Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1991, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1991, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1991. Fréttir Frumvarp sjávarútvegsráðherra til aðstoðar loðnuskipunum: Þverpólitískt deilu- mál í uppsiglingu - tel að ýmsar aðrar leiðir komi til greina, segir Skúli Alexandersson , Halldór Asgrímsson sjávarútvegs- ráöherra hefur lagt fram frumvarp í eigin nafni á Alþingi, um ráöstafanir til aðstoðar loðnuveiðiskipunum vegna loðnubrests. Þar gerir hann ráð fyrir því að úthluta kvóta sem hagræðingasjóður á til og er rætt um 9 til 12 þúsund lestir af þorski. Mik- ill ágreiningur er um frumvarpiö á Alþingi og ekki síður úti á lands- byggðinni. „Það er alveg ljóst aö það er ekki samstaða um þetta frumvarp sjávar- útvegsráðherra á Alþingi og þetta er þverpólitískt deilumál. Frumvarpið hefur of lítið verið kynnt úti í þjóð- félaginu. Þeir sem hafa kynnt sér það eru því andvígir. Ég er einnig viss um að ef svo fer, sem líklegt má telja, að frumvarpið verði samþykkt í efri deild, verði það annaðhvort fellt eða gerðar á því stórbreytingar í neðri deild. Enda er það svo að hægt er að fara ýmsar aðrar betri leiðir til að- stoðar loðnuveiðiskipunum og sjó- mönnum þeirra," sagði Skúli Alex- andersson alþingismaður í samtali við DV. í efri deild hafa þau Skúli, Karvel Pálmason og Margrét Frímannsdótt- ir lagst gegn frumvarpinu. Fleiri hafa efasemdir um ágæti þess. Þó virðist ljóst að einhverjir af stjórnarand- stæðingum í efri deild munu sam- þykkja frumvarpið, aðrir sitja hjá og ef til vill einhverjir greiða atkvæöi gegn því. Skúli sagðist ekki þora að segja til um, eftir fyrstu umræðu um frumvarpið, hvernig því vegnaði í efri deild. Hann taldi enn erfiðara að gera sér grein fyrir stööunni í neðri deild. í frumvarpinu er gert ráð fyrir að sá kvóti, sem útgerðarmenn loðnu- skipa fá í þessu tilfelli, sé framseljan- legur. Og það er einmitt þetta atriði sem mest er deilt um. Andstæðingar frumvarpsins benda á aö með þessu sé fyrst og fremst gert ráö fyrir að aðstoða útgerðarmenn en skilja sjó- mennina eftir. Eins vilja margir að loðnuskipin landi öllum þessum afla hér heima. Á hvorugt þessara atriða sagðist Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra geta fallist við fyrstu um- ræðu málsins í neðri deild. Frumvarpið hefur nú verið afgreitt til sjávarútvegsnefndar neðri deildar ogtilannarrarumræðu. -S.dór Islensk stjórnvöld hafa boðist til að taka að sér sáttahlutverk í samskiptum Sovétríkjanna og Eystrasaltsrikjanna. Eistlensk stjórnvöld munu á næstu dögum kanna vilja Lettlands og Litháens til þessa. Ef af verður er hugsanlegt að efnt verði til fundar i Reykjavík með fulltrúum Eystrasaltsríkjanna til að ræða fyrsta skrefið í slikri sáttagjörð. Þetta var meðal þess sem samkomulag varð um í viðræðum forsætisráðherra og utanrikisráðherra við eistnesku ráðherrana Edgar Savisaar og Lennart Meris. Á blaðamannafundi í gær, þar sem skýrt var frá viðræðum ráðherranna, kom fram að islensk stjórnvöld stefna að því að hafa íslenskan fulltrúa í Tallin í því skyni að koma á sem nánustum samskiptum við Eystrasaltsríkin. DV-mynd BG/kaa Launahækkun hjá ríkinu upp á 0,3 prósent: Farmenn óánægðir: Matar- skammtur aðurum 7 kíló í nýrri reglugerð um hve ís- lenskir farmenn og feröamenn mega taka með sér mikið magn af matvælum inn í l'andið er gert ráð fyrir að magnið minnki úr 10 kílóum í 3 kíló. Þetta hefur valdið mikilli reiði meðal farmanna. Ekki síst vegna þess að í kjara- baráttu þeirra hefur alltaf verið bent á þetta atriöi sem hlunnindi. „Þessi nýja reglugerð var gefin út 20. desember og það er ekki sterkt til orða tekið að farmenn séu óánægðir með hana. Ég veit að þeir eru að bræða með sér aðgerðir. Við hér hjá Sjómanna- félagi Reykjavíkur getum svo sem ekki annað gert en aðstoöa þá eftir því sem þeir óska,“ sagði Guömundur Hallvarðsson, for- maður Sjómannafélags Reykja- vikur. Hann sagði að farmenn hefðu mátt taka með sér 10 kíló af þeím matvælum sem á annaö borð er leyft aö flytja inn til landsins. Þar í er öll niðursuðuvara og skinka svo dæmi sé tekið. Nú mega þeir aðeins taka 3 kíló. I reglugerðinni hefur smjör verið fellt niður af bannvörulistanum. „En síðan gerðist það að einn farmaður lét á þetta reyna og sagðist myndu greiða toll af mis- mun á 3 og 10 kilóum af skinku og osti. Hann fékk það ekki og var honum rétt bréf, undirritað af landbúnaðarráöuneytinu. Þar sagði að vegna þess að nægar birgðir væru öl í landinu af skinku og osti og hægt að anna eftirspum væri innflutningur óheimill. Þá eru tollveröir farnir að mæla inn í þennan leyfilega matarskammt farmanha gos- drykki,“ sagði Guðmundur. Hann sagðist líta á þessa minnkun matarskammtsins sem beina kjaraskerðingu hjá far- mönnum og þannig litu allir far- menn á málið og mundu taka á samkvæmt því. -S.dór Aðilar sammála um að þetta bæri að greiða - sagði Ólafur Ragnar Grímsson ármálaráðherra „Þaö má vera að þeim sem hugsa enn í gömlu verðbólgutölunum þyki þetta ekki launahækkun til að minn- ast á. En þegar sú staðreynd blasir viö, að verðbólgan nú er aðeins 2,3 prósent, munar um 0,3 prósent kaup- hækkun, sem er tilkomin vegna batnandi viðskiptakjara. Þessi hækkun svarar til íjögurra prósenta kauphækkunar í þrjátíu prósent verðbólgu eins og fólk þekkti fyrir nokkrum misserum síðan," sagöi Ólafur Ragnar Grímsson, í samtali við DV eftir fréttamannafund í gær. Á fundinum skýrði hann frá því að fjármálaráðuneytið, BSRB og Kennarasamband íslands hefðu orð- ið sammála um að greiöa þessa hækkun út um næstu mánaðamót. Þá áttu laun opinberra starfsmanna að hækka um 2,5 prósent samkvæmt kjarasamningum en hækkunin verð- ur 2,8 prósent. Jafnframt var ákveðið að þessir sömu aðUar tækju viðskiptakjörin til sérstakrar skoðunar í maí næstkom- andi, eins og kveðið er á um í kjara- sammngum. Ólafur tilkynnti í gær þessa ákvöröun ráðuneytisins, bæöi Al- þýðusambandinu, Vinnuveitenda- sambandinu og formönnum hinna stjórnarflokkanna. Alþýðusamband- ið og Vinnuveitendasambandið höföu samkvæmt heimildum DV ákveðið að hreyfa ekki laun vegna þessa. Töldu hækkunin of litla til þess. Eftir að fjármálaráðuneytið hefur ákveðið að greiöa þessa hækk- un út er taliö víst aö aöilar vinnu- markaðarins endurskoði fyrri ákvörðun í málinu. -S.dór Vatn í jarðsímastreng ruglar íbúa Kópavogs: Eiginmenn hringja rétt í vitlausar eiginkonur Honum brá í brún, Kópavogs- búanum sem hugðist hringja heim til eiginkonu sinnar í gær því í sí- manum var „snarvitlaus“ kona sem hann kunm engin deili á, eins og hann orðaði það. Og þrátt fyrir ítrek- aðar tilraunir kom alltaf röng kona í símann. Svipaða sögu sögðu margir sem samband höfðu við DV í gær og lent höfðu í ógöngum er þeir reyndu að ná símasambandi við fólk í Kópa- vogi. Aö sögn Gunnars Júlíussonar, deildarstjóra jarðsímadeildar Pósts og síma, ér ástæða þessa vandræða- ástands bilun sem kom upp í jarð- streng við Engihjalla í Kópavogi. Vatn hafði komist í strenginn og valdið truflunum og þurfti því að taka hann í sundur og tengja upp á nýtt. Alls eru um þúsund símanúmer í austurhluta Kópavogs í þessum streng. „Það má búast við einhverjum truflunum fram yfir helgi meðan verið er að tengja allar línurnar. Það tekur yfirleitt mjög stutta stund að tengja hverja línu, í mesta lagi hálfa klukkustund, þannig að fólk ætti ekki að verða fyrir verulegum töfum við að ná símasambandi. Og mér er ekki kunnugt um að þetta hafi valdið notendum miklum óþægindum né að réttir eiginmenn lendi á vitlausum konum.“ -kaa Það gengur ekki átakalaust fyrir sig að ákveða hvernig verja skuli 12 millj- örðum þannig aö þeir gagnist sem best. Það varð hlutskipti borgarfulltrúa Reykvikinga að karpa og deila um fjárhagsáætlun borgarinnar fram til klukk- an 6.30 í morgun. Þá var fundi frestað til þriðjudags. Þá verða greidd at- kvæði um tillögur minnihlutans. DV-mynd Brynjar Gauti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.