Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1990, Blaðsíða 9
FÖSTUD'ÁCUR26rOKTÖBE'R T9'90:
Útlönd
Syses falli
Stjómarkreppa virtist óumflýj- breytt til að auðvelda erlendum
anleg í Noregi í gær et'tir að Kaci aðilum landakaup. Miðflokkurinn
Kullman Five viðskiptaráðherra er liins vegar mótfallinn slíkum
lýsti því yfir á þingi að aðildarríki breytingum.
Fríverslunarbandalags Evrópu, Umræðurnar á norska þinginu
EFTA-ríkin, yrðu að vera sveigjan- snúast nú ekki um það hvort
leg í öilum atriðum í samningavið- stjórnin falli lieldur hvenær. Bæði
ræðunum við EB, Evrópubanda- Hægri flokkurinn og Kristilegi
Iagið. Það hefur sett sem skilyröi í þjóðarfiokkurinn segja að það
viöræöunum um sameiginlegt evr- veröi að vera Jjóst fyrir mánudag-
ópskt efnahagssvæði að erlend ríki inn hvort stjómarflokkarnir nái
fái aö kaupa Iand í Noregi. samkomulagi eða ekki. Framfara-
Hægriflokkurinn,semerflokkur flokkurinn mun á mánudaginn
viðskiptaráöherrans og Syse for- leggja fram tillögu um að Noregur
sætisráðherra, heldur því fram að verði við kröfu EB og breýti lögun-
meirihluti sé fyrir því á þingi að um.
leyfislögunum svokölluðu veröi ntb
fm HUJ Þi jóla 5FÉLÖG É etta er * itilboð
Billermann 0 Olénesse County Cord teppi fyrir STIGAGANGA
~1995 á komið<# N* |y Pantið tímanlega . Byggingamarkaður Vestu Ik BlfciA Hringbraut 120, Opið laugardaga ki. 10-14 teppadeild, símar 28605 og 2861 5 ára bletta- og slitábyrgð rbæjar in Æ
Örþrifaráð grænlensku landstjómarinnar:
Neyðir útgerðar-
menn til að hætta
- dýr veiðileyfi gera útgerðina vonlausa
Grænlenska landstjórnin hefur
ákveðið að krefjast hárra fjárhæða í
veiðileyfi af útgerðum rækjutogara í
þeim tilgangi að útgerðarmenn gefist
upp og selji togarana. Ofveiði blasir
nú við á öllum rækjumiðum við
Grænland og er stjórninni þvi nauð-
ugur einn kostur að takmarka út-
gerðina.
Ekki verður farið út í að koma á
kvótakerfi að íslenskri fyrirmynd en
þess í stað verður sjálfstæðum út-
gerðarmönnum gert að greiða fyrir
veiðileyfi. Úgerðarmenn segja að
þeim sé nauðugur einn kostur að
leggja árar í bát og selja togara sína.
Máhð hefur valdið hörðum deilum
á landsþinginu og hefur landsstjórn-
in viðurkennt aö tilgangurinn með
sölu veiðileyfa sé að draga úr sókn í
rækjustofninn. Hugmyndin er að út-
gerðir verði sameinaðar og einhverj-
ir togarar seldir úr landi.
Nái hugmyndin fram að ganga er
talið að veiðileyfin skili 1,3 milljörð-
um íslenskra króna í landsjóðinn en
ætlunin er að verja mestu af þeim
peningum í aðstoð við sameiningu
útgerðarfyrirtækja. Hér er því að
hluta til verið að færa peninga úr
einum vasa í annan í von um að það
bjargi einhveijum hluta rækjuút-
gerðarinnar við Grænland.
Grænlenska landstjómin telur að
útilokað sé að selja togara fyrir það
verð sem útgerðirnar þurfa að fá fyr-
ir þá. Mismuninn æflar landsjóður
að greiða. Áætlað er að*nota allt að
milljarði íslenskra króna til að greiða
með togurum sem seldir eru úr landi.
Bæði útgerðarmenn og bankarnir,
sem eiga mikla peninga hjá útgerð-
unum, segja að milljarður sé ekki
nóg því að togarar gangi á lágu verði
í heiminum um þessar mundir, sér-
staklega vegna þess að Færeyingar
þurfa á sama tíma að selja marga
togara.
Talið er að útgerðarfélög á Græn-
landi skuldi ekki minna en 10 millj-
arða íslenskra króna og hafa græn-
lenskir bankar lánað um helminginn
af þeirri fjárhæð. Afgangurinn hefur
verið fenginn 'að láni í Danmörku.
Bankamenn á Grænlandi segja að
bankarnir þar þoh alls ekki að tapa
þeim peningum sem þeir hafa lagt í
útgerðina og því verði landstjómin
aö taka á sig hluta af áfallinu ef
margar útgerðir verða gjaldþrota.
Ritsau
Grænland:
Færeyingahöfn
seld Færeyingi
Nýir eigendur hafa nú tekið við
frystihúsinu í Færeyingahöfn fyrir
sunnan Nuuk á Grænlandi. Við lá
aö fiskverkun þar legðist niður
vegna fjárhagserfiðleika þegar fær-
eyskur skipstjóri að nafni Kaj Hjal-
grimsson ákvað að bjóða í alla að-
stöðu í landi, þar á meðal sjálfa höfn-
ina. Hann greiðir aðeins 200 þúsund
danskar krónur fyrir frystihúsið.
Þaö svarar til tæplega tveggja milljón
íslenskra króna.
Kaí Hjalgrimsson hefur búið á
Grænlandi í tuttugu ár og gert þar
út bæði togara og flutningaskip.
Hann ætlar að hafa í Færeyingahöfn
alla aðstöðu fyrir skip sín.
Færeyingahöfn var byggð árið 1927
og þar hefur verið verkaður fiskur æ
síðan. Það voru Danir, Norðmenn og
Færeyingar sem upphaflega áttu
Færeyingahöfn og hlutafélagið
Nordfar sá um reksturinn. Færey-
ingar hafa alla tíð notað aðstöðuna í
Færeyingahöfn og lagt þar upp þorsk
til verkunar.
Undanfarin ár hafa færeyskir tog-
arar ekki mátt veiða í landhelgi við
vesturströnd Grænlands og því hefur
afli af úthafstogurum verið verkaður
í Færeyingahöfn. Mikil umsvif voru
þar á árunum eftir seinna stríð en
minna hefur verið um að vera síðari
ár og nánast ekkert verið unnið af
flski við höfnina síðustu tvö til þrú
ár.
Kaj Hjalgrimsson sagði við græn-
lenska útvarpið í gær að hann væri
efms í að veruleg flskverkun hæfist
á ný í Færeyingahöfn en aðstaðan
þar væri nauðsynleg fyrir frystitog-
arahansogflutningaskip. Ritzau
Prófkjör
sj álfstæðismanna
í Reykjavík
DAGANA 26. OG 27. OKTÓBER 1990
Prófkjörið hefst í dag, föstudag.
Kjörstaður er í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Á morgun, laugardag,
verður kosið á 5 kjörstöðum.
Kjósið í því hverfi sem þér hafíð búsetu í
Ef þér hafið flutt til Reykjavíkur eftir 1.
desember 1989 og ætlið að gerast
flokksbundinn, þurfið þér að framvísa
vottorði frá Hagstofunni sem staðfestingu á
lögheimili í Reykjavík.
Kjörstaðir vérða opnir sem hér segir:
Föstudaginn 26. október frá kl. 13:00 -22:00
í Valhöll, Háaleitisbraut 1 - öll kjörhverfin
saman.
Laugardaginn 27. oktöber frá kl. 09:00 -
22:00 á 5 kjörstöðum í 6 kjörhverfum.
Atkvæðisrétt eiga:
Allir félagsbundnir sjálfstæðismenn í
Reykjavík, sem þar eru búsettir og náð hafa
16 ára aldri prófkjörsdagana. Þeir
stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins sem
eiga munu kosningarétt i Reykjavík þann
25. apríl 1991 og undirritað hafa
inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag í Reykjavík
fyrir lok kjörfundar.
Hvernig á að kjósa ?
Kjósa skal fæst 8 frambjóðendur og flest 12.
Skal það gert með því að setja tölustaf fyrir
framan nöfn frambjóðenda í þeirri röð sem
óskað er að þeir skipi endanlegan
framboðs- lista. Þannig skal talan 1 sett
fyrir framan nafn þess frambjóðanda sem
óskað er að skipi fyrsta sæti fraboðslistans,
talan 2 fyrir framan nafn þess
frambjóðanda sem óskað er að skipi annað
sæti framboðslistans o.s.frv.
1. Kjörhverfi
Nes- og Melahverfi, Vestur- og
Miðbæjarhverfi og Austurbæjar- og
Norðurmýrarhverfi. Oll byggð vestan
Snorrabrautar og einnig byggð vestan
Rauðarárstígs að Miklubraut.
Kjörstaður: Hótel Saga (Nýja álman)
2. hæð, C-salur - Gengið inn um austurdyr.
2. Kjörhverfi
Hlíða- og Holtahverfi, Laugarneshverfi
og Langholtshverfi, öll byggð vestan
Kringlumýrarbrautar og norðan
Suðurlandsbrautar.
Kjörstaður: Valhöll, Háaleitisbraut 1.
(Vestursalur 1. hæð).
3. Kjörhverfi
Háaleitis- og Smáíbúða-, Bústaða- og
Fossvogshverfi.
Hverfið afmarkast af Kringlumýrarbraut
í vestur og Suðurlandsbraut í norður.
Kjörstaður: Valhöll, Háaleitisbraut 1.
(Austursalur 1. hæð).
4. Kjörhverfi
Árbæjar-og Seláshverfi og Ártúnsholt.
■ Kjörstaður: Hraúnbær 102B (Suðurhlið).
5. Kjörhverfi
Breiðholtshverfin - öll byggð í Breiðholti.
Kjörstaður: Menningarmiðstöðin við
Gerðuberg.
6. Kjörhverfi
Grafarvogur - öll byggð í Grafarvogi.
Kjörstaður: Verslunarmiðstöðin að
Hverafold 1 - 3.