Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1990, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1990, Blaðsíða 25
"TTl ■«1 ■ ■HwiaH s ! ív CÍií: ' . ' S \ ' ' - ' i ■ wgmM 1 lllÉÍÍÍICí# XU 1-1 !•.-• • C . ! '■! 'I: ■ /11 FIMMTUDAGUR 27. DESEMBER 1990. Svidsljós Glenn Ford og Loretta Lynn: Segiast hafa lifað áður Shirley MacLaine er ekki sú eina af fræga fólkinu sem trúir á endur- holdgun. Söngkonan Loretta Lynn og leikarinn Glenn Ford eru meðal þeirra flölmörgu sem fullyrða að þau hafi lifað áöur hér á jörð. Gall- up-könnun hefur leitt í Ijós aö 23% Bandaríkjamanna trúa á endur- holdgun. Loretta Lynn segist muna mörg fyrri líf. í einu þeirra segist hún hafa verið þjónustustúlka hjá Ge- org Bretakonungi. Hún segist hafa verið leynileg ástkona kóngsins en verið myrt af vini hans eftir dauða kóngsa. Einnig segist hún muna líf sín sem Cherokee-prinsessa, amerísk húsmóðir og veitingahúsaeigandi (karlmaður) á þriðja áratug þessar- ar aldar. Glenn Ford man mörg fyrri líf að eigin sögn. Hann var dáleiddur til að ganga úr skugga um hvort ein- hver glóra væri í þessu hjá honum, en þá kom margt athyglisvert í ljós. Dr. Maurice Benjamin, sálfræð- ingur í Los Angeles, dáleiddi hann og spurði hver hann væri. Ford svaraði með skoskum hreim að hann héti Charles Stewart. Seinna var fimdið út að í kringum alda- mótin 17-1800 hafði verið uppi maöur með þessu nafni í Elgin í Skotlandi. Allt þaö sem Ford sagði í dáleiðslunni sem Charles Stewart kom heim og saman viö lif þessa manns. Öðru sinni er Ford var í dá- Loretta Lynn segist hafa verið ástkona Georgs konungs i einu af sinum fyrri iífum. leiðsluástandi var hann leiddur að píanói. Hann settist við hljóðfærið og spilaði erfið verk eftir Bach, Beethoven og Mozart eins og hann hefði aldrei gert neitt annað. í vöku er Ford fyrirmunað að spila gamla Nóa með einum fingri, hvað þá heil tónverk. En Glenn Ford er sannfærður um Glenn Ford spilaði sinfóníur og talaði frönsku i kann hann hvorugt. dáleiðsluástandi. I vöku að hann hafi líka verið Frakki í einhverjum af þeim lífum sem hann segist hafa lifað áður. í dá- leiðslu eitt sinn sagði Ford á frönsku að hann fyndi hestalykt. Dávaldurinn spurði hvar hann væri og Ford sagðist vera í Versöl- um. Meðan hann var í dáleiöslunni talaði hann einungis frönsku. í vöku getur hann ekki boðið góðan daginn á því tungumáli. Ford sagðist standa fyrir framan kommgshöllina í Versölum og á vinstri hönd væru hesthús, full af gæðingum. Prófessor nokkur, sem þekkir til sögu staðarins, sagði að þetta gæti ekki staöist. Það hefðu aldrei verið hesthús á þessum stað. Seinna kom þó í leitimar gamalt kort af Versöl- um sem sýndi glögglega að vinstra megin viö konungshöllina hafði riddaralið konungsins haft aðsetur með gæðinga sína. H.Guð. Það eru ekki bara íslenskir krakkar sem spranga um með jólasveinahúfur þessa dagana. Þessar systur áttu fullt i fangi með að halda húfunum á höfðinu því að dúfurnar á götum Lundúnaborgar sóttu það fast að sitja á kollum stúlknanna. Slmamynd Reuter „Eg hef aldrei séð betri útfærslu á verki Chekhovs, Þrem systrum, en þessa,“ sagði gagnrýnandinn Clive Hirschhorn i breska blaðinu The Sunday Express um daginn. Þrjár systur leika einmitt systurnar þrjár i Þrem systrum. Það eru þær Vanessa, Lynn og Jemma Redgrave. Leikur- inn ætti því að geta verið nokkuð sannfærandi. :• Þekktasti knattspyrnumaður heims, Diego Armando Maradona, tilkynnti fyrr í mánuðinum að hann hygðíst ieggja skóna á hilluna og hætta alveg að spila fótbolta. Hann segist gera ráð fyrir að hætta með liði sínu, Napoli, áður en þetta keppnistímabil rennur út. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.