Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1991, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
FOSTUDAGUR 22. FEBRUAR 1991.
Þórarinn V. Þórarinsson:
Pólitískur við-
skiptakjarabati
„Við höfum farið yfir stöðuna og
okkar niðurstaða er sú að hún sé
svipuð og við var búist. Það verða
því engin rök sótt í efnahagsleg við-
skiptakjör fyrir kauphækkunum.
Það hljóta því að vera einhver önnur
viðskiptakjör sem fjármálaráðherra
er að reikna út frá, sennilega pólitísk
viðskiptakjör," sagði Þórarinn V.
Þórarinsson, framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambandsins, um
ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar
að hækka laun opinberra starfs-
manna um næstu mánaðarmót um
0,3 prósent.
Þórarinn benti hinsvegar á að 0,3
prósent launahækkun væri svo sem
ekkert stórmál og að þjóðfélagið færi
ekki á hliðina þess vegna. Aðalatrið-
ið væri að forsendur kjarasamning-
anna hefðu staðist, kaupmátturinn
væri aðeins betri meira að segja og
viðskiptakjörin hefðu gengið eftir.
„Við höfum nú fengið ósk frá ASÍ
um launahækkun til samræmis við
þessa hækkun hjá ríkinu. Það mál
verður tekið fyrir á framkvæmda-
stjórnarfundi Vinnuveitendasam-
bandsins," sagði Þórarinn V. Þórar-
insson. -S.dór
Nýrforstjóri
hjá Kaupþingi
Suðureyri:
Stíftfundaðígær
Ummæli Steingríms Hermanns-
sonar á blaðamannafundi á þriðju-
daginn hafa kallað fram hörð við-
brögð á Suðureyri. Haft var eftir
Steingrími að ekki væri vit í að bora
ónauðsynleg göt í fjöll til þess eins
að síðasti íbúinn gæti tlutt á brott.
Stíft var fundað í gærkvöldi og yfir-
lýsingar er að vænta. Hreppsnefnd-
armenn vildu ekki ræða um málið
við DV í morgun. -kaa
LOKI
Bláfjöll-og marin!
Með brotin bein
og rif ið skinn
ur
„Slys, sem tengjast íþróttum, eru
mjög algeng en það er þó misjafnt
eftir íþróttagreinum hversu alvar-
leg þau eru. Þó að flest slysin verði
í þeim greinum sem flestir stunda,
fótbolta og handbolta, eru þau þó
hvað alvarlegust í skíðaíþróttimú.
Og það segir sig sjálft að hættan
er mun meiri þegar færið er svona
lélegt,“ segir Gunnar Þór Jónsson,
yfirlæknir á slysadeild Borgarspit-
alans.
Þó að Bláfjallasvæðið hafl verið
opnað telja margir að vart sé for-
svaranlegt að hleypa skíöaáhuga-
mönnum, hvaö þá reynslulitlum
krökkum, í brekkumar sökum
snjóleysis. Víða standa steinnibbur
upp úr snjónum og því vart á færi
annarra en sjónskarpra og leikinna
svigskíðamanna að komast heilu
og höldnu niður hlíðarnar.
I gær var svæðið að mestu lokað
vegna hvassviðris en í fyrradag var
það opið allan daginn og voru alls
um þúsund skíðamenn í brekk-
unum, mest ungmenni úr skólum
borgarinnar. Fjórir slösuðust og í
einu tilfellí var um beinbrot aö
ræða.
„Þaö er ekkert óvenjulegt við það
að einhver slys verði hjá þessum
hraustu ungmennum sem eru að
njóta útivistar hér á skíðum. Og
þótt nokkrir krakkar hafi fengið
skinnsprettur, sem hægt er að
sauma, og einn hafi fótbrotnaö þá
er það í sjálfu sér ekkert óeðlilegt.
Það er auðvitað slæmt að þeir skuli
vera að meiða sig en það er svona
þegar þeir lenda í grjótinu, þá vill
skinnið rifna," segir Þorsteinn
Hjaltason, forstöðumaður skíða-
svæðisins í Bláfjöllum.
Aðspurður kvað hann miklum
erfiðleikum háð að takamarka að-
gang fólks að svæðinu. Hann segir
slys í brekkunum einkum verða er
skyggja tekur. Þá séu íþróttafélögin
við æfmgar á bestu svæöunum og
aðrir skíðamenn verði að láta sér
duga snjóminni svæði. Hann segir
að til greina komi að færa æfmga-
tíma íþróttafélaganna þannig að
almenningur geti betur notfært sér
svæðið.
„Þetta er fólkvangur og því óeðli-
legt að takmarka aðgang almenn-
ings að svæðinu. Auk þess greiðir
almenníngur fullt verð fyrir að-
gang að lyftunum meðan íþróttafé-
lögin fá verulegan afslátt. Það er
hins vegar rétt að hér er vart pláss
fyrir fleiri en í mesta lagi fimm til
sex hundruð manns í einu,“ segir
Þorsteinn. -kaa
Guðmundur Hauksson, fram-
kvæmdastjóri hjá íslandsbanka og
fyrrum bankastjóri Útvegsbankans
hf„ hefur verið ráðinn forstjóri hjá
verðbréfafyrirtækinu Kaupþingi.
Pétur Blöndal, forstjóri og fyrrum
eigandi Kaupþings, lætur af störfum
1. maí næstkomandi.
Guðmundur Hauksson var um
tíma hjá Arnarflugi en réðst þaðan
til Sparisjóðs Hafnarfjacðar sem
sparisjóösstjóri. Þaðan var hann ráð-
inn til Útvegsbankans eftir að sá
banki var gerður að hlutafélaga-
banka. Guðmundur fór síðan yfir til
íslandsbanka þegar Útvegsbankinn
var sameinaður þremur öðrum
bönkum og íslandsbanki myndaður.
-JGH
- sjá einnig bls. 6
Veðrið á morgun:
Slydduél
við suður-
ströndina
Á morgun verður norðaustan-
og austanátt, allhvöss viö suður-
ströndina en hægari í öðrum
landshlutum. Norðan- og austan-
lands verða él og slydduél viö
suðurströndina en annars staðar
úrkomulaust.
Loftárás A
á Bagdad ^
í morgun
Bandamenn gerðu í morgun kröft-
uga loftárás á Bagdad. Árásin var
gerð í björtu og nötruðu hús í borg-
inni.
Fréttamenn í Bagdad sögðu að
fyrsta árásin hefði staðið í 45 mínút-
ur. Klukkan var þá að verða átta að
staðartíma. Svo virtist sem banda-
menn beindu árásum sínum að skot-
mörkum í úthverfum borgarinnar.
Bandamenn hafa ekki gert árásir á
Bagdad í björtu nú um nokkurn tíma.
Árásin þykir undirstrika að banda-
menn hafi ekki í hyggju að slaka á
loftárásum þótt verið sé að ræða til-
boðumfrið. Reuter
i
i
i
i
Landsvirkjim:
Virkjunarfram-
kvæmdumfrestað
Stjórn Landsvirkjunar ákvað á
fundi í gær að fresta þyí um tvo
mánuði að opna tilboð í Fljótsdals-
virkjun. Halldór Jónatansson, for-
stjóri Landsvirkjunar sagði að ef
fjármögnun álversins lýkur ekki fyrr
en í haust, eins og allt bendir nú til,
verði ekki hægt að láta álverinu orku
í té fyrr en í ársbyrjun 1995 og ekki
að fullu fyrr en um haustið það sama
ár.
Til þess að hægt verði að standa
við það þarf að verja 580 milljónum
króna í undirbúningsvinnu á árinu
til viðbótar þeim 220 milljónum sem
þegar er búið að verja til verksins.
Ljóst er að mikil óvissa ríkir í þessu
máli öllu og þaö verður til umræðu
á ríkisstjórnarfundi í dag.
-S.dór
i
i
i
i
i
i
Ami Sigfússon: a
Davíð hæfasta p3
herraefnið
Það er betra að binda kassana áður en maður fer með þann gula út í umferðina. Myndin var tekin í gær. Bílstjór-
inn var að koma frá Faxamarkaði og beygði inn í Tryggvagötuna en þá fóru fiskkassarnir af stað og enduöu á götunni.
DV-mynd S
„Eg tel Davíð Oddsson vera hæf-
asta forsætisráðherraefnið sem völ
er á. Það er kjarni málsins," sagði
Árni Sigfússon borgarfulltrúi í við-
tali vid'DV í gær. DV bendlaði Árna
í gær við undirskriftasöfnun þar sem
Davíð var hvattur til að fara í for- |
mannsslag í Sjálfstæðisflokknum.
Árni neitar þessu og þetta hefur ekki
verið staðfest. „Ég lýsi yfir vanþókn-
un á þessari frétt og tel þarna á ferð-
inni lúalega aðferð heimildarmanna,
sem ekki gefa sig upp, til að sverta
stuðning minn viö Davíð Oddsson.
Ég hef ekki staðið fyrir þessum und-
Írskriftum. Það er rangt og það á að
vera auðvelt að fá þaö staðfest," sagði
Árni. -HH
i
i
i
i
i
C 7*177 %
V * V*i77 >
SMIÐJUKAFFI ^
SmOM FRÍTT HFM
OPNUM KL. 18VIRKA DAGA
OG KL. 12 UM HELGAR
i
i