Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1990, Side 10
10
MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1990.
Ék 31RÍ7AFELL
Bíldshöfði 14,
s. 676840 og 672545
BW Svíssneska parketið
erlfmtágólfiðoger
auðvelt að legga
Parketið er full lakkað
með fullkominni tækni
Svissneska parketið er
ódýrt gæðaparket og
fæst í helstu
byggingavöruverslun
um landsins.
Kvistuð eik.kr. 2.250 m2
Ljós eik ....kr. 2.960 m2
Askur..........kr. 3.211 m2
Beyki...kr. 3.088 m2
Merbau ....kr. 3.575 m2
Ótrúlegt verð á
gegnheilu parketi
STÁLVASKAR
AFSLÁTTUR
HREINLÆTISTÆKI
WC, kr. 16.100,-
WC + handlaug,
kr. 19.000,-
WC + handlaug í
borði, kr. 22.500,-
BLÖNDUNARTÆKI
10% afsláttur af öllum
blöndunartækj um
MALNING
Poimx
Innimálning,
útimálning,
þakmálning.
20% ódýrara í 10 lítra
umbúðum
A
S JL
3U=ttTAFELL
Bíldshöfði 14,
s. 676840 og 672545
Utlönd
Kína styður ekki álykt-
un Öryggisráðsins
Kúvæskur læknir, sem flúið hefur land, með mynd af fórnarlambi íraka. Nokkrir kúvæskir útlagar komu til aðal-
stöðva Sameinuðu þjóðanna í New York í gær og greindu frá hroðaverkum þeim sem íraskir hermenn hafa framið
í Kúvæt. Símamynd Reuter
Utanríkisráðherra Kína, Qian Qic-
hen, vísaði í gær á bug fregnum um
að Kína myndi styðja ályktun Örygg-
isráðs Sameinuöu þjóðanna sem
heimilaði beitingu vopnavalds gegn
írökum. Gaf ráðherrann í skyn að
Kína myndi sitja hjá við atkvæða-
greiðsluna.
Fulltrúar þeirra fimm ríkja, sem
eiga fastafulltrúa í Öryggisráðinu,
Bandaríkjanna, Sovétríkjanna, Kína,
Bretlands og Frakklands, hafa allir
neitunarvald. Stjórnarerindrekar
telja að að Kína muni ekki beita neit-
unarvaldi heldur sitja hjá þegar at-
kvæði verða greidd um ályktunina á
morgun.
Stjómarerindrekar í Bagdad óttast
nú að verið sé að flytja vestræna gísla
í Kúvæt á hemaðarlega mikilvæga
staði í írak í stað þeirra gísla sem
nú hafa fengið heimfararleyfi.
Saddam Hussein íraksforseti lofaði
í gær að veita nokkrum af banda-
Breskir gislar við komuna til Amman
í gær. Þeir fengu frelsi eftir að eigin-
konur þeirra komu til Bagdad.
Simamynd Reuter.
rísku gíslunum sjö hundruð heim-
fararleyfi. Um er að ræða vináttuvott
við hnefaleikakappann Muhammed
AIi sem verið hefur í heimsókn í
Bagdad.
Líkur eru á því að sænsku gíslam-
ir fimmtíu og sex þurfi að bíöa
nokkra daga eftir að komast frá
Bagdad. Innihald bréfsins frá Ingvari
Carlssyni, forsætisráðherra Svíþjóð-
ar, sem talið er eiga stærstan þátt í
frelsi gíslanna, er enn óþekkt. Tekin
verður ákvörðun um það á morgun
hvort það verður gert opinbert. Bréf-
ið var lesið í heild í íraska þinginu
en írösk dagblöð hafa enn ekki birt
útdrætti úr því. Talið er að ummæli
Carlssonar um að forðast beri hern-
aðarátök hafi haft úrslitaáhrif.
Reuter og TT
CD 0±AmlÆÍ
bB-aoiid
„Finnum er auövitað frjálst aö Sovétríkin væru Finnar ekki
fara sína eigin leið varðandi EB- komnirjafntlangtíumræðunnium
málið. Ég hef bara sagt hvað væri EB eins og Svíar og Norðmenn.
gott fyrir alla aðila.“ Þetta sagði Sænski utanríkisráöherrann gaf
Sten Andersson, utanrikisráðherra einnig í skyn að í ræðu sinni hefði
Svíþjóöar, í gærkvöldi í kjölfar Holkeri haft í huga aö kosningar
ræðu sem forsætisráðherra Finn- verða í Finnlandi í vor.
lands, Harri Holkeri, hélt fyrr um „Þaö væri mjög hagkvæmt ef
daginn. Norðurlönd gætu sótt sameiginlega
I ræöunni lagði Holkeri á það um aðild aö EB. Ef Finnar vilja
áherslu að aðild að EB, Evrópu- ekki verameð verðaSvíarogNorð-
bandalaginu, samræmdist ekki menn aö snúa bökum saman,“
hlutleysi Finnlands. sagði Sten Andersson sem vonast
Sten Andersson hélt því fram að til aö umsókn verði tilbúin þegar í
vegna langvarandi sambands viö vor. TT
Ástralía:
Lífshættulegur arf ur
Astralir fylgjast þessa dagana
imdrandi með harmsögu fjölskyldu
nokkurrar sem virðist í þann mund
að þurrkast út vegna kynkverfu,
eyðni og peninga. Upphafiö var það
að hommi nokkur að nafni Ludwig
Gertsch erfði mikla fjármuni eftir
ástmann sinn. Sá haíði sýkst af
eyðni.
Milljónamæringurinn nýskapaöi
naut þó ekki lengi þess sem honum
hafði bæst í búið því skömmu síðar
fannst hann kyrktur. Fjórir aðrir
menn töldu sig eiga hlut í arfinum
en ekki hefur tekist að sanna morðið
á þá.
Gertsch var mjög hræddur um líf
sitt eftir að honum hlotnaðist arfur-
inn og eyddi miklum fjármunum í
að tryggja öryggi sitt og lét m.a. setja
sérstaka öryggishurð fyrir svefn-
herbergið. Það kom þó fyrir lítið.
Móðir Gertsch, kona á áttræðis-
aldri, var eini erfingi hans. Henni
entist þó ekki aldur til að njóta arfs-
ins því hálfum mánuði eftir lát son-
arins féll hún fyrir járnbrautarlest
og lét lífið. Enn er ósannað hvort hún
var myrt eða fórst af slysfórum.
Reuter
Bókin um tíkina MMe:
Selst betur
en minningar
Reagans
Bandaríkjamenn vilja fremur lesa
bókina Millie, tík forsetahjónanna,
en endurminningar Ronalds Reagan
fyrrum forseta. Hjá bóksölum vestra
er mun meira spurt um Millies Book
en bók Reagans.
Bókin um Milhe er kynnt sem ævi-
saga. Hún kom út fyrir tveimur mán-
uöum og er nú í sjötta sæti á sölu-
lista bókaútgefenda. Á sama tíma
verður Reagan að sæta þvi að kom-
ast þar ekki einu sinni á skrá.
Á nýjasta vinsældalista dagblaðins
New York Times er Milhe í fjórða
sæti en Reagan í því sjötta. „Þetta
er tímanna tákn. Fólk vill heldur lesa
um tík en endurminningar fyrrver-
andi forseta," segir einn bókaútgef-
andi.
Reuter
Hundar bandarísku forsetahjónanna vekja jafnan mikla athygli. Frægust
er þó tíkin Millie. Simamynd Reuter