Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1990, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1990, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER199Ö. ' 3. Fréttir Ingimar Halldórsson, framkvæmdastjóri Frosta hf. á Súðavík: Verulegrar verðlækk- unar á rækju er þörf - til að vinnslan standi undir sér „Við munum leggja til að rækju- verð til sjómanna lækki verulega í janúar þegar nýtt lágmarksverö verður ákveðið. Við teljum eðlilegt verð fyrir kílóið af minnstu rækjunni 45 til 50 krónur,“ segir Ingimar Hall- dórsson, framkvæmdastjóri Frosta hf. í Súðavík. Samkvæmt tölum frá Þjóðhags- stofnun er rækjuvinnslan nú rekin með 18,2 prósenta tapi. Lögbundið lágmarksverð á rækju er 77 krónur kílóið fyrir stærstu rækjuna, 69 krónur kílóið fyrir miðlungsrækju og fyrir minnstu rækjuna eru greidd- ar 65 krónur. Á erlendum mörkuðum fá seljendur svo greiddar rétt tæpar 200 krónur fyrir minnstu rækjuna þegar hún hefur verið fullunnin en um 600 krónur fyrir kílóið af stærstu rækjunni. „Það er mjög breitt verðbil á mUli stærstu og minnstu rækjunnar á er- lendu mörkuðunum en það sama gildir ekki þegar sjómönnum er greitt fyrir aflann. Megnið af þeirri rækju, sem vinnustöðvarnar 6 hér við ísafjarðardjúp vinna, er smá rækja. Til að vinnslan standi undir sér þarf lækkun á rækjuverði að koma til svo unnt verði að reka vinnsluna á núlli. Það væri einnig hægt að fara aðra leið sem er að vinnslan fái greitt úr Verðjöfnunarsjóði sjávarútvegs- ins. Rækjureikningurinn er tómur en það eru fordæmi fyrir því að sjóð- urinn hafi tekið lán svo unnt væri að greiða fiskverkendum og þá leið mætti fara nú,“ segir Ingimar. „Það hefur verið minni sala á rækju en menn höfðu gert sér vonir um nú fyrir jólin. Menn eru að verða vondaufir með jólasöluna en yfirleitt hefur selst mest af rækjunni á þess- um árstíma,“ segir Lárus Jónsson, framkvæmdastjóri Félags rækju- og hörpudisksframleiðenda. „Þegar lágmarksverð á rækju var ákveðið til sjómanna í september lækkaði það um 5 prósent en greiðsl- um úr Verðjöfnunarsjóði var hætt til verkenda. Það hefði þurft að lækka verðið til sjómanna enn meira til að jafna metin. Ég reikna með aö það verði fariö fram á verulega verðlækkun á rækju þegar nýtt rækjuverð veröur ákveðið í janúar, sérstaklega ef markaðsverð verður óbreytt um áramótin. Þá verður nokkuð einsýnt hvernig þaö veröur fram eftir ári,“ segir Lárus. -J.Mar Tekur sætiá Alþingií fyrstasinn Sigrún Jónsdóttir frá Kvennalista tók sæti á Alþingi í fyrradag. Hún kemur inn fyrir Önnu Ólafsdóttur Björnsson. Þar sem Sigrún hefur ekki setið á Alþingi fyrr var í upp- hafi sameihaðs þings farið yfir kjör- bréf Sigrúnar Jónsdóttur og það samþykkt. -S.dór Sigrún Jónsdóttir alþingiskona. DV-mynd BG íslenski hesturlnn 1 fréttum Reuters: Stóðhestur á 5,5 milljónir „Við höfum dálitlar áhyggjur af að verðlagningin verði þaö há að við missum bestu hestana okkar úr landi,“ er haft eftir Kára Arnórs- syni, formanni Landssambands hestamanna, í nýlegri frétt frá Reut- er-fréttastofunni. í fréttinni segir frá verndun ís- lenska hestsins með meira en 900 ára gömlu innflutningsbanni. Þá segir að þó að íslenski hesturinn sé ekki not- aður til veðmála, líkt og veðreiðahest- ai', geti toppstóðhestur kostað skild- inginn. Þannig er haft eftir Kára að nýíega hafi slíkur selst fyrir 5,5 millj- ónir k-róna. Hafi íslendingar for- kaupsrétt að verðmætustu stóðhest- unum en tilboð þeirra verði hins veg- ar að vera jafnhátt og útlendinganna. Fréttamaður, sem var hér á ferð fyrir skömmu, segir almennt frá ís- lenska hestinum, uppruna hans, ræktmi og sérkennum. Þá tjallar hann sérstaklega um útflutning ís- lenska hestsins en útflutningur hefur aukist um 50 prósent frá síðasta ári. Er taliö að um 50 þúsund hestar af íslensku bergi brotnir séu á erlendri grund. Segir að íslenski hesturinn sé ræktaður af hestafélögum í fjölda landa og sé hann mikiö til umijöllun- ar í bókum og blöðum um hesta. Þá kemur fram að 70 þúsund he’star séu hérlendis en um það bil 10 þús- und íslendingar eigi hesta. Enn fleiri eru taldir ríða út reglulega. -hlh s------J Kátt er á jólunum - kotna þau settn Verkstæði jólasveinanna í Krii ú eru Jólasveinarnir búnir að krakkar, setja upp verkstæðið sitt 1 bæði litlir og fullorðnir, geta nú fylgst me' litlum jólasveinum pakka inn jólagjöfum. Laugardaginn 1. desember er opið til kl Opið til kl. 19, mánudaga til föstudaga. Veitingastaðirnir eru opnir fram á kvo ÍKringlunni er alltaf bjart og hlýtt • Meira en 20001

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.