Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1990, Side 26
34
FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990.
Afmæli
Öm Ingólfsson
Öm Ingólfsson fjármálastjóri,
Bogahlíö 8, Reykjavík, er fimmtugur
ídag.
Öm útskrifaöist frá Samvinnu-
skólanum að Bifröst 1959 og var við
starfsnám hjá HB í Kaupmannahöfn
1960. Hann var verslunarstjóri í
matvörubúðum KRON við Dunhaga
og Skólavörðustíg frá 1960 til 1963.
Frá þeim tíma var hann verslunar-
stjóri í versluninni Liverpool við
Laugaveg og allt til 1970 er hann hóf
störf í vömhúsinu Domus við
Laugaveg. Þar vann Örn til 1978 er
hann varð kaupfélagsstjóri Kaup-
félags Hafnfirðinga. Frá 1988 hefur
hann verið fjármálastjóri Mikla-
garðs hf.
Þann 7. janúar 1967 kvæntist Öm
Gerði Baldursdóttur, f. 7. júní 1944,
ritara. Foreldrar hennar eru Herdís
Steinsdóttir og Baldur Jónsson
skrifvélavirki. Herdís er fædd að
Litla Hvammi í Miðflrði, Vestur-
Húnavatnssýslu en Baldur fæddist
að Söndum í Miöfirði í sömu sýslu.
Börn Amar og Gerðar era fjögur:
Þórdís, f. 24. mars 1965, bókasafns-
fræðingur, sambýlismaður hennar
er Gunnlaugur Sigurjónsson lækna-
nemi; Herdís Björk, f. 1. júlí 1967,
lyfjafræðinemi; Örn Ingi, f. 2. júní
1975, grunnskólanemi; ogBaldur, f.
13. desember 1980.
Systkini Arnar eru fjögur:
Guðmundur, f. 4. júlí 1942, hús-
gagnabólstrari, kvæntur Kristínu
Júlíusdóttur og eiga þau tvo syni;
Sigþór, f. 27. janúar 1944, skrifstofu-
stjóri, kvæntur Sólveigu Kristjáns-
dóttur, Sigþór á tvö böm frá fyrra
hjónabandi og móðir þeirra er Sól-
rún Þorgeirsdóttir; Jósef G., f. 19.
desember 1947, stýrimaður, fráskil-
inn en á tvo syni með fyrrverandi
eiginkonu sinni, Erlu Símonardótt-
ur; og Ingibjörg Þóra, f. 2. júní 1956,
kennari, gift Snorra Steindórssyni
bifreiðasmiö og eiga þau tvö börn.
Foreldrar Arnar eru Ingólfur
Guðmundsson, f. 15. febrúar 1907,
d. 27. ágúst 1983, bakarameistari, og
Þórey Sigurðardóttir, f. 30. júní 1907,
húsmóðir og verslunarmaður. Þór-
ey er búsett í Reykjavík.
Foreldrar Ingólfs voru Guðrún
Einarsdóttir og Guðmundur Björns-
son, af Víkingslækjarætt.
Þórey er dóttir Sigurðar Jónsson-
ar, kennara og hreppstjóra á Torfa-
stööum í Grafningi, b. á Núpi á
Berufjarðarstsrönd, Einarssonar.
Móðir Jóns var Þórdís Erlendsdótt-
ir, b. á Kirkjubóli í Fáskrúðsfirði,
Þórðarsonar. Móðir Erlendar var
Sigríður Erlendsdóttir, b. á Ásunn-
arstöðum í Breiðdal, Bjarnasonar,
ættfoður Ásunnarstaðaættarinnar.
Móðir Þórdísar var Helga Þorsteins-
dóttir, b. á Þorvaldsstöðum, Er-
lendssonar, bróður Sigríðar. Móðir
Siguröar var Þrúður, systir Bjarna,
afa Halldórs Halldórssonar prófess-
ors. Þrúður var dóttir Sveins, b. í
Viðfirði, Bjarnasonar. Móðir Þrúðar
var Sigríður, langamma Eyþórs
Einarssonar, formanns Náttúra-
verndarráðs. Sigríður var dóttir
Davíðs, b. í Hellisfirði, Jónssonar
og konu hans, Sesselju Þorsteins-
dóttur, systur Guðnýjar, langömmu
Jóns, föður Eysteins, fyrrv. ráð-
herra, og Jakobs, prests og rithöf-
undar, föður Jökuls rithöfundar.
Móðir Þóreyjar Sigurðardóttur
var Ingibjörg Þóra Jónsdóttir Mat-
hiesens, b. í Gröf í Mosfellssveit,
Matthíasar Mathiesens, kaupmanns
í Hafnarfirði, bróður Páls, langafa
Ólafs Ólafssonar landlæknis. Systir
Matthíasar var Agnes, langamma
Matthíasar Á. Mathiesens alþingis-
manns. Önnur systir Matthíasar
var Guðrún, amma Stefaníu Guð-
mundsdóttur leikkonu, móður
Önnu Borg. Guðrún var einnig lang-
amma Steindórs Einarssonar, afa
Geirs Haarde alþingismanns. Móðir
Jóns Mathiesens var Agnes Stein-
dórsdóttir Waage, skipstjóra í Hafn-
arfirði, hálfbróður Sigurðar Sívert-
sens, afa Regine, langömmu Jónasar
Kristjánssonar ritstjóra. Móðir
Agnesar var Anna Kristjánsdóttir
Veldings, verslunarmanns í Hafn-
arfiði, ættföður Veldingsættarinnar.
Móðir Ingibjargar Þóra var Ingi-
björg Guðlaugsdóttir, b. í Öxney,
Jónssonar, bróður Matthíasar
kaupmanns. Móðir Ingibjargar var
Guðrún, systir Kristínar, ömmu
Ásgeirs Ásgeirssonar forseta. Guð-
Örn Ingólfsson.
rún var dóttir Gríms, prófasts á
Helgafelli, Pálssonar, bróður Ingi-
bjargar, konu Jóns, prests í Amar-
bæh.
Systkini Þóreyjar eru: Jón b. að
Nesjavöllum í Grafningi; Sveinn;
Jensína Guðrún; Ólafur Jóhann rit-
höfundur sem nú er látinn; Þrúður
Jónína; og Ingibjörg Sólveig.
Örn og Gerður, kona hans, taka á
móti gestum á afmælisdaginn í veit-
ingahúsinu Gaflinum, Dalshrauni
13, Hafnarfirði, frá klukkan 18.00 til
20.00.
Baldvin Skæringsson
Baldvin Skæringsson, Amart-
anga 4, Mosfellsbæ, er sjötíu og
fimmáraídag.
Baldvin fæddist aðRauðafelli
undir Austur-Eyjafjöllum og ólst
þar upp. Hann gekk í bamaskóla
undir Eyjaljöllum. Baldvin fór
fyrst á vertíð til Vestmannaeyja
1929 og upp frá því allt til 1937 er
hann settist þar að. Baldvin stund-
aði sjómennsku á ýmsum bátum
og vann einnig við skipasmíðar.Á
skólabekk settist Baldvin upp úr
1960 og lauk skipstjómamámi frá
Stýrimannaskólanum í Vest-
mannaeyjum. Baldvin var sjómað-
ur á nokkram bátum og fór svo að
vinna við húsasmíöar. Hann rak
eigið smíðafyrirtæki fram að eld-
gosinu í Heimaey árið 1973 en flutti
þá á Hrafnistu og síðar í Mosfells-
sveit. Hann stimdaði smíðar í
fyrstu en gerðist síðar umsjónar-
maður við íþróttahúsið í Mosfells-
sveit. Baldvin hætti störfum 1987.
Þann 16. maí 1937 kvæntist Bald-
vin Þórunni Elíasdóttur, f. 1. des-
ember 1916, d. 29. júlí 1990, húsmóð-
ur. Foreldfítr hennar voru Elías
Nikulásson, bóndi að Seljalandi í
Reykjavík og síðar að Bala í
Þykkvabæ, og kona hans, Krisín
Mensaldersdóttir.
Börn Baldvins og Þórannar era
níu:
Kristín, f. 19. ágúst 1936, póst-
freyja í Vestmannaeyjum, gift
Herði Runólfssyni og eiga þau þrjú
börn; Elías, f. 1. júní 1938, forstöðu-
maður, Vestmannaeyjum, kvæntur
Höllu Guðmundsdóttur og eiga þau
átta böm; Baldur Þór, f. 19. júní
1941, byggingarverktaki, kvæntur
Arndísi Steinþórsdóttur og eiga
þau tvö börn; Kristinn, f. 29. júní
1942, trésmíðameistari, Mósfells-
bæ, kvæntur Sigríði Jensdóttur og
eiga þau þrjú börn; Ragnar Þór, f.
31. desember 1945, bifvélavirki,
Vestmannaeyjum, kvæntur Önnu
Jóhannsdóttur og eiga þau fiögur
böm; Birgir Þór, f. 15. janúar 1952,
kennari í Mosfellsbæ, kvæntur
Halldóru Björnsdóttur og eiga þau
eitt barn; Hrefna, f. 23. janúar 1954,
launafulltrúi í Vestmannaeyjum,
gift Snorra Rútssyni og eiga þau
eitt barn; Gústaf, f. 30. ágúst 1957,
sölustjóri, Englandi, kvæntur
Önnu Gunnlaugsdóttur og eiga þau
þrjú böm; og Hörður, f. 25. nóv-
ember 1961, vélvirki, Reykjavík,
kvæntur Bjarneyju Magnúsdóttur
og eiga þau eitt bam.
Systkini Baldvins voru þrettán
og þar af fæddist eitt andvana: Sig-
ríður, dó ung; Sigurþór, fyrrum
bóndi á Rauðafelli, nú búsettur í
Þorlákshöfn, var kvæntur Berg-
þóru Auðunsdóttur sem nú er látin,
fimm börn þeirra era á lífi; Aðal-
björg, búsett í Reykjavík, hún var
gift Hermanni Guðjónssyni sem
lést í maí 1990, eiga þau þrjú böm;
Einar, búsettur í Reykjavík,
kvæntur Guðríði Konráðsdóttur og
eiga þau tvö börn; Ásta Ragnheið-
ur, búsett í Reykjavík, hún á eitt
barn; Georg, tvíburabróðir Bald-
vins, d. 16. mars 1988, húsvörður í
Vestmannaeyjum, kvæntur Sigur-
báru Sigurðardóttur og eiga þau
sex böm; Jakob, látinn; Sveinborg
Anna, saumakona í Reykjavík, hún
er látin; Rútur, trésmiður í Vík í
Mýrdal, kvæntur Guðbjörgu Jóns-
dóttur og eiga þau þijú börn; Guð-
fmna, lést ung; Guðmann, starfs-
maður ÍSAL, búsettur í Hafnar-
firði, kvæntur Ósk Alfreðsdóttur
og eiga þau tvö böm; og Knstinn,
starfsmaður Skógræktar ríkisins,
búsettur í Kópavogi, kvæntur Þor-
björgu Jóhannesdóttur og eiga þau
fiögurbörn.
Foreldrar Baldvins voru Skær-
ingur Sigurðsson, f. 14. mars 1886,
d. 27. febrúar 1973, bóndi, og Krist-
ínÁmundadóttir, f. 15. mars 1886,
d. 29. september 1932. Þau bjuggu
að Rauðafelli undir Austur-Eyja-
fiöllum.
Skæringur var þriðja barn hjón-
anna á Rauðafelli, þeirra Jakobínu
Steinvarar Skæringsdóttur og Sig-
urðar Sveinssonar. Jakobína Stein-
vör var fædd 8. ágúst 1858, dóttir
hjónanna í Skarðshlíð, Guðlaugar
Baldvin Skæringsson.
Eiríksdóttur frá Húsagarði á Landi,
sem var af Bolholtsætt, og Skær-
ings Árnasonar bónda.
Sigurður, faðir Skærings, var
fæddur 10. ágúst 1851. Hann var af
Selkotsættinni, fimmti hður frá
ættfóðurnum Jóni ísleifssyni, lög-
réttumanni í Selkoti.
Kristín, móðir Baldvins, var fædd
að Bjólu í Holtum. Hún var dóttir
hjónanna Ragnheiðar Eyjólfsdótt-
ur Björnssonar, b. í Þorlákshöfn
ogHerdísarvík, Oddssonar, b. að
Þúfu í Ölfusi, og Ámunda Filipus-
sonar Þorsteinssonar Vígfússonar,
b.íBjólu.
afmælið 30. ágúst
85 ára
Sigurbjörg Magnúsdóttir,
Úthagal4, Sclfossi.
daginn.
Björg Magnúsdóttir,
Meistaravöllum 25, Reykjavík.
Edda Lúðvíksdóttir,
Hólum, Nesjahreppi.
Guðmundur Gunnarsson,
80 ára
Kristján Arngrímsson,
Hörðalandi 8, Reykjavík.
Vanabyggöl7,Akureyri. t
Þorvaldur Snæbjörnsson,
Kotárgerði 18, Akureyri.
Sigrún Helga Ólaf'sdóttir,
Álfaskeiði 72, Hafnarfirði.
Elín Eliasdóttir,
Ytra-Hóli2, Öngulsstaöahreppí.
70ára
Steinn Simonarson,
Arnarhvoli, Dalvík.
Marinó Þorsteinsson,
Víðilundi 20, Akureyri. Hann d vel-
ur nú í Geitlandi 4, Reykjavík.
AnnaP. Sigurðardóttir,
Hásteinsvegi 64, Vestmannaeyjum.
Guðmundur Hermannsson,
Hraunbæ 72, Reykjavík.
Svavar Helgason,
Öldustíg 10, SauðárkrókL
Jakobína Anna Magnúsdóttir,
Eyrarlandsvegi 27, Akureyrí.
50ára
Örn Sigurðsson, Mávahlíð 23, Reykja vík.
40ára
60 ára
Helmuth Alexander Guðmunds-
son,
Brekkubæ 38, Reykjavík.
Sólveig Brynjólfsdóttir,
Löngumýri 14, Garðabæ.
Vilhelmína Haukdóttir,
Víðihlíð 26, Reykjavík.
Sigríður Arngrímsdóttir,
Snorrabraut 83, Reykjavík.
HrafnhildurHrafnsdóttir,
Brekkubæ 37, Reykjavík.
Jane Petra Gunnarsdóttir, Halla Þórðardóttir,
Nónvörðu 10D, Keflavík. Hún tekur Skúlaskeiði 3, Hafnarfiröi.
á móti gestum i Kirkjulundi í Kefla- Kristín Jónsdóttir,
vik effir klukkan 20.00 á aftnælis- Áshlíð 12, Akureyri.
Richard Jónsson
Richard Jónsson vaktmaður,
Möðrufelh 9, Reykjavík, er sjötugur
í dag. Richard er fæddur í Reykjavík
og ólst upp með systkinum sínum í
miðbæ Reykjavíkur hjá foreldrum
sínum og föðurömmu. Hann byrjaði
að vinna sem sendill hjá málningar-
verksmiðjunni Hörpu hf. fiórtán
ára, vann síðan hjá Hörpu hf. í sam-
tals 48 ár og var um árabil verk-
stjóri þar. Richard vinnur nú sem
vaktmaður hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins í Kópavogi. Hann er söng-
maður og hefur stundað mikið
hestamennsku og útivera. Richard
kvæntist 1948 Erlu Þórðardóttur, f.
26. desember 1928. Foreldrar Erlu
eru: Þórður Erlendsson verkamað-
ur og kona hans, Þórdís Guðmunds-
dóttir. Dætur Richards og Erlu era:
Guðrún Halldóra, f. 8. apríl 1947;
Þórdís, f. 3. nóvember 1951, og Ingi-
björg, f. 18. mars 1953. Richard og
Erla eiga sex barnabörn: Snædísi
Erlu, f. 7. janúar 1970; Aslaugu, f.
14. aprh 1973; Richard, f. 14. júní
1976; Trausta, f. 10. október 1976;
Erlu, f. 20. mars 1979, og Jón, f. 22.
janúar 1981. Systkini Richards era:
Anna Hulda, f. 29. júh 1916, býr í
Ameríku; Marta, f. 27. mars 1918;
Sigurður Þórrf. 8. ágúst 1922, býr í
Svíþjóð; Guðmundur, f. 19. ágúst
1924; Sigurveig, f. 27. júlí 1926, og
Helga, f. 2. ágúst 1930.
Foreldrar Richards voru: Jón Sig-
urðsson, f. 8. júh 1892, d. 19. nóvemb-
er 1973, skipstjóri á Gullfossi, og
fyrri kona hans, Guðrún Halldóra
Sigurðardóttir, f. 1. apríl 1888, d.
1948. Seinni kona Jóns var Dýrfinna
Tómasdóttir. Jón var sonur Sigurð-
ar, formanns í Móakoti á Vatns-
leysuströnd, Þorlákssonar og konu
hans, Þuríðar Þorbergsdóttur frá
Stóruvöhum í Landsveit. Guðrún
Halldóra var dóttir Sigurðar, sjó-
manns á Lambastöðum á Seltjarn-
Richard Jónsson.
amesi, Ingjaldssonar og konu hans,
Jónveigar Jónsdóttur. Richard
heldur upp á afmælisdaginn í sum-
arbústað í Borgarfirði.
ER SMÁAUGLÝSINGA
BLADID
SIMINNER