Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1990, Side 31
FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1990.
39
Menning
Hópsálin?
Spunaverkið Afbrigði er sýnt (eöa framið) í
æfingasal Borgarleikhússins og satt best að
segja virtist það pláss henta prýðilega fyrir sýn-
inguna. Gólfrými er nóg og salurinn nakinn og
opinn gefur leikhópnum hiutlausan bakgrunn
og gott svigrúm.
Og það er vel við hæfi að sýna í æfingasalnum
því að verk af þessu tagi er fyrst og fremst stfiæf-
ing, samhæfing, þar sem líkamleg þjálfun, ein-
Leildist
Auður Eydal
beiting og tjáning eru teygðar til hins ýtrasta.
Leikendumir hafa ekki texta til að styðjast
við utan sundurlausar glefsur, inntakinu er
komið til skila eftir öðrum leiðum.
Mér fannst verkið fyrst og fremst sýna hópsál-
ina, þessa tilhneigingu tfi að stinga höfðinu í
sandinn og fría sig ábyrgð með því að hverfa inn
í einhvern ótilgreindan hóp. Til að leggja
áherslu á þetta eru persónueinkenni afmáð og
allir eru í ljósbláum bolum og samsvarandi síð-
um nærbuxum. Þessi klæðnaður gerir persón-
umar hálfaumkunarverðar og alla tilburði
þeirra hlálega.
Verkið sýnir hvernig hópsálin þrammar áfram
í gegnum sínar eigin tfifinningar, ófær um að
brjótast út úr mynstrinu, viljalaus og ósjálf-
stæð. í upphafi bregður fyrir kímni, en gamanið
gránar, viðbrögðin verða khsjukennd og ör-
væntingfull í senn.
í sýningunni koma fram sjö leikarar og leik-
stjóri er Ása Hlín Svavarsdóttir. Sviðsbúnaður
er nánast enginn, aðeins er beitt ljósum og Ut-
skyggnum í yfirstærð, sém flennast yfir vegginn
á bak við leikhópinn. Myndimar sýna tilbrigði
við hópinn, sami hópur, sömu einstaklingar eru
viðfangsefni myndanna, en þær sýna þá í öðru
ljósi.
Ég býst við að þessi sýning höfði fyrst og
fremst tfi þeirra sem eru að vinna á þessum
sömu nótum og getur án efa kennt þeim sem
styttra em á veg komnir sitthvað um tjáningu
og spuna.
Nokkrir leikarar sem koma fram í Afbrigði.
Leiksmiðjan sýnir í æfingasal Borgarleikhússins:
Afbrigði
Spunaverk úr smiðju hópsins
Leikstjóri: Ása Hlin Svavarsdóttir -AE
FACO FACD
FACOFACO
FACOFACO
I LI8TINN Á HVERJUM
MÁNUDEGI
h e i m il isverslun
m e ð stíl
LAUGAVEGI 1 3
SÍMI625870
LEIK-
HÚS
OG
BÍÓ-
AUG-
LÝS-
ING-
AR
eru á
næstu
opnu
hér að
framan
Laugarásbíó - Fóstran
"kV.2
Martröð í álmskógi
Boðskapur þessarar myndar er sá að vissara sé að
athuga meðmæli og fortíð barnfóstru áður en slíka
skal ráða. Hjónakornin (Brown og LoweU) eru bæði
ung og á uppleið og hafa ekki tíma tfi þess, heldur
láta sér nægja hlýtt viðmót og blíða lund. Ef betur er
að gáð kemur í ljós að fóstran (Seagrove) gengur ekki
heil til skógar. Hún er í raun og vem drúiði (ensk:
druid) og á í mjög svo ónáttúruiegu sambandi við eik
eina í skógi þeim er umlykur hús hjónanna. Lýsir
þetta samband sér einna best á þann hátt að fljótlega
fækkar í þeim fiölskyldum er hún ræður sig til starfa
hjá.
Þessi saga er harla sennileg en það er tvennt sem
bjargar henni fyrir horn. í fyrsta lagi tekur hún sig
grafalvarlega (og neyðir þá áhorfandan til að reyna
hið sama) og í öðru lagi er Jenny Seagrove mjög sann-
fcérandi barnfóstra/fórnari. Það er sannfærandi miðað
við það að hún hefur ekkert að byggja persónu sína
á. Engar útskýrmgar eru gefnar á athæfi hennar eða
ástæðum þess og eru þaö ekki einu holurnar í sögunni.
Þrátt fyrir vöntun á spennu þá kemur alltaf eitthvað
(stundum sjokkerandi hrár slettuhryllingur) við og
við sem bjargar málinu um stundarsakir. Á heildina
htið er það varla nóg.
The Guardian. (Band. 1990) 93 mín.
Leikstjórn og hluteigandi i handriti: William Friedkin (The
Exorcist, To live and Die in L.A.)
Leikarar: Jenny Seagrove (Appointment with Death), Dwier
Brown, Carey Loweli (Licence to Kill), Brad Hall, Miguel Ferr-
er (Robocop, Twin Peaks).
Dwier Brown leikur föðurinn sem reynir að vernda
barn sitt fyrir illum öflum.
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
Fjölmiðlar
Hver hlustar á... ?
Skoðanakannanir hafa ávallt sýnt
litla útvarpshiustun. Það er aðeins
þegar fréttir eru á rás 1 að hlustun-
in mæhst eitthvað aö ráði. Sam-
kvæmt þessum skoöanakönnunum
ættu því flestar Utlu útvarpsstöðv-
amar aö vera löngu búnar að syngja
sitt síðasta. Hvemig getur til dæmis
útvarpsstöð sem hefur aðeins um
2-3% hlustun að meðaltali sam-
kvæmt könnunum aö geta borið sig.
Kannski er það vegna þess að trúin
á hlustunarkannanir er ekki mikil
hjá aðstandendum útvarpsstöðva og
hver veit nema það sé rétt.
Núer það vitað mál að meirihluti
þjóðarinnar hlustar á útvarp þegar
fólk situr í bíl og miðað við þann
fiölda bíla, sem eru í umferð á hverj-
um degi, er þar um þó nokkra hlust-
un að ræða. Á hvaða stöð hlustað
er í bílum er sjáUsagt ekki hægt að
komast að með neinum könnunum.
Önnur mikil hlustun á útvarp er
örugglega á vinnustöðum þar sem
Qöldi manns vinnur einhæfa vinnu
sem gefur tilefni til að að hlusta á
útvarp.
Kannanir á útvarpshlustun fara
aftur á móti fram á heimilum þar
sem fyrir er sjónvarp. Því hljóta
flestar skoðanakannanir um út-
varpshlustun að vera afstæðar. Ef
tfi að mynda væri tekin skoðana-
könnun um útvarpshlustun á laug-
ardagskvöldi þá er víst að langflest-
ir væru að horfa á sj ónvarp, enda
yfirleitt boðið upp á gott skemmti-
efhi ura helgar.
Það er nú samt svo að þótt út-
varpshlustun sé örugglega meiri en
skoðanakannanir sýna þá er hún
lítil miðað við þann fiölda útvarps-
stöðva sem rekinn er. Mér telst svo
til að á höfuðborgarsvæðinu sé hægt
að hlusta á níu útvarpsrásir. Það '
gefur því augaleið að það eru marg-
ir um þann litla bita auglýsingakök-
unnar sem ætlaður er útvarpsstöðv-
um en engan bilbug er samt á að-
standendum stöðvanna að finna og
ef eitthvað er fiölgar stöðvunum
frekar en að þeim fækki.
Hilmar Karisson
Veður
Sunnanlands verður allhvöss suðaustan og austan
átt með snjókomu eða slyddu en gengur til norðan
og norðaustan áttar og léttir heldur til þegar Ííður á
daginn. Vestanlands verður hvöss norðaustan átt og
él. Norðanlands verður suðaustan kaldi og bjartviðri
i fyrstu en síðan austan kaldi og smáél. Austanlands
sunnan og suðvestan kaldi og sums staðar léttskýjað
en suðaustan og austan kaldi og snjókoma eða
slydda þegar liður á daginn. Veður fer kólnandi og
má búast viO 1-4 stiga frosti i kvöld og nótt.
Akureyri léttskýjað -2
Egilsstaðir léttskýjað 0
Hjarðarnes alskýjað 1
Galtarviti snjókoma -1
Kefla vikurflug völlur rigning 2
Kirkjubæjarklaustur skúr 1
Raufarhöfn léttskýjað 0
Reykjavík slydda 1
Vestmannaeyjar úrkoma 3
Bergen skúr .4
Helsinki skýjaö -4
Kaupmannahöfn léttskýjað -1
Osló skýjað -10
Stokkhólmur snjókoma -1
Þórshöfn rigning 6
Amsterdam þokumóða 2
Barcelona heiðskírt 5
Berlín þokumóða 3
Chicago skýjaö 7
Feneyjar alskýjað 13
Frankfurt rigning 3
Glasgow skýjað 5
Hamborg hálfskýjað 2
London þokumóða 3
LosAngeles heiðskírt 16
Lúxemborg skýjað 2
Madrid þokumóða -2
Malaga heiðskirt 6
Mallorka léttskýjað 4
Montreal rigning 5
Nuuk skýjaö -6
París þokumóða 2
Róm leiftur 16
Valencia heiðskírt 4
Vín skýjað 10
Gengið
Gengisskráning nr. 225.-23. nóv. 1990 kl. 9.15
Eining kl. 12 .00 Kaup Sala Tollgengi
Dollar 54,240 54,400 54,940
Pund 106,752 107,067 107,339
Kan.dollar 46,781 46,919 47,209
Dönsk kr. 9,5283 9.5564 9,5299
Norsk kr. 9.3654 9,3931 9,3515
Sænsk kr. 9,7624 9,7912 9,8011
Fi. mark 15,2210 15,2659 15,2675
Fra.franki 10.8404 10,8724 10,8599
Belg.franki 1,7697 1,7749 1,7664
Sviss.franki 43,3123 43,4401 42,9924
Holl. gyllini 32,4101 32,5058 32,2598
Vþ. mark 36,5560 36,6639 36,3600
It. lira 0,04867 0,04881 0,04854
Aust. sch. 5,2014 5,2167 5,1684
Port.escudo 0,4161 0,4173 0,4129
Spá.peseti 0,5769 0,5786 0,5804
Jap.yen 0,42668 0,42794 0,43035
írskt pund 97,949 98,238 97,519
SDR 78,6231 78,8550 79,0306
ECU 75,4343 75.6568 75,2925
Fiskmarkaðimir
Fiskmarkaður Hafnarfjarðar
22. nóvember seldust 71,278 tonn.
Magn í Verð í krónum
tonnum Meðal Lægsta Hæsta
Hlýri 0,198 64,00 64,00 64,00
Smáýsa 0,073 59,00 59,00 59,00
Lýsa 0,030 40,00 40,00 40,00
Smáýsa, ósl. 0,169 67,00 67,00 67,00
Ufsi.ósl. 0,459 31,00 31,00 31,00
Smáþorskur 0,585 66,00 66,00 66,00
Vsa.ósl. 10,388 89,95 76,00 105,00
Smáþorskur, ó. 0,392 58,00 58,00 58,00
Þorskur, ósl. 7,498 81,17 70,00 86,00
Steinbíturósl. 0,638 50,00 5G,00 50,00
Lúöa 0,103 410,92 200,00 485.00
Steinbítur 0,845 61,79 60,00 64,00
Koli 0,173 51,04 50,00 59,00
Ýsa 5,299 94,60 87,00 116,00
Þorskur 8,922 91,71 80,00 96,00
Langa, ósl. 0,875 41,04 30,00 45,00
Keila.ósl. 3,021 26,99 16,00 31,00
Ufsi 4,353 47,69 25,00 48,00
Langa 0,814 55,57 55,00 61,00
Karfi 26,434 43,79 35,00 45,00
Faxamarkaður
22. nóvember seldust alls 109,893 tonn.
Blandað 1,250 33,44 15,00 40,00
Gellur 0,044 325,00 325,00 325,00
Karfi 19,273 45,39 41,00 48,00
Keila 2,258 19,31 9,00 30,00
Langa 5,149 62,09 20,00 65,00
Lúða 1,703 293,88 135,00 420,00
Lýsa 0,569 35,00 35,00 35,00
Skarkoli 0,100 51,30 35,00 55,00
Skötuselur 0,015 190,00 190,00 190,00
Steinbítur 4,798 60,67 20,00 63,00
Þorskur.sl. 38,503 96,59 83.00 105,00
Þorskur, ósl. 3,764 77,90 65,00 105,00
Ufsi 13,293 44,40 20,00 46,00
Undirmál. 2,530 56,7S 40,00 68,00
Ýsa, sl. 9,962 94,76 80.00 110,00
Ýsa, ósl. 6,671 87,96 58,00 96,00
Fiskmarkaður Suðurnesja
22. r\óvember seldust alls 109,893 tonn.
Lýsa 0,107 10,00 10,00 10,00
Blandað 1,087 10,78 10,00 15,00
Ufsi 0,885 32,77 10,00 50,00
Koli 0,054 64,00 64,00 64,00
Skata 0,052 50,00 50,00 50,00
Ýsa 3,785 81,02 48,00 97,00
Hlýri 0,057 20,00 20,00 20,00
Hlýri/steinb. 1,825 20,00 20,00 20,00
Sólkoli 0,090 58,00 58,00 58.00
Skarkoli 0,058 48,00 48,00 48,00
Blálanga 0,910 42,87 20,00 44,00
Skötuselur 0,147 175,24 130,00 180,00
Steinbítur 4,008 58,64 20,00 65,00
Lúða 0.289 305.55 235,00 425,00
Langa 0,403 49,22 10,00 57,00
Keila 10,808 10,89 10,00 20,00
Blálanga 0,925 52,00 52,00 52,00
Þorskur 13,074 80,37 50,00 105,00
Karfi 6,351 44,94 42,00 46,00