Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1990, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1990, Page 4
4 MIÐVIKUP^GUK 28. NÖVEMREI|:1990, Steingrímur leikur tveimur skjöldum í vaxtamálunum Guðmundur J. Guðmundsson hefur verið á hlaupum með sjóði Dagsbrúnar milli banka. Hvert hleypur hann næst? Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra er ekki sjálfum sér sam- kvæmur í vaxtamálunum. Hann hef- ur vakið athygli að undanfórnu með harðorðum yflrlýsingum í garð ýmissa bankamanna, af því að þeir hafa hækkað vexti. Þetta hefur verið rætt sem eitthvert brot gegn þjóðar- sátt. Talað hefur verið um stjórn- málamenn, sem taka alvarlega hlut- verk sitt sem ráðamenn í bönkum, sem bankaþræla. Forsætisráðherra héfur jafnvel ýjaö aö því að eina ráð- ið sé að fá erlenda banka hingað, af því að ekki verði ráðið við hina inn- lendu. Deilur hafa virzt standa milli Steingríms og flokksbróður hans, Guðna Ágústssonar þingmanns, sem er formaður bankaráðs Búnaðar- bankans. í rauninni hefur forsætis- ráðherra aðeins „búið þetta til“. Hann hefur sjálfur verið að ganga frá hækkun vaxta. Steingrímur hækkaði vexti húsbréfa Mikil læti urðu vegna vaxtahækkun- ar íslandsbanka fyrsta þessa mánað- ar. Bankinn hækkaði vexti á óverð- tryggöum lánum um 0,5-2 prósentu- stig. Þetta byggðist á spá Seðlabank- ans um verðbólgu. Sú spá reyndist of há, af því að þar var gert ráö fyrir meiri hækkun olíuverðs hér en varð um það leyti. Næst hækkaði Búnað- arbankinn sams konar vexti sína um hálft prósentustig. Samkvæmt orð- um forsætisráöherra mætti ætla, að þetta hafi verið gert af illum vilja og græðgi bankanna. Svo er ekki. Verð- bólguhraðinn hafði verið að aukast. Hraðinn hafði verið sem svarar 4-6 prósenta ársverðbólgu en var nú að vaxa í 6-8 prósenta árshraða. Þetta þýddi, að bilið milli vaxta á verð- tryggðum og óverðtryggðum lánum bankanna fór úr skorðum. Við getum séð fyrir okkur, að vextir hinna verð- tryggðu lána breytast með breyttri veröbólgu - af sjálfu sér. Með meiri verðbólgu hækkar lánskjaravísital- an, raunvextir bætast við, og út koma „vextirnir", sem greiddir eru. Á sama tíma breytast vaxtakjör á hin- um óverötryggðu lánum ekki af sjálfu sér, þótt verðbólgan vaxi. Verðbólgan óx, og sumir bankarnir hafa verið að hækka vexti. Fráleitt er að stilla þessu upp sem broti gegn þjóöarsátt í kjaramálum. Væri svo, er þeim um að kenna, sem bera sökina á, að verðbólguhraðinn óx. Þá mætti halda, að 'forsætisráð- herra hafi barizt alls staðar gegn vaxtahækkunum til að vera sjálfum sér samkvæmur. Það gerði hann ekki. Hann stóð að hækkun vaxta á húsbréfum í 6 prósent, sem eru raun- vextir, af því að húsbréf eru verð- tryggð. Þessi vaxtahækkun væri Sjónarhom Haukur Heigason jafnmikið brot á þjóðarsátt og aðrar vaxtahækkanir og líklega stærra brot, ef slíkt teldist á annað borð brot. Blinda verkalýðsleiðtoga Forystunenn verkalýðshreyfingar- innar hafa sumir ekki gert sér grein fyrir þessari stoðu mála. Þeir hafa í raun ekki haft ástæðu til að vera á hlaupum með einhverja sjóði hreyf- ingarinnar milh banka út af hækk- unum á útlánavöxtum óverð- tryggðra lána. Vissulega eru sjóðir Dagsbrúnar jafnvel komnir í Spari- sjóöi vélstjóra eins og íslandsbanka. Hvort tveggja eru ágætar stofnanir. En hækkun íslandsbanka byggðist á verðbólguspá Seðlabankans, ekki gróðahyggju. Sjálfsagt er, að bankarnir byggi vexti sína á viðteknum verðbólgusp- ám. Ef sakast má við einhvern, pr það Seðlabankinn en ekki íslands- . banki. Aðgerðir gegn bankanum eru því út í hött. Þannig stendur öll forysta Búnað- arbankans að vaxtahækkun bankans nú, Guðni Ágústsson bara meðal annarra. Guðni bendir réttilega á, að ríkisstjórnin eigi ekki að ráða þessu. Meö öðrum oröum: Það kemur ríkis- stjórninni ekkert við. Það kemur- Guðmundi J. Guðmundssyni heldur ekki við, þótt vextir séu hækkaðir, meðan viðteknum reglum er beitt. Ögmundur Jónasson, formaöur Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, hefur fjölda mála til að fást við, þótt hann stigi ekki á stokk vegna vaxtamála síðustu vikna. Enda sér fólk, að flestir verkalýðs- leiðtogar eru ekki með í leiknum. Verðmætur málmurfinnst útafReykjanesi Verömæt málmtegund, mang- an, hefur fundist á hafsbotni rúmlega 100 kílómetra suövestur af Reykjanesi. Málmurinn fannst í talsverðu magni í sýni sem rannsóknarleiöangur á Bjarna Sæmundssyni tók í byrjun mán- aðarins í kjölfar mikillar jarö- skjálftahrinu á Reykjanes- hryggnum. Að sögn jarðfræðinga er of snemmt að fullyrða hvort með fundinum hafi uppgvötast ný náttúruauölind sem arðbært sé nýta. Til þess þurfi fiækari rann- sókna við. Likur benda hins veg- ar til að þarna sé um töluvert magn af mangani að finna og ekki dregur það úr vinnslumöguleik- unum að dýpi er lítið á þessum slóðum. -kaa Leikfélag Akureyrar: Fimmviljaístól leikhússtjóra Gylfi Kristiánssoii, DV, Akureyrfi Fimm umsækjendur eru um stöðu leikhússtjóra hjá Leikfélagi Akureyrar en umsóknarfrestur um stööuna er runninn út. Sigurður Hróarsson, núverandi leikhússtjóri á Akureyri, hefur sem kunnugt er verið ráðinn leik- hússtjóri Borgarleikhússins. Það hefur vakiö athygli að i hópi þeirra sem sækja um stöðuna á Akureyri er Signý Páisdóttir en hún gegndi þessari stöðu fyrir nokkrum árum áður en hún flutti suður til ReyKjavikur. Aðrir umsækjendur eru Erling- ur E. Halidórsson, Hávar Sigur- jónsson, Jakob S. Jónsson og María Sigurðardóttir. EMur í ruslagámum Töluverður eldur kviknaði í tveimur plastruslagámum sem stóöu upp við húsið að Snorra- braut 56 á sunnudagskvöld. Verslunin Herragarðurinn er í því húsi. Mikill og dökkur reykur myndaðist við brunann á plast- inu í gámunum. Talið er fullvíst að um íkveikju hafi verið að ræða. -ÓTT í dag mælir Dagíari Denni heggur á hnútinn Það hriktir í Framsóknarflokknum í Reykjavík þessa dagana. Er þar þó ekki margt á fleti fyrir. Fékk ekki Framsókn um fjögur þúsund atkvæði í síðustu borgarstjómar- kosningum? Lætur nærri að sá kjósendahópur samanstandi af nokkrum aðfluttum framsóknar- fiölskyldum og venslamönnum þeirra. Nú hefur líka komið í ljós að Framsóknarílokkinn í Reykja- vík kjósa menn sem eru búsettir erlendis og hafa ekki verið við- staddir kosningar og hafa ekki einu sinni vitað að þeir væru á kjör- skrá. Það gera aörir fyrir þá þegar mikið liggur viö. Af þessu sést að Framsókn er ekki öll þar sem hún er séð og menn era þar aö kjósa hver fyrir annan og sumir tvisvar og er þá komin skýringin á þeim fiögur þúsund atkvæðum sem flokkurinn telur upp úr kössunum. En hvað gera menn ekki til að fella sína eigin þingmenn? Það er miklu handhægara að fella þing- manninn í flokknum heldur en að taka þá áhættu að þingmenn flokksins séu felldir í almennum þingkosningum. Þetta veit Finnur Ingólfsson og þetta veit Guðmund- ur G. Þórarinsson af gamalli reynslu og því fór sem fór í skoð- anakönnun Framsóknar á dögun- um. Guðmundur er búinn að kæra kosninguna, enda er maðurinn nauðakunnugur öllum þeim skíta- trikkum sem beita þarf. Guðmund- ur hefur neitað að taka annað sæti á eftir Finrii og hefur hótað því að bera fram BB-lista í kosningunum að vori. Þetta líkar flokksmönnum ekki sérlega vel, enda ekki mörg atkvæði til skiptanna í Framsókn, jafnvel þótt fólk kjósi tvisvar og fyrir aðra og nái svo i kjósendur sem ekki eru til. Guðmundur klagaði í flokksfor- manninn og Denni skoðaði málið, hélt meira að segja sáttafund, en allt kom fyrir ekki. Þá mun Denni hafa lagt til að skoðanakönnunin yröi endurtekin meö almennu próf- kjöri meðal þeirra sem eru á kjör- skrá. Þetta var haft eftir Denna í sjónvarpsfréttum en það er þá um leið rétt og skylt að geta þess aö Denni gerði- athugasemd við þá frétt. Denni sagðist ekki hafa lagt til að endurtaka skoðanakönnun- ina heldur hitt að hann heíði lagt til að endurtaka skoðanakönnun- ina. Nú má gera ráð fyrir aö fram- sóknarmenn skilji hver munur er á að endurtaka skoðanakönnun og endurtaka skoðanakönnun, enda eru þeir vanir Denna og kjósa hann 97,7% þegar Denni er búinn að tala við þá. Denni hefúr með öðrum orðum sagt við fulltrúaráð Fram- sóknarflokksins að hann vilji gjarnan að skoðanakönnunin sé endurtekin en hefur mótmælt þvi opinberíega að hann vilji aö skoð- anakönnunin sé endurtekin og hef- ur þannig lagt sitt til málanna og gert allt til að leysa þessa deilu sem hann telur illeysanlega. Það er mikil sáttargjörð í því fólgin að endurtaka skoðanakönnunina án þess að endurtaka sjálfa skoðana- könnunina því ef skoðanakönnun- in er endurtekin munu úrslitin væntanlega verða þau söiriu þegar allt er endurtekið með sama hætti. Þá mun sama fólkið mæta aftur á kjörstað og greiða atkvæði eins og í fyrra skiptiö. Sömu kjósendur munu veröa á kjörskrá og sömu mennirnir munu kjósa fyrir þá sem eru á kjörskrá, hvort sem þeir sem eru á kjörskrá, kjósa eða ekki. Fjöl- skylda Finns Ingólfssonar mun kjósa eins og áður og niðurstaðan verður sú sama og áður og þá geta allir sagt með sanni að skoðana- könnunin hafi verið endurtekin. Þannig mun Denni formaður leysa þetta vandamál í Framsókn- arflokknum eins og hann hefur leyst öll önnur. Guömundur mun fá þeirri ósk sinni framgengt að skoðanakönnunin verði endurtek- in og Finnur mun knýja fram sigur eins fyrr, ef og þegar skoðanakönn- unin vérður nákvæmlega endur- tekin. Enda hefur það verið gamal- gróinn siður í Framsóknarflokkn- um að halda fast utan um sitt fylgi og þá fáu kjósendur sem á annaö borð kasta atkvæðum sínum á flokkinn. Þá er ljóst að flokkurinn heldur ekki síður utan um þá kjós- endur sem skráðir eru í flokkinn en ekki kjósa hann vegna fiarvista. Dagfari skilur þá tryggð vel, enda kemur í ljós að þaö er einmitt þetta fólk sem ræður úrslitum í skoðana- könnunum þegar kosið er fyrir það af öðrum. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.