Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1990, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1990, Side 17
FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990. 25 Iþróttir afhendir hér Þorgrími Þráinssyni, g ekki er ad sjá annað en Þorgrím- bakgrunni eru hnípnir KR-ingar in í úrslitaleiknum í gærkvöldi. DV-mynd Brynjar Gauti keppni orðiö mjög skuggsýnt og alls ekki hægt að bjóða leikmönnum, áhorfendum og öðrum upp á shkan leiktíma sem í gær- kvöldi. Leikur Vals og KR átti að fara fram á sunnudaginn og fresta leik Vals og KR um næstu helgi í 1. deild. Það nær engri átt að fórna einum stærsta við- burðinum í knattspyrnunni hérlendis á ári hverju í miðri viku og vonandi draga menn sinn lærdóm af því sem gerðist í Laugardalnum í gærkvöldi. Tveirdómarar Sá óvenjulegi atburður gerðist í gær- kvöldi að tveir dómarar dæmdu úrslita- leikinn. Þorvarður Björnsson meiddist og varð annar línuvörðurinn, Guð- mundur Stefán Maríasson, að taka við dómgæslunni og eftirlitsdómari leiksins að fara á línuna. Óvænt í meira lagi og ekki á hverjum degi sem slíkt gerist. -SK __ • Sævar Jónsson. Sævar í bann Sævar Jónsson, varnarmaður- inn sterki í Val, fékk í gærkvöldi gult spjald og fer því í leikbann eftir næsta fund aganefndar. Sævar mun því ekki leika rneð Valsmönnum í 17. umferð 1. deiídar er Valur mætir FH að Hlíðarenda. Sævar hefur fengið sex spjöld í sumai- en hann var sem kunnugt er í leikbanni í fyrri bikarúrslita- loiknum gegn KR. -SK • Þorgrímur Þráinsson, fyrirliði Valsmanna, hampar mjólkurbikarnum og til vinstri er Bjarni Sigurðsson, markvörð- ur Valsmanna, sem varði tvær vítaspyrnur KR-inga i lok maraþonviðureignar liðanna í úrslitum mjólkurbikarsins. DV-mynd Brynjar Gauti „Þetta var sá eini sem ég átti eftir að vinna“ - sagði Þorgrímur Þráinsson, fyrirliði Valsrhanna „Þetta er virkilega ánægjulegt fyr- ir mig, strákana og alla Valsmenn og um leið sigur fyrir Valshjartað. Við hjá Val spilum fyrir klúbbinn en ekki fyrir okkur sjálfa og það kom berlega í ljós í kvöld. í framlenging- unni gaf ég strákunum þau fyrir- mæli að hugsa fyrst og fremst um vörnina og reyna að ná að knýja fram vítaspyrnukeppni,“ sagði Ingi Björn Albertsson, þjálfari Vals. „Núna getum við snúið okkur al- farið að deildarkeppninni og leikur- inn gegn KR á laugardaginn verður ekki síður úrslitaleikur heldur en í kvöld. KR-ingar hljóta að leggja allt í sölurnar til að ná íslandsmeistara- titlinum en við Valsmenn munum að sjálfsögðu ekkert gefa eftir,“ sagði Ingi. Bjarni Sigurðsson „Þetta er það rosalegasta sem ég hef lent í á mínum ferli og það er frá- bært að okkur skyldi hafa tekist að vinna bikarinn. Við höfðum allt að vinna og engu að tapa. Þegar út í vítaspyrnukeppnina var komið var það annaðhvort ég eða Oli Gottskálks sem yrðum hetjur okkar liða og ég hafði heppnina með mér að þessu sinni,“ sagði Bjarni Sigurðsson. Þorgrímur Þráinsson „Ég vil fyrst byrja á því að þakka stuðnigsmönnum Vals fyrir frábær- an stuðning og um leið vil ég þakka KR-ingum fyrir góðan leik og ég finn virkilega til með þeim. Þeir fengu fleiri færi í leiknum en nýttu ekki en við lékum skynsamlega og hugs- uðum meira um varnarleikinn. Það var frábært að hampa bikamum en þetta var sá eini sem ég átti eftir að vinna hér heima og þetta er ein stærsta stundin á ferlinum og sér- staklega þegar ég hugsa um allt púlið sem við lögðum á okkur fyrir tíma- bilið. Þessi sigur í kvöld gerir okkur ekkert nema gott í baráttunni sem eftir er á íslandsmótinu og við ætlum okkur ekkert að gefa eftir í þeim slag,“ sagði Þorgrímur, fyrirliði Vals. Pétur Pétursson „Verra lið vann sigur í kvöld, það er engin spurning. Við erum búnir að sýna stórgóða knattspyrnu í báðum þessum úrslitaleikjum en okkur tókst ekki að nýta aragrúa af mark- tækifæmm sem við fengum. KR- ingar geta verið stoltir þó svona hafi farið í kvöld en gæfan var virkilega á bandi Valsmanna. Við leikum gegn Val á laugardaginn og við munum leggja þá að velli og höfum sett stefn- una á að tryggja okkur Evrópusæti," sagði Pétur, fyrirliði KR. Ragnar Margeirsson „Ég trúi þessu varla ennþá. Það var grátlegt að tapa þessum leik því hann var eign okkar frá upphafi til enda. Það var ótrúleg heppni sem fylgdi Valsmönnum í báðum leikjunum en við KR-ingar stöndum saman og stefnum ótrauðir á bikar á tímabil- inu, sjálfan íslandsmeistaratitihnn. Við getum borið höfuðið hátt því lið okkar hefur sýnt knattspymu eins og best gerist hér á landi í leikjunum tveimur," sagði Ragnar Margeirsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.