Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1991, Side 5
FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1991.
5
Þú þarft aðeins að fylla út miðann í næstu opnu og senda okkur f umslagi
merkt: DV - Dagblaðið/Vísir, Pósthólf 5380,125 Reykjavík, eða taka upp
sfmann og hringja núna f síma 27022.
Athugið: Ef þú ert nú þegar áskrifandi verður þú sjáifkrafa þátttakandi í
ofangreindri áskriftar-ferðagetraun.
ERT ÞU ORÐINN
opin MÁw.Ffts prá k\ o nn _ oo nn
OPIÐ MÁN-FÖS FRÁ KL. 9.00 - 22:00
LAUGARDAGA FRÁ KL. 9.00 - 14.00
SUNNUDAGA FRA KL. 18.00 -22.00
______
Það er ekki á hverjum degi sem svorta spennartdi áskriftar-ferðagetraun býðst
landsmönnum. í tilefni af 80 ára afmælisári DV bjóðum við þér að velja kynningaráskrift í
V2 mánuð þér að kostnaðarlausu, eða sérstaka kynningaráskrift á tilboðsverði.
Þeir sem velja seinni kostinn verða sjálfkrafa þátttakendur í stórkostlegri
áskriftar-ferðagetraun DV þar sem allir skuldlausir áskrifendur eiga möguleika á því að
vinna skemmtilegar utanlandsferðir. Svo sannarlega kjörið tækifæri til að gerast áskrifandi
að fjölbreyttu og mannlegu dagblaði.
Allir skuldlausir áskrifendur DV eru sjálfkrafa þátttakendur í einfaldri ferðagetraun, sem
felst í því að dregið er úr nöfnum þátttakenda og viðkomandi gefinn kostur á að svara léttri
og skemmtilegri spurningu í fyllingu tímans.
Alls eru 6 ferðavinningar í verðlaun fyrir núverandi og nýja áskrifendur og dregið
verður úr pottinum eftirfarandi daga:
19. APRIL. Ferð fyrir tvo með Ferðamiðstöðinni Veröld til Costa del Sol á Spáni,
í leiguflugi, að verðmæti kr. 100.000,-
3. MAI. Ferð fyrir tvo með Ferðaskrifstofu Reykjavíkur til Benidorm á Spáni, í
leiguflugi, að verðmæti kr. 100.000,-
17. MAÍ. Ferðavinningur með Samvinnuferðum/Landsýn til Rimini á Ítalíu, í
leiguflugi, að verðmæti kr. 100.000,-
31. MAÍ. Flug og bíll fyrir tvo + 1 barn með Ferðaskrifstofunni Alís til Billund í
Danmörku, í leiguflugi, að verðmæti kr. 100.000,-
21. JUNI. Ferðfyrirtvo með Atlantik til MallorcaáSpáni, í leiguflugi, að verðmæti
kr. 110.000,-
5. JULI. Ferð fyrir tvo með Úrval/Útsýn til Algarve í Portúgal, í leiguflugi, að
verðmæti kr. 125.000,-
Nöfn vinningshafa eru birt í DV-ferðir á mánudögum eftir hvern úrdrátt.
_n