Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1990, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 27. DESEMBER 1990.
5
Breytt hjá hátt
í 700 manns
- að sögn skattstjórans 1 Reykjavík
Frá því álagning opinberra
gjalda var kunngerð um mitt síð-
astliðið sumar hafa hátt í 700
manns fengið leiðréttingu á vaxta-
bótum vegna íbúðarkaupa hjá
skattstjóranum í Reykjavík. Alls
felur leiðréttingin í sér tekjumissi
fyrir ríkissjóð upp á 36 milljónir.
Að sögn Gests Steinþórssonar,
skattstjóra í Reykjavík, voru flestar
leiðréttingar gerðar hjá þeim ein-
stakhngum sem ekki skiluðu skatt-
framtali í tæka tíð. Hins vegar hafi
einungis 85 þeirra sem kærðu sér-
staklega ákvörðun embættisins um
vaxtabætur fengið úrskurð um
hækkun.
Enn tekið við kærum
Gestur segir að margir þeirra
sem kærðu hafi um síðustu áramót
ekki gert sér grein fyrir því hvern-
ig fylla ætti út eyðublaðið um
vaxtagjöld sem fylgja átti skatt-
framtölum. Aðrir, og þá einungis
þeir sem festu sér kaup á húsnæði
1987, hafi ekki gert sér grein fyrir
því að vaxtabótakerfið getur verið
íbúðarkaupendum hagstæðara en
gamla húsnæðisbótakerfið.
Að sögn Gests á embættið enn
eftir að úrskurða kærur vegna
ákvörðunar embættisins um
vaxtabætur. Einkum sé þó um að
ræða einstaklinga sem stunda
rekstur í eigin nafni.
Hjá embætti Ríkisskattstjóra
fengust þær upplýsingar að þar
væri enn tekið við kærum vegna
ákvörðunar um vaxtabætur á
þessu ári.
-kaa
Fréttir
Hornfirðingar hafa eignast nýtt skip. DV-mynd Ragnar Imsland
Ándey til Hornafjarðar
Júlia Imsland, DV, Homafirði;
Nýtt skip hefur bæst við fiskiskipa-
eign Hornfirðinga. Það frystiskipið
Andey sem Garðey hf. á Höfn kaupir
af Hraðfrystihúsi Breiðdalsvíkur.
Andey er 211 tonn og kom ný til
Breiðdalsvíkur á sl. ári. Garðey hf.
átti tvö skip fyrir, Garðey og Akurey.
' '
| S
. m P :
mma
íslenski hlutabréfasjóðurinn er hlutafélag sem
fjárfestir í verðbréfum, einkum hlutabréfum,
margra arðbærra og vel rekinna íslenskra fyrir-
tækja. Með því að fjárfesta í hlutabréfum félags-
ins gefst þér kostur á að eignast hlutabréf með
dreifðri áhættu og von um góða ávöxtun.
íslenski hlutabréfasjóðurinn hf. nýtur viðurkenn-
ingar ríkisskattstjóra þannig að kaup einstaklinga í
félaginu eru að vissu hámarki frádráttarbær frá
skattskyldum tekjum.
Dæmi:
Þú kaupir hlutabréf í íslenska hlutabréfasjóðn-
um hf. fyrir 115.000.- krónur. Skattfrádráttur
vegna kaupanna nemur kr. 45.758.-* en þá upp-
hæð færð þú endurgreidda frá skattinum.
Hjón sem kaupa hlutabréf fyrir tvöfalt hærri
upphæð fá að sama skapi tvöfalt hærri upphæð
endurgreidda frá skattinum.
* Miðað er við 39.79% skatthlutfall.
Upplýsingar vegna hlutafjárútboðsins liggja
frammi hjá Landsbréfum hf. og í útibúum Lands-
banka íslands, þ.m.t. Samvinnubankanum, um
land allt.
LANDSBREF H.F
Landsbankinn stendur með okkur
Suðurlandsbraut 24,108 Reykjavík, simi 91-606080
Löggilt veröbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi islands.
■ 11 1..A . ít