Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1991, Page 4
FIJvfMTyD^GUR 17. JANUÁRj 1991;
Utlönd
Kvótinn fyrstu 8 mánuðina
Þorskígildin flest á
Norðurlandi eystra
HO
1“
VESTFIRÐIR
I
Þorskígildi í lestum
fyrstu átta mánuði ársins t
49.344
26 104 norðurland horðurland
VESTRA EYSTRA
34^
| VESTURLAND
43.971 ■ jm 22.060
N REVKJAVÍK
| REYKJANES
AUSTURLAND
41.1
SUÐURLAND
Þegar kvótatúthlutun til fiskiskipa
yfir 10 brúttólestir er borin saman á
milli kjördæma kemur í ljós aö Norð-
urland eystra fær flest þorskígildin
í lestum talið. Það er eina kjördæmið
sem eykur hlutdeild sína sem ein-
hverju nemur af kvótaskyldum botn-
fiski en í Suðurlandskjördæmi snýst
dæmið við því að kjördæmið tapar
verulegum botnfiskkvóta frá síðasta
ári.
Kvótanum er nú samkvæmt nýjum
reglum úthlutað fyrstu átta mánuði
ársins en tölurnar í textanum fyrir
árið 1990'gilda fyrir allt árið.
Norðurland eystra fær afiaheim-
ildir upp á 17,73 prósent af heildar
botnfiskaflanum eða því sem svarar
til 49.344 lesta af þorski. í fyrra fengu
útgerðarmenn í kjördæminu úthlut-
að leyfum til að veiða kvótaskyldar
botnfisktegundir sem svöruðu til
62.656 tonna af þorski eða því sem
nam 17,08 af heildar botnfiskaflanum
það árið. Kjördæmið státar af því að
eiga 85 fiskiskip.
I öðru sæti er Reykjanes sem fær
í sinn hlut 15,80 prósent af heildar
botnfiskaflanum eða heimildir sem
svara til um 43.971 lesta af þorski. Á
síðasta ári voru sambærilegar tölur
58.310 lestir eða 15,90 prósent af
kvótaskyldum botnflskafla. Alls
voru 122 fiskiskip skráð í kjördæm-
inu árið 1990.
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Svo virðist sem verksmiðja Viking
Brugg á Akureyri, sem enn er lokuð
vegna innheimtuaðgerða bæjarfó-
geta, verði ekki opnuð nú í vikunni
a.m.k. og í verslunum ÁTVR eru
I þriðja sæti er Suðurland en kjör-
dæmið fær í sinn hlut veiðiheimildir
sem svara til um 41.134 lesta af þorski
sem er 14,78 prósent af heildar botn-
fiskaflanum. Samsvarandi tölur fyrir
allt árið í fyrra voru 55.820 lestir eða
það sem nam 15,22 prósent af kvóta-
skyldum botnfiskafla. Skráö skip í
kjördæminu voru á því ári 100.
í fjórða sæti eru Vestfirðir með
framleiðsluvörur fyrirtækisins upp-
urnar að öðru leyti en því að eitthvað
mun vera til af bjór á kútum fyrir
veitingahús.
Viking Brugg framleiðir m.a. Löw-
enbráu bjór sem hefur haft verulega
markaðshlutdeild og ’einnig Viking
38.992 lestir í þorskígildum talið sem
eru 14,01 af heildaraflanum. Á síö-
asta ári máttu sjómenn veiða sem
nam 51.471 lestum af kvótaskyldum
botnfisktegundum sem var 14,03 pró-
sent af heildaraflanum. Fiskiskip á
Vestfjörðum voru á síðasta ári 106.
Fimmta sætið skipar svo Austur-
land sem fær úthlutað leyfum til að
veiða 34.683 lestir í þorskígildum tal-
bjór. Talið er að ýmis opinber gjöld,
sem verksmiöjan skuldar og ollu því
að henni var lokað, nemi um 30 millj-
ónum króna. Þá hafa Iðja, félag verk-
smiðjufólks og Lífeyrissjóður Iðju
krafist lögtaks í fyrirtækinu vegna
vangoldinna lífeyris- og félagsgjalda
ið sem er 12,46 prósent af botnfiskafl-
anum. 1990 voru samsvarandi tölur
47.413 lestir eða 12,93 prósent af
heildaraflanum en útgerðarmenn í
fjórðungnum áttu 65 fiskiskip það
árið.
Vesturlandskjördæmi skipar sjötta
sætið með 26.104 lestir talið í þorskí-
gildum eða 9,38 prósent af heildar-
aflanum. Samsvarandi tölur fyrir
síðasta ár voru 33.143 lestir af botn-
fiski sem voru 9,04 prósent af kvóta-
skyldum veiðiheimildum lands-
manna. Það ár voru skráð 72 fiski-
skip í kjördæminu.
Næstneðsta sætið það sjöunda
skipar Reykjavík. Borgin fær í sinn
hlut 22.060 lestir talið í þorskígildum
eða 7,93 prósent af kökunni. 1990 fékk
borgin leyfi til að fiska sem svarar
til 29.900 af þorski sem var 8,15 pró-
sent af heildaraflanum. Reykvíking-
ar áttu það ár 37 fiskiskip.
Neðsta sætið, það áttunda, skipar
Norðurland vestra. Ekki munar ýkja
miklu á því kjördæmi og borginni
því að Norðurland vestra fær í sinn
hlut 22.001 lest í þorskígildum talið
sem er 7,91 prósent af kvótaskyldum
botnfiskafla. í fyrra voru samsvar-
andi leyfi 28.025 lestir sem svaraði til
7,64 prósent aflahlutdeildar af botn-
fiski. Alls áttu útgerðarmenn kjör-
dæmisins 45 fiskiskip árið 1990.
og nemur sú upphæð um 1,3 milljón-
um króna. Verið er að vinna að mati
á því hvort fullnægjandi veð eru fyr-
ir þessum kröfum Iðju en annars
kemur til greina að krafist verði
gjaldþrots fyrirtækisins vegna þess-
ara skulda.
Heimastjómarsamtökin:
Unniðaðfram-
boðiíöllum
kjördæmum
Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyrí:
„Þaö er stefnt að ffamboði
Heimastjórnarsamtakanna I öll-
um kjördæmum og vonandi tekst
það,“ segir Jóhann Ólafsson,
bóndi í Svarfaðardal, en Jóhann
á sæti i undirbúningsnefnd að
stofnfundi samtakanna og skipan
kjördæmisráðs í Norðurlands-
kjördæmi eystra sem haldinn
verður um helgina.
Á þessum fundi verður tekin
ákvörðun um framboö, kosin
uppstillingarnefhd og ákveðiö
meö hvaða hætti verður staöiö
aö vali á framboðslista. „Það er
fólk úr ýmsum áttum sem stend-
ur að stofnun þessara samtaka,
fólk sem finnst að fjórflokkarnir
hafi brugðist landsbyggöinni,“
sagði Jóhann. Hann sagði að
Samtök jafnréttis og félags-
hyggju, sem stóðu aö framboði
Stefáns Valgeirssonar í síðustu
kosningum til Alþingis, yrðu að-
ili að nýju samtökunum en einnig
væri um að ræða fólk sem heföi
stutt Þjóðarflokk og Borgara-
flokk.
Jóhann sagði að unnið væri að
framboði í öðrum kjördæmum á
vegum Heimasfjómarsamtak-
anna og nokkuð ljóst væri að
boðið yrði fram á Suðurlandi, á
Vestfjörðum og í Reykjavík
a.m.k. en stefnan væri að bjóða
fram í öllum kjördæmum.
Alþýðubandalagið:
Sex í framboði
á Vestfjörðum
Síðarí umferð forvals Alþýðu-
bandalagsins á Vesttjöröum er
hafln. Það eru sex nöfn sem þátt-
takendur í forvalinu geta valiö
um. Þau eru Bryndís Friðgeirs-
dóttir ísafirði, Jón Ólafsson
Hólmavík, Kristinn H. Gunnars-
son Bolungarvík, Lilja Rafney
Magnúsdóttír Suðureyri, Magnús
Ingólfsson Önundarfirði og Unn-
ar Þór Böðvarsson Biskupstung-
um.
-hlh
-J.Mar
Enn lokað hjá Viking Brugg
- framleiðsla fyrirtækisins uppseld hjá ÁTVR
í dag mælir Dagfari
Fulltrúi réttlætisins
í írak munu búa um fimmtán
milljónir manna. Það kemur þó
ekki að sök. Saddam Hussein talar
fyrir hönd þessara flmmtán milljón
manna. Hans rödd er rödd allra
hinna. Þegar Saddam Hussein segir
stríð þá segja allir hinir stríð. Þegar
Saddam Hussein segir að írakar
muni berjast til síðasta manns þá
munu fimmtán milljónir manna
grípa til vopna sem einn maöur og
deyja fyrir málstaðinn. Enda er sá
málstaður bæði heilagur, trúaður
og réttlátur. Málstaðurinn er fólg-
inn í því að írak leggur undir sig
næstu nágrannaríki og innlimar
þau. Málstaðurinn er fólginn í því
að ráðast á Kúrdana í Irak með
eiturgasi og koma þeim fyrir katt-
arnef. Málstaðurinn er fólginn í því
að Saddam Hussein bjóði heims-
byggðinni birginn og hrópi slagorð
um morðingjana i Bandaríkjunum.
• Þegar svo heilagur málstaður er
annars vegar þarf ekki nema eina
rödd, einn mann tíl að taka afstöðu
og ákvarðanir fyrir fimmtán millj-
ón þegna. Slíkt fyrirkomulag er
auðvitað mun hentugra heldur en
flókið lýðræði og málfrelsi, enda
hefur Saddam Hussein ekki önnur
ráð gagnvart þeim sem andmæla
heldur en að slátra þeim fyrir opn-
um tjöldum, öðrum til viðvörunar.
Sú aðferð kallar á böðla og al-
þýðudómstóla en er einfaldari í
sniðum og hagkvæmari í praksís,
í stað þess að búa við þá óvissu að
einhverjir efist um að foringinn
hafl rétt fyrir sér.
Þar að auki hefur Saddam Hus-
sein trúna á sínu bandi. Því hefur
verið fjálglega lýst fyrir íslending-
um og öðrum Vesturlandabúum að
trúarbrögð hjá islömum séu ólík
kristnum trúarbrögðum. Bush
Bandaríkjaforseti áttar sig ekki á
þessum mun og hefur fyrir mikinn
misskilning heimtað að Saddam
Hussein skili aftur landi og fólki
sem hann tók herskildi í nafni trú-
arinnar. Og íslendingar hafa gerst
sekir um að bera ábyrgð á stríðsá-
tökum við Persaílóa af því að þeir
eru ókunnir þeim hugsunarhætti
sem ríkir í írak. Vesturlandabúar
eiga ekki að vera að abbast upp á
íraka og Araba sem þeir skilja ekki.
Þá mega menn heldur ekki
gleyma því að Saddam Hussein er
réttborinn leiðtogi arabaríkisins og
kominn í beinan karllegg af Mu-
hammed. Slíka menn má ekki
styggja og slíka menn á. að láta í
friði þegar þeir hafa eitthvað til
málanna að leggja. Slíkir menn
heyja heilög stríð og láta sig engu
varða vestrænt siðgæði, sjálfsá-
kvörðunarrétt annarra þjóða, hvað
þá tilveru gyðinga sem ofsækja
hina útvöldu þjóð.
Þaö er á þessum forsendum sem
friðarsinnar á íslandi og annars
staðar krefjast þess að Saddam
Hussein verði látinn í friði. Það er
á þessum forsendum sem friðar-
sinnar mótmæla stríðsátökum við
Persaflóa og vara íslendinga við
þeirri ábyrgð sem fylgir því að ráö-
ast með vopnum gegn heilögum
mönnum í Austurlöndum nær.
Þeir munu hafa verra af.
Og afleiöingarnar eru að koma í
ljós. Fimmtán milljónir manna
munu ganga fram fyrir skjöldu og
berjast til síðasta manns. Allt fyrir
Saddam Hussein sem er hinn eini
og sanni fulltrúi trúarinnar í heim-
inum og lagði undir sig Kuwait.
Enginn er heldur kominn til með
að vita hvort Saddam Hussein hafði
hugsaö sér að halda Kuwait til
lengdar. Hann háði níu ára stríð
við hina nágranna sína í íran og
milljón mannslífum síðar skilaði
hann aflur þeim landskikum sem
hann hafði náð á sitt vald. Sama
kynni hann að gera með Kuwait.
Fulltrúar trúarinnar hafa leyfi til
að heyja stríð í nafni þjóðar sinnar
og berjast til siðasta manns og
ákveða síöan á seinni stigum hvort
þeir nenni að halda til streitu þeim
landvinningum sem fást í slíkum
styrjöldum.
Aðalatriðið er aö Vesturlandabú-
ar eða Sameinuðu þjóðirnar séu
ekki að skipta sér af Saddam Hus-
sein frekar en að hans eigin þjóð
þurfi að skipta sér af þeim stríöum
sem hann heyr nema þá tíl að deyja
í þeim. Hann hefur trúna sín meg-
in, hann hefur Muhammed sín
megin og hann hefur skilning friö-
arsinna á sínu valdi; þeirra friðar-
sinna á Vesturlöndum sem bera
virðingu fyrir trúnni og þeim mál-
stað sem réttlætir stríð og land-
vinninga Saddams Hussein án þess
að aðrir séu að skipta sér af því.
Dagfari