Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1990, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1990, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 27. DESEMBER 1990. Fréttir____________________________________________________________ Norðurá í Borgarfirði: Dýrasti dagurinn er kominn í 45 þúsund „Viö reynum að lækka verðið á veiðileyfum eins og við getum, nema í Norðurá í Borgarfirði, þar gekk það bara ekki,“ sagöi Friðrik Þ. Stefáns- son, stjómarmaður í Stangaveiðifé- lagi Reykjavíkur, í gærdag. „Við vorum að ganga frá Svartá í Húnavatnssýslu fyrir jól og náðum 10% lækkun á ánni á milli ára. Áin var leigð á 3,6 milljónir á síðasta ári en núna á 3,2 milljónir. Við lækkum dýrasta tímann úr 23.500 kr. í 19.800 kr. sem er mikil lækkun. Allt verð lækkar í Svartá næsta sumar og við erum að reyna að fá breytingu á veiðitímanum í ánni næsta sumar - færa hann aðeins tii,“ sagði Friðrik Þ. Stefánsson ennfremur. Ef við rennum gegnum verð- skrána, sem Stangaveiðifélag Reykjavíkur var að senda félags- mönnum sínum fyrir fáum dögum, kemur ýmislegt í ljós. Hálfur dagur í Elliðaánum er seld- ur á 6800 kr. næsta sumar en var á 6250 kr. í Brynjudalsá er verðið frá 5200 kr. upp í 12.500 kr. en dýrasti tíminn í fyira var 10.900 kr. í Selós í Svínadal er dagurinn á 6000 kr. en var 5000 árið áður. í Þverá kostar dagurinn frá 4500 kr. og upp - mikil lækkun í Svartá í Húnavatnssýslu í Elliðaánum kostar hálfur dagurinn 6800 krónur og flestir veiðimenn fá fisk í soðið þar. DV-mynd Rasi í 8500 í september. Dagurinn kostaði 4500 mest 1 fyrra og er þetta því nokk- ur hækkun þarna. í Laxá í Leirársveit kostar dýrasti tíminn 43.000 kr. næsta sumar en var 46.000 kr. í fyrra. Ódýrasti dagurinn í Laxá í Leirársveit er 20.000 kr. í Gljúfurá í Borgarfirði kostar ódýrasti dagurinn 7200 kr. en dýrasti 15.600 kr. Dýrasti tíminn í Gljúfurá í fyrra var 13.600 kr. í Norðurá hækka veiðileyfin mest og kostar dýrasti timinn fyrir íslend- inga 45.000 kr. en var 29.000 fyrir ári. Útlendingum verða seldar þrjár vikur og er verðið nokkru hærra en 45.000 kr. Hægt verður að komast í Norðurá fyrir 9900 kr. En það sem veiðimenn bíða eftir í Norðurá, eins og fleiri ám í Borgarfirði, er hvort fleiri laxar koma eftir að netin fara upp. í Miðá í Dölum er ódýrasti tíminn á 2800 kr. en sá dýrasti á 11.800 kr. í fyrra var dýrasti tíminn á 10.400 kr. í Flekkudalsá á Fellsströnd er dýr- asti tíminn næsta sumar 18.700 kr. en var 19.500 árið áður - nokkur lækkun þar. Hægt er að komast í Flekkudalsá fyrir 9700 kr. í Breiðdalsá í Breiðdal kostar dag- urinn mest 6900 kr. en minnst í laxin- um 2000 kr. í fyrra var dýrasti dagur- inn 6300 kr. í Sogið er hægt að komast í lax- veiði fyrir ódýrast 3400 kr. en dýrast 13.900. í Stóru-Laxá er verðið frá 6800 til 11.000 kr. en var 10.000 kr. dýrast í fyrra. Stangaveiðifélagið býður upp á veiðileyfi í Eyrarvatni, Þórisstaða- vatni og Geitabergsvatni í lax og sil- ung. Á Gíslastöðum, Snæfoksstöðum og Laugarbökkum standa veiðileyfin í stað á milli ára, enda veiðin ekki mikil í fyrra þarna. -G.Bender Margir skotveiöimenn náöu rjúpum handa sjálfum sér í matinn enda dýrt að borga 1300 krónur fyrir stykkið eins og einhverjir urðu að gera á að- fangadag. DV-mynd G.Bender Margir fengu ekki rjúpur þessijól Einhver hundruð landsmanna urðu að breyta um veislumat á að- fangadag þetta árið þar sem ekki fengu allir sem vildu ijúpur í mat- inn. Veröið hækkaði mikið síðustu dagana fyrir jóhn. Viku fyrir jólin var verðið kringum 500 krónur en þremur dögum fyrir jól var það orðið 750 krónur og síðasta daginn keypti fólk rjúpur fyrir 1300 krónur. „Ég og fjölskylda mín höfum borð- að ijúpur um jóhn í tugi ára og mér voru boðnar þær á 1300 krónur á aðfangadag og tók ég því. Ég var búinn að leita alla vikuna og hafði aðeins fengið tvær ijúpur en þurfti fimmtán. Ekki getur maður breytt um matarvenjur og það á jólunum,“ sagði þessi rjúpnakaupandi, hress með ijúpumar sínar þó dýrar væm. Þótt þetta sé hátt verð fengu víst færri en vildu. Það hefur heyrst aö skotveiðimenn hafi bara skotið færri rjúpur fyrir þessi jól en ekki verið að geyma þær til að fá hærra verð fyrir þó að alltaf sé það einn og einn sem gerir slíkt. Þetta er það sem Ævar Petersen fuglafræðingur og fleiri vom búnir að spá - lélegu ijúpnaári. Enda hafa heyrst óvenjulega háværar raddir sem vilja annaðhvort stytta veiðitím- ann eða friöa rjúpuna einhver ár. -G.Bender Flug innan- landsgekk að mestu vel - þó erfiðleikar á Vestfíörðum Flug Flugleiða innanlands um jólin gekk að mestu samkvæmt áætlun. Flogið var til allra staða fyrir jól og komust allir sem biðu á áfangastað. Erfiðlega gekk meö flug til ísafjarðar og Þingeyrar á aðfangadag og fór ein vél til Pat- reksfjarðar þar sem vél frá Flugfé- laginu Erni á ísafirði beið og sá um að koma farþegum á áfangastað. í gær, annan dag jóla, var flug með eðhlegum hætti, utan það að öhu flugi til Vestfjarða var aflýst á hádegi. Af þeim sökum bíða um 150 farþegar í Reykjavík og annar eins fjöldi fyrir' vestan eftir flugi. í dag á að athuga um flug vestur og verða fjórar ferðir famar ef veður leyfir. Millilandaflug gekk með ágætum fyrir jól. Flogið var til allra staða og í gær komu vélar frá Stokk- hólmi, Lúxemborg, Kaupmanna- höfn og London. Þrjár flugáhafnir Flugleiða héldu jól í Bandaríkjun- um - í Orlando, Baltimore og New York. -JJ Bóksala var mjög góð fyrir þessi jól og betri en oft áður. Bækur af öllum tegundum ruku út, hvort sem um var aö ræða matreiðslubækur, íslenskar og þýddar skáldsögur, æviminningar eða fræðibækur. Mynd þessi var tek- in á laugardag fyrir jól í Máli og menningu og var fjörugt við bókaborðið og margir að spá í heppilega jólabók handa vinum og ættingjum. DV-mynd GVA Sandkom dv SverrirLeós- . son útgerðai - : niaðiu-ogsjálf- stæðismaöurá Akureyri sendi HahdóriBlön- dalalþingis- .manniog fiokksbrixiur sínumnokkur orðíDegiá dögunum og ekki geislaði beint af hlýju í því bréfl „Hvað yfir þig hefur komið nú á síðustu vikum veit ég eigi. En frá þ ví þú slepptir þér í ræöu- stól á hinu háa Alþingi (þar sem þú niðurlægðir sjálfanþig mest) er eins og þú þurfir að fa frekari útrós, þar sem þú veifar ritverkum þínum á bæði borð...“ - Sve.rrir getur um „á- rásir" Halldórs á Ásmund Stefáns- son, Einar Odd Kristjánsson og Halldór Ásgrímsson og latik síðan grein sinni með þessum orðum: „í lokin Hahdór Blöndal. Það styttist í alþingiskosningar þegar frambjóð- endur uppkera eins og þeir hafa sáð. Þarert þúengin undantckning." - Þarhefnrþúþaö, HalldórBlöndal, frá flokksbróður þínum fyrir norðan! Góðirdagar og... Það getur verið ’ fróðleg lesning aölítaíeinka- málauglýsing- arbiaðanna endaeruþaroft áferðinnihin morkilegustu g gullkom.Ein slík, sem birtist íDegiáAkur- eyri af og til, segir m.a.: „Góðir dagar og hamingja. Kunningsskapur til hjónabands 18 ára og eldri fyrir allt landið. Geiðu upp aldur og áhuga- mál. Fyrir hestamenn til að fara í útreiðatúr meö, og gera stundimar ánægjulegri. Hamingjubréffyrir pennavini árið 1991...“ Siðan koma upplýsingar um símanúmer í Reykja- vík, loforð um trúnað og jóla- og ný- ársóskir. En það er þetta með hesta- mannskuna... Bruðlið í musterinu Þeireruófáir semveltaþvi fyrirsérhvað séeiginlega : veríðaðgeraí Þjóðleikhúsinu þessadagana, þessumusteri íslcnskrarleik- listar Sxovttö istsemþarsé nú sviðsettur hínn mesti „harmleik- ur“ sem ekki sér fyrir endann á. Upplýst er að kostnaöur við breyting- ar á húsinu nemi tæpum míhjarði króna ogerþá aðeins veriðað ræða um l.áfangann.Þaöerfróðlegtað velta þvi fyrir sér aö þessi 1. áfangi við Þjóðleikhúsið kostar skattgroið- endur á.lika mikiö og gerð jarðgang- anna í Ólafsfjarðarmúla. Það tók hins vegar fleiri ár að fá „landsfeðuma" að samþykkja jarðgangagerðina, en það stóð ekki á þvi aö hleypa „hönn- uðunum“ að teikniborðinu þegar til tals kom að hefj a endurbætur á Þjóð- leikhúsinu. Hreinn kom áóvart Óhætterað segjaaösú ákvörðun HreinsPáls- sonar, itæjar- lögmannsáAk- ureyri.aðtaka ekki2.sætiá listaAlþýðu- flokksinsi Norðurlands- kjðrdæmi eystra hafi komið mjög á óvart, en Hreinn hlaut bindandi koshingu í þaö sæti í prófkjöri. Vitað dr að ekki hafa veriö miklir kærleik- ar mhli stuöníngsmanna Hreins og Sigbjörns Gunnarssonar, sem hreppti 1. sætið, en Hreinn hafðiþó sagtaö haim myndi taka 2, sætiö og taka þátt í baráttunni. Sögusagnir um sérfrámboð Hreins og hans manna voru fljótar í gang en þær munu úr lausuloitigripnar. Umsjón: Gylfl Kristjánsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.