Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1991, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1991, Síða 28
36 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1991. # > Andlát Svanbjörg Halldórsdóttir, Suöurgötu 7, Sandgerði, lést í Landspítalanum miövikudaginn 20. febrúar. Kjartan G. Jónsson fyrrverandi kaupmaöur, Sóleyjargötu 23, Reykja- vík, er látinn. Jarðarfarir Ebba Sigurbjörg Þórðardóttir frá Ósi verður jarðsungin frá Hólskirkju í Bolungarvík laugardaginn 23. febrú- ar kl. 14. Lára Veturliðadóttir, Fjarðarstræti 6, ísafirði, verður jarðsungin frá ísa- fjarðarkapellu laugardaginn 23. fe- brúar kl. 14. Jóhann B. Valdórsson, frá Eyri í Reyðarfirði, verður jarösunginn frá Rey ðarfj arðarkirkj u laugardaginn 23. febrúar kl. 14. Útför Guðbjartar G. Egilssonar, fyrr- verandi framkvæmdastjóra, sem lést á heimili sínu, Hrafnistu í Reykjavík, mánudaginn 18. febrúar, fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðviku- daginn 27. febrúar kl. 13.30. Árni Guðmundsson múrarameistari verður jarðsunginn frá Dómkirkj- unni þriðjudaginn 26. febrúar kl. 13.30. Jóhanna Pétursdóttir, Bölum 4, Pat- reksfírði, verður jarðsungin frá Pat- reksfjarðarkirkju laugardaginn 23. febrúar kl. 14. Eyvindur Ásmundsson, Borgarbraut 18, Borgarnesi, er lést 18. febrúar, verður jarðsunginn frá Borgarnes- kirkju laugardaginn 23. febrúar kl. 14. Sætaferð verður frá BSÍ kl. 11 f.h. Jóhanna K. Kristjánsdóttir lést 14. febrúar. Hún fæddist á Bolafæti, sem nú heitir Bjarg í Hrunamanna- hreppi, dóttir hjónanna Gróu Jóns- dóttur og Kristjáns Magnússonar. Jóhanna giftist Sigurjóni Guðjóns- syni en hann lést árið 1986. Þau hjón- in eignuðust tvö börn en ólu einnig upp bróðurdóttur Jóhönnu. Útför Jóhönnu verður gerð frá Dómkirkj- unni í dag kl. 15. Sigríður Kristjánsdóttir frá Mjóafirði lést 13. febrúar. Hún fæddist 9. júní 1907. Foreldrar hennar voru hjónin Lars Kristján Jónsson og María Hjálmarsdóttir. Sigríður giftist Ein- ari Ólasyni en hann lést árið 1967. Þau hjónin eignuðust tvö börn. Útför Sigríðar verður gerð frá Fossvogs- kirkju í dag kl. 13.30.. ,\A^ o Veitingastaöur ^ í miðbæ Kópavogs Tilboð vikunmr Rjómalögud hörpuskelfisksúpa með sveppum. Rósmarínsteiktur lambavöðvi með hindberjasósu, grœnmeti og bakaðri kartöflu. Kr. 1.190,- Veisluþjónusta Hamvaborg 11 - sími 42166 Þorvarður Áki Eiríksson Þorvarður Áki Eiríksson for- stjóri, Skólagerði 31, Kópavogi, er sextugurídag. Starfsferill Þorvarður fæddist á Akureyri. Hann stundaði nám í sælgætisiðn í Danmörku og varð síðan deildar- stjóri hjá Flóru á Akureyri 1952, framleiðslustjóri hjá Sælgætisgerð- inni Freyju frá 1952, verksmiðju- stjóri hjá Amor-Efnablöndunni frá 1956 og stofnaði eigið fyrirtæki árið 1961 ásamt öðrum, Sælgætis- og efnagerðina Alladdín hf. í Kópavogi sem hann starfrækti í tuttugu og eitt ár. Þorvarður gekk til samstarfs við Markland í Kópavogi 1982-84 þegar fyrirtækið var sameinað Sæl- gætisgerðinni Opal hf. Þar var hann einn af framleiðslustjórum árin 1984-90 en hefur síðan þá starfað hjá lakkrísgerðinni Kólus hf. Þorvarður sat í stjórn ÍBA1951-52 og var þá formaður Sundráðs Akur- eyrar. Hann var varaformaður Iðju, félags verksmiðjufólks 1957-59, sat í stjórn fulltrúaráðs verkalýðsfélag- anna í Reykjavík á sama tíma, er stofnandi og fyrsti formaður HK í Kópavogi 1970-82, sat í stjóm Tóm- stundaráðs Kópavogs 1976-78, sat í stjórn HSÍ á sama tíma, var ritari og varaformaður UMSK1972-78 og hefur starfað í Samfrímúrararegl- unni. Fjölskylda Þorvarður kvæntist 11.6.1954 Margréti Sigríði Einarsdóttur, f. 11. 8.1930, píanóleikara, dóttur Einars Þorsteinssonar, skrifstofustjóra hjá Olís, og Halldóru Halldórsdóttur húsmóður. Börn Þorvarðar og Margrétar: Dóra Guðrún, f. 28.12.1954, húsmóð- ir í New York, gift Grétari Má Sig- urðssyni, fastafulltrúa hjá Sþ og eiga þau tvær dætur; Einar Orn, f. 12.8.1957, starfsmaður á Stöð 2, og landsliðsmaður í handknattleik en sambýliskona hans er Arnrún Kristinsdóttir útstillingarstjóri og eiga þau tvö börn; María, f. 5.3.1962, nemi í Þýskalandi en sambýlismað- ur hennar er Héðinn Gilsson hand- knattleiksmaður; Eiríkur Kjartan, f. 7.10.1968, nemi. Systkini Þorvarðar eru Kristján, f. 7.9.1921, nú látinn, lögfræðingur í Reykjavík; Sigurður Haukur, f. 14. 12.1922, skrifstofumaður í Reykja- vík; Örn Eiríksson, f. 28.1.1926, sigl- ingafræðingur hjá Flugleiðum. Hálfsystir samfeðra er Erna, f. 31. 3.1947, húsmóðir í Reykjavík. Foreldrar Þorvarðar: Eiríkur Kristjánsson, f. 25.8.1893, d. 5.4. 1965, kaupmaður og iðnrekandi á Akureyri, og kona hans, María Þor- varðardóttir, f. 17.5.1893, d. 21.6. 1967, húsmóðir. Ætt Eiríkur var sonur Kristjáns kaup- manns á Sauðárkróki, Gíslasonar, b. á Eyvindarstöðum í Blöndudal, Ólafssonar. Móðir Gísla var Ingiríð-. ur Guðmundsdóttir ríka í Stóradal, Jónssonar, b. á Skeggsstöðum, Jónssonar, ættföður Skeggsstaða- ættarinnar. Móðir Kristjáns var El- ísabet, systir Jóns, afa Jóns Leifs og Jóns Pálmasonar alþingisforseta. Elísabet var dóttir Pálma, b. í Sól- heimum á Ásum, Jónssonar. Móðir Eiríks var Björg Eiríks- dóttir. Móðir Bjargar var Þórunn THkynningar Viðskipta- og hagfræðideild Háskólans fær gjöf Föstudaginn 25. janúar sl. var viðskipta- og hagfræðideild Háskóla íslands af- hentur Apple Macintosh-tölvubúnaður að gjöf. Það var Apple-umboðið/Radíó- búðin hf. sem gaf deildinni tvær Macin- tosh IIsi 5/80 tölvur, fimm Macintosh Classic 2/40 tölvur, LaserWriter Il-leysi- prentara og File-Maker-, Microsoft Excel- og Mac Write II-hugbúnaö aö verðmæti rúmlega 2,6 milljónir króna. Tölvurnar sem eru ætlaðar nemendum deildarinn- ar, eru nettengdar með AppleTalk-tölvu- neti til aö hægt sé að samnýta gögn og jaðartæki. Ekki er vafi á að þær koma aö góðum notum, sér í lagi fyrir nemend- ur á lokaári í viðskipta- eöa hagfræði. Á myndinni eru (f.v.) Sigmundur Guð- bjarnason, rektor Háskóla íslands, Brynjólfur Sigurðsson, deildarforseti viðsldpta- og hagfræðideildar H.Í., Árni G. Jónsson, sölustjóri Apple-umboðsins, og Guðmundur Hallgrímsson, sölumaður hjá Apple-umboðinu. Félag eldri borgara Opið hús í dag, föstudag, í Risinu frá kl. 13-17. Frjáls spilamennska. Göngu-Hrólf- ar hittast á morgun, laugardag, í Risinu kl. 10. Franskar nútímabókmenntir Mánudaginn 25. febrúar kl. 17 og þriðju- daginn 26. febrúar kl. 17 heldur franski bókmenntafræðingurinn Jean-Pierre Salgas fyrirlestra um franskar nútíma- bókmenntir í Háskóla íslands. Jean- Pierre er sérfræðingur í Ustasögu og listahugmyndafræði. Fyrirlesturinn þann 25. febrúar er á ensku og ber yfir- skriftina „Saga franskra nútímabók- mennta" en fyrirlesturinn þann 26. fe- brúar er á frönsku og fjallar um franskar nútímaskáldsögur („le roman francais contemporain). Fyrirlestrarnir eru skipulagðir af menningardeild franska sendiráðsins, Alliance Francaise og Fé- lagi áhugamanna um bókmenntir. Fyrir- lestrarnir verða í Háskóla íslands, stofu 101, Odda, og eru öllum opnir og aögang- ur ókeypis. Spilakvöld Alþýðubanda- lagsins í Kópavogi Þriggja kvölda keppni hefst mánudaginn 25. febrúar kl. 20.30. Spilað annan hvern mánudag og lýkur keppninni fyrir páska. Breiðholtskirkj a: Önnur samvera bæna- námskeiðsins verður á morgun kl. 10.30- 12.30. Grensáskirkja: Starf fyrir 10-12 ára börn kl. 17 í dag. Hallgrímskirkja: Kvöldbænir með lestri Passíusálma kl. 18. Laugarneskirkja: Mæðra- Og feðra- morgnar fostudaga kl. 10 í sáfnaðar- heimi,:"n í umsjón Báru Friðriksdóttur. Jónsdóttir. Móöir Þórunnar var Hólmfríður Bjarnadóttir Thorar- ensen, stúdents á Stóra-Ósi í Mið- firði, Friðrikssonar, prests á Breiða- bólstað í Vesturhópi, Þórarinssonar, sýslumanns á Grund í Eyjafirði, Jónssonar, ættföður Thorarensen- ættarinnar. María var dóttir Þorvarðar, prent- smiðjustjóra, bróður Óla, föður Páls Eggerts prófessors. Þorvarður var sonur Þorvarðar, b. og hreppstjóra á Kalastöðum, Ólafssonar. Móðir Þorvarðar Þorvarðarsonar var Margrét Sveinbjarnardóttir, prests á Staðarhrauni, Sveinbjarnarsonar, bróður Þórðar dómstjóra. Móðir Margrétar var Rannveig systir Bjarna Thorarensens skálds. Móðir Maríu var Sigríður Jóns- dóttir, bæjarfulltrúa í Reykjavik, Arasonar og konu hans Ingibjargar Sigurðardóttur. Þorvarður tekur á móti gestum í Félagsheimili Kópavogs milli kl. 17 og 19.00 á afmælisdaginn. Þorvarður Áki Eiriksson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.