Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1991, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 1. MARS 1991.
Fréttir
Tvö ár síðan bjórinn var leyfður:
Drykkja hef ur aukist
- drykkjumenning hefur batnað, segja veitingahúsaeigendur
Þeir verða sjálfsagt nokkrir sem halda upp á það í kvöld að nú eru tvö
ár síðan bjórbanninu var aflétt. 1 mars 1989 voru liðin 76 ár frá því að sið-
ast var löglegt að neyta bjórs hér á landi.
„Mér flnnst bjór vondur, sama
hvort hann er óáfengur eöa áfengur.
Ég er lítiö fyrir aö drekka þaö sem
mér finnst vont og því drekk ég bjór-
inn alls ekki, þar aö auki er ég bind-
indismaöur," sagði Jón Helgason al-
þingismaður en fyrir tveimur árum
var hann einn þeirra sem voru á
móti þvi að bjórinn yrði leyfður.
„Það hefur farið eins og ég og fleiri
óttuðumst að áfengisneysla myndi
aukast við tilkomu bjórsins. Ungling-
arnir drekka meira og þeir líta ekki
á bjórinn sem áfengi. Ég hef engar
áætlanir um að leggja fram frumvarp
á þingi um að banna bjórinn á nýjan
leik því ég hef enga oftrú á boði og
bönnum. Það er nær að auka fræðslu
um áhrif áfengis," segir Jón.
Bjórinn hefur vissulega aukið
áfengisneyslu íslendinga. Þegar töl-
ur um áfengisneyslu á árunum 1985
til 1989 eru skoðaðar kemur i ljós að
áfengisneysla nam þá að meðaltali 4
lítrum af hreinum vínanda á hvert
mannsbarn, 15 ára og eldri, í landinu.
ALKÓHÓLLÍTRAR Á MANN
Hluti bjórs í neyslu á hreinum vín-
anda.
Eftir að bjórinn kom til sögunnar fór
drykkjan upp í 5,5 lítra á mann af
hreinu alkóhóli á árinu 1989 en var
heldur minni árið 1990 eða 5,2 lítrar.
Svartamarkaðsbrask
„Ég hef drukkið meira af sterkum
bjór eftir að hann var leyfður. Það
er gott aö geta farið í ÁTVR og keypt
sér bjór. Áður var verið að bjóða
manni hann til kaups á svörtum
markaöi. Ég var hins vegar aldrei
mjög duglegur við að verða mér úti
um mjöðinn með þeim hætti,“ segir
Halldór Blöndal en hann var einn
þeirra sem greiddu atkvæöi með því
að bjórinn yrði leyfður.
„Ég vona að drykkjumenning land-
ans hafi batnað við tilkomu bjórsins
án þess aö ég telji mig dómbæran á
það. Það dytti sjálfsagt engum í hug
aö láta banna bjórinn nýjan leik,“
segir Halldór.
„Mér flnnst bjórinn af hinu góða
og drykkjumenningin hefur batnað
við tilkomu hans. Fólk drekkur
meira af bjór í miðri viku en það er
minna drukkið af honum um helgar.
En eftir tilkomu bjórsins hefur ihér
fundist drykkjan verða hófsamari og
ég myndi alls ekki vilja að hann yrði
bannaður aftur,“ segir Heimir Heim-
isson, einn af eigendum elstu kráar
Reykjavíkur, Gauks á Stöng.
í sama streng tekur Árni Björnsson
eigandi Rauða ljónsins: „Þetta er allt
að komast í jafnvægi og fólk drekkur
betur en áður. Það eru þó auðvitað
alltaf til undantekningar frá þessari
reglu.“
Mikil hækkun á verði
DV gerði verðkönnun á bjór í apríl
1989 og í gær var gerð önnur óform-
leg könnun á því á þremur stöðum
hvað bjórinn hefur hækkaö mikið á
þessum tveimur árum. Á Gauki á
Stöng kostuðu 0,33 sentílítrar úr
krana 225 krónur árið 1989. Nú orðið
kostar sama magn 350 krónur sem
er 55,5 prósent hækkun. 0,51 kostuðu
350 krónur en kosta nú 500 krónur
sem er 42,9 prósent hækkun.
Á Rauða ljóninu kostuðu 0,33 sentí-
lítrar 280 krónur en kosta nú 420
krónur. Bjórglasið þar hefur því
hækkað um 25 prósent. 0,51 kostuðu
400 krónur en kosta nú 530 krónur
sem er 32,5 prósenta hækkun. Þriðji
staðurinn, sem hringt var til, var
Fógetinn. Þar kostaði minni
skammturinn af kranabjór 230 krón-
ur en kostar nú 350 krónur; þetta er
52 prósent hækkun. Stærri skammt-
urinn kostaði 350 krónur en kostar
nú 450 krónur sem er 28,5 prósenta
hækkun.
Haldið uppádaginn
Margar krárnar ætla að halda upp á
það í kvöld að tvö ár eru liöin síðan
bjórbanninu var aflétt. Á einum
staðnum veröa íslensk bjórlög kyrj-
uð af miklum móð, annar staður
ætlar að bjóða upp á sérstakan mat-
seðil í tilefni dagsins, enn annar ætl-
ar svo að vera með „happy hour“ að
erlendri fyrirmynd á milli klukkan 8
og 10 í kvöld. Þá kaupa menn einn
bjór en fá annan frítt. -J.Mar
, Hrossadauðinn á vegum landsins:
Öllum ráðum verði beitt til
að halda búfé frá þjóðvegum
Jóhannes
iefstasæti
Verkamanna-
flokksins?
„Við vonumst til aö Jóhannes
Guðnason verði í efsta sæti fram-
boðslistans. Jóhannes gefur okk-
ur endanlegt svar á sunnudaginn.
Verið er að vinna að framboðs-
listanum þessa dagana og þvi
ekki fullkomlega á hreinu hverjir
verða í næstu sætum á eftir því
fyrsta. Eftir viðbrögðum viö
stofnun flokksins að dæma erum
við bjartsýnir og ef þessi viðbrögð
skila sér í fylgi erum við ánægð-
ir,“ sagði Hreiðar Jónsson, eínn
af stofnendum Verkamanna-
flokks íslands, í samtali við DV.
Verkamannaflokkur islands
var stofnaöur um síöustu helgi.
Gerðist það eftir árpngurslausar
viðræður við Alþýðuflokkinn um
stofnun verkalýðsmálaráðs inn-
an þess flokks sem sniðíð væri
að hugmyndum Hreiöars og fé-
laga.
Meöal stefnuskrármála Verka-
mamtaflokksins er hækkun
skattleysismarka í 100 þúsund
krónur og hækkun lægstu launa
án þess að það hafi áhrif á verð-
bólguna, að bændur endurheimti
sjálfstæði sitt og ríkisstyrkur til
landbúnaðar verði lagður niður,
hagræðing í sjávarútvegi meö
breytingum á kvótakerfi er
hindra brask með kvóta, bygging
álvers og stórefling smáiðnaðar,
lækkun vöruverðs og bætt kjör
elli- og örorkulífeyrisþega og
annarra sem minna mega sín. Þá
styður Verkamannaflokkurinn
núverandi stefnu í utanríkismál-
umímeginatriðum. -hlh
Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki:
í vetur sem undanfarna vetur hafa
fjölmörg umferðaróhöpp orðið vegna
lausagöngu hrossa. Langalgengust
eru þessi óhöpp í hrossahéruðunum
Skagafirði og Húnavatnssýslum. Til
að mynda hafa níu hross fallið í
Skagaiirðinum í vetur, en hrossa-
dauði af þessum völdum er talsvert
algengur í Seyluhreppi og Staðar-
hreppi.
í fyrradag var haldinn á Sauðár-
króki fundur meö þeim aðilum er
tengjast þessum málum; mönnum
frá vegagerð, hreppstjórum tveggja
hreppa, fulltrúum hestamannafélag-
anna í firðinum, og tveimur bændum
sem eiga það sammerkt að hafa báð-
ir oröið fyrir bíl á hestbaki. 29 manns
Þórhallur Ásmundsson, DV, Nordurl. vestra:
„Viö höfum það mjög gott hérna
uppi og hlutirnir ganga vel í góðu
tíðinni sem kemur sér vel fyrir okkur
eins og aðra bændur. Það eru þrír
verktakar héma að störfum og lík-
lega um 140 manns á svæðinu," sagði
Sveinn Þorgrímsson, staðarverk-
fræðingur við Blöndu, í samtali við
DV nýlega.
sátu fundinn sem haldinn var að
frumkvæði lögreglu.
Fundurinn lagði áherslu á að öllum
tiltækum ráðum yrði beitt til að
halda búfé frá þjóðvegum i héraðinu.
Til að ná þeim markmiðum sam-
þykkti hann eftirfarandi:
Sveitarstjórnarmenn beiti sér fyrir
því hver á sínu svæði að bændur og
aðrir þeir sem þurfa að reka skepnur
eftir vegum landsins, geri það ekki
eftir að rökkva tekur eða þegar
skyggni er slæmt, en ef þess gerist
þörfSé þaö gert í samráði við lög-
reglu.
Bændur og landeigendur eru hvatt-
ir til að viðhalda girðingum og hliö-
um þannig að treysta megi að þær
haldi skepnum.
Vegagerðin sjái til þess að girt sé
Stærsta verkið er gerð frárennslis-
skurðar frá stöðvarhúsinu, 1200
metra niður í árfarveginn. Krafttaks-
menn hafa lokið þriðjungi verksins.
Japanska fyrirtækið Fuji vinnur að
uppsetningu véla og raíbúnaðar og
Fossvirki lýkur meginhluta steypu-
framkvæmda í stöðvarhúsi nú um
mánaðamótin. Ofar í tjallinu, rétt
sunnan stjórnhúss, er unnið að bygg-
ingu húss, sem rúma mun velflesta
meðfram öllum umferðarmeiri veg-
um. Sé afrétt ekki girt verði sett rista-
hlið þannig að búpeningur renni ekki
hindrunarlaust til byggða eftir veg-
unum. Unnið verði markvisst að því
að auðvelda umferð ríðandi manna
meðfram umferðarmeiri vegum.
Þá er þeim tilmælum beint til lög-
reglu að hún láti sjá sig meira á aðal-
vegum til þess að halda niðri um-
ferðarhraöa.
Tryggingafélög eru hvött til að
halda uppi áróðri og vara menn við
þegar snjór er yfir öllu og girðingar
á kafi. Þá er sérstakrar aðgæslu þörf.
Einnig reyni tryggingafélög að fá
úr því skorið hver sé bótaréttur bif-
reiða- og skepnueigenda, þar sem
einstaka sveitarfélög hafa auglýst
bann við. lausagöngu búpenings.
starfsmenn Blönduvirkjunar, og
verður þaö væntanlega tekið í notk-
un í september.
Eins og menn rekur minni til var
bóndinn á Guðlaugsstöðum ekki
sáttur við háttarlag Krafttaksmanna
þegar þeir byijuðu framkvæmdir við
frárennsliskurðinn í árfarveginum.
Mál það er nú statt hjá matsnefnd.
Blönduvirkjun:
140 manns vinna á svæðinu
Óbreytt verð
á rækju
Yfirnethd sjávarútvegsins
ákvað lágmarksverö á rækju frá
1. mars til 31. maí óbreytt frá því
sem það var til 28. febrúar.
Ennfremur varð samkomulag
um svofellda bókun i nefndinni:
„Seljendur og kaupendur í yfir-
nefnd eru sammála um að mæla
með því að verðlagning rækju
eftir stærðarflokkum skuli end-
urskoðuð fyrir næstu verðlagn-
ingu með það í huga að stuðla að
hagkvæmari verðhlutföllum.“
í yfimefnd em: Þórður Frið-
jónsson, forstjóri Þjóðhagsstofn-
unar, oddamaður, Guðjón A.
Kristjánsson og Sveinn H. Hjart-
arson af hálfu seljenda og Lárus
Jónsson og Árni Benediktsson af
hálfu kaupenda. -J.Mar
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 4,5-5 Lb
Sparireikningar
3jamán.uppsögn 4,5 7 Sp
6mán. uppsögn 5,5-8 Sp
Tékkareikningar, alm. 1-1.5 Sp
Sértékkareiknmgar 4.5-5 Lb
Innlan verðtryggð Sparireikningar
6mán. uppsögn 2.5-3.0 Allirnema Íb
15-25mán. 6-6.5 Ib.Sp
Innlánmeð sérkjörum 5.25-5,75 Bb
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 5,7-6 Lb.ib
Sterlingspund 12.5 Allir
Vestur-þýsk mörk 7,75 8 Íb
Danskar krónur 8,59 Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 15,25 Allir
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupgengi
Almenn skuldabréf 15,25 15,75 Lb
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 18,75 19 Bb
Utlán verðtryggð
. Skuldabréf 7,75-8,25 Lb
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 14,75-15,5 Lb
SDR 10-10,5 Lb
Bandaríkjadalir ,8,8-9 Sp
Sterlingspund ®15,5-15,7 Lb.lb
Vestur-þýsk mörk 10,75-10.9 Lb.lb.Bb
Húsnæðislán 4.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 21,0
MEÐALVEXTIR
Överðtr. jan. 91 14
Verðtr. jan. 91 8.2
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala mars 3009 stig
Lánskjaravísitala feb, 3003 stig
Byggingavísitala mars. 566 stig
Byggingavisitala mars 177,1 stig
Framfærsluvisitala feb. 149,5 stig
Húsaleiguvísitala 3% hækkun ' . jan.
VERÐBRÉFASJODIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 5,387
Einingabréf 2 2.911
Einingabréf 3 3,533
Skammtímabréf 1,805
Kjarabréf 5,301
Markbréf 2,823
Tekjubréf 2,063
Skyndibréf 1,577
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,583
Sjóðsbréf 2 1,809
Sjóðsbréf 3 1,791
Sjóðsbréf 4 1,550
Sjóðsbréf 5 1,079
Vaxtarbréf 1.8336
Valbréf 1,7059
islandsbréf 1.119
Fjórðungsbréf 1,072
Þingbréf 1,118
Öndvegisbréf 1.108
Sýslubréf 1,127
Reiðubréf 1,097
Heimsbréf 1.035
HLUTABRÉF
Solu- og kaupgengi að lokinni jöfnun m.v. 100
nafnv.:
KAUP SALA
Sjóvá-Almennar hf. 6,80 7.14
Eimskip 5.72 6.00
Flugleiðir 2.47 2,57
Hampiðjan 1,76 1,84
Hlutabréfasjóðurinn 0,97 1.02
Eignfél. Iðnaðarb. 2,00 2,10
Eignfél. Alþýðub. 1,47 1,54
Skagstrendingur hf. 4.20 4,41
islandsbanki hf. 1.47 1.54
Eignfél. Verslb. 1,36 1.43
Olíufélagið hf. 6,00 6,30
Grandi hf. 2,30 2,40
Tollvorugeymslan hf. 1.10 1.15
Skeljungur hf. 6,40 6,70
Ármannsfell hf. 2,35 2.45
Fjárfestingarfélagið 1,28 1.35
Útgerðarfélag Ak. 3,70 3.88
Olis 2,19 2,30
Hlutabréfasjóður ViB 0,97 1,02
Almenni hlutabréfasj. ' 1,01 1,05
Auðlindarbréf 0,975 1,026
islenski hlutabréfasj. 1,02 1,08
(1) Viö kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Bb = Búnaðarbankinn,
lb= Islandsbanki Lb = Landsbankinn,
Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast i DV á fimmtudögum.