Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1991, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1991, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1991. íþróttir • Guðjón Ólafsson þjálfar Reyni. . Guðjón þjálfar lið Reynis Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: Guðjón Ólafsson hefur verið ráð- inn þjálfari hjá 4. deildar liði Reynis frá Sandgerði í knattspyrnu fyrir næsta keppnistímabil. Til stóð að Guðjón yrði aðstoðar- maður Kjartans Mássonar hjá ÍBK en af því varð ekki og vænta Reynis- menn mikils af starfi Guðjóns. Reyn- ismenn ætla sér stóra hluti í 4. deild- inni næsta sumar og er mikill hugur í mönnum. Leikmenn eru mjög efn- ilegir og til alls líklegir í sumar und- ir stjórn Guðjóns, sem kom Grind- víkingum meðal annars upp í 2. deild í hittiðfyrra. Tværfaratil Kristineberg Tvær íslenskar knattspyrnukonur munu leika með sænska félaginu Kristineberg FF á þessu ári. Það eru Ragnhildur Sigurðardóttir, sem einnig lék meö liðinu í fyrra, og Ingi- björg Jónsdóttir sem hefur gengið frá félagaskiptum úr Val yfir í sænska félagiö. Ragnhildur lék einnig með Val áður en hún fór til Svíþjóðar. Það má með sanni kalla Kristine- berg FF íslendingafélag því auk Ragnhildar og Ingibjargar eru hjá félaginu nokkrar íslenskar stúlkur í yngri flokkunum. -VS Leiðrétting í viðtali við Jón Hjaltalín Magnús- son, formann HSÍ, í DV í gær var sagt að hann hefði sjálfur greitt 1,5 milljónir úr eigin vasa vegna ferðar handboltalandsliösins á síðustu ólympíuleika. Hér átti að standa B- keppni í stað ólympíuleika. Um var að ræða mistök blaðamanns og er beðist velvirðingar á þeim. -SK íþróttaferðir: Ferðaskrífstofur með kynningar íslenskum íþróttahópum standa nú til boða afnot af frábærri æfmgaað- stöðu og þeim möguleikum sem bjóð- ast til æflnga- og keppnisferða í Hannover í Þýskalandi. Þessi að- staða er fyrir flestar greinar íþrótta svo sem, sundhópa, handknattleiks- lið, körfuknattleikslið, knattspyrnu- lið, frjálsíþróttahópa, blaklið, júdó- hópa, fimleikahópa og fleiri. Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn mun á þriðjudaginn verða meö kynningu á umræddri aðstöðu í húsakynnum sínum að Álfabakka 16 í Reykjavík og hefst hún kl. 18 en íþróttadeild innan ferðaskrifstofunnar var stofn- uð 1. desember síðastliðinn. Þá mun ferðaskrifstofan Sam- vinnuferðir-Landsýn verða með kynningu á Hannover á Hótel Loft- leiðum á mánudaginn og stendur hún yfir frá kl. 17-20. -GH/SK Júlíus með tvö tilboð - frá spænsku liði og Sporting Lissabon Júlíus Jónasson landsliðsmaður í handknattleik fékk tvö tilboð meðan á Spánarmótinu stóð en því lauk um síðustu helgi. Annað til- boðið kom frá portúgalska liðinu 'Sporting Lissabon en hitt frá spænsku liði sem stendur í miklum fallslag um þessar mundir. „Jú, það er rétt að þjálfari Sport- ing Lissabon kom að máli við mig á Spánarmótinu og vildi ólmur að ég gerðist leikmaður félagsins. Ég gaf ekkert út á þetta og satt best að segja er áhugi lítill frá minni hendi. Áhuginn er sá sami hvað spænska liðið snertir," sagði Júhus Jónasson, í samtali við DV í gær. Júlíus Jónasson leikur sem kunnugt er með franska liðinu Par- is Asnieres og rennur samningur hans við félagið út í vor. Júlíus er einn af lykilmönnum liðsins og hafa forráðamenn liðsins rætt líti- lega við Júlíus um áframhald hans hjá liðinu. Alvarlegar samninga- viðræður fara af stað á næstunni. Þýska liðið Grosswaldstadt hefur einnig sýnt áhuga aö fá Júlíus í sínar raðir og mun hann eiga við- ræður við liðið í febrúar. „Mér líkar mjög vel hér í Frakk- landi og forráðamenn Paris Asnier- es eru stórhuga og stefna að því að gera góða hluti með með liðið á næstu árum. í því sambandi er verið að byggja nýja íþróttahöll, stór stuðningsaðili kemur inn fyrir næsta tímabil og ennfremur er ákveðið að kaupa sterka leikmenn til liðsins. Af þessum sökum er freistandi að leika áfram í Frakkl- andi. Þessi mál munu samt sem áður skýrast þegar líður fram á vorið,“ sagði Júlíus Jónasson við DV. Þjálfari Paris Asnieres var lítið hrifmn að því að Júlíus léki með landsliðinu á Spánarmótinu en á sama tíma lék liðiö leik í bikar- keppninni. Júhus sagði að allt væri í góðu á milli hans og þjálfarans en Paris Asnieres hefði sigrað ör- ugglega í umræddum bikarleik. Júlíus og félagar leika á sunnu- dagskvöldið í 1. deildar keppninni gegn Creitel en bæði liðin eru jöfn í 6.-7. sæti. -JKS • Gordon Strachan hefur átt hvern stórleikinn á fætur öðrum með li Leeds t vetur og í gær lék hann sama leikinn. Stórsigur Leeds Leeds United er komið í undanúrslit í ensku deildarbikarkeppninni í knatt- spyrnu eftir stórsigur á Aston Villa, 4-1, á heimavelli sinum í gærkvöldi. Leeds náði fjögurra marka forsytu með mörkum frá Lee Chapman 2, Gary McAllister og Gary Speed en sláninn Ormondreoyd náði að svara fyrir Villa á lokamínútnum. Leeds er eina liðið sem er komið í 4-liða úrslitin því tveimur leikjum lauk með jafntefli og verða að spilast aftur næsta mið- vikudag. Leik Cóventry og Sheffleld Wednesday var frestað. Manchester United sótti Southamp- ton heim og skildu liðin jöfn, 1-1. Alan Shearer náði forystu fyrir heimaliðið á 71. mínútu en aðeins 7 mínútum síð- ar jafnaði Mark Hughes metin fyrir United með glæsilegu marki. Þá skildu Chelsea og Tottenham jöfn, hvorugu liðinu tókst að skora. • West Ham er komið í 4. umferð ensku bikarkeppninnar eftir stórsigur á Aldershot, 6-1. • í 2. deild sigarði Brighton lið New- castle, 4-2. -GH Eyjamen afdýrm - þegar liðið gerði jafntefli við ÍI Ómar Garðarsson, DV, Vestmarmaeyjum: * Eyjamenn misstu af dýr- mætum stigum í gær þegar liðið gerði jafntefli, 24-24, gegn ÍR í 1. deild karla á ís- • Hallgrímur Jónasson átti stórleik i marki ÍR-inga. landsmótinu í handknattleik í Vest- mannaeyjum í gærkvöldi. Lið ÍBV er í 7. sæti deildarinnar með 14 stig, tveimur stigum- á eftir KR-ingum sem eru í 6. sæti en eins og kunnugt er þá leika sex efstu liðin til úrslita um íslandsmeist- aratitilinn. Leikurinn í gærkvöldi var æsispenn- andi og úrslitin réðust ekki fyrr en á lokasekúndunum. Greinilegt var á leik Eyjamanna að þreyta sat í leikmönnum KA greiddi 250 þúsund KA-fólk tók sér ferð á hendur um helgina og sótti heim and- stæðinga sína í Reykjavík. KA- stúlkur mættu liðum Breiðabhks og Víkings en KA-menn öttu kappi við Þrótt og ÍS. Þjálfari KA, hinn kínverski Hó Fei, lékmeð liði sínu um helgina. Vera hans í hðinu hefur örugg- lega gert gæfumuninn því hann getur verið feikilega öflugur. Til þess að Fei megi leika meö í fyrstu deild þurfti KA aö reiða af hendi um 250 þúsund krónur, að sögn Hauks Valtýssonar, leik- manns KA. Þessi upphæð er borguö til Alþjóöablaksambands- ins og kínverska blaksambands- ins. A dögunum léku lið Þróttar R. og KA i karlaflokki. Reykvíking- ar hófu leikinn mjög vel og unnu í fyrstu hrinu, 15-11. Mikil bar- átta var í annarri hrinu en eftir mikiö streð í 34 mínútur gátu Þróttarar fagnaö naumum 17- 15-sigri. KA-menn unnu 1 tveim- ur næstu hrinum, 15-12 og 15-10, og úrshtahrinuna, 15-13. • ÍS- ingar fengu einnig að finna fyrir styrk KA, í byrjun léku stúdentar mjög vel og unnu mjög góðan sig- ur í fyrstu hrinu (15-12). En fljót- lega í annarrí hrinu tók að halla undan fæti fyrir ÍS og KA, meö Fei innanborðs, sigldi fram úr og vann, 15-10. Sigur KA var síðan aldrei í hættu i næstu tveimur hrinum, 15-7 og 15-9, og þar meö voru stigin þeirra. • KA hefur núforystu í 1. deild og verður erfitt aö stöðva liðið úr þessu. Liö HK mátti þola enn einn ósig- urinn þegar ÍS-stúlkur gengu með sigur af hólmi, 3-1. • Breiðabliksstúlkur unnu stöllur sínar í KA í íjögurra hrina leik, 15-7,10-15,15-9 og 15-3. • KA-stúlkur máttu aftur þola tap á sunnudeginum en þá voru þaö Víkingar sem voru hinum megin netsins. Víkingur vann, 15-4, 9-15, 15-9 Og 15-6. -gje Freyr Gauti Sigmundsson, júdó ur i KA, var kjörinn íþróttamaður KA árið Hér sést hann með verðlaun sín. Annar Valdemar Valdemarsson skiðamaður og Ormarr Örlygsson knattspyrnumaður. -GK/Akureyri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.