Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1990, Qupperneq 28
!6
FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990.
Afmæli
Guðmundur Kristinn Gunnarsson
Guðmundur Kristinn Gunnarsson
fuUtrúi, Vanabyggð 17, Akureyri, er
sextugurídag.
Guðmundur fæddist að Gestsstöð-
um, Noröurárdalshreppi í Mýra-
sýslu og átti þar heimili til ársins
1945 og á Hafþórsstöðum í sömu
sveit til 1948. Guðmundur lauk
landsprófi við Gagnfræðaskóla
Austurbæjar 1947, stúdentsprófi við
stærðfræðideild MR vorið 1951 og
stundaði framhaldsnám við Kenn-
araháskólann í Kaupmannahöfn
veturinn 1967-68. Hann var kennari
við Héraðsskólann að Laugum, S-
. j Þingeyjarsýslu 1951-73, skattendur-
skoðandi og síðar fulltrúi við Skatt-
stofu Norðurlandsumdæmis eystra
1973-84, starfsmaður við Iðnlána-
deild SÍS á Akureyri 1984- 85, en
aftur í starfi hjá Skattstofu Norður-
landsumdæmis eystra frá 1985.
Jafnframt kennslu var Guðmundur
forstöðumaður útibús Kaupfélags
Þingeyinga að Laugum 1964-65.
Hann var formaður Karlakórs
Reykdæla 1959-72, í stjóm Heklu -
sambands norðlenskra karlakóra
l%l-75 og í stjóm Karlakórsins
Geysis á Akureyri 1974-77. Guð-
mundur var einn af stofnendum
Lionsklúbbsins Náttfara í S-Þing-
eyjarsýslu og formaður klúbbsins
1969-70. Hann var formaður Lions-
klúbbsins Hugins á Akureyri 1977-
78 og aftur 1985-86 og formaður sam-
starfsnefndar BSRB á Akureyri
1981-83. Guðmundur er höfundur
Árbókar Ferðafélags íslands um
Ódáðahraun 1981 og hefur auk þess
skrifað ferðaþætti og minningar-
greinar í blöð og tímarit. Hann hefur
oft verið þátttakandi í spurninga-
þáttum í sjónvarpi og útvarpi.
Guðmundur kvæntist þann 21.
desember 1954 Þórhildi Árnfríði
Jónasdóttur, nú ráðskonu við mötu-
neyti starfsmanna Mjólkursamlags
KEA. Þórhildur er fædd 1. júní 1930
að Helluvaði, Mývatnssveit. For-
eldrar hennar era Jónas Sigurgeirs-
son, bóndi að Helluvaði, og kona
hans, Hólmfríður ísfeldsdóttir.
Böm Guömundar og Þórhildar
em:
Kristín Hólmfríður, f. 21. septemb-
er 1954, deildarmeinatæknir við
Sjúkrahús Húsavíkur, gift Sölva
Jónssyni vélstjóra, f. 25. janúar 1954
í Flatey á Skjálfanda, og böm þeirra
em Arnhildur Eyja, Borghildur ína
og GunnarÓli;
og Elín Gunnhildur, f. 21. nóvemb-
er 1959, við doktorsnám í efnafræði
við Tækniháskólann í Vestur-Berl-
ín.
Guðmundur Kristinn Gunnarsson.
Foreldrar Guðmundar voru
Gunnar Daðmar Guðjónsson, bóndi
að Gestsstöðum, Norðurárdals-
hreppi, Mýrasýslu, f. 7. september
1899, d. 5. janúar 1949, og kona hans
Krisín Jóhannsdóttir frá Litla-
Bakka, Miðfiröi, Vestur-Húnavatns-
sýslu, f. 22. júní 1894, d. 25. ágúst
1987.
í tilefni af sextugsafmælum sínum
taka þau hjón Þórhildur og Guð-
mundur á móti gestum á heimili
sínu laugardaginn 1. septemberfrá
klukkan 15.00.
Jakobína Anna Magnúsdóttir
Jakobína Anna Magnúsdóttir hús-
freyja, Eyrarlandsvegi27 á Akur-
eyri, er sjötug í dag. Jakobína er
fædd á Grand í Amarneshreppi í
Eyjafirði. Hún var fiskvinnslukona
hjá Útgerðarfélagi Akureyringa í
nokkur ár og hefur verið starfsmað-
ur í Lystigarðinum á Akureyri á
sumrin mörg undanfarin ár. Jakob-
ína giftist 12. maí 1938 Garðari Bene-
dikt Ólafssyni, f. 19. október 1908,
fyrrv. efnisverði hjá Rafveitu Akur-
eyrar. Foreldrar Garðars em Ólafur
Sumarhðason, f. 30. apríl 1881, d. 4.
nóvember 1934, stýrimaður á Akur-
eyri, og kona hans, Jóhanna Bjöms-
dóttir, f. 16. apríl 1885, d. 18. mai
1939. Böm Jakobínu og Garðars em:
Jóhannes ÓU, f. 16. maí 1939, vaUar-
stjóri í Reykjavík, kvæntur Huldu
Jóhannsdóttur starfsmannastjóra;
Anna, f. 20. október 1941, verslunar-
maður í Rvík, gift Ólafi M. Ólafssyni
vélamanni; Magnús Öm, f. 11. júní
1951, skipstjóri í Rvík, sambýUskona
hans er HrafnhUdur Jóhannsdóttir
sjúkraUði; Kristján Bjöm, f. 15. fe-
brúar 1953, verkfræðingur í Ála-
borg, kvæntur Helgu Alfreðsdóttur
þroskaþjálfa; Ingvar, f. 9. apríl 1957,
rafmagnseftirUtsmaður á Ákureyri,
og Bergur, kjörsonur, f. 15. mars
1957, skipstjóri í Grundarfirði,
kvæntur Margréti Andersen Frí-
mannsdóttur. Systkini Jakobínu
em: Áslaug Ágústa, f. 1904, d. 1985,
b. á Syðstu-Gmnd í Arnarnes-
hreppi; Hildigunnur, f. 1905, d. 1961,
húsfreyja í ffykkvabæ í V-Skaftafell-
sýslu; Anna, lést í frumbernsku;
Friðrik, f. 1916, b. á Hálsi í Svarfað-
ardal, og Þorsteinn, f. 1919, vélstjóri
áAkureyri.
Foreldrar Jakobínu voru Magnús
Þorsteinsson, f. 1878, d. 1956, b.,
lengst á Syðsta-Kambhóli í Arnar-
neshreppi, og kona hans, Arnþrúð-
ur Friðriksdóttir, f. 1879, d. 1963.
Magnús var sonur Þorsteins, út-
vegsb. í Rauðuvík í Arnarnes-
hreppi, Vigfússonar, b. á Hellu á
Árskógsströnd, Gunnlaugssonar,
bróður Þorvaldar, afa Jóhanns Sig-
urjónssonar skálds og Kristínar,
móður Þorsteins Hannessonar
óperusöngvara og Jóhanns skóla-
meistara, föður Wincie, formanns
HÍK. Móðir Magnúsar var Ágústa
Guðmundsdóttir, smiðs í Kálfs-
skinni, Guðlaugssonar, b. og hrepp-
stjóra á Kálfsá í Ólafsfirði, Jónsson-
ar. Móðir Ágústu var Elín Sigfús-
dóttir, b. og hreppstjóra í Fagra-
skógi, Eyjólfssonar. Móðir Guð-
mundar var Arnbjörg Björnsdóttir,
systir Jóns, fóður Hákarla-Jörund-
ar, útvegsb. í Hrísey.
Amþrúður var dóttir Friðriks, b.
Jakobína Anna Magnúsdóttir.
og smiðs á Galmastöðum, Jóhanns-
sonar, b. og skipasmiðs í Syðri-
Haga, Einarssonar. Móðir Friðriks
var Amþrúður Jensdóttir Buchs,
b. og skálds á Ingjaldsstöðum, bróð-
ur Björns, afa Steingríms Steinþórs-
sonar forsætisráðherra. Jens var
sonur Nikulásar Buchs, b. á Laxa-
mýri, ættföður Buchsættarinnar, og
konu hans, Karenar Björnsdóttur
Thorlacius, kaupmanns á Húsavík,
Halldórssonar, biskups á Hólum,
Brynjólfssonar. Móðir Arnþrúðar
var Signý ljósmóðir, hún tók á móti
1125 börnum, Sveinsdóttir, b. í
Efsta-Samtúni, Tómassonar og
konu hans, Signýjar Ásgrímsdóttur.
Jakobína er að heiman í dag.
geröist yfirskoðunarmaður í radíó-
eftirliti Landsímans og starfaði hann
við radíóeftirlitið meðan þrek entist.
Eftirlifandi eiginkona hans er Valdís
Ólafsdóttir. Þau hjónin eignuðust
fjögur böm. Útför Sigurðar verður
gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 15.
Magnús T. Tómasson lést 16. ágúst.
Hann fæddist 19. júní 1917. Foreldrar
hans vom hjónin Vilhelmína Tómas-
dóttir og Jónas Magnússon. Magnús
vann lengst af hjá Eimskipafélagi
íslands. Eftirlifandi eiginkona hans
er Ingveldur Guðjónsdóttir. Þau
hjónin eignuðust einn son. Útför
Magnúsar verður gerð frá Dómkirkj-
unni í dag kl. 13.30.
Aðalbjörn S. Gunnlaugsson kennari,
Lundi, Öxarfirði, verður jarðsunginn
frá Skinnastaðarkirkju laugardag-
inn 1. september kl. 14.
Tónleikar
Björk sykurmoli
syngur á Borginni
Björk Guömundsdóttir sykurmoli syngur
meö triói Guðmundar Ingótfssonar á
Hótel Borg í kvöld, fimmtudagskvöld, kl.
22.
Tónleikar í Firðinum
Rokkabillíband Reykjavikur verður með
tónleika í veitingahúsinu Firðinum,
Hafnarfirði, í kvöld, fimmtudag, kl. 22.
Húsið verður opnað kl. 21.30 og er gestmn
bent á að mæta tímanlega. Á Nillabar
skemmtir Guðmundur Rúnar gestmn
fram á nótt.
Tónleikar í Garðabæ
Lokatónleikar Sigurðar Halldórssonar
sellóleikara og Daníels Þorsteinssonar
píanóleikara á hringferð þeirra um
landið verða haldnir í safnaðarheimilinu
Kirkjuhvoli í Garðabæ fostudagskvöldið
31. ágúst kl. 20.30.
THkyimingar
Myndverk barna sýnd
í Gerðubergi
Þessa dagana stendur yfir sýning á
myndverkum barna í menningarmið-
stöðinni Gerðubergi. Vérkin voru unnin
í Listsmiðjunni Gagn og gaman í sumar
og eru viðfangsefni þijú: hafið, blóm og
ekki er allt sem sýnist. Laugardagana 1.
og 8. september verður leiðsögn mn sýn-
inguna. Starfsmaður Listasmiðjunnar
kynnir aðferðir hennar og markmið.
Sýningin verður opin kl. 10-21 mánudag
til fimmtudags en kl. 13-16 á fóstudögum
og laugardögum. Sýningunni iýkur 8.
september.
Félagsmálaráðuneytið gefur
út úrskurði
á sviði sveitarstjórnarmálefna
ogfl.
Félagsmálaráðuneytið hefur gefið út úr-
skurði sína á sviði sveitarstjómarmál-
efna, byggingar og skipulagsmála 1986-
1989. Samkvæmt sveitarstjómarlögum
skal félagsmálaráðuneytið gefa út úr-
skurði sína í sveitarstjórnarmálum. Fé-
lagsmálaráðherra er skylt að skera úr ef
viss ágreiningur rís í sambandi við fram-
kvæmd byggingar- og skipulagsmála.
Úrskurðir ráðuneytisins á sviði bygging-
ar; og skipulagsmála hafa mikið upplýs-
inga- og fordæmisgildi fyrir sveitar-
stjómir og almenning og hefur félags-
málaráðherra því ákveðið að birta einnig
þá úrskurði sem kveðnir hafa verið upp
á sviði byggingar- og skipulagsmála
.1986-1989. Úrskurðimir verða til sölu hjá
Sambandi íslenskra sveitarfélaga að Háa-
leitisbraut 11-13 í ReyKjavík og kosta kr.
1,000.
Húnvetningafélagið
Spilað laugardaginn 1. september kl. 14 í
Húnabúð, Skeifunni 17. Allir velkomnir.
Flóamarkaður Félags
einstæðra foreldra
verður í Skeljahelli, Skeljanesi 6, næstu
laugardaga, 1., 8., 15. og 22. september,
kl. 14-17. Hitt og þetta á góðu verði. Leið
fimm að húsinu.
Orðasafn úr tölfræði
Út er komið á vegum íslenskrar mál-
nefndar Orðasafn úr tölfræði, bæði ís-
lenskt-enskt og enskt-íslenskt. I því er að
finna nærri 800 íslensk heiti og rúmlega
600 ensk á tæplega 500 hugtökum úr töl-
fræði. Flest hugtök em skýrð eða skil-
greind á íslensku. Höfundar þessa orða-
safns em fjórir kunnir tölfræðingar:
Helgi Þórsson, Hólmgeir Bjömsson, Sig-
rún Helgadóttir og Snjólfur Ólafsson.
Fyrir tveimur ámm sendu þau frá sér
Lítið orðasafn úr tölfræði en það hefur
nú verið aukið mjög og endurbætt. Auk
höfunda hafa margir sérfræðingar komið
við sögu þessa nýja oröasafns. Ritstjórar
em Sigrún Helgadóttir og Snjólfur Olafs-
son. Orðasafn úr tölfræði er fimmta ritið
í ritröð íslenskrar málnefndar og er 60
bls. Það verður til sölu í Bóksölu stúd-
enta.
Vetraráætlun SVR
aukin tiðni ferða
Mánudaginn 3. september tekur vetrará-
ætlun SVR gildi. Þá eykst tíðni ferða á 9
leiðum. Vagnar á leiðum 2-7 og 10-12 aka
á 15 mín tíðni kl. 07-19, mánudaga til
fóstudaga. Akstur á kvöldin og um helgar
á áðurtöldum leiðum er óbreyttur. Vagn-
ar á leiðum 8-9 og 13-14 aka á 30 min.
fresti alla daga, einnig á kvöldin. Helgina
1. og 2. september verður skipt um leiða-
spjöld á viðkomustöðum SVR. Leiðabók
SVR bh-tir nánari upplýsingar um ferðir
vagnanna.
Tapað fundið
Fressköttur tapaðist úr
Grafarvogi
Grábröndóttur fressköttur tapaðist úr
Grafarvogi 15. ágúst sl. Hafi einhver orð-
ið hans var eða viti hvar hann er niður-
kominn er hann vinsamlegast beðinn að
láta vita í síma 675778.
Kvenúr fannst
Kvenúr fannst í Landsbankanum, Lauga-
vegi 77, í gær. Eigandi getur vitjaö þess
í afgreiðslu bankans.
Hjól tapaðist
úr Fossvogi
Grátt 10 gíra karlmannsreiðhjól hvarf frá
Haðalandi 12 aðfaranótt fimmtudagsins
23. ágúst sl. Finnandi vinsamlegast hringi
í síma 36560.
Andlát
Gunnsteinn Jóhannsson, Þómfelli
12, lést á Landspítalanum að morgni
28. ágúst.
Una Helgadóttir andaðist í sjúkra-
húsi Vestmannaeyja þriðjudaginn
. ^28. ágúst.
Jarðarfarir
Sigurbjörg Pálsdóttir, Sólvallagötu
43, verður jarðsungin frá Fríkirkj-
unni í Reykjavík föstudaginn 31.
ágúst nk. kl. 15.
Bergrós Jónsdóttir, Hvassaleiti 10,
verður jarðsungin frá Langholts-
kirkju föstudaginn 31. ágúst kl. 13.30.
Guðlaug G. Westlund, sem andaðist
á Elli- og hjúkmnarheimilinu Gmnd
22. ágúst, verður jarðsungin frá Foss-
■Vogskirkju föstudaginn 31. ágúst kl.
10.30.
Marín S. Guðmundsdóttir, Barma-
hlíð 18, verður jarðsungin frá Há-
teigskirkju föstudaginn 31. ágúst kl.
13.30.
Guðrún Tómasdóttir, áður til heimil-
is að Hæðargarði 28, veröur jarð-
sungin frá Fossvogskirkju föstudag-
inn 31. ágúst kl. 15.
Sigurður Tómasson lést 22. ágúst.
hann fæddist þann 10. júní 1933 í
Reykjavík. Foreldrar hans voru
Magnea Dagmar Sigurðardóttir og
Tómas Sigvaldason. Að loknu gagn-
fræðaskólanámi hóf Sigurður nám
við Loftskeytaskólann og útskrifað-
ist þaðan árið 1954. Hann fór þá til
Englands á námskeið í radíó-viðgerð-
um. Eftir heimkomuna hóf Sigurður
störf hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur
og starfaði þar næstu 9 ár. Hann
starfaði við fjarskiptastöðina í Gufu-
nesi frá árinu 1963 til 1986 er hann
FjöLmiðlar
Vesturbæjarrisinn
Sjálfsagt hafa margir vesturbæ-
ingar fellt tár í gærkvöldi þegar úr-
slitin í bikarkeppninni lágu fyrir.
Enn verður „gamla góða KR" að
bíða eftir alvöratitli og er sú bið
oröinæðilöng.
Leikinn þurfti að útkljá með víta-
spymukeppni eins og sjónvarpsá-
horfendur tóku eftir. Ekki var um
neitt annað að ræða því að ómögu-
legt er að láta liðin spila um bikar-
inn fram tiljóla. Þaö eru heldur
ekki tíl nein ílóðljós á Laugardals-
vellinum en nú hlýtur að verða gert
eitthvaö í því. Myndataka Sjón-
varpsins var heldur ekki ypp á
marga fiska og glögglega kom í Ijós
að íþróttamyndatökur era óplægður
akur hérlendis. Leikurinn í gær var
ekki merkilegur og ljóst er að fjár-
festing KR-inga (Atli, Pétur, Ragnar
o.fl.) hefur ekki skilað tilætiuðum
árangri. Og í beinu framhaldi tek
ég undir með manninum sem sagði
að miklu einfaldara væri fyrir KR
að kaupa hreinlega annan alvöru-
bikaranna. Annars virtist stemn-
ingih á vellinum vera ágæt. Áhorf-
endur sungu Ole Ole, svona eins og
þeir gerðu á HM en ég vona að
ýmis önnur tilbrigði tengd HM hafi
verið látin eiga sig. Þar má t.d. nefna
ólæti Breta eftir ósigur sinna manna
gegnÞjóöverjum. Þaðhefðiekki
verið góð auglýsing fyrir íslenskan
bolta ef vesturbæingar hefðu ráðist
á eignlr þeirra Valsmanna sem bú-
settir eru vestur í bæ. Við þurfum
þó ekki að kvarta vegna vandræða.
Þaö er einna helst að einstaka stríp-
alingur sé til vandræða en orsök
þess tel ég þó vera fádæma getu-
leysilögreglunnar.
Gaman væri að vita hver væri
„bónus" leikmanna fyrir að vinna
hina ýmsu sigra og þ.m.t. í bikar-
keppninni. Reyndar á ég ekki von á
því að það komi nokkum tímann
fram í dagsljósið enda eru félaga-
skipti og umbun leikmanna orðin
slíkt feimnismál að með ólíkindum
þykir. Það vita allir um þessa hluti
en enginn þorir eða má segja frá.
Ekki hefði ég viljað vera í sporum
KR-inga í gærög í dag, hvorki leik-
manna né stuðningsmanna. Þeir
eru auövitað sárir og svekktir og
betra aö fara vel að þeim. Ég hef
reyndar ekkert rekist á ritstjórann
hér í morgun en sennilega er þetta
ekki rétti dagurinn til að biðja um
kauphækkun.
Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson