Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1990, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1990.
13
DV Sviðsljós
IgPj/" 1 • % :CÍÉÍÉMlfe?'
Kraftur... .. og inniifun ... .. og svo getur maður nú verið
svolítið sætur líka. Richard Scobie,
söngvari Rikshaw og Loðinnar rottu.
Fimmtudaginn 22. nóvember héldu
meðlimir hljómsveitarinnar Rik-
shaw útgáfutónleika í veitingahús-
inu Gaukur á Stöng. Um næstu mán-
aðamót senda þeir frá sér nýja plötu
sem ber heitið Angels and Devils.
Þetta er 10 laga kröftug rokkplata
með lögum sem þeir hafa samið sl. 2
ár. Allir textarnir eru á ensku og er
Richard Scobie höfundur þeirra
aUra.
Þeir félagar hafa undanfarið komið
fram undir nafninu Loðin rotta en í
þeirri hljómsveit eru alhr Rikshaw-
strákarnir nema Sigfús Óttarsson
trommuleikari. Ýmsum hefur þótt
nafn þeirrar hljómsveitar harla sér-
kennhegt en það er þannig tilkomið
að Ingólfur Guðjónsson hljómborðs-
leikari og Sigurður Gröndal gítar-
leikari voru áður í hljómsveit sem
kahaði sig Sköllótt mús. Þegar svo
Jóhann Ásmundsson bassaleikari og
Richard Scobie söngvari gengu th
hðs við þá þótti nafnið ekki lengur
við hæfi og þá varð th hljómsveitin
Loðin rotta. Rikshaw er hins vegar
kínverskur handvagn.
Platan Angels and Devils var tekin
upp í hljóðverinu Grjótnámunni og
var ekki nema einn mánuð í vinnslu.
Að sögn Richards Scobie er þetta
mjög hrátt rokk en mikið er lagt upp
úr vönduðum, innihaldsríkum text-
um sem byggjast að grunni th á
reynslu þeirra sjálfra.
Troðfullt hús var á Gauknum á
Sigurður Gröndal gítarleikari er einbeittur á svipinn í sólóinu.
DV-myndir Torill
fimmtudagskvöldið og komust færri
inn en vhdu. Sviðsljós DV var á
staðnum og voru
myndir teknar.
þá meðfylgjandi
-H.Guð.
Rikshaw rokk-
ar á Gauknum
Auglýsing frá
HAGSTOFU ÍSLANDS
Eruö þið rétt skráð í þjóðskrá?
1. Áríðandi er að heimilisföng séu rétt í þjóðskrá.
2. Skattkort, staðgreiðsluyfirlit, barnabætur, launa-
seðlar og margt fleira er sent út eftir þjóðskrá.
Skattframtöl eru send á lögheimili manna eins og
þau eru skráð 1. desember ár hvert.
Bent skal á að við alþingiskosningar eru menn
teknir á kjörskrá í því sveitarfélagi er þeir áttu lög-
heimili í 1. desember næstan fyrir kjördag.
3. Aðsetursskipti skal tilkynna til skrifstofu viðkom-
andi sveitarfélags, í Reykjavík til Hagstofunnar,
Skuggasundi 3, Manntalsskrifstofunnar, Skúla-
túni 2, eða lögregluvarðstofu.
Hagstofan
sveppir
Létt og ljúffengt á dagskránni kl. 18.55:
Kjúklingur með valhnetum og chiligrjónum Uncle Bens
400 g kjúklingabrjóst
salt og pipar^
4 msk. hveiti
4 eggjahvítur (léttþeyttar)
/i tsk. sykur
100 g valhnetur
1 tsk. sykur
sojasósa og sérrí eftir smekk
Chiligrjón:
100 g soðin hrísgrjón
paprika
laukur
vorlaukur
Sendiherrahjónin og dóttir þeirra ásamt Guðna Bergssyni, leikmanni Totten-
ham Hotspur, og frú. DV-myndir GRS
Framarar í London
Guimar R. Svembjömsson, DV, Englandi:
Sendiherrahjónin í London efndu
th mótttöku fyrir leikmenn Fram-
liðsins í knattspyrnu og fóruneyti
þeirra eftir síðari leik liðsins við
Barcelona í Evrópukeppninni á dög-
unum.
Framararnir stoppuðu í London í
nokkra daga á heimleiðinni og not-
uðu tækifærið til að fara í búðir og
á völhnn.
Þrír hressir Framarar. Frá vinstri: Þorsteinn Þorsteinsson, Birkir Kristinsson
og Ríkharður Daðason.
Bókahandbók
12. desember nk. kemur út Bókahandbók DV
með upplýsingum um þær bækur sem gefnar eru út
fyrir jólin ’90.
Auglýsingar í Bókahandbók DV þurfa að berast
í síðasta lagi 6. desember nk.
Þeir auglýsendur, sem hug hafa á að auglýsa
í Bókahandbók DV, vinsamlegast hafi samband við
auglýsingadeild DV, Þverholti 11, eða í síma
27022 milli kl. 9 og 17 virka daga, sem fyrst.
ATHUGIÐ!
I Bókahandbókinni verða birtar allar tilkynningar
um nýútkomnar bækur ásamt mynd af bókarkápu.
Birting þessi er bókaútgefendum að kostnaðarlausu.
Æskilegt er að þeir sem enn hafa ekki sent
á ritstjórn nýútkomna bók og tilkynningu geri það
fyrir 6. desember svo tryggt sé að tilkynningin birtist
Verð bókarinnar þarf að fylgja með.
Umsjónarmaður efnis Bókahandbókarinnar er
Hilmar Karlsson blaðamaður.