Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1990, Blaðsíða 26
30
FIMMTUDAGUR 27. DESEMBER 1990.
Fréttir
Norðurárdalur:
Hvammskirkja í
upprunalegt horf
Bergþór G. Úlfarsson, DV, Borgarfirði:
Miklar endurbætur voru gerðar á
Hvammskirkju í Norðurárdal nú í
haust og vetur. Kirkjan var byggð
árið 1880 og er því 110 ára á þessu
ári. Byrjað var á að leysa upp gömul
málningarlög og kirkjan síðan máluð
að innan og að utan í upprunalegum
litum. Verkið var unnið af Jóni Svani
Péturssyni, málarameistara í Stykk-
ishólmi, en í samráöi við Hörð
Ágústsson listmálara.
Þá var gert viö umgjörð um altaris-
töflu sem er eftir Þórarin B. Þorláks-
son. Gert var við glugga og skipt um
gler í kirkjunni og skipt um járn á
þaki. Einnig er lokið við stækkun
kirkjugarðsins og var hiaðinn gijót-
veggur framan á kantinn á garðin-
um, gömui legstæði voru löguð og
öll gömul og ómerkt leiði skráð.
Garðvinna var unnin á vegum
Sindra Arnfjörð garðyrkjumanns.
Árið 1969 fór fram gagnger viðgerð
á kirkjunni. Steyptur grunnur undir
hana og skipt um máttarviði. Þá var
tekin af henni járnklæðning. Kom
þá í ljós upprunaleg timburklæðning
og var hún klædd sams konar klæðn-
ingu aftur að utan.
I Hvammi hefur verið kirkja frá
því á 13. öld og var þar prestssetur
allt til ársins 1911 að það sameinaðist
Staíholtsprestakalli. Síðasti prestur í
Hvammi var séra Gísli Einarsson.
Núverandi prestur er séra Brynjólf-
ur Gíslason.
Rökkurkórinn:
Gengur vel að f á fólk í kórinn
- segirRagnheiðurKolbeins
Þórhallur Asmundsson, DV, Sauðárkróki:
„Þetta er í þriðja skiptið sem við
höfum jólatónleika með þessu sniði.
Við erum með dúkuð borð, kertaljós
og Kaffitár og fólkið hefur kunnaö
að meta þessa notalegu stemmningu
sem skapast. Með tónleikunum vilj-
um viö leggja okkar af mörkum til
menningarauka yfir jóhn og það er
gaman að geta gefið héraðsbúum
tækifæri til að fylgjast með fram-
gangi unga tónlistarfólksins okkar,“
sagði Ragnheiður Kolbeins, formað-
ur Rökkurkórsins.
Kórinn stendur fyrir jólatónleik-
unum í Miðgarði fostudaginn 29. des-
ember kl. 21. Auk kórsins koma fram
ungir Skagfirðingar sem eru við tón-
listar- og söngnám syðra, söngnemar
Helgu Baldursdóttur á Sauðárkróki
og Kirkjukór Sauðárkróks kemur í
heimsókn.
Að sögn Ragnheiöar gengur þokka-
lega að fá söngfólk í kórinn, helst að
sé erfitt að fylla upp í karlaraddirn-
ar, enda stór karlakór starfandi,
Heimir. Stjórnandi Rökkurkórsins
er Sveinn Árnason og undirleikari
Richard Simm. Kona hans, Jacqhne,
leikur undir í tveim lögum kórsins.
Frá jólatréssölu Skógræktarfélags Austurlands 15. des. á Egilsstöðum.
DV-mynd Sigrún
Jólatré með hnaus
sóttútískóg
Sigrún Björgviiisdóttir, DV, Egilsstöðum:
Um 1200 jólatré voru höggvin á
Héraði í ár og fóru öh á markað aust-
anlands.
Skógaræktarfélag Austurlands
seldi um 160 tré úr skógi sínum á
Einarsstöðum á Vöhum. Laugardag-
inn 15. des. var fólki gefinn kostur á
aö koma og velja sér tré. Margir tóku
jólatréð sitt upp með rótum og hyggj-
ast setja það út í garð í vor. Er það
til marks um góðu tíðina í haust og
vetur að slíkt skuli vera hægt um
þetta leyti. Hvergi var svellglotti á
vegi og stemningin í skóginum stór-
kostleg þótt snjóinn vantaði eða lík-
lega einmitt af því að snjórinn var
ekki til trafala.
Skógræktin á Hallormsstaö var
með um 1000 jólatré th sölu, mest
rauðgreni og blágreni. Norðmanns-
þinur var ekki til hjá þeim en er í
uppvexti. Sala á rauðgreni hefur
aukist eftir að aðferð, sem kemur í
veg fyrir að trén fella barrið, var upp
fundin.
Var AJíivd Hitchcock sadisti? Já. Snúum okkur þá
aö næstu spumingu: Hvers konar sadisti var hann?
; Höfundurínn gefur okkur silt álit á því cftiraö hafa
Wgaumgæft Hitchcockmyndir um tveggja rnánaða
skcið.
MAÐURINN
SEM ELSKAÐI EKKI
KONUR
Martehe Dietrích var ein þeirra ieikkvenna sem létu Hiichcock ekki voða \ríir sig. ;
Hún kom tii fslands á stríðsárunum, sennilega 1943 eðo 1944, óg skernmv banda- m
rískum hermönnum. Við það tækifærí var þessi mynci tekin sem úl af fyrir sig er '■
söguleg. Marlene er hér greiniíega á blaðamannafundi ug kríngum hana hafa taðað ;
sér þjóðkunnir 'merin. Vinstra rnegin viö hana situr fvar Guðmundsson, sern þá hef-
ur sennilega veríð á Morgunbiaðinu, en tií hægrí er Bjarni Guðmundsson. blaðafull- wi
trúi islensku ríkisstjúrnarínnar: Standandi frá vinstrí: Hersieinn. Pálsson. Vísi, Ásmund- i
ur Sigurjónsson, Þjúðviljanutn, Jón Guðrnundsson, Vikunni. Svavar Hjaltesied. Fáik-
anum. Thorolf Smith. Alþýðubiaðinu, Jón Magnússon, Fréttastofu ríkisútvarpsins. ;i|
Þó skömm sé frá að segja vitum við ekki hver konan er sem situr milli Martena og ;
Bjarna.
Borgarfjörður:
Búnaðarsam-
bandið
áttatíu ára
Bergþór G. Úlfarsson, DV, Borgarfirði:
Búnaðarsamband Borgarfjarðar er
80. ára um þessar mundir. Það var
stofnað 2. júlí árið 1910.
Á kvöldvöku, sem haldin var á veg-
um Búnaðarsambandsins í Loga-
landi í Reykholtsdal nú í byijun des-
ember, skýrði Bjarni Guðráðsson,
formaður Búnaðarsambands Borg-
arfjarðar, frá stofnun og starfi sam-
bandsins.
Karlakórinn Söngbræður söng
undir stjórn Sigurðar Guðmunds-
sonar við undirleik Ingibjargar Þor-
steinsdóttur. Þá voru flutt ljóð eftir
borgfirskar konur. Þau voru úr
væntanlegri bók sem koma mun út
á næsta ári með ljóðum eftir konur
úr Borgarfirði. Flytjendur voru: Ingi-
björg Bergþórsdóttir, sem sér um
útgáfuna, Hrafnhildur Sveinsdóttir,
Jónína Eiríksdóttir og Þórunn Reyk-
dal.
Bændaskólinn á Hvanneyri færði
Búnaðarsambandinu að gjöf tveggja
tíl þriggja mánaða starf sérfræðings
og ljósmynd af Hvanneyri.
Formaður Sambands borgfirska
kvenna, Olga Sigurðardóttir, færði
Búnaðarsambandinu merki sam-
bandsins.
Framkvæmdastjóri Búnaðarsam-
bans Borgaríjarðar er Guðmundur
Sigurðsson héraðsráðunautur.