Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1990, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1990, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1990. Fréttir DV Valgeir Sveinsson, ellefu bama faðir sem fannst í Papey í gær: Fylgdist með leitinni að sjálf um sér í útvarpinu - „mér brá er ég heyrði að búið væri að leita við eyna“ Valgeir Sveinsson sagöist alltaf hafa veriö viss um aö leitarmennirnir kæmu. DV-mynd JAK Jaf ntef li í biðskákinni Sjöttu einvígisskák Karpovs og Kasparovs, sem fór í biö í fyrri- nótt, lauk meö jafntefli án þess að biðstaðan yrði tefld áfram. Ka- sparov bauð jafntefli í gærmorgun og Karpov þáði eftir nokkurra stunda umhugsun. Helsti aðstoðar- maður Karpovs, ungverski stór- meistarinn Lajos Portisch, kom boðum hans til skila. Kasparov hafði vinningsfæri í skákinni eftir peðsfóm en lék óná- kvæmt undir lok setunnar. Rann- sóknir á biðstöðunni sýndu að vamir Karpovs héldu. Biðleikur- inn var 42. He8. Sjöunda skákin verður tefld í kvöld og nótt og þá hefur Karpov, sem hefur 2,5 v. gegn 3,5 v. heims- meistarans, hvítt. -JLÁ „Mér leist ekkert á blikuna þegar ég heyrði í útvarpinu í bústaðnum í gærmorgim að tvisvar væri búiö að leita að mér í Papey - hélt að þeir kæmu ekki aftur í bráö. Þá fór ég að búa mig undir langa dvöl og hugsaði um magann. En ég vissi alltaf að leit- armennirnir kæmu,“ sagði Valgeir Sveinsson, rúmlega sextugur Reyk- víkingur sem fannst í Papey síðdegis í gær. Þar hafði hann hafst viö á býli í eynni eftir að trilla hans steytti á skeri og sökk á miðvikudag. Honum tókst að komast á gúmbát að eyj- unni. Valgeir er ellefu bama faðir og er búsettur í Vestmannaeyjum. Hann hlaut stórt branasár á fæti þegar hann var að huga að ’flugeldi sem hann ætlaði að gera vart við sig með í eynni á miðvikudagskvöld: „Ég var að lesa leiðbeiningamar á rakettunni þegar blossinn kviknaöi. Hún skaust af staö og lenti undir mér. Mig logsveið - hnefastór blettur á fætinum varð svartvu-. Það kvikn- aði í eldhúsgólfinu og allt fylltist af reyk. Ég klæddi mig úr buxunum, hökkti út á annarri löppinni til að anda en fór svo í stígvél tíl að stappa eldinn niður með fótunum." Um klukkan 13.30 á miðvikudag var Valgeir að skipta um olíusíu í trillu sinni við Papey þegar báturinn steytti á skeri við Flateyjarbót: „Ég náði ekki að kalla í talstööina - vildi frekar bjarga mér. Ég henti gúmmíbátnum út þegar trillan var uppi á skerinu. Hann blés út á hvolfi. Ég náði að rétta hann við eftír nokkr- ar mínútur, tók vinnuflotgalla, nest- ispoka og hitabrúsa og stökk svo í gúmmíbátinn. Síðan kom fylla og trillan steinsökk. Mér gekk illa að komast aö Papey vegna straumkasts en náði um síöir taki á þara tíl að draga mig í land. Það tók mig svo þijá tíma að finna býhð í þokunni. Mér gekk illa að sofa um nóttina vegna branasársins á fætinum. Eg var svo aö hella upp á kaffi í býlinu þegar björgunarmennimir komu. Verst var að ég var löngu orð- inn sígarettulaus. Þegar ég gekk svo út úr húsimi í gær með mönnunum sá ég tvo pakka á hillu fyrir ofan dyrnar. Ég hafði ekki tekið eftir þeim - var raunar farinn að hugsa um aö hætta bara að reykja," sagði Valgeir Sveinsson. Hann fór á Landspítalann í morgun þar sem hugað var frekar að branasárum hans. „Við sáum gúmmíbátinn hans, fór- um að býlinu - en Valgeir var ekki heima. Hann var þá í sumarbústaðn- um að hella upp á könnuna. Fegnir voram við að sjá hann. Og hann okk- ur. Ég sagöi: „Vertu ekkert að hella upp á.“ Hann hváði en ég sagði: „Við forum bara í land,“,“ sagði Stefán Aðalsteinsson við DV, einn þeirra fimm sem björguðu Valgeiri. -ÓTT GATT viöræöur knýja á um innflutning landbúnaöarvara: Stef nt að 4 milljarða lækkun á stuðningi - segir JónSigurössonviöskiptaráöherra Að sögn Jóns Sigurðssonar við- skiptaráðherra er gert ráð fyrir tæp- lega fjögra milljarða króna lækkun á stuðningi við landbúnað hér á landi á næstu fimm árum. Viðskiptaráð- herra vitnaði þama til tillagna sem sendar hafa verið út til undimefndar um viöskipti með landbúnaðarvörar sem starfar á vegum GATT. Þetta kom fram á fundi sem bændasamtök- in héldu á Hótel Sögu í gær um GATT viöræðurnar. Engar tillögur hafa því formlega verið lagðar fram í GATT viðræðun- um enda bíða íslensk stjómvöld eftir tillögum Evrópubandalagsins. Við- skiptaráöherra benti á hvemig heild- arstuðningur til landbúnaðar hér á landi hefði verið reiknaður. Miðað við áætlaðar tölur til fjárlaga fyrir árið 1991 er hann 14.020 milljónir króna. í þeim drögum að tillögum sem sendar hafa verið út er reiknað með að útflutningsbætur lækki um 65% og stuðningur (AMS-stuðningur) lækki um 25%. Miðað við áðumefnd- ar tölur í fjárlögum 1991 er um að ræða 3.920 milljóna lækkun á árleg- um stuðningi við lcmdbúnað til 1996. Steingrímur J. Sigfússon land- búnaðarráðherra hreyfði reyndar mótmælum við þeim lækkunartölum sem viðskiptaráðherra nefndi og sægði að þær yrðu á bilinu 15-25% og 45-65%. Viðskiptaráöhema tók síðan fram að hann gerði ráð fyrir því aö niðurstaðan hjá GATT yrði sú aö um „skarpari breytingar" yrði að ræða. Viðskiptaráðherra sagði að óttí viö innflutning landbúnaðarvara væri ástæðulaus og sagði að slíkt hlyti að fylgja í kjölfarið á þessum GATT til- lögum. Sagði hann að fyrst í stað mætti gera ráö fyrir innflutningi á vörum eins og ostum, jógúrt, mjólk- urís og unnum kjötvörum eöa land- búnaðarvörum sem fallið gætu undir iðnaöarvörur. Nefndi hann einnig til pastarétti og kartöfluréttí. Nefndi hann til dæmis að ísland væri nú eina EFTA landið sem ekki leyföi innflutning á jógúrt. Sagði hann að innlendir framleiðsluaðilar ættu ekki að óttast samkeppnina og yrði beitt veröjöfnunargjaldskerfi til að jafna aðstööu. Benti hann á aukin þrýsting innan EFTA inn að ná sam- stöðu um útvíkkun á Usta um þær vörategundir sem falli undir verð- jöfnunarkerfi og því heimilar til inn- flutnings. -SMJ Bjöm Valdimarsson, bæjarstjóri á Siglufirði: Álver Alumax í Suður-Karólínu: Greiðir 35 mills fyrir raforkuna „Raforkuverðið tengist heims- markaðsverði á áli sem verið hefur mjög hátt. Því höfum viö borgað hámarksorkuverð síðastliðin tvö ár eða 34-35 mills. Aðeins tvær ál- bræðslur í Bandaríkjunum sem greiða hærra raforkuverö," sagöi Kerry Farmer, framleiöslustjóri í ál- veri Alumax í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum, á ftmdi með ís- lenskum blaðamönnum. Kerry Farmer sagði að 23 mills væri þaö minnsta sem álverið hefði greitt fyrir raforku. Hefði raforku- verð verið um 34 mills þegar álverið var byggt, fyrir ellefu árum, hefði hins vegar aldrei oröið af byggingu þess. Álverið er sagt eitt best rekna álver í heimi, rekið með tæplega 95 prósent aflcöstum. Meðalraforku- verð til slíkra fyrirtækja í Bandaríkj- unum mun vera um 26 mills. „Það er ekki hátt raforkuverð sem Atlantal hefur hugsað sér að greiða hér og eðlilegt aö menn spyrji sig hvaöa orkuverö íslendingar séu aö semja um, um 17 mills. Það er þó ekki það lægsta. Ég minni bara á Venesúela," sagði Páll Pétursson al- þingismaður sem sæti á í samninga- nefnd Landsvirkjunar um orkuverð tilnýsálvers. -hlh Börnin gleymdust í verk- gleði fyrrverandi meirihluta - útilokað að hefla framkvæmdir við nýtt bamaheimili á þessu ári „Við vitum að það er ófremdar- ástand á barnaheimilinu. Þegar nú- verandi meirihlutí í bæjarstjóm tók við síðastliðið vor var ákveðið að setja byggingu á nýju heimili fremst á framkvæmdalistann. Reyndar er það eina framkvæmdin sem við fyr- irhugum á kjörtímabilinu. Fjárhags- staðan er hins vegar svo slæm að það er með öllu útflokað að við getum hafið framkvæmdimar á þessu ári,“ segir Bjöm Valdimarsson, bæjar- stjóri á Siglufirði. Eins og skýrt hefur verið frá í DV hefur bamaheimiliö á Siglufirði ver- ið úrskurðað heilsuspillandi fyrir bæði böm og starfsfólk og hafa heil- brigðisyfirvöld fariö fram á aö starf- seminni veröi hætt. Að sögn Bjöms eiga bæjaryfirvöld í miklum erfið- leikum með að koma fjármálum bæj- arins í lag eftir viðskilnað fyrri meirihluta. „Bömin urðu einfaldlega útímdan við allar verklegar framkvæmdir í bænum á undanfómum áram. Það vora settar á annaö hundrað milljón- ir í íþróttaframkvæmdir og annað eins í dvalarheimih fyrir aldraða. Einxúg voru miklar upphæöir settar í gatnaframkvæmdir. Hins vegar var nýtt barnaheimili látíð sitja á hakan- um. í tíð fyrrverandi meirihluta var bæjarsjóður rekinn með miklu tapi og hluti framkvæmdanna flármagn- aður með lánsfé. Af því súpum við seyðið nú.“ Bjöm segir að trúlega veröi hægt aö ráðst í byggingu nýs bamaheimil- is á næsta ári eftir að böndum hefur verið komið á skuldimar. Hann segir trúlegt að Jöfnunarsjóður sveitarfé- laga muni að einhverju leyti taka þátt í þessum framkvæmdum. Núverandi meirihluta í bæjar- stjóm Sigluflarðar mynda Alþýðu- flokkur og Listi óháöra en fyrrver- andi meirihluta mynduðu Alþýöu- bandalag, Framsóknarflokkur og Sj álfstæðisflokkur. -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.