Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1991, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1991, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1991. 7 Bifreiðaskoðun: Ekkihægtað taka trassana framfyrir „Ég kannast viö kvartanir þeirra sem verða fyrir því aö númerin eru klippt af bifreiðum þeirra. Þeir vilja komast aö meö bílana í skoðun strax. Þaö er ekki hægt. újá okkur er pöntunar- kerfi. Staöan hjá okkur getur ver- ið frá þvi að menn komast aö samdægurs og upp í þaö aö þeir þurfa aö bíða í viku á mestu álagstímunum. Menn mega ekki gleyma því aö þeir sem lenda í þvi aö númerin eru klippt af bíl- um þeirra, Itafa trassað að koma með bifreið sína til skoðunar á réttum tíma. Það er því ekkert réttlæti í þvi að þeír séu teknir fram fyrir þá sem panta tíma og koma með bíla til skoöunar á rétt- um tíma,“ sagði Óskar Eyjólfs- son, íjármálastjóri Bifreiðaskoð- unar íslands. Nokkurrar óánægju hefur gætt hjá þeim bifreiðaeigendum sem ekki hafa mætt með bifreiöar sin- ar til skoöunar og misst númerin af þeim vegna þess. Þeir hafa þurft að bíða í eina viku eftir því að komast að í skoðun. Einn afþeim sem missti númer- in af bíl sínum sagöi í samtali við DV að hann hefði þurft að bíða í viku eftir að komast að. Hann sagði ástæðuna þá að svo margir starfsmenn Bifreiöaskoðunar heföu verið á námskeíði. Óskar Eyjólfsson sagði það rétt að námskeið fyrir starfsmenn Biffeiðaskoðunar íslands væru oft í gangi. En því fari Qarri aö meirihluti starfsmanna fari á námskeið hverju sinni. Á dögun- um voru 8 starfsmenn á nám- skeiði og það taki örlítið lengri tima fyrir þá sem panta að kom- ast að þegar álagið er mest. „Það er bara þannig að þeir sem missa númerin á bifreiðum sín- um undir kiippurnar vilja kom- ast að strax. Þeir verða að panta sér tíma,' ‘ sagði Óskar. -S.dór ______________________________Fréttir Lækkandi fiskverð vegna offramboðs á mörkuðunum Ögri seldi 218 lestir i Bremerhaven síðastliðinn mánudag. Þýskaland Eftirtalin skip hafa selt undanfarna viku: Bv. Haukur seldi afla sinn í Bremerhaven 13. febrúar, alls 133,9 lestir, fyrir 12 millj. kr. Meðaiverð var 92,28 kr. kg. Bv. Þorlákur seldi í Bremerhaven 13. febrúar alls 152 lestir fyrir 11,5 millj. kr. Meðalverð 75,75 kr. kg. Ekkert skip seldi afla í Bretlandi í síðustu viku en seldur fiskur úr gám- Fiskmarkaður Ingólfur Stefánsson um var 109 tonn sem seldust fyrir 17,5 millj. kr. Meðalverð 160,56 kr. kg. í þessari viku seldi bv. Ásbjörn í Bremerhaven, lélegt verð fékkst eða innan við 60 kr. kg. Bv. Ögri seldi á mánud., 19. febrú- ar, í Bremerhaven alls 218 lestir fyrir 18,99 millj. kr. Meðalverð 83,16 kr. kg. Helstu orsakir fyrir lækkandi fisk- verði eru að borist hefur mikið af fiski á markaðinn og snjór hefur hamlað umferð að nokkru. London Enn er verðstríð mfili Norðmanna og Skota. Um miðjan mánuðinn buðu Skotar 4-5 kg lax á 1,6£ lb. eða um 375 kr. kg. Kaupmenn segja aö norski laxinn sé allt of dýr og alls ekki sam- keppnisfær. Smálax hefur verið seld- ur á 60/80 p lb. eða frá 140 til 175 kr. kg. Kaupmenn, sem selja háf, eru óhressir með háflnn sem kom frá Kanada. Er það aðallega vegna þess aö sterkjubragð er af honum og fólk- ið vifi hann ekki og hefir hann dottið út af markaðnum aftur. Sumir fiskkaupmenn halda því fram að fisksala hafi minnkað um allt að 50% nú síðasta hálfan mánuð. Lítið hefur verið af þorskfiski á markaðnum aö undanfórnu. Um- setning á þorskfiskmarkaðnum hef- ur verið allnokkur. Landað var 49.276 tonnum árið 1989 en aðeins 44.551 tonni 1990. Frosni fiskurinn hefur haldið velli og hefur sala á honum verið svipuð og undanfarið. Heldur hefur aukist eftirspurn á kaldsjávar- rækju og hafa birgðir minnkað veru- lega. Vonast menn til að birgðir verði að mestu búnar í vor þegar rækju- veiðin hefst. Spánn: Lágt fiskverð Lágt fiskverð hefur verið á Merc- antmadrid frá áramótum.0 Menn kenna stríðinu við Persaflóa um. Fólkið fer lítið út að borða vegna hræðslu við hermdarverk, það situr heima og kaupir ekki eins mikið af fiski gerist þegar menn fara á veit- ingahús. Erlendum ferðamönnum hefur fækkað svo allt ber að sama brunni í fisksölumálum. Mercantmadrid Árið 1990 voru seld á Merc- antmadrid 16.134 tonn af fiski og hafði salan aukist um 659 tonn yfir árið frá því 1989. Mest var selt af ferskum fiski eða alls 7.545 tonn en það eru 48,5% af heildarsölunni. Af frosnum vörum voru seld 5.039 tonn og 3.500 af skelfiski. Þær tegundir sem mest seldust voru glassver og lýsingur, síðan kom laxinn í þriðja sæti. Nokkur aukning varð á sölu þessara tegunda í desember en hefur nú dregist saman. Skelfiskur hefur lækkað frá 3,5-10,7%. Stytt og endursagt París Síöasta hálfa mánuðinn hefur fisk- verð verið slappt á Rungismarkaðn- um. Fiskkaupmenn kenna Persaflóa- stríðinu um. Fólkið er hrætt við hermdarverk og fer því lítið út að borða og ferðamannastraumurinn hefur dregist mikið saman. Þetta eru helstu ástæður fyrir því hvað fisk- verðið hefur lækkað. Nýjar reglur um afgreiðslu vöruflutningabíla í Brussel hafa verið gefnar út nýjar reglur um afgreiðslu fiskflutninga- bíla. Minnstu bílarnir fá afgreiðslu afian sólarhringinn en stærri bílarn- ir verða að sæta sérstökum tíma- mörkum. í reglum þeim, sem gefnar hafa verið út í Brussel, er áætlað að minnka fiskveiðamar hjá skipum Efnahagsbandalagsins um 40%. Ýsu- veiðin var árið 1982 270.000 tonn en var 1989 100.000 tonn. Stjórnin í Brussel segir að ekki dugi annað en taka á málinu af fullri hörku ef bjarga eigi stofninum. Fari svo sem horfir ætti að vera bjartara yfir hjá fiskeldisfyrirtækjum. Stytt og endursagt úr Fisk Bullandi loðna í Barentshafi Það sýður á loðnunni í Barents- hafi. Er nú mikiö af loðnu þar og hefur hún ekki verið eins mikil síðan mest var af henni fyrir mörgum árum. Loðnan, sem veiðist nú, er af árganginum 1988 og er hún stór og góð en næsti árgangur verður ijórum sinnum stærri, segir John Hamre. Við áætlum að árgangurinn 1988 sé 3,6 millj. tonna og úr þeim árgangi fá Norðmenn aö veiða 530.000 tonn. Þó að mælingamar eftir áramótin séu ekki eins áreiðanlegar og haust- mælingar eru má fullyrða að hrygn- ingarstofninn sé 2,5 millj. tonna. Sumarveiðar má telja að séu ófram- kvæmanlegar nema ungloðnan sé veidd. Úr viðtali við John Hamre fiskifr. í Fiskaren >g FYLLIÐ ÚT OG SENDIÐ OKKUR EDA HRINGIÐ NÚNA! KOSTUR A: □ Já , ég vil fá kynningaráskrift í Vz mánuö mér aö kostnaðarlausu. , KOSTUR B: Ll Já, ég vil svo sannarlega gerast áskrifandi að DV og taka þar með sjálf- krafa þátt í áskriftar-ferðagetraun DV. Ég fæ eins mánaðar áskrift ókeypis, og verður það annar áskriftarmánuðurinn. Vinsamlegast notið prentstafi: Nafn Heimilisfang/hæð Póststöð Kennitala. Sími Áskriftargjald DV fyrir KOST B er aðeins kr. 1.100,- samtals fyrir fyrstu tvo mánuðina. □ Já takk, ég vil greiða áskriftargjaldið með: □ VISA □ EUROCARD □ SAMKORT Kortnúmer Gildistími korts Undirskrift korthafa Stingið í umslag og sendið okkur. Utanáskriftin er: DV - DagblaðiðA/ísir Pósthólf 5380, 125 Reykjavík /\ R /\ iSTÓRKOSTLEG ASKRIFTAR SÍMINN E R 27 0 2 2 OPIÐ MÁN-FÖS ......KL. 9.00-22.00 LAUGARDAGA ........KL. 9.00-14.00 SUNNUDAGA .........KL. 18.00-22.00 ATH! Núverandi áskrifendur DV eru sjálfkrafa þátttakendur í getrauninni og þurfa því ekki að fylla út seðilinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.