Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1991, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1991, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1991 íþróttir Sportsfúfar • Paulo Roberto Falcao, lands- liösþjálfari Brasilíu í knattspymu, hefur á ný kallað á sóknarmanninn Romario hjá PSV Eindhoven í lið sitt sem mætir Paraguay í næstu viku. Forráðamenn PSV hafa hins vegar lýst því yfir að Romario fái ekki frí til að leika með brasilíska landsliðinu enda eigi PSV bikarleik á sama tima gegn Wilhelm II. Fal- eao, þjáifari Brasilíu, á enn eftir að vinna sigur sem landsliösþjálfari eftir þrjú jafnteíli og eitt tap. Björn Borg leikur gegn Jimmy Connors ..... Sænski tennisleikarinn Björn Borg æfir af full- /I um krafti þessa dagana enda ætlar hann sér að leika á mörgum stórmótum gegn bestu tennisleikurum heims á þessu ári. Borg er farinn að hita upp íyrir alvöruleikina og hyggst leika tvo sýningarleiki gegn Banda- rikjamanninum Jimmy Connors í apríl. Alvaran tekur síðan við hjá Borg þann 22. apríl en þá tekur hann þátt í Monte Carlo Open. Hörkuslagur hjá Indiana og Oriando • Fimm leikir fóru fram í fyrrinótt í NBA-deildinni í körfuknattleik. Þar bar hæst æsispennandi viður- eign Indiana Pacers og Orlando Magic. Leik liðanna lauk með naumum sigri Indiana 122-120 eftir framlengdan leik. Úrslit uröu ann- ars þessi: Detroit-Atlanta...........97-89 Cleveland-Sacramento....118-104 Minnesota-GoldenState....105-108 LA Clippers-Phoenix Suns...93-113 Tvöfaldur sigur hjá Bretanum Linford Christie • Breski spretthlauparinn Linford Christie vann tvöfaldan sigur á al- þjóðlegu frjálsíþróttamóti í Ghent í Belgíu í gær. Keppt var innanhúss aö sjálfsögðu og sigraði Christie í 60 og 200 metra hlaupum. 60 metr- ana hljóp hann á 6,55 sekúndum og 200 metrana á 20,69 sekúndum. Þess má geta að Bretinn Paul Ed- wards sigraði í kúluvarpi með 17,95 metra kasti og á greinilega mikið eftir ólært í greininni. Boris Becker rak þjálfarann sinn • Þýski tennisleikarinn Boris Bec- ker hefur tilkynnt að hann sé hætt- ur samstarfi við þjálfara sinn, Bob Brett. Becker tilkynnti þetta eftir að hann missti efsta sætið á heims- listanum í hendur Svíans Stefaans Edberg eftir þriggja vikna dvöl á toppnum. Becker hefur átt viö þrál- át meiðsli að stríða aö undanfórnu en Brett, sem er frá Ástraliu, hefur verið þjálfari hans síðan 1987 og aðeins annar tveggja þjálfara Bec- kers á atvinnumannaferli hans. Júgóslavarnir komnir en þjálfara vantar Júgóslavnesku knattspyrnumenn- irnir Asim Dervic og Mehic Demal, sem leika með Víkingi frá Ólafsvík í 4. deildinni i sumar, eru komnir til landsins og byrjaðir að æfa með Ólsurum. Þeir hafa þegar leikið einn æfmgaleik með liðinu, gegn Aftureldingu á gervigrasinu í Kópavogi, og þykja lofa góðu. Vík- ingar eru hins vegar enn að leita sér að þjálfara fyrir sumarið en Gunnar Jónsson, fyrrum leikmað- ur með ÍA og Skallagrími, sem þjálfaði þá í fyrra, er orðinn þjálf- ari og leikmaöur hjá 4. deildar liði Hvatar á Blönduósi. Fjölnir og Leiftri í 2. deild Tvö Reykjavíkurlið hafa tryggt sér sæti í 2. deild karla í handknattleik næsta vetur. Það eru Fjölnir Úr Grafarvogi og Leiftri, sem er lið lögreglunnar i Reykjavík. Fjölnir og Leiftri urðu efst í 3. deildinni, en eiga reyndar eftir að útkþá bar- áttu sína um meistaratitilinn. Ann- ars þurftu þau ekki mikiö fyrir hlutunum að hafa, því aðeíns eitt annað lið, Ögri, var í deildinni. Fyikir hætti við þátttöku á síðustu stundu, og í staðinn iéku B-lið 1. og 2. deildar félaga við hin þrjú lið- in til skiptis í vetur. Steingrímur og Guðmundur sigruðu Þeir Steingrímur Ingason og Guð- mundur Bjöm á Nissan 240 RS sigr- uðu í sprettralli sem Bifreiöaíþrót- tákiúbbur Reykjavíkur hélt í Kap- elluhrauni síðasta laugardag. Gunnar Vagnsson á Toyota varð í öðru sæti. Þátttakendur voru átta, sem þykir gott miðað við árstíma en tíðin í vetur hefur verið aksturs- iþróttamönnum hagstæð, eins og fleirum. Nauðungaruppboð á eftirtöldum íasteignum fer fram í dómsal embættisins, Skógarhlið 6, 3. hæð, á neðangreindum tíma: Akurgerði 26, þingl. eig. Gísli Bene- diktsson, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 10.00. Uppboðsbeiðendur eru íslands- banki hf., Skúli Bjamason hdl. og Gjaldheimtan í Reykjavík. Akurgerði 39, 01-01, þingl. eig. Bragi Jónsson, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 10.00. Uppboðsbeiðandi er Guðjón Armann Jónsson hdl. Austurberg 38, hluti, þingl. eig. Ingi- björg Kristrún Einarsdóttir, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 10.00. Uppboðs- beiðendur eru Ævar Guðmundsson hdl. og Ásgeu Thoroddsen hrl. Austurstræti 18, þingl. eig. Almenna bókafélagið, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 10.00. Uppboðsbeiðendur eru Bjöm Jónsson hdl. og Ævar Guðmundsson hdl.______________________________ Álfheimar 33, miðhæð og bílskúr, þingl. eig. Hallgrímur Einarsson, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 10.15. Upp- boðsbeiðendur eru Guðjón Ármann Jónsson hdl. og Gjaldheimtan í Reykjavík. Álflieimar 74, hluti, talinn eig. Sport- land hf., mánud. 25. febrúar ’91 kl. 10.15. Uppboðsbeiðendur em Gústaf Þór Tryggvason hdl., Gjaldheimtan í Reykjavík, Búnaðarbanki íslands, Fjárheimtan hf. og Reynir Karlsson hdL_______________________________ Bergþórugata 51, hluti, þingl. eig. Sig- urður Snævar Hákonarson, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 10.15. Úppboðs- beiðendur em Eggert B. Ólafsson hdl. og íslandsbanki. Beykihlíð 25, þingl. eig. Jóna Sigr. Þorleifsdóttir, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 10.30. Uppboðsbeiðendur em Ólaf- ur Gústafsson hrl. og Gjaldheimtan í Reykjavík. Borgartún 22, hluti, þingl. eig. Hilda hf., mánud. 25. febrúar ’91 kl. 10.30. Uppboðsbeiðandi er Iðnþróunarsjóð- ur. Brekkulækur 1, hluti, þingl. eig. Jóna Kortsdóttir og Eygló Kortsdóttir, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 10.30. Upp- boðsbeiðendur em íslandsbanki hf., Ólaíúr Bjömsson hdl., Ævar Guð- mundsson hdl., Bogi Ingimarsson hrl., Gjaldheimtan í Reykjavík, Kristján Ólafsson hdl., Hróbjartur Jónatans- son hrl., Reynir Karlsson hdl., Magn- ús Norðdahl hdl., Þórður S. Gunnars- son hrl. og Fjárheimtan hf. Búðargerði 1, 2. hæð t.v., þingl. eig. Ólöf Jónsdóttir, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 10.45. Uppboðsbeiðandi er Eggert B. Ólafsson hdl. Bústaðavegur 55, neðri hæð, þingl. eig. Lilja Þorbjömsdóttir, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 10.45. Uppboðsbeiðend- ur em Baldur Guðlaugsson hrl., Gjaldheimtan í Reykjavík og Helgi Jóhannesson hdl. Dalsel 6,1. hæð t.h., þingl. eig. Salvar Guðmundsson, mánud. 25. febiiar ’91 kl. 10.45. Uppboðsbeiðandi er Jón Þóroddsson hdl. Drápuhh'ð 26, neðri hæð, þingl. eig. Jón Öfjörð og Gerður Helgadóttir, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 10.45. Upp- boðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík. Dverghamrar 26, hluti, þingl. eig. Bjartey Friðriksdóttir, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 11.00. Uppboðsbeiðandi er íslandsbanki hf. Eddufell 8, þingl. eig. Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 11.00. Uppboðsbeiðend- ur em Jón Ingólfsson hrl., Bjöm Ólaf- ur Hallgrímsson hrl. og Gjaldheimtan í Reykjavík. Eikjuvogur 9, þingl. eig. Jón Ingvar Pálsson, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 11.00. Úppboðsbeiðendur em Gjald- heimtan í Reykjavík, íslandsbanki og Búnaðarbanki Islands. Fannafold 70, hluti, talinn eig. Elvar Hallgrímsson, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 11.15. Uppboðsbeiðandi er Jón Þóroddsson hdl. Fannafold 118, þingl. eig. Ragnheiður Þórðard. og Jón Magnússon, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 11.15. Úppboðs- beiðendur em Steingrímur Þormóðs- son hdl., Ásdís J. Rafnar hdl., Ævar Guðmundsson hdl., Gjaldheimtan í Reykjavík og Ólafúr Axelsson hrl. Fannafold 144, þingl. eig. Ásgeir Ás- geirsson og Berglind Ólafsd., mánud. 25. febrúar ’91 kl. 11.15. Úppboðs- beiðendur em Ólafur Axelsson hrl., Veðdeild Landsbanka íslands og Eggert B. Ólafsson hdl. Faxafen 10, hluti, talinn eig. Sveinn Egilson hf., mánud. 25. febrúar ’91 kl. 11.30. Uppboðsbeiðendur em Lands- banki íslands, Fjárheimtan hf., Reynir Karlsson hdl., Guðmundur Jónsson hrl., Gjaldheimtan í Reykjavík, Skúh J. Pálmason hrl., Steingrímur Eiríks- son hdl. og Bjöm Jónsson hdl. Faxafen 11, hluti, þingl. eig. Hilti s£, heildverslun, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 11.30. Uppboðsbeiðandi er Ólafur Gústafsson hrl. Fákafen 11, 01-02, þingl. eig. Ós h£, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 11.30. Upp- boðsbeiðendur em Steingrímur Ei- ríksson hdl., Guðríður Guðmunds- dóttir hdl., Gjaldheimtan í Reykjavík, Guðni Haraldsson hdl. og Brynjólfúr Eyvindsson hdl. Fiskakvísl 13, 1. hæð t.h., þingl. eig. Björg Ólafsdóttir, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 11.30. Uppboðsbeiðandi er Guð- jón Armann Jónsson hdl. Fljótasel 18, jarðhæð, þingl. eig. Val- dís Hansdóttir, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 11.30. Uppboðsbeiðandi er Islands- banki hf. Flókagata 41, hl. efri hæð, þingl. eig. Hörður Barðdal og Soffía K. Hjartar- dóttir, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 11.45. Uppboðsbeiðendur em Gjaldheimtan íReykjavík, Ásgeir Þór Ámason hdl., Ólafur Axelsson hrl. og Innheimtu- stofnun sveitarfélaga. Flókagata 62,1. hæð, þingl. eig. Þor- steinn Þorsteinsson, mánud. 25. febrú- ar ’91 kl. 11.45. Uppboðsbeiðandi er Ámi Einarsson hdl. Flúðasel 70, hluti, þingl. eig. Gísli Friðgeirsson, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 11.45. Uppboðsbeiðendur em Ásdís J. Rafnar hdl. og Ólafúr Gústafsson hrl. Frostafold 169, hluti, þingl. eig. Bylgja Sjöfn Ríkarðsdóttir, mánud. 25. febrú- ar ’91 kl. 11.45. Uppboðsbeiðandi er Guðjón Ármann Jónsson hdl. Frostaskjól 2, hluti, þingl. eig. Hand- knattleiksdeild K.R., mánud. 25. febrúar ’91 kl. 11.45. Uppboðsbeiðend- ur em Búnaðarbanki Islands og Is- landsbanki hf. Funafold 56, þingl. eig. Unnur Bima Magnúsdóttir, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 13.30. Úppboðsbeiðendur em Hanna Lára Helgadóttir hdl., Fjár- heimtan hf., Garðar Briem hdl., Veð- deild Landsbanka íslands og Guðjón Armann Jónsson hdl. Funafold 63, hluti, þingl. eig. Guð- mundur Magnússon, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 13.30. Uppboðsbeiðandi er Þórey Aðalsteinsdóttir lögfr. Gaukshólar 2, hluti, þingl. eig. Sigurð- ur Sigurjónsson, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur em Guðjón Ármann Jónsson hdl. og Gjaldheimtan í Reykjavík. Gautland 17, hluti, þingl. eig. Eyjólfúr Þorbjömsson, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur em Ólaf- ur Gústafsson hrl., Guðmundur Pét- ursson hdl. og Fjárheimtan hf. Gnoðarvogur 42, 2. hæð t.v., þingl. eig. Þórdís Bjamadóttir, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 13.45. Uppboðsbeiðend- ur em Skúli J. Pálmason hrl., Ólafúr Axelsson hrl., Ásdís J. Rafnar hdl. og Islandsbanki hf. Grenimelur 8, hluti, þingl. eig. Oskar Þórðarson, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 13.45. Uppboðsbeiðandi er Eggert B. Ólafsson hdl. Grensásvegur 3, hluti, þingl. eig. Ingv- ar Þorsteinsson, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur em Iðnlánasjóður, Gjaldheimtan í Reykjavík og Islandsbanki hf. Grettisgata 8, þingl. eig. Tinna Gunn- laugsdóttir, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 14.00. Uppboðsbeiðandi er Iðnlána- sjóður. Grýtubakki 24, hluti, talinn eig. Hild- ur Bjamadóttir, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 14.00. Uppboðsbeiðandi er Helgi V. Jónsson hrl. Háaleitisbraut^ 117, 4. hæð n.a.endi, þingl. eig. Ólafía Sigurðardóttir, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 14.15. Upp- boðsbeiðandi er Ólafur Gústafsson hrL______________________________ Háberg 38, hluti, þingl. eig. .Hrefna Lúthersdóttir, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 14.15. Uppboðsbeiðandi er Kristinn Hallgrímsson hdl. Hátún.39, kjallari, þingl. eig. Jónas Ingvi Ásgrímsson, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 14.15. Uppboðsbeiðendur em Ingi Ingimundarson hrl. og Trygg- ingastofnun ríkisins. Heiðarás 3, þingl. eig. Júlíus Þor- bergsson, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 14.15. Uppboðsþeiðendur em Jón Eg- ilsson hdl. og íslandsbanki hf. Holtsgata 24, hluti, þingl. eig. Karl Ó. Bjömsson, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 14.15. Uppboðsbeiðandi er Ólafúr Gústafsson hrl. Hólmasel 4, hluti, þingl. eig. Skúli Jóhannesson, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur em Stein- grímur Þormóðsson hdl., Hróbjartur Jónatansson hrl., Guðríður Guð- mundsdóttir hdl., Gústaf Þór Tryggvason hdl. og Ævar Guðmunds- son hdl. Hraunbær 12, hluti, þingl. eig. Hall- grímur Kristjánsson, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 14.30. Uppboðsbeiðandi er Róbert Ami Hreiðarsson hdl. Hraunbær 152,1. hæð f.m., þingl. eig. Egill Vilberg Benediktsson, mánud. 25. febrúar j91 kl. 14.30. Uppboðs- beiðandi er Ólafúr Gústafsson hrl. Hringbraut 119, íb. 01-05, þingl. eig. Steintak s£, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur em Guð- jón Ármann Jónsson hdl., Gjaldheimt- an í Reykjavík, Landsbanki íslands og Eggert B. Ólafsson hdl. Hveríisgata 72, 1. hæð, þingl. eig. Fjölnir Lúðvígsson, mánúd. 25. febrú- ar ’91 kl. 14.45. Uppboðsbeiðendur em Róbert Ámi Hreiðarsson hdl. og Gjaldheimtan í Reykjavík. Hveríisgata 114, 3. hæð, þingl. eig. Þrotabú Ávöxtunar s£, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 14.45. Uppboðsbeiðandi er Unnsteinn Beck hrl. Kambasel 85, hluti, þingl. eig. Birgit Johanson, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 14.45. Uppboðsbeiðandi er Ásdís J. Rafhar hdl. Keilufell 23, þingl. eig. Lúðvík Guð- mundsson, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 14.45. Uppboðsbeiðandi er Fjárheimt- an hf. Klapparstígur 1, 3. hæð, þingl. eig. Bragi Benediktsson, mánud. 25. febrú- ar ’91 kl. 15.00. Uppboðsbeiðandi er Klemens Eggertsson hdl. Kleifarsel 18, 2. hæð norðvesturhl., þingl. eig. Fjárskipti, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 15.00. Uppboðsbeiðend- ur em Þómnn Guðmundsdóttir hrl., Gjaldheimtan í Reykjavík og Sigur- mar Albertsson hrl. Kleppsvegur 86, þingl. eig. Jörundur Pálsson, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur em Hanna Lára Helgadóttir hdl. og Baldur Guð- laugsson hrl. Kleppsvegur 122, 2. hæð t.h., þingl. eig. Ágústa Halldórsdóttir, mánud. 25. febrúar ’91 kl. 15.00. Uppboðsbeiðend- ur em_ Valgarð Briem hrl., Lands- banki íslands og Garðar Briem hdl. Kleppsvegur 152, hluti F, þingl. eig. Sigurjón Ragnarsson hf., mánud. 25. febrúar ’91 kl. 15.00. Uppboðsbeiðandi er Gústaf Þór Tryggvason hdl. BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐ í REYKJAVÍK Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum: Stíflusel 4, 1. hæð merkt 01-01, þingl. eig. Haraldur Friðriksson, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 25. febrúar ’91 kl. 16.00. Uppboðsbeiðandi er Gjald- heimtan í Reykjavík. BORGARFÓGETAEMBÆITH) í REYKJAVÍK FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1991. 25 Hvað gerir Booker gegn UMFN og KR? - Barist um sæti í úrslitum og fall 11. deild í körfunni Fimm spennandi leikir eru á dagskrá um helgina í úrvals- deildinni í körfuknattleik. Nú 'fer að líða að lokum keppninnar í úrvalsdeildinni og baráttan um sæti í úrslitakeppninni og fall í 1. deild er í al- gleymingi. í kvöld leika Njarðvíkingar gegn ÍR í Njarðvík kl. 20.00. Njarðvíkingar verða að teljast sigurstranglegri, en ÍR-ingar eru til alls líklegir með snillinginn Franc Boo- ker innanborðs. Á sunnudag eru fjórir leikir á dagskrá. Einn þeirra fer fram kl. 16.00. Þá leikur Snæfell á heimavelli sínum í Stykkishólmi gegn Haukum. Snæfell á í harðri fallbar- áttu og þarf nauðsynlega á sigri að halda. Klukkan 20.00 á sunnudagskvöld fara fram þrír leikir. Þór leikur á Akureyri gegn Val og með sigri geta Valsmenn svo til tryggt sér áframhaldandi veru í úrvals- deildinni. Þórsarar eru hins vegar ekki komnir af hættusvæðinu og leikurinn er mjög mikilvægur fyrir heimamenn. Aðalleikur helgarinnar verður eflaust í Keflavík en þar leika Keflavík og Grinda- vík. Jafnan gengur mikið á þegar tvö Suð- urnesjalið leiða saman leikmenn sína og búast má við spennandi viðureign. Gífur- leg keppni er um sætin tvö í úrslitakeppn- inni í b-riðli. ÍBK, Grindvík og Tindastóll berjast um sætin tvö. Loks leika ÍR-ingar mikilvægan leik gegn KR í Seljaskóla á sunnudagskvöldið. Verður fróðlegt að sjá hve Franc Booker skorar mikið gegn KR-ingum en í síðasta leik gegn KR skoraði hann 55 stig. Til glöggvunar kemur hér staðan í úr- valsdeildinni fyrir leiki helgarinnar. Njarðvík.... KR........ Haukar.... Snæfell... ÍR........ Keflavík... Grindavík.. Tindastóll.. Valur...... Þór........ ....22 18 4 2096-1677 36 ....23 15 8 1947-1842 30 ....23 11 12 1932-1966 22 ....22 5 17 1711-1952 10 ....21 4 17 1699-1968 8 B-riðill: .....22 16 .....23 16 .....23 15 .....23 7 .....22 5 6 2172-2021 32 7 1977-1877 32 8 2162-2072 30 16 1896-2016 14 17 1977-2118 10 -SK Körfubolti: Jón og Björn í leikbann - veröa ektó með ÍR í kvöld gegn Njarðvik TVeir ÍR-ingar voru úrskurðaðir f eins leiks bann hjá aganefhd KKÍ á þriðjudags- kvöld. Það voru Jón Jörundsson þjálfari og Björn Steffensen sem báðir fengu brott- vf sun i leik Keflavíkur og ÍR á dögunum. Þeir geta því ekki verið með félögum sinum í kvöld þegar ÍR-ingar heimsækia Njarðvíkinga í úrvalsdeildinni. Slæmtástand á leikmönnum Snæfells Það er ekki gott ástand á úrvalsdeildarliði Snæfells þessa dagana. Hreinn Þorkels- son, þjálfari og leikmaður liðsins, er frá vegna meiösla og leikur sennilega ekki meira með liðinu á þessu keppnistímabili. Tim Harvey iiggur á spítala vegna maga- kveisu og þíggur næringu í æö. Bryniar Harðarson liggur rúmfastur með flensu og gömul hnjámeiösli hafa tekið sig upp hjá Ríkharði Hrafnkelssyni. Snæfell er í fallbaráttu og á að leika gegn Haukum í Stykkishólmi á sunnudag en það er óvíst hvortHólmarargetitefltframsínubestaliðieinsogstaðanerídag. - -GH/IH íslandsmeistarar Víkings í blaki kvenna e Víkingur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í blaki kvenna á miðvikudagskvöldið, eins og fram kom í blaðinu í gær, en liðið á þó enn þremur leikjum ólokið. Meistararnir eru, aftari röð frá vinstri: Særún Jóhannsdóttir, Björk Benediktsdóttir, Berglind Þórhallsdóttir, Elín Bjarnadóttir, Geir Sigurpáll Hlöðversson, þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Jóhanna Katrín Kristjánsdóttir, fyrirliði, Jóna Lind Sævarsdóttir, Sigrún Ásta Sverrisdóttir, Björg Erlingsdóttir. DV-mynd GS íþróttir Alfreð með f imm - þegar Bidasoa sigraði Dynamo Bukarest, 17-23 Alfreð Gíslason átti mjög góðan leik þegar lið hans, Bidasoa, sigraði rúmenska liðið Dynamo Bukarest, 17-23, í fyrri leik hðanna í Evrópu- keppninni í handknattleik í gær- kvöldi. Alfreð varö markahæstur í liði Bidasoa og skoraði 5 mörk og var sem klettur í vörn liösins. Leikir þessara félaga fara báðir fram á Spáni þar sem Bidasoa keypti heimaleikinn af Rúmenunum. Leik- Guimar Svembjömsson, DV, Englandi: Hörður Magnússon, markakóngur úr FH, sem dvelst við æfingar hjá enska 1. deildarliðinu, Sheflield Un- ited lék í gærkvöldi með varaliði fé- lagsins gegn varaliði Leicester. Hörð- ur var í byrjunarliði Sheflield og var stillt upp í fremstu víglínu. Hörður varð fyrir því áfalli að togna á læri á upphafsmínútum leiksins. Hann harkaði þó af sér en bað um skiptingu í leikhléi. Hörður var nálægt því að skora mark, strax í upphafi leiks. Hann komst þá inn- fyrir vörn Leicester en markvörður liðsins bjargaði vel. Hörður komst þokkalega frá leiknum en þess ber að geta að hann hefur ekkert leikið frá því í október. Leicester haíði bet- urinn í gær var heimaleikur rúm- enska liðsins en síðari leikurinn fer fram á laugardaginn. Bidasoa var sterkari aðilinn allan leikinn í gær. Vöm liðsins var sterk en leikurinn var nokkuð harður og komust Rúmenarnir upp með að leika grófan leik. Eins og oft í vetur var Alfreð markahæstur, skoraði 5 mörk, en Bogdan Wenta kom næstur ogskoraði3. -GH ur í leiknum og sigraði, 2-4. í viðtali við DV eftir leikinn sagði Hörður að honum litist svo sem ekk- ert sérstaklega vel á lið Shefíield United. Hann sagðist lítið hafa heyrt frá forráðamönnum félagsins og vissi því ekki hvað þeir ætluðu sér. Hörð- ur bætti því við í lokin að hann myndi ekki fara til félagsins nema fyrir mjög góðan samning. Geoff Taylor, aðstoðarfram- kvæmdarstjóri Sheffield Utd stjórn- aði varaliðinu í gær og í viðtali við DV vildi hann lítið tjá sig um Hörð. Hann sagði þó að hann hefði kosið að geta séð meira til Haröar á æfing- um en vallaraðstæður og veður hefðu hamlað því. Hörður leikur annan leik með varaliði félagsins á miðvikudaginn. • Alfreð Gíslason átti mjög góöan leik með Bidasoa gegn Dynamo Bukarest og skoraði 5 mörk. Blak: TryggirKA sértitilinn? Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Þetta verður án efa mjög erfiður leikur enda hafa leikir okkar við Þrótt verið mjög jafnir í vetur. En okkur hefur gengið vel á heimavelli og við ætlum að tryggja okkur titil- inn í þessum leik,“ segir KA-maður- inn Sigurður Arnar Ólafsson um leik KA og Þróttar í blaki sem fram fer í íþróttahöllinni á Akureyri á morgun kl. 13.30. Staðan í deildinni er nú þannig að sigri KA í þessum leik hefur liðiö, tryggt sér íslandsmeistaratitilinn. Þróttur hefði að vísu fræðilegan möguleika á úrslitaleik, en til þess þyrfti Þróttur að vinna þá leiki sem liðið á eftir og KA að tapa sínum leikjum, m.a. gegn neðstu liðunum sem er afar ólíklegt. Leikir KA og Þróttar í vetur hafa verið jafnir og spennandi, KA hefur að vísu unnið sigur í þeim öllum, tvívegis eftir 5 hrinur. Þróttarar, sem eru bæði íslands- og bikarmeistarar, munu án efa mæta grimmir til þessa leiks, þó ekki væri til annars en að „bjarga andlitinu" gagnvart KA í vetur. Bjöm ráðinn þjálfari Snæfells - í knattspyrnunni Björn Árnason hefur verið ráðinn þjálfari knattspyrnuliðs Snæfells frá Stykkishólmi sem leikur i 4. deildinni. Bjöm er reyndur þjálfari, hefur meðal annars stýrt liðum Víkings og Þórs í 1. deild og var aðstoðarþjálf- ari KR 1988 og 1989. KR-ingar áttu reyndar viðræður við hann á dögunum áður en þeir réöu Guðna Kjartansson í staðinn fyrir Ian Ross. Snæfell hefur misst tvo sterka leikmenn, Rafn Rafnsson í KR og Krist- in Guðmundsson, sem þjálfaði liðið í fyrra, í Fylki. -VS Hörður náði ekki að skora - meiddist og þurfti aö fara út af • Axel Nikulásson var drjúgur í liöi KR • Guðni Guðnason hefur leikið síðan og skoraði 26 stig. hann kom inn í KR-liðið að nýju. KR í úrslitin - eftir sigur á Haukum í gær, 73-97 KR-ingar tryggðu sér í gær þátt- tökurétt i úrslitakeppni fjög- urra efstu liða um íslands- meistaratitilinn í körfuknatt- leik þegar liðið vann stórsigur á Haukum, 73-97, í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Haukar hófu leikinn ágætlega en síðan náðu KR-ingar frumkvæði í leiknum og í hálfleik hafði vesturbæjarliðið 9 stiga for- skot, 39-48. í síðari hálfleik juku KR-ingar muninn jafnt og þétt og Haukarnir réðu ekkert við góðan leik íslandsmeistaranna. Þegar upp var staðið var munurinn orðin 21 stig, 73-97. KR-liðið var geysiöflugt í gær og er greinilega mikil stígandi í liðinu og verður fróðlegt aö sjá hvort liðið nær að verja titilinn. Jonathan Bow átti mjög góðan leik, Axel Nikulásson var mjög drjúgur og Guðni Guðnason gerði góða hluti og er allur að braggast eftir meiðslin. Haukaliðið var mjög slakt í þessum leik og leikmenn liðsins virtust mjög áhuga- lausir. Damaon Vance var atkvæðamestur en meöalmennskan var allsráðandi í lið- inu. • Stig Hauka: Damon Vance 23, Jón Arnar Ingvarsson 16, Henning Hennings- son 12, ívar Ásgrímsson 6, Reynir Kristj- ánsson 5, Pétur Ingvarsson 4, Pálmar Sig- urðsson 3, Hörður Pétursson 3, Ingimar Jónsson 1. • Stig KR: Jonathan Bow 37, Axel Niku- lásson 26, Guðni Guðnason 15, Hermann Hauksson 8, Benedikt Sigurðsson 3, Páll Kolbeinsson 2, Lárus Árnason 2, Gauti Gunnarsson 2, Matthías Einarsson. • Leikinn dæmdu Kristinn Albertsson og Kristinn Óskarsson og dæmdu þeir ágætlega. -RR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.