Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1991, Blaðsíða 7
r?>'.r r. i 'ivrr rj'TcO'i
FÖSTUDAGUR 1. MARS 1991.
Fréttir
Fiskmarkaðirnir að
komast í jaf nvægi
Bretland
Bv. Otto Wathne seldi afla sinn í
Hull 22. febrúar alls 101 tonn fyrir
12,7 miilj. kr., meöalverö 125,81 kr„
sem verður aö teljast sæmilegt verö.
Aðalaflinn var þorskur og var verðið
á honum 132,08 kr. kg. Smávegis af
ýsu seldist á 127,96, ufsi seldist á
51,19, karfl 52,85, grálúöa 106,64 og
blandaður flatfiskur á 103,63 kr. kg.
Bv. Þórhallur Daníelsson seldi í
Hull 25. febrúar ails 126,7 tonn fyrir
16,6 millj. kr„ meðalverö 131,16 kr.
kg. Þorskur seldist á 132,41 kr. kg,
ýsa á 164,17, ufsi 72,40, karfi 90,69,
grálúða 122,00 og blandaður flatflsk-
ur á 109,09 kr. kg.
Gámasölur
Alls voru seid 666 tonn af fiski frá
18.-22. febrúar fyrir 92,2 millj. kr.
Þorskur seldist á 130,44 kr. kg, ýsa á
172,74, ufsi á 53,02, karfl á 80,89, koli
á 173,45, grálúða 123,55 og blandaður
flatfiskur á 124,61 kr. kg.
Þýskaland
Bv. Víðir seldi í Bremerhaven 22.
febrúar alls 205 lestir fyrir 17,8 millj.
kr. Þorskur seldist á 99,38 kr. kg,
ufsi á 69,85, karfl 89,41 og blandaður
flatfiskur 38,23 kr. kg.
Bv. Engey seldi í Bremerhaven 25.
febrúar alls 223,5 lestir fyrir 21,9
millj. kr„ meðalverö 94,56 kr. kg.
Fyrir þorskinn fékkst 113 kr. kg, ýsa
á 155,23, ufsi 6446, karfi 96,53 kr. kg,
alls voru af kaífa í aflanum yfir 201
tonn, og blandaður flatfiskur á 72,65
kr. kg.
Bv. Skagfirðingur seldi í Bremer-
haven 27. febrúar alls 132 tonn af
fiski, meðalverð var 98,46 kr. kg. Verð
á þorski var 119,07 kr. kg, ýsa 194,
af henni voru aðeins rúm 700 kg,
ufsi 64,16, karfi 96,52 og blandaður
flatfiskur á 83,82 kr. kg.
í síðasta pistli var sagt að bv. Ás-
björn hefði aðeins fengið innan við
60 kr. meðalverð á kg. Það rétta er
að meðalverð var 67,30 kr. kg og leið-
réttist það hér með. Þorskur seldist
á 101,83 kr. kg, ufsi 42,55, karfi 69,87
og blandaður flatfiskur 40,24 kr. kg.
Að undanfornu hefur fiskmarkað-
urinn í viðskiptalöndum okkar verið
að komast í jafnvægi. Annars er
markaðurinn duttlungafullur og
ekki gott að spá um hann. Hann get-
ur breyst á einum degi svo með ólík-
indum er.
Álasund:
Þorskveiðar í miðbænum
Sunnanpósturinn segir frá þeirri
einstöku veiði sem nú fer fram í
höfninni í Álasundi. Þorskurinn,
sem þarna veiðist, er stór og feitur.
Veiðimennirnir segjast vera ánægðir
með þá góðu veiði sem þarna hefur
verið og hafa menn dregið allt að
þrjátíu þorska og telja sig hafa haft
góð laun á meðan á því stóð. Þetta
er erfið veiöi því allur fiskurinn er
veiddur á stöng.
Grænland:
Minnkandi útflutningur á
rækju til Japans
Útflutningur til Japans á rækju
árið 1990 var 12.053 tonn og er það
20% minna en árið áður. Hér er um
að ræða minnkandi útflutning sem
svarar 1100 þúsund krónum.
Gröndlands Fiskeritidende segir
frá því að Norðmenn séu með undir-
boð á mörkuðunum í Japan. Norska
verðið er 490/685 en verðið hjá Græn-
lendingum var 980 kr. kg. Hér er
miðað við rækju þar sem aðeins fara
78/82 stk. í kílóið.
Grönlands Statestik Kontor hefur
gefið upp hvar veiðin hefur minnkað
mest að undanfórnu og er það á
svæðunum við Austur-Grænland og
Norðvestur-Grænland.
Þrátt fyrir minnkandi veiði Græn-
lendinga voru þeir stærstir í útflutn-
ingi á kaldsjávarrækju úr norður-
höfum á Japansmarkaði. Útflutning-
ur Grænlendinga var frá janúar til
nóvember árið 1990 12.053 tonn en
var allt árið 198915.105 tonn. Noregur
var í öðru sæti með 2.716 tonn en
með 2.234 tonn árið 1989 og er það
um 22% aukning. Kanada var í þriðja
sæti með 2.700 tonn árið 1989 en árið
1990 var útlfutningurinn til Japans
1.659 tonn og er það um 39% sam-
dráttur.
Japanir telja að verðið á græn-
lensku rækjunni hafi verið of hátt
árið 1989.
Indónesía sem flskveiðlþjóð
Fiskveiðilögsaga Indónesíu er 5,8
millj. ferkílómetra og allt þetta svæði
hefur mikinn flsk að geyma. Mörg
bestu veiðisvæðin eru mjög nálægt
landi og það gerir mögulegt aö veiðin
Fiskmarkaðurinn
Ingólfur Stefánsson
fer fram á litlum bátum sem eru
ódýrir í framleiðslu. Nú eru 65%
bátanna án vélar. Af 342.110 bátum,
sem voru við veiðar árið 1988, voru
aðeins 43 bátar stærri en 200 tonn
og aðeins 4165 50 tonn. Árið 1987 var
veiöin 2.670.413 tonn og af því eru
375.700 tonn eldisfiskur. Áætlað er
að veiðin 1990 hafi orðið 3.652.000
tonn. Árið 1988 var innflutningur
38.000 tonn en búist við að hann verði
árið 1993 alls 237.000 tonn. Útflutn-
ingur er talinn 307 þúsund tonn á
móti 181.000 tonnum 1988 Neysla er
nú 15,8 kg á hvert mannsbarn og
reiknað með að hún verði 16,9 kg á
mann árið 1993. íbúafjöldi þá er tal-
inn verða 180 milljónir og neyslan
talin aukast um 288.000 tonn.
Fiskerisstipendant Terje Kolsöy
Fiskeldi
Eldið er í miklum vexti. Nú er land-
svæðið 400.000 hektarar og hægt að
auka það í 4 millj. hektara. Kostnað-
ur við eldið hefur lækkað verulega,
áður kostaði það 8,50 $ á hvert kíló
af rækju en nú hefur kostnaðurinn
komist í 4 $ í einstökum tilfellum.
Árið 1988 voru framleidd 229.557 tonn
af rækju sem skiptist þannig að
69.557 tonn voru framleidd í fersk-
vatni á móti 145.555 í sjókvíum. Aðal-
markaðssvæðin eru Japan og Banda-
ríkin en nú hafa þeir snúið sér að
Evrópumarkaði og er búist við mik-
illi aukningu þar á næstu árum.
Túnfiskráðstefna verður í Bali í
maí og fiskveiðisýning veröur í Ja-
karta, þetta er sölusýning og verður
dagana 16.-19. október í haust.
(Uppl. Exportutvalged for ferksfísk)
Spánn
Marca Bilbao er miðpunktur í fisk-
sölu í Baskalandi. Eins og víðar hefur
markaðurinn verið lélegur að und-
anfórnu og má segja að hann hafi
verið slappur frá áramótum. Lítil
sala er á laxi á þessum slóðum. Bask-
arnir vilja fá fisk af sínum miðum
og illa gengur að kenna þeim að
borða lax. Heimamenn þarna hafa
annan fisksmekk en íbúar á Suður-
Spáni þar sem laxinn selst grimmt.
Menn vilja ferskan fisk og saltfisk.
Helstu tegundirnar þarna eru lýsing-
ur, makríll og margar fleiri tegundir
og sumar þeirra eru fokdýrar.
Á matvælasýningu, sem haldin
verður bráðlega í Bilbao, verður
meira um kjötmeti en fisk, þó má sjá
einstaka fyrirtæki með frosinn fisk.
Otto Wathne seldi fyrir sæmilegt verð í Huil.
Tréver kaupir
steypustöð
Helgi Jónsson, DV, Ólaísfirðj;
Tréver hf„ stærsta byggingar-
fyrirtækið hér í Ólafsfirði, hefur
fest kaup á steypustöö Krafttaks
hf. sem staðið hefur við Múlaveg
undanfarin ár. Krafttak notaði
stööina við gerð Múlaganga.
Byggingarnefnd hefur gefið
leyfi sitt fyrir stöðinni næstu 15
árin, að sögn Vigfúsar S. Gunn-
laugssonar, framkvæmdastjóra
Trévers hf. Þó hefur enn ekki
verið skrifað undir kaupsamníng
þvi að nokkur smáatriði eru ófrá-
gengin. Steypustöð þessi er, að
sögn Vigfúsar, geysilega afkasta-
mikil.
HagnaðurKEA
250 mil|jóitir
Gytfi Kiistjánsson, DV, Akuieyri:
Hagnaður af rekstri Kaupfélags
Eyfirðinga nam um 250 milljón-
um króna á síðasta ári eftir
skatta, samkvæmt hráðabirgð-
auppgjöri sem lagt hefur verið
fram. Dagblaðiö Dagur birti frétt
um þetta þar sem sagði m.a. að
forsvarsmenn KEA hefðu ekki
viljað tjá sig um máhð að svo
stöddu og þeir sem DV ræddi við
voru sama sinnis.
Rekstur Kaupfélags Eyfirðinga
hefur verið mjög erfiður undan-
farin ár og félagið tapaði t.d. um
200 milljónum króna árið 1988 og
tæplega 150 milljónum á áriö
1989, þannig að hér er um mikil
umskipti að ræða. Félagið greip
til aðhaldsaðgerða og rekstur
þess var endurskipulagður.
IBV
VESTMANNAEYINGAR
A FASTALANDINU
mætum öll í Laugardalshöllina á bikarúrslita-
leikÍBVog Víkings kl. 16.30.
Höllin opnuð kl. 15.45þar uerður sýnt sprang að
hætti Egjamanna o.m.fl. verður tilskemmtunar. Leik-
urinn byrjarsíðan kl. 16.30.
Kringlukráin er opin öllum Eyjamönnum og öðrum frá
kl. 14.00 og munu Papar sjá um að koma öllum í
bikarstuð.
Eyjamenn á fastaiandinu, Qölmennið í Höiiina kl. 16.30
og hvetjið ÍBV til sigurs.
TbV;