Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1990, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1990, Síða 25
FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1990. 33 LífsstOl # Tómatar Verð í krónum Aprfl Maf Júnf Júlf AqúiSopC OkL Növ. Verslanir Hagkaups bjóða upp á mikið úrval af ávöxtum og grænmeti. DV kannar grænmetismarkaðinn: Mikill verðmunur á tómötum og gúrkum - meðalverð á kartöflum hækkar DV kannaði verð á grænmeti í eft- irtöldum verslunum: Fjarðarkaupi, Hafnarfiröi; Bónusi, Skútuvogi; Hag- kaupi, Kringlunni; Kjötstöðinni, Glæsibæ, og Miklagarði við Sund. Verslunin Bónus selur sitt grænmeti í stykkjatali meðan aðrar verslanir selja eftir vigt. Til að fá samanburð á verðinu hjá Bónusi og hinum versl- ununum er stykkjaverð umreiknað eftir meðalþyngd í kílóverð. Geta verður þess að allar vörur, sem kannaðar voru, eru í 1. ílokki. Meðalverð á tómötum hækkar um 14% og er nú 217 krónur. Ódýrastir voru þeir í Bónusi, á 80 krónur, næst- ódýrastir í Kjötstöðinni, 145, því næst í Hagkaupi, 244, Fjarðarkaupi, 276, og dýrastir voru tómatar í Mikla- garði, á 342. Munur á hæsta verði og lægsta verði var heil 328%. Meðalverð á gúrkum stendur í stað frá því í síðustu viku og er nú 238 krónur. Ódýrastar voru þær í Bón- usi, 107, síðan kom Mikligarður, 125, Hagkaup, 245, Fjarðarkaup, 259, og dýrastar voru gúrkur í Kjötstöðinni, á 455 krónur. Munur á hæsta og lægsta verði var einnig umtalsverð- ur, 325%. Meðalverð á sveppum hækkaði um 18% en geta verður þess að aðeins fengust sveppir á tveimur stöðum í síðustu könnun en fjórum nú. Ódýr- ustu sveppimir fengust í Miklagaröi og Hagkaupi, 499. Þeir kostuðu 520 í Fjarðarkaupi og dýrastir voru þeir í Kjötstöðinni, á 640 krónur. Sveppir fengust ekki í Bónusi í Skútuvogi. Munur á hæsta og lægsta verði var 28%. Meðalverð á grænum vínberjum lækkaði um meira en helming eða 56% og er nú 151 króna. Vínber voru ódýrust í Bónusi, Mikligarður bauð þau á 125 krónur, Fjarðarkaup á 253 og Kjötstöðin og Hagkaup voru með dýrustu vínberin, á 279. Munur á hæsta og lægsta verði var 138%. Meðalverð á grænni papriku lækk- aði um 38% og er nú 167 krónur. Paprika fékkst ódýrust í Bónusi, á 102, Kjötstöðin kom næst með 139, Fjarðarkaup 193, Mikligarður 244 og Hagkaup með dýrustu paprikuna, 259. Þess ber að geta að paprikan var óvenjufalleg og stór í Hagkaupi. Munur á hæsta og lægsta verði var 154%. Meðalverð á kartöflum hækkaði að þessu sinni um 16% og er nú 57 krón- ur. Ódýrastar voru þær í Bónusi, á 55 krónur, Fjarðarkaup seldi þær á 55 en síðan koma í hnapp verslanirn- ar Kjötstöðin með kílóverð 89 og Mikligarður og Hagkaup á 90 krón- ur. Munur á lægsta og hæsta verði var 84%. Meðalverð á blómkáli lækkaöi um helming eða um 52% og er nú 115 krónur. Blómkál var ódýrast í Bón- usi, 132, Fíarðarkaup kom næst í röð- inni, með 148, Hagkaup 179, Kjötstöö- in 198 og Mikligarður seldi dýrasta blómkálið, á 218. Munur á hæsta og lægsta verði var 65%. Meðalverð á hvítkáli lækkaöi um sömu prósentutölu og blómkálsverð- ið eða 52% og er nú 52 krónur. Ódýr- ast fékkst hvítkál í Bónusi, á 45 krón- ur, næst kom Kjötstöðin, 66, Hag- kaup, 69, Mikligarður, 71, og Fiarðar- kaup, á 79 krónur. Munur á hæsta og lægsta verði var 76%. Meöalverð á gulrótum stóð í stað frá fyrri viku, er enn 211 krónur. Þær voru ódýrastar í Bónusi, á 179, Fjarð- arkaup seldi þær á 190, Mikligarður á 224, Hagkaup á 229 og Kjötstöðin 231. Munur á hæsta og lægsta verði á gulrótum var 29%. -ÍS Sértilboð og afsláttur: Smjörlíki er víðast hvar á tilboðsverði Svo virðist sem flestar verslanir kappkosti að hafa á tilboðsverði vör- ur sem eru mikið notaðar fyrir jólin. Flestar verslanir í könnuninni höfðu til dæmis smjörlíki og strásykur til bakstursins á tilboðsverði. Meðal til- boðsvara hjá versluninni Bónusi í Skútuvogi voru þriggja klst. mynd- bandsspólur frá Silver Screen á 349 krónur, fjögur stk. saman í pakka af Akra smjörlíki á 356 kr., strásykur frá Dansukker í 1 kg pakkningum á 54 kr. og 500 g af Odense marsipan 500 á 365 krónur. Verslunin Hagkaup í Kringlunni var með kiwiávexti á kílótilboðsverð- inu 149, þrjú stykki af Palmolive- handsápu í pakka á 99 krónur, kín- verskar sveppadósir, Ma Ling, 300 g, á 55 krónur og Cocoa Puffs morg- unverðarpakka, 475 g, á 215 krónur. Kjötstöðin, Glæsibæ, var með 197 króna tilboðsverð á 500 gramma pökkum af Jacobs kaffi, 400 gramma konfektkassa, Park Lane, á 339 krón- ur, Hellas lakkrískonfekt, 1 kg, fékkst á 459, dönsk spægipylsa á 1290 krónur kg og Ljómasmjörlíki, 500 g, á 99 kr. Mikligarður við Sund var með til- boðsverðiö 58 krónur kílóið af strá- sykri frá Dansukker, smjörlíki frá Melange, 500 g, á 65, allt nautakjöt í 1. flokki var með 20% afslætti og kjúklingar voru seldir á 399 krónur kílóið. Fiarðarkaup í Hafnarfirði bauð upp á Royal Cola í eins og hálfs lítra brúsum á 99, Akra smjörlíki, 4 stk. í pakka, 500 g hvert, á 380, strásykur frá Dansukker á 59 kíióið og kókos- mjöl, pakkað af versluninni í 500 gramma pakkningar, á 80 kr. ÍS IKARTOFLUR (íslenskar) +16% 90 s c 'O 0Q 49 TÓMATAR +14% I . 342 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.