Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1991, Síða 25
ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1991.
26
LífsstOl
Happdrættin í desember:
Margir stóru vinning-
anna á óselda miða
- sölutölur æði misjafnar
Um sextán aöilar eöa sérsambönd
fengu leyfi fyrir sérhappdrætti hjá
dómsmálaráðuneytinu þar sem
dregið skyldi í desember. Til við-
bótar koma stóru happdrættin
þrjú, HÍ, SÍBS og DAS.
Happdrætti Háskólans og SÍBS
hafa bæði þá reglu að draga út
stærstu vinninga sína í desember-
mánuði, en happdrætti DAS hefur
aprílmánuð sem sinn stærsta mán-
uð. Söluhlutfall happdrættismiða
er oft á tíðum ansi lágt, getur jafn-
vel farið undir 10% af heildarmagni
útgefinna miða. Fjölmargir þeir,
sem fiárfest hafa í happdrættismið-
um, hafa misst af því þegar vinn-
ingsnúmer hafa veriö birt í hinum
ýmsu happdrættum. Til upplýs-
inga eru hér á eftir birtar tölumar
fyrir stærstu vinninga helstu happ-
drættanna.
Sala oftast 10-30% af heild
Hjá Styrktarfélagi vangefinna
fengust þær upplýsingar að upplag
miða hefði verið 100 þúsund miðar.
Þar af hefðu selst um 24-25 þúsund
miðar sem er minnkun um 4-5%
frá síðasta ári. Tólf fyrstu vinning-
arnir voru bifreiðavinningar, og
gengu þrír þeirra út. Fyrsti vinn-
ingur, Toyota Corolla bifreið að
upphæð 1.380.000 krónur kom á
númer 17341 en gekk ekki út. Sömu
sögu er að segja af öðrum vinn-
ingi, Mitsubishi Lancer að verð-
mæti 900.000 krónur á miða 39674.
Vinningar 3-12, bifreiðar að upp-
hæð 620.000 krónur hver komu á
númer; 7025, 11213, 17059, 17574,
37178, 47573, 70048, 72321, 80827 og
98420.
Samkvæmt upplýsingum frá
Krabbameinsfélaginu gengu vinn-
ingar út í samræmi við söluna.
Salan var um 25% af útgefnum
miðum og um fiórðungur vinninga
gekk út. Fyrstu þrír vinningarnir,
Volvo bifreið, kom á miða númer
8739, 165878 og 185171. Vinningar
4-6, Daihatsu Charade bifreið,
komu á númer 30301, 70090 og
157044.
íbúðir, bifrelðar
eða ferðavinningar
Draga átti í happdrætti Alþýðu-
flokksins þann 12. desember en
drætti í því happdrætti hefur verið
frestað fram yfir áramót. Sjálfs-
björg var með sitt árlega happ-
drætti sem dregið var í á Þorláks-
messu. Salan var ansi dræm hjá
þeim, útgefnir miðar eitthvað um
120 þúsund en salan aðeins um
8.800 miðar. Stærsti vinningurinn,
Ford Econoline eða Mercedes Benz
að upphæð þrjár og hálf milljón,
gekk ekki út. Hann kom á miða
númer 135086. Næstu vinningar
voru 250.000 króna úttekt í tölvu-
búnaði, heimihstækjum eða sjón-
varpsbúnaði. Þeir voru 82 talsins
og gengu út í svipuðu hlutfalh og
salan.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
var með símahappdrætti í gangi
sem dregið var í á aðfangadag.
Aðstandendur þess voru mjög
ánægðir með undirtektir og sala
var yfir 30% af heildarútgefnum
miðum. Vinningar gengu út í sam-
ræmi við sölu. Fyrsti vmningur var
Ford Econoline sem gekk ekki út
en hann var dreginn á númer
9132071. Önnur verðlaun, Saab 9000
gengu hins vegar út á númer
91688417. Vinningar 3-11 voru Ford
Fiesta bifreiðar og gengu tveir
þeirra út. Númerin voru; 91680493,
91626666, 91670221,
91685777,91612484, 9150801, 9366725,
9788827 og 9875104.
90% söluhlutfall
Félag heyrnarlausa var með
happdrætti sem dregið var í 18.
Þeir sem eru æstir í að kaupa
happdrættismiða gátu keypt þá hjá
tæplega 20 aðilum i desember-
mánuði.
Neytendur
desember. Upplag miða var ekki
mikið, aðeins 20 þúsund miðar, en
salan aftur á móti mjög góð eða 18
þúsund. Það samsvarar því aö 90%
útgefinna miða seljist. Allir vinn-
ingar í happdrætti Félags heymar-
lausra voru ferðavinningar. Fyrstu
tveir vinningarnir voru 250 þúsund
króna ferðavinningar fyrir 4 á
númer 15408 og 270 og gekk annar
þeirra út. Næstu tveir voru 200
þúsund króna ferðavinningar á
númer 13829 og 273 og gengu báðir
út. Vinningar 5-8 vom 150 þúsund
króna ferðavinningar á númer
18001, 12720, 3105 Og 16634 Og var
aöeins einn genginn út. Fleiri vinn-
ingshafar gátu þó vel bæst viö.,
SÁÁ gaf út 200.000 miða í sínu
happdrætti. Þar af seldust ríflega
12.000 miðar. Fyrstu 5 vinningarnir
voru íbúðir að verðmæti þijár
milljónir og er ein þegar gengin út.
Vinningsnúmer voru; 10577, 38435,
45493, 66473 og 124103. Sjötti vinn-
ingur, Cherokee Limited kom á
miða 121450 og sjöundi, Chrysler
Voyager á 51437. Peugot bifreiðar,
18 talsins voru dregnar á númer;
18568, 21767, 40692, 49517, 57750,
70834, 71642, 81809, 89758, 95073,
121378, 122922, 131955, 159971,
163502, 177436, 184224 og 190068.
Aðeins einn af þeim var genginn
út er síðast fréttist. Fellihýsi að
upphæð 900 þúsund krónur kom á
miða númer 46591. Vinningar
gengu út í samræmi við söluna í
happdrætti SÁÁ.
Hjá flugbjörgunarsveitunum í
Reykjavík fengust þær upplýsingar
að upplag miða í desemberhapp-
drætti þeirra hefði verið 160 þús-
und. Salan hjá þeim var þokkaleg,
svipuð og síðasta ár, en ekki feng-
ust gefnar upp neinar sölutölur.
Þrír stærstu vinningar hjá þeim
voru Nissan Patrol jeppar að upp-
hæð 2.850 þúsund. Þeir komu á
númer 19947, 31874 og 51194. Er síð-
ast fréttist hafði enginn gengið út
og líkur til þess að ekki færi meira
en ein bifreið í mesta lagi. Næstu
vinningar vour heimilisvinningar
að upphæð 1.400 þúsund sem komu
á miða 23010,51059 og 158585. Tveir
vélsleðar að upphæð 665 þúsund
komu á miöa númer 91946 og
176942.
Upplag miða hjá Framsóknar-
flokknum var 40 þúsund og voru
söluaðilar hjá flokknum að sögn
nokkuð ánægðir með söluna.
Fyrstu þrír vinningarnir voru bif-
reiðar, Subaru Legacy á 1.392 þús-
und og Justy bifreiðar á 763 þús-
und. Engin þeirra hafði gengið út
er síðast fréttist. Þær komu á núm-
er 37660,36502 og 10026. Þriðji vinn-
ingur, vélsleði að verðmæti 676
þúsund, kom á númer 14382. Vinn-
ingar 4-8, Macintosh tölvur að and-
virði 150 þúsund komu á númer
15538, 2064, 38518, 2118 og 8521.
Ferðavinningar 60 þúsund hver, 6
talsins, komu á númer 23128, 3623,
18070, 29109, 20568 Og 1774.
Trompmiðinn gekk ekki út
Af stóru happdrættunum þrem-
ur, HÍ, SíBS og DAS, sem draga út
í hverjum mánuði, þá eru HÍ og
SÍBS með desember sem sinn
stærsta mánuð. Stóri mánuðurinn
hjá DAS er í apríl. Stærsti vinning-
urinn hjá Hí í desember síðastliðn-
um var 45 milljónir ef sami aðilinn
var svo heppinn að eiga alla mið-
ana í númerinu. Trompmiði á
stærsta vinning hefði gefið 25 millj-
ónir en enginn átti þann miöa. Af
hinum fiórum miðunum í stærsta
vinningnum var aðeins einn seldur
óg fóru þar 5 milljónir. Stóru vinn-
ingarnir eru þó ekki nema 10-11%
af heildarupphæð vinninga og
skipta því ekki meginmáli varðandi
afkomu happdrættisins að sögn
söluaðila.
Hjá SÍBS fengust þær upplýsing-
ar að báðir stærstu vinningarnir
hjá þeim, andvirði 5 milljóna og
einnar milljónar, hefðu gengið út.
Seldir miðar af heildarupplagi
væru 55%, en langt væri síðan
stærsti vinningur hjá SÍBS hefði
komið á óseldan miða, að sögn Ól-
afs Jóhannessonar, forstjóra SÍBS.
Sömu sögu er að segja frá Happ-
drætti DAS, þar gengu báðir
stærstu vinningarnir út, en þeir
voru báðir að verðmæti ein milljón.
-ÍS
Heimsendingarþjónusta verslana
Oftast ókeypis
Þegar aldurinn færist yfir er oft
þægilegt að geta hringt í verslanir
og pantað vörur sem sendar eru
heim. Yfirleitt er það svo með smærri
verslanir að þær eru með heimsend-
ingarþjónustu. í flestum tilfellum
kostar þessi þjónusta ekkert, sé um
eldri borgara úr hverfinu að ræða.
Sumar verslanir rukka'gjald fyrir
heimsendingar, allt upp í 300 krónur
fyrir hvert skipti. Stórmarkaðimir
senda ekki vörur heim, enda kannski
eðlilegt þegar um svo stórar verslan-
ir er að ræða.
Blaðamaður Neytendasíðu hafði
samband við nokkrar verslanir og
kannaði hvemig þessum málum er
háttað hjá þeim. Júllabúð í Álfheim-
um, Áskjör, Garðarsbúð Grenimel,
Kjötbúð Suðurvers, Háteigskjör,
verslunin Siggi og Lalli og Vogaver
senda allar vörur heim, viðskipta-
vinum að kostnaðarlausu.
Oftast nær er það eingöngu fyrir
eldri borgara og þá fyrir viðskipta-
vini úr hverfi búðarinnar. Verslunin
Vogaver er að fara af stað með bif-
reið sem tekur að sér heimsending-
ar, og er stefnt að því að rukkað verði
vægt gjald, um 100 krónur fyrir hvert
sinn. Ef um eldri borgara er að ræða
er ekkert gjald rukkað. Sumar versl-
anir einskorða heimsendingarþjón-
ustuna við ákveðna daga. Kjötbúð
Suðurvers sendir einungis á fóstu-
dögum, Vogaver einungis þriðjudaga
og fimmtudaga.
Nóatúnsverslanirnar senda vörur
heim til viðskiptavina þeim að kostn-
aðarlausu ef viðskiptavinurinn kem-
ur sjálfur og velur i körfuna. Ef
hringt er og pantaðar vörur, er rukk-
að 300 króna gjald fyrir heimsend-
ingu. Verslunin Austurstræti sendir
vörur heim gegn 250 króna gjaldi, og
Kjötstööin Glæsibæ tekur 200 krón-
ur.
Stórmarkaðirnir senda yfirleitt
ekki vörur heim en af þeim verslun-
um sem samband var haft við bauð
Kaupstaður í Mjódd, sem er Mikla-
garðsverslun, upp á heimsendingu.
Það var þó háð því skilyrði að við-
skiptavinurinn kæmi sjálfur og veldi
vörurnar. Það skal tekið fram að þær
verslanir, sem hér er fiallað um, eru
aðeins lítið úrtak af öllum verslunum
höfuðborgarsvæðisins.
-ÍS
Fréttatilkynning frá Neytendasamtökunum:
Innleggsnótur og útsölur
Athygh Neytendasamtakanna hef-
ur verið vakin á því að sumar versl-
anir taka ekki á móti inrileggsnótum
ef um útsölu er að ræða. Að mati
Neytendasamtakanna stenst shkt
ekki gagnvart lögum nema það sé
ótvírætt tekið fram á innleggsnót-
unni.
Neytendasamtökin telja shkan fyr-
irvara þó ekki dæmi um góða við-
skiptahætti. Þegar verslun hefur gef-
ið út innleggsnótu án fyrirvara hefur
verslunin viðurkennt að neytandinn
eigi kröfu á vörum að sömu upphæð.
Útsala, rýmingarsala eða önnur sala
á lækkuðu verði getur á engan hátt
breytt þessum rétti neytandans.
Það getur oft verið þægilegt að fð vörur sendar heim til sín í stað þess
að þurfa að rogast með þær sjálfur.