Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1991, Blaðsíða 12
12
FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1991.
Útlönd __________________________________
Bandamenn hikandi eftir að írakar féllust á endurnýjað friðartilboð:
Of skammt gengið í
tillögu Gorbatsjovs
- John Major kallar hugmyndimar framför en ófullnægjandi
George Bush Bandaríkjaforseti hetur ekki vísað friðartillögum Gorbatsjovs forseta endanlega frá sér. Hann sér
þó litia vonarglætu í þeim vegna skilyrðanna sem fylgja.
Svo virðist sem hik hafl komið á
helstu leiðtoga bandamanna í stríð-
inu gegn írökum eftir að Tareq Aziz,
utanríkisráðherra íraka, féllst á nýj-
ar hugmyndir Gorbatsjovs Sovét-
forseta um frið í Persaflóadeilunni.
Háttsettir embættismenn í Banda-
ríkjunum segja að hugmyndir Gor-
batsjovs fullnægi ekki þeim skilyrð-
um sem sett eru í í ályktunum örygg-
isráðs Sameinuðu þjóðanna um Kú-
vætmálið. Þó sjá menn markverða
breytingu frá fyrri hugmyndum og
munar þar mestu að Palestínumálið
er hvergi nefnt á nafn. Til þessa hafa
írakar gert lausn þess að skilyrði
fyrir að kalla her sinn heim frá Kú-
væt.
Enn eru skilyrði
Eftir sem áður eru skilyrði fyrir
því að írakar fari frá Kúvæt. Þar á
meöal er að írakar vilja fá vopnahlé
áður en þeir hefja brottflutning herja
sinna og að þaö vopnahlé standi í að
minnsta kosti einn sólarhring áður
en þeir þurfi að hefjast handa. Hern-
aðarsérfræöingar í Bandaríkjunum
eru mjög efins um að stjórn þeirra
geti fcdlist á þetta skilyrði því það
gefur írökum tækifæri til að endur-
skipuleggja lið sitt og halda svo
áfram baráttunni.
John Major, forsætisráðherra
Breta, sagði í morgun að hann sæi
nokkra framför í nýju tillögunum en
þær gengju ekki nógu langt. Banda-
menn geti ekki hvikað frá þeirri
kröfu sinni að írakar kalh her sinn
heim frá Kúvæt eins og krafist er í
ályktunum öryggisráðsins. Major
hafnaði þó ekki tillögunum og sagði
að stjórn sín ætlaði að skoða þær
betur í dag.
George Bush Bandaríkjaforseti
hefur einnig ítrekað þá skoðun sína
að írakar geti ekki sett skilyrði fyrir
að yfirgefa Kúvæt. Hann hefur þó
heldur ekki hafnað tillögum Gor-
batsjovs berum orðum en fastlega er
gert ráð fyrir að þeim verði hafnaö
eftir að bandamenn hafa borið sam-
an bækur sínar.
Bush fór
íFord-
leikhúsið
George Bush Bandaríkjaforseti
eyddi kvöldinu í Ford-leikhúsinu
i Washington í gær eftir að hann
hafði frétt af nýjustu tillögum
Gorbatsjovs Sovétforseta um frið
í Persaflóastríöinu. Ford-leik-
húsið hefur sérstakan sess í sögu
Bandaríkjanna því aö þar var
Abraham Lincoln myrtur voriö
1865.
Ferð Bush dróst þó um 14 mín-
útur vegna símtals við Gor-
batsjov. Að því loknu lögðu for-
setaþjónin af stað í leíkúsið. Bush
sat í aðalsalnum og var vel fagnað
af leikhúsgestum. Á sviöinu var
leikrit um blökkumenn í banda-
ríska flughemum í síöari heims-
styrjöldinni og var ekki annaö að
sjá en aö forsetinn skemmti sér
vel.
Bush var sjálfur herflugmaður
í síðari heimsstyijöldinni og var
skotinn niöur með flugvél sinni í
bardögum við Japani á Kyrrahaf-
inu.
Reuter
Stjórn Frakklands lítur svo á að
friðartillögur Gorbatsjovs séu spor í
rétta átt en hefur lýst óánægju sinni
með hve mörg atriði eru enn óljós.
Einkum sjá Frakkar brotalamir í
áætluninni um heimkvaðningu ír-
aska hersins eftir að vopnahlé hefur
komist á.
Friðartilfögur í átta liðum
Tillögur Gorbatsjovs eru í átta hð-
um. í fyrsta lið er sagt að írakar skuli
Ráðistá
Kúvætborg
efþörf
krefur
Sendiherra Kúvæts í Japan segir
að bandamenn hafí fullan rétt til að
ráðast af fullum þunga á Kúvætborg
ef þörf krefur til að frelsa borgina
og þurfi þá ekki að hugsa um
skemmdir sem þar kunni aö verða.
„Það verður að frelsa Kúvæt með
öllum ráöum. Viö vildum ekki fara í
stríð heldur var það Saddam Hussein
sem réðst á okkur. Við eigum engra
annarra kosta völ en að fóma öllu
til að land okkar verði fijálst á ný,“
sagði sendiherrann.
Hann sagði að Kúvætar yrðu að
taka því þótt landar þeirrá féllu í
bardögunum um landið því Saddam
bæri ábyrgð á öhu mannfalli í stríð-
inu. Þá varaði hann við að taka Sadd-
am trúanlegan þótt hann þættist til-
búinn til að fara frá Kúvæt.
„Það er ekki hægt að treysta þess-
um manni. Hann virðist alltaf reiðu-
búinn að beita nýjum brögðum,“
sagði sendiherrann.
Reuter
kalla her sinn heim frá Kúvæt án
skilyrða. Síðari sjö atriöin eru þó af
stjórnmálasérfræðingum talin til
skilyrða að meira eða minna leyti.
Þar á meðal er ákvæði um að álykt-
anir öryggisráðsins gegn írak fahi
úr gildi um leið og þeir hafa kallað
her sinn heim. Þá er gert ráð fyrir
að viðskiptabanni Sameinuðu þjóð-
anna á írak verði aflétt þegar þeir
hafa kalla tvo þriðju hersins heim.
Hikið, sem verið hefur á leiðtogum
Japanir:
Aðstoðaekki
írakaef
Utanríkisráöherra Japana segir
það óhklegt að stjdm hans muni
aðstoða íraka við að reisa land
sitt úr rústum ef Saddam Hussein
verður enn viö völd aö stríöinu
loknu.
Eftir þvi sem heimildir í utan-
ríkisráðuneytinu segja setja yfir-
völd í Japan það sem skilyröi fyr-
ir aöstoð að jafnvægi koraist á í
Mið-Austurlöndum. Slíks sé ekkí
aö vænta meðan Saddam sé við
völd.
„Saddam hóf þennan harmleik
og við óttumst að hann kunni að
ráðast á nágranna sína aftur ef
hann heldur völdum," sagði tals-
maöur ráðuneytisins.
Reuter
Simamynd Reuter
bandamanna eftir að Aziz sagði að
írakar féllust á tillögur Gorbatsjovs,
er skýrt með því að Bush og Major
vilji fyrst ganga úr skugga um að
samstaðan meðal bandamanna riðl-
ist ekki þótt tillögunum verði hafnað.
Að því frágengnu má búast við að
stríðið haldi áfram af auknum þunga
með árás á landi eftir fáa daga.
Reuter
Fram-
varðasveitir
íraka með
efnavopn
Bretar telja að íraskir hermenn í
framlínunni við landamæri Saudi-
Arabíu hafi á síðustu dögum fengið
fallbyssuskot hlaðin efnavopnum í
hendur. Þessi skot á að nota þeg-
ar og ef sókn bandamanna á landi
hefst.
Eftir heimildum, sem Reuters-
fréttastofan hefur eftir háttsettum
foringjum í herliði Breta, hafa þeir
fengið fulla vissu um að írakar séu
reiðubúnir að nota efnavopn en vita
ekki með vissu hvort þeir hafa einn-
ig tök á aö beita sýklavopnum.
Bretarnir segja að fastlega verði að
gera ráö fyrir að írakar noti efna-
vopnin þegar í harðbakkann slær.
Þá er eirinig mögulegt að þeir reyni
að setja efnahleðslur í Scud-flaugar
th að svara árásum bandamanna. Þó
er sagt að allar bestu Scud-flaugarn-
ar séu uppurnar og aðeins þær ófull-
komnari eftir.
Reuter
21. febrúar
10.50 - Bandamenn gera loftár-
ásir á Basra og aðrar borgir í
suöurhluta íraks.
13.20 - Belgísk yfirvöld segjast
munu styðja vopnahlé fari írakar
tafarlaust frá Kúvæt.
15.02 - Bandarískir embættis-
menn segja sókn bandamanna á
landi verða snögga og harða.
15.28 - Utanríkisviðskiptamála-
ráðherra Egyptalands segir
Egypta ekki munu eiga í vand-
ræðum með Saddam Hussein
verði hann áfram forseti íraks
eftir stríð.
15.38 - Saddam segir í útvarps-
ræðu að hann muni ekki gefast
upp.
16.29 - Saudi-Arabar segja íraka
hafa skotið tveimur Scud-eld-
flaugum að bænum Hafr aÞBaten
þar sem er herbækistöð. Önnur
flaugin var skotin niður með
Patriot-gagnflaug en hin sprakk á
lofti.
16.30 - Bandarísk yfirvöld lýsa
yfir óánægju sinni með ræðu
Saddams og segja frelsun Kúvæts
munu halda áfram.
17.08 - Talsmenn Bandaríkja-
hers í Saudi-Arabíu segja iraka
hafa skotið niður bandaríska
þyrlu.
17.18 - Háttsettur bandarískur
herforingi segir ákvörðun Sadd-
ams um að halda áfram bardög-
um sýna að hann sé ekki í snert-
ingu við her sinn og þjóð,
17.40 - Kúvætar segja ákvörðun
Saddams þýða landhernað en ír-
anskir stjórnarerindrekar segjast
ekki vissir um að ræða íraks-
forseta hafi verið síðasta orðið frá
Bagdad.
17.50 - Bandarískir og saudi-
arabískir hermenn sagðir hafa
faiið í könnunarleiðangra til ír-
aks og Kúvæts.,
18.07 - Heimildarmenn í breska
hemum segja framvarðarsveitir
íraka hafa fengiö i hendur efna-
vopn undanfama daga.
20.52 - Tareq Aziz, utanríkisráð-
herra íraks, kemur til Moskvu
með svar Saddams viö friðartil-
lögum Gorbatsjovs Sovétforseta.
23.38 - Taismaður Sovétstjómar
segir svar íraskra yfirvalda við
friöartillögum Gorbatsjovs já-
kvætt.
22. febi-úar
00.30 - Hlutabréf á mörkuðum í
Tokyó hækka i verði vegna bjart-
sýni á aö stríðinu ljúki bráðum.
00.37 - Kínversk yfirvöld, sem
eiga fastafuhtrúa í Öryggisráð-
inu, lýsa yfir ánægju sinni með
tilkynninguna frá Moskvu.
01.22 - Breskir embættismenn
segjast vera að skoða friðartihög-
Umar. Þeim virðast þær ekki'full-
nægja ályktunum Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna.
01.48 - Bush Bandaríkjaforseti
sagður taka áætlun Sovétmanna
með miklum fyrirvara. Hann er
sagður vera í stöðugum viðræð-
um við ráðgjafa sína.
02.35 - Olíuverð á mörkuðum í
Austurlöndum fjær fehur í verði
í kjölfar fréttarinnar um jákvætt
svar Iraka.
02.45 - Embættismenn segjast
búast við aö Öryggisráð Samein-
uöu þjóðanna íjalli um friðar-
áætlun Sovétmanna.
03.08 - Japanskir ráðamenn
varkárir í ummælum sínum um
friðaráætlunina og segjast þurfa
tíma til að skoða hana nákvæm-
lega.
03.21 - Mistökalríkisbankaeftir-
litsins i Bandaríkjunum sögð
hafa orðíð til þess að írakar gátu
fengið mihjarða dollara lán hjá
ítölskum banka.
07.47 - Háttsettur bandarískur
embættismaður segir að við
fyrstu sýn virðist friðartilboð
Sovétmanna ekki fullnægja
ályktunum öryggisráðs Samein-
uöu þjóðanna um skilyrðislaust
brotthvarf íraka frá Kúvæt.