn en því var afstýrt á síð- ustu stundu. Um 4000 hermenn höfðu síðustu daga umkringt tvö vígi indíánanna þar sem um 200 vopnaðir menn höföu komið sér fyrir. Herinn var tilbúinn að ryðja virkjunum niður með stór- virkum vinnuvélum þegar indíán- arnir ákváðu að gefa eftir. Þetta er fyrsta skrefið sem stigið er í þá átt að leysa deilur sem staðið hafa mihi indíánanna og yfirvalda um yfirráð yfir landi sem indíánarn- ir segja að tilheyri þeim samkvæmt gömlum samningum við stjómina. Kanadastjórn sagði í gær að þessi stefnubreyting benti til þess að hægt væri að leysa deiluna endanlega með samningum. Indíánarnir líta máhð sömu augum og talsmaður þeirra sagði í gær Mohawk-indíánar gætu vel unað við framvindu mála til þessa. Engir samningar hafa þó verið gerðir um að rífa öll virki indíána. Þannig standa vígi þeirra í bænum Oka enn óhreyfö en þar hófust deil- urnar í byrjun júlí þegar lögreglu- maður féll í átökum við hóp vopn- aðra Mohawk-indíána sem kalla sig Stríðsmenn. Flest áhtamálin, sem komið hafa upp, eru enn óleyst en nú gera menn sér vonir um að þau leysist á frið- samlegan hátt. Dehurnar hófust þeg- ar lögregla Quebecfylkis réðst gegn indíánum sem vhdu koma í veg fyrir að golfvöllur í bænum Oka yrði stækkaður þannig að hann næði inn á land indíánanna. Þetta varð th þess að indíánar frá fleiri bæjarfélögum lögðu þeim í Oka lið og enn hefur ekki tekist að stækka golfvölhnn. Indíánar lokuðu brú í Montreal en vígin, sem rifin voru í gær, voru við hana. Reuter Mál sex írskra tilræðismanna endurskoðað: Haf a setið saklausir inni í f immtán ár Nú þykir ljóst að mál sex íra, sem dæmdir voru árið 1975 fyrir sprengjuthræði í Birmingham á Englandi, verði tekið aftur fyrir dóm en máhð var aha tíð umdeilt. í thræðinu lét 21 maður lífið. Allt frá því aö dómurinn var felldur hefur staðið yfir barátta fyr- ir því að máhð verði endurskoðað. Þeir dæmdu drógu th baka játning- ar sínar fyrir réttinum á sínum tíma og engar óyggjandi sannanir þykja fyrir því að réttir menn hafi verið dæmdir fyrir tilræðið. í fyrra kom upp svipað mál þegar fjórir fangar voru látnir lausir eftir að hafa verið dæmdir fyrir hryðju- verk á vegum írska lýðveldishers- ins. í opinberri yfirlýsingu vegna máls fanganna sex í Birmingham segir að lögreglan hafi fengið grun- semdir um að ekki hafi verið farið að lögum eftir viðtal við einn fang- ann. Innanríkisráðherra Breta hefur ákveðið að máhð fari fyrir áfrýjun- ardómstól þar sem tækifæri gefist th að skoða málið allt frá rótum. írska stjómin hefur lýst yfir áhyggjum sínum vegna þess að mennirnir kunni að sitja saklausir í fangelsi og það hefur ýtt á eftir bresku stjórninni að taka máhð upp að nýju og kanna hvort dómur- inn hafl verið rangur. Mennimir sex vom handteknir tveimur klukkustundum eftir að sprengjan sprakk í Birmingham árið 1974. Þeir vora þá á leið th Belfast. í fyrstu játuðu þeir að hafa komið sprengjunni fyrir en féllu síðar frá játningunni og bám því við að lögreglan hefði barið þá eftir handtökuna. Reuter Lík 26 manna fundin eftir feliibylinn við Chicago: Sex manna enn saknað í það minnsta 26 menn létu lífið í felhbylnum sem gekk yfir úthverfi Chicagoborgar og nálæga bæi í fyrra- dag. Um 350 menn slösuðust. Fehi- bylurinn hafði nær eingöngu áhrif á svæði sem er aðeins um 20 kílómetra breitt. Enn er sex manns saknað og mikið verk er óunnið við að endurreisa byggingar á svæðinu þar sem óveðr- ið var hvað mest. Felhbylurinn gekk yfir nær fyrirvaralaust og hafði veð- urstofan aðeins stutta stund th að gefa út viðvömn. Sveitir úr þjóðvarðliðinu eru enn á staðnum og aðstoða við að leita hinna týndu en hlutverk þeirra er einkum að koma í veg fyrir gripdehdir sem nokkuð tók að bera á um leið og veðr- ið var gengið niður. Mörg hkanna hafa fundist á korn- ökrum við hrunin hús. Svo virðist sem stormurinn hafi hrifið fólkið og borið það með sér langar leiðir. Eink- um voru það börn sem létu lífið með þessum hætti. Þá hafa nokkur böm bjargast af ökrunum en þau era iha haldin. Þannig hggja nú flögur ung börn í lífshættu á sjúkrahúsi í Chicago. Þetta er versti felhbylur á svæðinu við Chicago frá árinu 1967 en þá fór- ust þar 55 menn í kröftugum byl. Chicago er við norðurenda þess svæöis í Bandaríkjunum þar sem fehibyljir ganga og era þeir því sjald- gæfir á þessum slóðum. Reuter Þannig er umhorfs í húsum víða i nágrenni Chicago og í úthverfum borgar- innar. Eyðileggingin er gífurleg og margir hafa misst allt sitt. Símamynd Reuter Striðsmenn Mohawk indíána fylgjast með þegar vígi þeirra er rifið niður með gröfu. Indíánarnir ákváðu að láta undan síga í deilunni við Kanada- stjórn í gær. ' Símamynd Reuter m EUFJRJEIÐASALA ÍSLAMDS HF.jjf BÍLDSHÖFDA 8-112 REYKJA VÍK - SÍMI675200 == BMW 318, ’88, 5 g., 4ra d., vín- rauður, ek. 20.000. V. 1.350.000. BMW 325ÍM, '86, 5 g„ 2ja d„ silf- url„ ek. 19.000. V. 1.750.000. Dodge Ramcharger 4x4, ’85 (’86), 318 cc, sjálfsk., brúnn, ek. 60.000 m. V. 1.300.000. Gullmoli. Econoline 4x4, '80, 351 cc, sjálfsk., 4ra d„ brúnsans., ek. 40 á vél. V. 1.700.000. Toyota Tercel RV special, ’87, 5 g, 5 d„ hvitur, ek. 49.000. V. 780.000. Volvo 740 st„ '87, sjálfsk., 5 d„ blánsans., ek. 34.000. V. 1.320.000. Toyota Corolla, '88, sjálfsk., 3ja d„ svartsans., ek. 39.000. V. 710.000. Econoline E-150, '87, 351 cc, sjálfsk., 5 d„ grásans., ek. 65.000. V. 1.100.000 - vsk. Ath! Nýir rekstraraðilar Vantar: Accord ’88-'90, Fox ’88-’90, allar gerdir fjórhjóladrifsbíla

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.