Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1991, Side 5
FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1991.
Fréttir
Rauði kross Islands:
, ,Viö yröum mjög ánægö ef okkur
tekst að senda fjóra til fimm hjúkr-
unarfræðinga til hjálparstarfa
vegna hugsanlegra stríðsátaka við
Persaflóa. Alþjóða Rauði krossinn
hefur farið þess á leit við okkur að
viö athuguðum hvort við gætum
sent eitthvað af hjúkrunarfólki
þangað til að Iikna þeim sem kunna
að falla eða særast á vígvellinum,“
segir Hannes Hauksson, fram-
kvæmdastjóri Rauða kross íslands.
Hannes segir að Alþjóða Rauði
krossinn hafi gert áætlanir um að
reisa 5 sjúkrahús í íran og Saudi-
Arabíu. Til að manna þau þurfi
hátt í fimm hundruð manns, þar
af tæplega 400 hjúkrunarfræðinga.
Hann segir Rauða kross íslands
ásamt öðrum Rauða krossdeildum
á Norðurlöndunum vera aö kanna
með hvaða hætti þær geti lagt
þessu verkefni lið.
„Við erum í nokkrum vandræð-
um vegna þessa máls þvx okkar
reyndasta fólk er þegar komið til
starfa annars staðar. Við álítum þó
að starfsreynt fólk af sjúkrahúsun-
um sé vel undir þetta hjálparstarf
búið. Það ætti að skýrast á næstu
dögum hverjir fara fyrir okkar
hönd,“ segir Hannes.
-kaa
Rauöa krossfélögin á Norðurlöndum:
Neyðarútbúnaður
sendur til Litháen
sjúkrahús 1 Sovét eins og minjasöfn, segir framkvæmdastjóri RKÍ
.Rauða krossfélögin á Norðurlönd-
unum hafa þegar sent um 3,5 tonn
af lyfjum og hjúkrunarvörum til Lit-
háen. Um er að ræða ýmsan neyðar-
útbúnað sem grípa má til ef til frek-
ari blóðsúthellinga kemur í Eystra-
saltslöndunum og á að geta dugað til
neyðarþjónustu fyrir minnst 500
marlns.
Að sögn Hannesar Haukssonar,
framkvæmdastjóra Rauða kross ís-
lands, hafði Rauði kross Finnlands
umsjón með að koma sendingunni
áleiðis og var flogið með hana í
tveimur flugvélum síðastliðinn
mánudag. Hann segir að í undirbún-
ingi séu frekari sendingar.
Að sögn Hannesar er mjög mikill
skortur á lyfjum og hjúkrunarvörum
í öllum Sovétríkjunum og því séu
sjúkrahús þar illa í stakk búin til að
sinna hlutverki sínu.
„Sjúkrahúsin og hjúkrunarstofn-
anir í Sovétríkjunum eru eins og
minjasöfn. Þar vantar nánast allt til
alls. Algeng verkjalyf á borð við
magnyl eru nánast ófáanleg. Alþjóða
Rauði krossinn er að leitast við að
létta á þessum vanda en bæði Persa-
flóadeilan og ástandið í Eystrasalts-
löndunum dregur óhjákvæmilega úr
möguleikunum á aðstoð. Það er hins
vegar unnið að þessu máli hjá öllum
landsfélögum Rauða krossins, þar á
meðal hjá okkur, og vonandi skilar
þessi vinna einhverjum árangri.“
-kaa
FJOLVI
J
VA//
//>
STÓRA BÓKAVEISLA FJÖLVA
(ALCEB RVMINGARUTSALA)
1
VASA
%%%
opnar í dag kl. 12 á Grensásvegi 12. \%%
Mesta og ódýrasta bókaútsala sem nokkur
bókaútgáfa hefúr haldið. ALLTA AÐ SELJAST.
Mörg hundruð titlar og pakkar
á ótrúlegu hlunnindaverði
tV*
vwif ee.
OTZÚUáTÍ
I-----------
| Nafn
J Kennitala
I Heimili
I
~i Myndagetraun. Allir fá verðlaun!
Taktu þátt í getratmlnni með því að krossa á myndina við:
1. Prins Valiant, sem alltaf er að leita I þokunni að Aletu sinni.
2. Þorsteln afa gamla, sem gaf út fyrir ykkur Lukku-Láka, Stðru flugvélabókina,
Stóru skordýrabóklna, Stóru himdabókina, Stóru llstastfguna, Stóru byggingar-
| Póstnumer | Uatastfguna. PHns Valiant, Grimmsævintýri, Gosa og A Toppnum.
’ 3. Léttfeta, sem er gáfaðri en húsbóndl hans, og reykir hvorki né drekkur.
Merkið krossa á myndina og sendið til FJölva Njörvasundi 15 a, 104 Reykjavik. Setjið nafn
ykkar og heimlllsfang og umfram allt aldur. Ollum sem merkja rétt, þó þelr yrðu 20 þúsund,
sendum við glaðning, elnhverja FJölva-Vasa-bók, sumar ódýrar sumar mjög verðmætar,
B m.a. Flugvélabók og Myndabók dýranna (báðar ófáanlegar)
VASA