Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1990, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1990, Qupperneq 32
 Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst, óháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1990. Jósvatniá öskubakkaog vildiekkifaraút Lögregla og slökkvilið var kallað út að risíbúð við Njálsgötu í gær- kvöldi. Húsráðandi hafði lagt sig öl- vaður með sígarettu og kviknaði í sængurfötum hans og rúmi. Fyrst var tilkynnt um eldinn til lögreglu. Þegar lögreglumenn komu inn í íbúðina sat húsráðandi í miklu reykjarkófi og var að hella vatni yfir öskubakkann sinn. Á bak við mann- inn logaði hins vegar eldur í svefn- sófa hans og sængurfatnaöi. Lög- reglumenn ætluðu að fá manninn með sér út en hann neitaði því og sagðist vera búinn að slökkva eldinn - sem hefði komið frá öskubakkan- um, þetta væri því bara búið. Lög- reglumenn sáu þann kost vænstan að taka manninn út með valdi. Slökkviliðsmenn komu von bráðar og var eldurinn slökktur snarlega. Maðurinn, sem er tæplega fertugur, fékk að gista hjá lögreglunni í nótt. Honum varð ekki meint af. -ÓTT Búnaðarmálastj óri: Áframmeð „BLUPPIГ Leitaðáfram LOKI Ja, raðherra! Utanríkisráðuneytið: Neitar að borga auglýs ingar með Jóni Baldvin munum kreflast greiðslu, segir auglýsingastjóri Þjóðviljans Um miðjan mánuðínn stóð utan- ríkisráðuneytið fyrir opnum kynn- ingarfundi með Jóni Baldvin Hannibalssyni á vertshúsi í Reykjavík. Yfirskriftfundarins var „Unga fólkið og Evrópa“ og aug- lýsti ráðuneytið fundinn með alls niu stórum auglýsingum í dag- blöðunum. Athygli vakti að i auglýsingum ráðuneytisins var hvorki getið um tilgang fundarins né hvert um- ræðuefnið ætti að vera. Alls mættu milli 50 og 60 manns á fundinn. Ekki fengust upplýsingar hjá ut- anríkisráðuneytinu um endanleg- an kostnað vegna fundarins en ætla má að hann veröi tæplega ein milljón króna. Miðað við útselt auglýsingaverð blaðanna til ríkis- stoíhana er kostnaður ráðuneytis- ins vegna þessa um 800 þúsund krónur. Til viðbótar þessari upp- hæö má gera ráð fyrir að vegna gerðar auglýsingarinnar og ókeyp- is veitinga á fundinum hafi ráðu- neytið þurft að borga á annað hundrað þúsund krónur. Að sögn Þorsteins Ingólfssonar ráðuneytisstjóra var það alls ekki ætlun ráðuneytisins að auglýsa fundinn svona mikið og því hafi hann gefið gjaldkera ráðuneytisins skýr fyrirmæh um að borga ekki fyrir allar birtingar. Hann segir Þjóðviljann, Alþýðublaðið og Tím- ann hafa bírt auglýsingarnar oftar en beðið hafi verið um og fyrir aukabirtingarnar verði ekki borg- að. Þorsteinn segir ekkert óeðlilegt við það að ráðuneytið haldi kynn- ingarfundi um þær viðamiklu samningaviðræður sem eiga sér stað milli þjóða Evrópu þessa dag- ana. Til áréttingar bendir hann á að bæði Alþingi og ýmis hags- munasamtök hafi óskað eftir slík- um fundum. Hami neitar því alfar- ið aö með þessum fundi hafi ráðu- neytið verið að taka að sér kostnaö vegna flokkspólitískra funda með formanni Alþýðuflokksins. Þegar DV bar þessi ummæli ráöuneytisstjórans undir Steinar Harðarson, auglýsingastjóra Þjóð- viljans, kvaðst hann undrast þau mjög. „Viö birtum aldrei auglýs- ingar óumbeðið. Þeir óskuðu eftir tveim birtingum þegar pöntunin kom inn. Ég skil ekkert í þessu. Að sjálfsögðu munum við krefiast greiðslu fyrir báðar birtingarnar. “ -kaa „Þetta er einfaldlega spurning um hvort menn vilja nota bestu þekk- ingu sem þeira hafa til að komast áfram í ræktunarstarfinu eöa hvort menn vilja nota brjóstvitið eitt. Við veljum það fyrrnefnda. Það hafa ver- ið villur í spánum sem orsakast af ónákvæmni í upplýsingum um • hrossin. Upplýsingarnar verða alltaf meiri og því batna spárnar," sagði Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri við DV. DV sagði í gær frá því að Dansk- íslenska hrossaræktarsambandið hefði samþykkt að hætta að birta kynbótagildisspár hrossa, svokall- aða BLUP-spár, vegna óánægju með áreiðanleika þeirra. Neitar sam- bandið að greiða höfundi spánna, Þorvaldi Árnasyni, 250 þúsund ís- lenskar krónur á ári fyrir þær. Jónas sagði aö Búnaðarfélagið hefði sjálft séð um að gera spámar síðastliðin tvö ár. Þrjú ár á undan greiddi Bún- aðarfélagið Þorvaldi 200 þúsund krónur árlega fyrir vinnu að spán- um- . -hlh Menn taka þá afleiðingunum erþeirfella bráðabirgðalögin Skipulögð leit að bátnum Jóhann- esi frá Hvammstanga heldur áfram í dag. Fjörur verða gengnar á Vatns- nesi. Bátur mun fylgja leitarmönn- um norður frá Hvammstanga. Einnig verður leitaö frá Skagaströnd. Mikil leit er fyrirhuguð á laugardag. -ÓTT „Þessi þjóðarsátt virðist ékki vera sátt um neitt annað en að láta lægst launaða fólkið missa endanlega sjálfsvirð- ingu sina. Um þetta erum við öll sammála hjá SVR,“ segir Hannes H. Garðarsson, aðaltrúnaðarmaður starfsfólks Strætisvagna Reykjavíkur. Starfsfólk SVR hélt fjölmennan fund í gærkvöldi um kjaramál. Engin ályktun var sam- þykkt á fundinum en hins vegar kom fram almenn óánægja með framlengingu þjóðarsáttarinnar um síðustu helgi. Á fundinn mætti Sjöfn Ingólfsdóttir, starfandi formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, og gerði grein fyrir stöðunni í kjaramálum. Að sögn Hannesar hyggst starfsfólk SVR ekki grípa til sérstakra aðgerða á næstunni til að fá leiðréttingu á kjörum. „Hins vegar er aldrei að vita upp á hverju við tökum. Það er ýmislegt annað en launin sem við viljum leiðréttingu á. Það kemur einfaldlega í Ijós hvað við gerum.“ -kaa/DV-mynd BG Veðrið á morgun: Hlýjastá Norðaust- urlandi Á morgun verður suölæg átt, víða stinningskaldi vestanlands en talsvert hægari austan til. Súld sunnanlands og vestan en víðast bjart veður á Norður- og Norðausturlandi. Hlýtt áfram, hiti 4-10 stig, hlýjast norðaustan- lands. Steingrímur Hermaimsson: „Ég mun ekki skipta mér af því hvenær bráðabirgðalögin koma til afgreiðslu á Alþingi. Ég tel það ekki þjóna tilgangi að fara að draga af- greiðslu þeirra fram á vetur. Ég mun heldur ekki fara út í neina samninga við menn um stuðning við bráða- birgðalögin. Menn taka þá bara af- leiðingunum ef þeir fella þau,“ sagði Steingrímur Hermannsson forsætis- ráðherra í morgun. Forsætisráðherra hefur sagt að hann muni rjúfa þing og efna til kosninga ef bráðabirgðalögin verða felld á Alþingi. Hann hefur einnig bent á að fari svo að lögin verði felld muni verðbólgan rjúka upp aftur. Fyrir liggur að þeir Stefán Val- geirsson, Geir Gunnarsson og Hjör- leifur Guttormsson muni greiða at- kvæði gegn frumvarpinu. Þar með væri það fallið nema einhverjir stjórnarandstæðingar greiddu því atkvæði eða sætu hjá. Því er raunar haldið fram að ein: hverjir sjálfstæðismenn muni sitja hjá við afgreiðslu málsins. Þeim þyki ekki fýsilegt að fara út í kosninga- baráttu eftir að hafa fellt bráða- birgðalögin. -S.dór D'OR Freyja hf. Sími: 91-41760

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.