Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1991, Síða 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1991.
DV
falla fyrir þeim
Tvær „landsbyggðardruslur"
skrifa:
Vegna greinar Sigurbergs í DV
9. jan. sl. uxn landsbyggðarkonur
dettur manni í hug að hann hafi
hreint ekki farið út á land síðan
í árdaga. Fróðlegt væri að vita
hvemig samtök sem sunnlenskar
konur tala um að stofna ætla að
starfa og heiti samtakanna. -
„Burt með dreifbýlisdruslurnar“
eða eittlivað í þeim dúr? Síöan
yrði komið á passaskyldu fyrir
höfuðborgarsvæðið og makalaus-
um konum umsvifalaust snúið
við til síns heima.
En svona án gamans; hvemig í
ósköpunum stendur á því að
þessum „lítt snyrtu og illa gefnu
dreifbýliskonum“ reynist svo
auðvelt að ná sér í sunnlenska
menn þegar svona mikíð framboð
er af vel snyrtum og greindum
sunnlenskum konum í makaleit?
Saga Guð-
mundargóða
Rannveig skrifar:
Ég þakka sjónvarpinu fyrir
góða og fallega mynd, sem var
sýnd á jóladagskvöld. Fyrir utan
að segja sögu Guðmundar góða á
skemmtilegan og fræðandi hátt,
þá var tónlistin falleg og litirnir
í myndinni hrífandi. Árni Pétur
var ágætur í hlutverki Guðmund-
ar góða, textinn var mjög áheyri-
legur og Róbert Arnfmnsson í
hlutverki sögumanns var punkt-
urinn yfir i-ið eins og við mátti
buast.
Ég hygg að þessi vel gerða og
listræna mynd hafi farið fram hjá
mörgum í öllum boðmium á jóla-
dagskvöld, og ég legg því til að
myndin verði endursýnd, og þá á
þeim tíma sem fjölskyldan getur
notiö hennar saman. - Sagan riíj-
ast upp hjá fullorðna fólkinu og
vekur áhuga hjá þeim ungu.
Keppinautar
Sigurbergs
Páll skrifar:
í lesendabréfi í DV 9. þ.m. kem-
ur fram Sigurbergur nokkur,
kyntröll mikið, sálfræðingur og
kvennahella hin mesta. Auðvitað
vill hann ekki fá svona mikið af
sætum og greindum stúlkum til
Reykjavíkur. - Þær eru ekkert
annað en þvermóöskan, likt og
beljur í fjósi. Auk þess að líta
ekki við hverjum sem er, halda
þær sig vera einar í heiminum.
Svo er þetta líka mjög slæmt
sálfræöilega fyrir karla sem eru
í stúlkuleit að hafa svona mikið
að spila úr. Að ekki sé nú talað
um að þetta eru ekkert annað en
keppinautar Sigurbergs! Svo bið
ég að heilsa þessum mikla
kvennasálfræðingi í von um að
fá að heyra meira frá honum um
málefní kvenna á Suðurlandi.
Frábærþjónusta
Pétur Jóhannesson skrifar:
í tilboði frá PóstMac hf rétt fyr-
ir jóhn mátti lesa eftirfarandi
m.a. „Hjá okkur kostar 40Mb
harður diskur næstum það sama
og 20Mb annars staðar. Við höf-
um fengið söluumboð á Jasmine
jaðartækjum fyrir Macintosh
tölvur og bjóðum 40Mb harðan
disk á kr. 37.000“
Mér fannst þetta girnilegt. Til
stóð að gefa syni mínum, sem er
við nám í Svíþjóð, harðan disk
fyrir Machintosh tölvu hans. -
Eigandi PóstMac sagðist senda
póstfax strax til fyrirtækisins og
reyna að scnda diskinn beint til
Svíþjóöar. Svariö kom sama
kvöld og var ekkert þessu til fyr-
irstöðu. Tilboðið var kr. 29.720.
Diskurinn er móttekinn og ég
sendi fyrirtækinu PóstMac bestu
þakkir fyrir frábæra þjónustu.
Spurningin
Ertu fylgjandi innflutningi
á ostlíki á pitsur?
Ágústa Richardsdóttir kliníkdama:
Fólk á að fá að hafa val og því á að
leyfa innflutning. Sjálf myndi ég þó
ekki vilja ostlíki á mína pitsu.
Lesendur
Hvar voru „spútnikarnir"?
Friðrik Jónsson skrifar:
Samtökin gegn stríði, og að mig
minnir fleiri aðilar, boðuðu til fundar
á Lækjartorgi í gærdag (10. jan.) til
að mótmæla stríði við Persaflóa eins
og aðstandendur fundarins kölfuðu
það. Ég átti leið fram hjá fundarstað
þegar fundurinn stóð sem hæst og
mér fannst vera fremur þunnskipapð
á torginu, varla meira en þrjú fjögur
hundruð manns og engin sú stemn-
ing var þar sem hefði þó mátt búast
við þegar hóað er af slíkum „spútnik-
um“ sem taldir voru upp í fréttatil-
kynningu frá „Átaki gegn stríði" -
Ég saknaði þessara manna og hélt
að margir þeirra létu í sér heyra á
útifundinum.
Ég heyrði t.d. ekki í biskupsritara,
ritstjóra Tímans og fyrrv. ráðherra,
formanni BSRB, landlækni, bæjar-
stjóra Hafnaríjarðar, borgarfufltrúa
Nýs vettvangs eða aðstoðarforstjóra
Reykvískrar endurtryggingar. Hins
vegar voru þarna minni spámenn
sem enga lukku gerðu í málflutn-
ingi. Nokkur spjöld voru á sköftum
með áletrunum út í hött og komu
þessu Persaflóamáli ekkert við. Á
einu spjaldanna stóö t.d. Rambush
eða eitthvað áfíka gáfufegt.
Ég hafði reiknað með að þarna
kæmu fram einhveijir þeirra sem
kynntu undirskriftasöfnunina vegna
átaks gegn stríði, t.d. rektor Mennta-
skólans við Hamrahlíð, presturinn
Gunnar Kristjánsson, Haraldur 01-
afsson dósent, að ógleymdum Gísla
„gísl“ Sigurðssyni. - En ónei, þeir
létu það ógert að stíga í ræðustól.
Gísli afboðaði komu sína heyrði ég í
útvarpinu - hann var að vinna. Auð-
vitað. Og rektor M.H. var „upptek-
inn“ í viðtali á Bylgjunni. Hvað ann-
að? Ég skil vel að mikils metnir menn
skuli hafa frábeðið sér að halda úti-
ræðu í skjóh heimskautanætur um
svo heitt mál sem stríð við Persa-
flóann. Nóg er að gert meö stuöningi
þessara mektarmanna við málstað
Husseins íraksforseta.
Hilmar Karlsson blaðamaður: Nei,
ég er alfarið á móti því. íslenski ost-
urinn er mjög góður og ég vil ekki
fá annað bragð í munninn.
Halldór Kristiansen bankamaður: Já,
það er mun hagstæöara að kaupa
ostlíki. En ég vil vera viss um að lík-
ið sé steindautt.
Evrópubandalagiö og íslendingar
Algjörlega
andvígur
Einar Gíslason skrifar:
Eftir að hafa horft á síðasta þátt
Ingimars Ingimarssonar um ísland
og Evrópubandalagið í Sjónvarpinu
hef ég sannfærst enn betur um að
við íslendingar eigum ekkert erindi
í það bandalag, hvorki með aukaað-
ifd né sem fuffgifdir meðlimir. Ég er
algjörlega andvígur þátttöku okkar í
viðræðum um þessa hluti eins og á
stendur. Ástandið í Evrópu og útlitið
þar er ekki svo bjart þegar t.d. er lit-
ið Sovétríkjanna og landanna næst
þeim.
í þessum síðasta þætti um EB kom
glöggt fram hjá þeim íslensku við-
mælendum sem þar var leitað til, t.d.
dr. Gunnari Schram, Gunnari Helga
Kristinssyni lektor og Kristófer Má
í Brussel, að þeir eru því ekki frábitn-
ir að íslendingar stefni að inngöngu
í EB. Þama kom fram að fld. æðsta
dómsvald okkar, Hæstiréttur, myndi
'hverfa héðan og æðsti dómstóll
landsins yrði í Evrópu. Fleiri atriði
voru nefnd til sögunnar sem dæmi
um skertan sjálfsákvörðunarrétt
okkar.
Þegar ég haíði dregið saman niður-
stöður ummæla sumra þeirra sem í
þáttunum hafa komið fram sýnist
mér að þeir íslendingar séu ákafastir
talsmenn inngöngu í EB sem eygja
sjálfir einhvem möguleika á að kom-
i/leð inngöngu islendinga í EB heyrði Hæstiréttur sögunni til.
ast betur af bæði hvað varðar launa-
kjör og aðstöðu. - Þannig sýnist mér
að ýmsir embættismenn t.d. og svo
ungir menntamenn sjái þarna gjör-
breytta aðstöðu fyrir sig og sína. -
Ef æðsti dómstóll landsins, Hæsti-
réttur, verður fluttur til Evrópu,
hvaða íslendingar myndu þá fá sæti
í honum? Verða það núverandi dóm-
arar eða aðrir yngri menn? Ganga
embættin kannski í arf?
Hvað sem líður vangaveltum um
inngöngu okkar í EB verða allir ís-
lendingar að gefa sár tíma til að íhuga
atöðu sína og-gera sér fulla grein fyr-
ir hvað innganga þýðir fyrir efnahag
hvers og eins og hvort hún leiði til
farsældar lands þjóðar. Þættimir um
ísland og EB í Sjónvarpinu hafa sýnt
mörgum nýja hlið á sjálfstæði íslend-
inga.
Framboðsmál Alþýðubandalagslns:
Ekkert sjálfgef ið
Svavar Gestsson menntamálaráðherra og Guðrún Helgadóttir, forseti sam-
einaðs þings. - Hafa bæði gefið kost á sér í framboð í Reykjavík.
Ólafur Jóhannsson skrifar:
Ég hafði sannarlega búist við meiri
og frískari endurnýjun á framboðs-
listum Alþýðubandalagsins eftir allt
sem á undan er gengið í herbúðum
flokksins. Aö ekki sé nú talað um þaö
sem skeð hefur í Evrópu síðustu
mánuði. Framboðsmál Alþýðu-
bandalagsins hefðu átt að þróast í
líkingu við það sem hefur orðið í
mörgum stjómmálaflokkum Evrópu
og lengst af studdu óbreytt ástand í
Sovétríkjunum og í Austur-Evrópu.
Þannig heföu nýir frambjóðendur
verið í efstu sætum lista Alþbl. hvar-
vetna á landinu í næstu kosningum.
Það er ekkert sjálfgefið að núverandi
þingmenn flokksins séu alls staðar í
efstu sætum, jafnvel þótt þeir séu að
öðm jöfnu vel hæfir einstaklingar í
stjórnmálum. Þeirra sjónarmið eru
önnur en margra þeirra sem nú
fylgja breyttum tímum og vilja líka
breytta stefnu Alþýðubandalagsins.
Framboðsmál flokksins í Reykja-
vík og einnig á Vestfjörðum eru í
raun óleyst þótt Svavar Gestsson og
Guðrún Helgadóttir hafi tilkynnt
veru sína á Ustanum. Ekkert er sjálf-
gefð að kjósa alltaf sama fólkið í efstu
sætin. Heldur er það ekkert sjálfgefið
að forysta flokksins í Reykjavík eigi
að hafa afskipti af uppstilhngu list-
ans á Vestfjörðum. - Mér finnst að í
þetta sinn verði að vera algjör upp-
stokkun hjá Alþýðubandalaginu
hvað varðar efstu sætin á listum
flokksins í næstu kosningum. Með
því einu eru líkur á að hann haldi
einhverju fylgi.
Kristinn Daníelsson nemi: Nei, mér
finnst íslenskur ostur betri og þó sá
innflutti yrði ódýrari þá skiptir það
engu máh.
Laufey Pálsdóttir húsmóðir: Nei alls
ekki. Við eigum nóg af osti hér heima
til að nota og ég er alls ekki viss um
að sá innflutti verði ódýrari.
Jóhann Pétur Sigurjónsson nemi:
Nei ég held ekki. Pitsur bragðast
betur með alvöru osti.