Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1991, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1991, Side 23
ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1991. 23 dv Sími 27022 Þverholti 11 Vélsleðakerrur, allar gerðir. 1 sleða og 2 sleða kerrur, yfirbyggðar eða opnar. Verð frá kr. 59.800. Allir hlutir í kerr- ur og vagna. Veljum íslenskt. Víkur- vagnar hf., Dalbrekku, sími 43911 og 45270. Hitaveitur, vatnsveitur. Þýskir rennslis- mælar fyrir heitt og kalt vatn. Boltís s/f, símar 91-671130 og 91-667418. ■ Vinnuvélax Bændur-Verktakar-Björgunarsveitir. Hættið að hafa áhyggjur af ófærðinni. Fáið ykkur vinnuvél sem kemst hvert sem er allt árið. Látið ekki útlitið blekkja ykkur. Skoðið og reynið Fjölfarann. Vélakaup hf., Kársnesbraut 100, Kópavogur, sími 641045. ■ Bflar tfl sölu Daihatsu Charade TX, árg. ’88, ekinn aðeins 21 þús. km. Lítur út sem nýr, ljósblár metalic, 5 gíra, 2 dekkjagang- ar. Má greiðast á 12 mán., skuldabéf eða stgrafsl. Verð 550 þús. Uppl. hjá Tækjamiðlun Islands hf., Bíldshöfða 8, sími 91-674727 eða 17678 e.kl. 17. Til sölu MMC Galant 2000 GLS, árg. 86, sjálfskiptur, rafdr. rúður, centrallæs- ingar o.fl. Áth. skipti á ódýrari. Upp- lýsingar hjá Bílasölunni Bílakaupum, Borgartúni 1, s. 686010. Buick Electra 225, árg. ’75, til sölu, ek- inn 64 þús. mílur, 455 vél, rafmagn í öllu, cruise control o.fl. Upplýsingar í síma 985-34347. Subaru 1800 station 4x4, árg. 1989, ek- inn 42 þús. km, rafmagn í rúðum, splittað drif o.fl. Skipti á ódýrari bíi koma til greina, verð 1160 þús. Borg- arbílasalan hfi, sími 91-83085 og 91-83150. Gullfákur til sölu. Þessi einstaki Chrysler LeBaron ’79 er til sölu, ekinn aðeins 78 þús. km, sem nýr að utan sem innan, einn eigandi frá upphafi. Uppl. í síma 92-14312. MMC Pajero, árg. ’89, langur, bensín, 103 hö., ekinn 40 þús. Einn eigandi. Til sýnis og sölu á Bergstaðastræti 69. Uppí. í síma 91-22894. MMC Pajero bensin, árg. 1987, ekinn 61 þús. km, White Spoke felgur og ný 31" dekk, vel útlítandi, verð 1250 þús. * Borgarbílasalan hfi, sími 91-83085 og 91-83150. Til sölu Range Rover, árg. ’80, mjög góður bíll. Bílasalan Borgarbíllinn, Höfðatúni 10, sími 91-622177. Ymislegt Ungbarnanudd. Námskeið fyrir foreldra. Árangursríkt- við bamakveisum. Uppl. í s. 91-667223. Allir þurfa að nota ENDURSKINSMERKI! Kúvæskir útlagar í Sýrlandi krefjast brotthvarfs Husseins frá Kúvæt. Ekki stríð! Fyrir fáeinum mánuðum horfði friðsamlega í heiminum. Engar þjóðir áttu í stríði sín á milli, spenn- an milli risaveldanna hafði slakn- að, samið var um eyðingu kjarna- vopna og sameiningu Þýskalands og lýðræðislegar kosningar voru víða í Austur-Evrópu. Afturhald- söfl í flestum kommúnistaflokkum Austur-Evrópu létu undan án þess að grípa til vopna. En þegar slakað var á kúguninni braust út niður- bæld þjóðemisstefna svo við liggur að sovéski björninn sé að limast í sundur. Þau mál er ekki auðvelt að leysa því víða búa margar þjóðir eða þjóðarbrot í hverju landi. T.d. býr mikið af Rússum í Eystrasalts- löndunum sem óttast um sinn hag verði þau sjálfstæð. Viðbrögð Bandaríkjanna hafa einkennst af hroka. Lýðræðisöfl í Sovétríkjunum standa völtum fót- um og þjösnagangur vesturveld- anna í Austurlöndum grefur undan þeim. Harðlínumenn láta til skarar skríða þegar þeir sjá hvað Banda- ríkjamenn og fleiri leyfa sér gagn- vart andstæðingi sínum í írak og svo virðist sem stefna Gorbatsjovs sé að verða undir. Nú eru ljótar blikur á lofti. Sovét- herinn hefur þegar drepið fólk í Litháen. Ég óttast villimannlegt stríð í Austurlöndum nær sem eng- inn muni vinna þegar horft er til langs tíma, út fyrir skammsýna olíuhagsmuni. Þó ásetningurinn sé að frelsa Kúvæt og koma furstan- um þar aftur til valda er ekki víst að margir frelsist í því stríði - nema menn trúi á betra lif eftir dauðann. Steinum kastað úr glerhúsi Þegar Bandaríkin ráðast gegn Saddam Hussein kasta þau stein- um úr glerhúsi. Þau styðja ísraels- ríki gegnum þykkt og þunnt þó það hafi lagt undir sig land frá þremur ríkjum og hunsað margar alþjóða- samþykktir. Stórveldin hafa alið nöðruna Saddam Hussein við brjóst sín. Hann hóf hörmulegt árásarstríð gegn nágranna sínum í austri, íran, sem geisaði í 8 ár og kostaði milljón mannslíf. Þá naut hann pólitísks og hemaðarlegs stuðnings þeirra sömu ríkja sem ærast nú þegar hann fer með árásarher sinn á hendur nágranna í suðri. Vopnin hefur hann fengið á góðum kjörum hjá þeim sem hann miðar þeim á nú. Stríð nærist á fáfræði, fordómum og hatri Arabalöndin eru merkilegur og furðu samstæður heimur. Þar blómstraði menning mörg þúsund árum áður en ísland byggðist. Þar er vagga vísinda okkar og heim- speki, ekki síst í landinu milli fljót- anna, Messapótamíu, sem nú heitir írak. Þó arabar myndi mörg, ólík Kjallarinn Þorvaldur Örn Árnason líffræðingur og námsstjóri ríki eiga þeir sameiginlega menn- ingu, tungu og trú. Ef Vesturlönd ráðast með hörku á eitt þessara ríkja er eins víst aö þaö muni sam- eina þau hvað sem sundrungu valdhafa þeirra líður og Saddam Hussein verði heilagur píslarvott- ur í huga þeirra. Við erum engir englar. Munum það ef við beijum okkur á brjóst og tölum niðrandi um araba, trú þeirra og siði. Þegar hugsunar- háttur er ólíkur er hætta á fordóm- um á báða bóga. Vestræn menning sækir á með sína siði og ósiði. Arabar bregðast til varnar og sum- ir ala á hatri á Vesturlandabúum. En lítum í eigin barm. Kannast þú við að hafa heyrt orðið arabi notað sem skammaryrði? Mér skilst að fordómar og hatur gagnvart aröb- um sé útbreitt meðal fólks í Banda- ríkjunum og það geta stríðsæsinga- menn nýtt sér. Við íslendingar áttum okkar Sturlungaöld. Þá kunnum við ekki að leysa deilur öðruvísi en að vega mann og annan. Við höfum lært mikið síðan þá, ótrúlega mikið. Eft- ir að við öðluðumst aftur sjálfstæði hefur okkur tekist að leysa deilur okkar án þess að úthella hlóði. Oft hefur verið hart vegist með orðum og stöku sinnum barist með hnef- um en við drepum ekki andstæð- inga okkar. Við háðum jafnvel þrálát þorskastríð við breska ljónið án þess að úthellt væri blóði. Við höfum engan her og erum þar öðr- um þjóðum til fyrirmyndar. Að þessu leyti erum við íslend- ingar komnir lengra á hraut sið- menningar en þær ótal þjóðir sem enn leysa deilur með vopnum. Lát- um því rödd okkar heyrast og kennum öðrum að leysa deilur án manndrápa. Rödd íslands verði rödd friðar Sá vægir sem vitið hefur meira. Hið mjúka molar hið harða þegar til lengdar lætur. Hér er ekki mælt með því að gefast upp og kyssa tær harðstjóranna heldur finna önnur ráð en manndráp. Þá reynir á sið- ferðisþrek, kænsku og hugrekki. Hið forna menningarríki írak er í öldudal harðstjómar. En sú harð- stjórn stenst ekki til lengdar ef við bregðumst rétt við. Stríð í Austurlöndum nær hefði hörmulegar afleiðingar. Það er eins víst að á fáeinum dögum eða vikum verði sprengt eins mikið og í heilli heimsstyrjöld. Af því hlýst gífurleg mengun og verðmætasóun þegar kveikt verður í ótal olíulindum, sót ásamt eitruðu og jafnvel geisla- virku ryki berst um alla jörð og gæti m.a. haft áhrif á veðurfar. Óteljandi fjöldi af saklausu fólki týnir lffi og heilsu. Hvarvetna verð- ur limlest, hjálparvana fólk, lítið um læknisþjónustu og skortur á lyfium m.a. vegna viðskiptabanns- ins. „Við viljum ekki stríð, við viljum bara frið,“ söng hópur unglinga fyrir framan sendiráð Bandaríkj- anna á íslandi. Sendifulltrúi kom út, hlýddi á, tók við áskomn frá Átaki gegn stríði og lofaði að koma henni strax til Bandaríkjaforseta. Við íslendingar viljum ekki stríð (þó örli á Rambó-stælum hjá stöku manni). Undanfarið hafa þúsundir skrifað undir svohljóðandi áskor- un Átaks gegn stríði: „Við undirrituð skorum á ríkis- stjórn íslands aö lýsa-ótvírætt yfir andstöðu íslands við stríðsaðgerðir gegn nokkurri þjóð í Austurlönd- um nær. Við hvetjum íslensk sfjómvöld til að beita sér á alþjóða- vettvangi fyrir friðsamlegri lausn Persaflóadeilunnar og fyrir því að haldin verði sem fyrst alþjóöleg friðarráðstefna mn Austurlönd nær með þátttöku allra deiluaðila, í samræmi við ályktanir Samein- uðu þjóðanna." Þorvaldur örn Árnason „Stórveldin hafa alið nöðruna Saddam Hussein við brjóst sín. Hann hóf hörmulegt árásarstríð gegn nágranna sínum í austri, íran, sem geisaði í 8 ár.“ 1r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.