Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1991, Síða 8
8
FÖSTUDAGUR 1. MARS 1991.
Útlönd
Bandamenn
tóku 175
þúsund íraka
höndum
Bandamenn áttu alls kostar við
íraska herinn og veiddu her-
mennina einn af öðrum upp úr
jarðhýsum sínum.
Simamynd Reuter
í breska varnarmálaráöuneyt-
inu er fullyrt að bandamenn hafi
tekið 175 þúsund íraska stríðs-
fanga frá upphafl Persaflóastríðs-
ins. Áður en bardagar hófust á
landi voru um þrjú þúsund írak-
ar komnir í hendur bandamanna.
Síðustu fjóra sólarhringana
lentu bandamenn í stökustu
vandræðum með aö koma stríðs-
föngum af bardagasvæðinu en í
Genfarsáttmálanum um meðferð
stríðsfanga eru skýr fyrirmæli
um að alla stríðsfanga skuli flytja
af vígvellinum svo íljótt sem
verða má.
Bandamenn lögðu mikla
áherslu á að fara í einu og öllu
eftir Genfarsáttmálanum, enda
höföu þeir gagnrýnt íraka harð-
lega fyrir að brjóta hann.
Neitaað
haf a lagt írök-
um tilvopn
Jórdanir neita því harðlega að
hafa lagt írökum til vopn eftir að
viðskiptabann var sett á írak í
kjölfar innrásarinnar í Kúvæt.
Bandamenn segjast þó hafa séð
ýmis merki þess að Jórdanir hafi
brotið bannið og flutt vopn til ír-
aks allt til þess að bandamenn
stöðvuðu flutningana með loft-
árásum.
írakarmisstu
3.500
skriðdreka
Skriðdrekar íraka urðu illa úti i
bardögunum. írakar misstu nær
allan skriðdrekaflota sinn.
Simamynd Reuter
Talið er að írakar hafi misst um
3.500 skriðdreka í bardögunum
um Kúvæt og síðar í herkví
bandamanna fyrir norðan landa-
mærin. Hernámslið íraka í og við
Kúvæt hafði yfir að ráða 4.200
skriðdrekum þegar átökin hófust
þannig að nú eru aðeins eftir um
700. írakar notuðu aðallega sov-
éska skriðdreka.
Tjón á öðrum hergögnum varð
einnig gífurlegt. Um 2.000 fall-
byssur voru eyðilagðar og 2.000
brynvaröir bílar. Búist var við
að til mikillar skriðdrekaorrustu
kægú áður en írakar gæfust upp.
Sú stórorrusta fór þó aldrei fram.
Reuter
Herstjórarnir
ætla að hittast
- endanlega verður gengið frá vopnahlésskilmálum
Yfirmenn íraska hersins ætla að
halda fund með yfirmönnum herliðs
bandamanna viö fyrsta tækifæri og
semja endanlega um vopnahlésskil-
mála í Persaflóastríðinu. Þessi
ákvörðun bendir til að írakar hafi
endanlega gefist upp og ætli ekki að
reyna að halda baráttunni áfram
þrátt fyrir yfirlýsingar í útvarpinu í
Bagdad um annað.
Opinberlega hafa írakar fallist á
að fara að öllum ályktunum Öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna um Kúvæt
og Saddam Hussein hefur sagt mönn-
um sínum ð leggja niður vopn þótt
hann hafi ekki viðurkennt að írakar
hafi tapað stríðinu og her þeirra sé
sigraður.
Bandaríkjamenn hafa enn ekki
ákveðið hvenær herlið þeirra verður
kallað heim fá Persaflóanum. í
bandaríska varnarmálaráöuneytinu
er sagt að það veröi áður en langt
um líður. Þó er vitað að það getur
tekið allt að eitt ár að koma öllu her-
liðinu heim. Bretar reikna með að
Norman Schwartzkopf á enn eftir að
Ijúka verki sínu í Persaflóastríðinu.
Einhvern næstu daga ræðir hann
við yfirmenn írakshers um vopna-
hlésskilmála. Teikning Lurie
þeir verði nokkra mánuði að flytja
sína menn heim.
Norman Schwarzkopf, yfirmaður
herafla bandamanna, á að ræða við
yfirmenn íraska hersins um vopna-
hlésskilmálana. Hann hefur haft að
mestu sjálfdæmi um hvaða aðferðum
var beitt í hernaðinum gegn írökum
og hlutverki hans lýkur ekki fyrr en
hann hefur gengið frá vopnahlésskil-
málunum.
Bandamenn leggja höfuðáherslu á
að írakar heiti að reyna ekki frekari
hernað og að þeir skili öllum stríðs-
föngum.
Mikið verk verður að koma ölum
stríðsfóngum bandamanna aftur til
síns heima. Talið er að þeir séu um
175 þúsund og eru nú í fangabúðum
sem Saudi-Arabar reka. Fangarnir
eru á þeirra ábyrgð. Enn er eftir að
yfirheyra þá í leit að mönnnum sem
framið hafa stríðsglæpi. Bandamenn
óttast að þeir sem frömdu voðaverk-
in í Kúvætborg náist aldrei.
Reuter
Kúvæt:
Reynt að myrða þekktan
stjðrnarandstöðuleiðtoga
Tilraun var gerð í gær til að myrða
þekktan stjórnarandstöðuleiðtoga í
Kúvætborg. Bandaríska dagblaðið
The Washington Post greinir frá
þessu í morgun.
Blaðiö segir frá því að Hamid
Yoaan, fyrrum þingmaður í Kúvæt,
hafi orðið fyrir árás við dyrnar að
heimili sínu í gær. Yoaan kvaðst
hafa opnað dyrnar eftir að einhver
bankaði og kallaði nafn hans. Hann
varð þá fyrir skoti byssumanns.
Yoaan sagðist ekki hafa neina hug-
mynd um hver væri ábyrgur en gisk-
aði á ýmsar ástæður. í fyrsta lagi
væri hann stjórnarandstæðingur, í
öðru lagi væri hann lögmaður og ein-
hver kynni að vera reiður honum.
Hann útilokaði ekki þann möguleika
að írakar vildu skapa vandamál.
Yoaan hefur verið virkur í lýðræð-
isbaráttunni í Kúvæt. Við lögmanns-
störf sín hefur hann rannsakað
meinta ijármálamisnotkun meðlima
í Sabah úölskyldunni.
Reuter
Breiðþota eyðilagðist
Breiðþota frá breska flugfélaginu
British Airways var eyðilögð á ílug-
velhnum við Kúvætborg í lokabar-
dögunum við hernámslið íraka. Þot-
an varð innlyksa í landinu þegar ír-
akar hemámu það og aldrei fékkst
heimild til að fljúga henni úr landi.
Að sögn forráðamanna flugfélags-
ins virðist sem þotan hafi eyöilagst í
orrustunni um flugvöllinn á öðrum
degi innrásar bandamanna í Kúvæt.
Þá stóðu haröir bardagar um flug-
völlinn í tvo daga áður en lið íraka
var yfirbugaö.
Bretar segja að ekki sé ástæða til
að ætla að þotan hafi verið eyðilögð
af yfirlögðu ráði heldur hafi hún lent
í skotlínunni þegar hersveitir banda-
manna og íraka áttust við.
Þotan lenti á flugvellinum í Kúvæt-
borg 2. ágúst í sumar, örfáum
klukkustundum áöur en írakar
hernámu landið. Þeir tóku farþega
og áhöfn í gíslingu eins og aöra út-
lendinga í landinu. Fólkið fékk þó að
fara heim skömmu fyrir síðustu jól.
Ekkert er eftir af þotunni annað en stélið. Þotan lenti í skothriðinni þegar
írakar reyndu að verjast sókn bandamanna á flugvellinum í Kúvætborg.
Símamynd Reuter
Bretar segja að þotan sé gjörónýt lagið verður ekki fyrir tjóni.
en hún var tryggð þannig að flugfé- Reuter
írakar f óru heim með vopnin
Herstjórn Bandaríkjamanna
ákvaö þegar vopnahléinu var komið
á í Persaflóastríðinu að skipta sér
ekki af þótt hermenn íraka færu
heim með þau hergögn sem eftir
voru. Þeim var hleypt yfir víglínu
bandamanna án athugasemda ef þeir
gerðu enga tilraun til að ráðast gegn
sigurvegurunum.
Bandaríkjamenn sættu ámæli frá
bandamönnum sínum í gær fyrir
þessa ákvörðun og vildu t.d. Bretar
að skriðdrekar og önnur þungavopn
yröu kyrrsett. Yfirmenn i her Banda-
ríkjanna sögðu að engu skipti þótt
írakar færu heim. með það sem eftir
væri af hernum því þeir væru sigr-
aöir. Her íraka yrði ekki til stórræða
í bráð.
Ekki er vitað með vissu hve margir
írakar voru vopnfærir eftir bardag-
ana í herkvínni norður af Kúvæt.
Bandaríkjamenn fullyrða að þeir
hafi verið 10 til 20 þúsund. Reuter
Persaflóastríðið:
Atburðarásin
28. febmar
5.00 - írakar sagðir hafa sam-
þykkt skilyrðislaust aUar tóll'
ályktanir Öryggisráðs Samein-
uðu þjóðanna. Bandamenn
stöðva hernaðaraðgerðir.
5.30 - Heimildarmenn innan
Bandaríkjahers segja aðeins tíu
þúsund til tuttugu þúsund íraska
hermenn hafa verið í Kúvæt og
suðurhluta íraks þegar vopna-
hléð tók gildi.
8.00 - ísraelar krefjast eyðilegg-
ingar íraskra eldflauga sem beint
er gegn ísrael. Almenningi tjáð
að ekki sé lengur þörf á að bera
gasgrímur.
8.15 - Útvarpið í Bagdad greinir
frá skipun um að íröskum her-
mönnum hafi verið fyrirskipað
að berjast ekki lengur.
10.40 - Frakkar opna sendiráð
sitt í Kúvætborg.
11.40 - Alexander Bessmert-
nykh, utanríkisráðherra Sovét-
ríkjanna, lýsir yfir ánægju sinni
með vopnahléð.
13.00 - Stjórn Kúvæts hvetur
Kúvæta í útlegð til að bíða með
heimferö þar til ástandíð hafi
batnað.
13.20 - Hizbollah-samtökin í Lí-
banon segja að „raunveruleg
móðír allra orrusta“ hafi rétt haf-
ist, orrusta milli Bandaríkjanna
og þeirra sem játa íslamstrú.
13.49 - Sænskur sérfræðingur
segir ósigur íraka geta flýtt fyrir
tilraunum þeírra og þróunar-
landa til að koma sér upp kjarn-
orkuvopnum.
14.00 - Bandaríkjamenn segjast
hafa fundið sannanir fyrir því að
Jórdanir hafi sent írökum vopn
löngu eftir að viðskiptabann
Sameinuðu þjóðanna var sett á.
14.50 - Bandaríkjamenn og Bret-
ar sagðir hafa opnað sendiráð sin
í Kúvætborg.
15.20 - James Baker, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, fer til
Kúvæts í næstu viku, að því er
segir i tilkynningu bandaríska
utanríkisráðuneytisins.
16.00 - Bretar segja bandamenn
krefjast að írakar eyðileggi
skammdrægar eldflaugar sínar
og gereyðingarvopn.
17.25 - Sovétmenn, sem hafa selt
írökum mikið afvöpnum, segjast
vera að endurskoða loftvarnir
sínar með hliðsjón af ósigri íraka.
18.20 íranir lýsa yfir ánægju
með vopnahléö en segja fjölþjóða-
herinn verða að snúa fljótlega
heim aftur til að tryggja frið á
Persaflóasvæðinu.
18.30 - Emírinn af Kúvæt skipar
nefnd sem sjá á um öryggi kúv-
æska ríkisins bæði heima fyrir
og erlendis.
18.40 - Heimildarmaður breska
hersíns segir bandamenn hafa
tekið 175 þúsund íraska stríðs-
fanga.
18.45 - Talsmaður bandaríska
utanríkisráðuneytisins segir
Bandaríkin ætla að leggja fram
hjá Öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna á fóstudag tillögu að álykt-
un skilyrði fyrir friði.
19.30 - Níu egypskir hermenn
sagðir hafa beðið bana og sjötíu
og fjórir særst í Persaflóastriðinu.
20.30 - Búsh Bandaríkjáforseti
segir íraka hafa samþykkt sam-
eiginleganfund herforingja íraka
og bandamanna til að ræða enda-
lok stríðsins.
21.00 - Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna heldur einkafund eftir
loforð frá írökum um að hlíta öll-
um ályktunum þess.
1. mars
7.36 - Bandariska dagblaðið
Washington Post greinir í morg-
un frá tilraun til að myrða leið-
toga kúvæsku stjórnarandstöð-
unnar í Kúvætborg í gær.