Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1991, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1991, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 1. MARS 1991. 11 Utlönd Marlon Brando grét þegar Christian sonur hans var dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir morð. Simamynd Reuter Brandofékk 10 ára f angelsi Christian Brando, sonur stórleik- arans Marlons Brando, hefur veriö dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir aö myrða ástmann hálfsystur sinnar. Réttað var í máli mannsins í Los Angeles og var fjölskylda hans viö- stödd þegar dómurinn var kveðinn upp. Gamli Brando tók örlög sonar síns mjög nærri sér og brast aftur og aftur í grát meöan dómarinn flutti mál sitt. Christian játaöi á sig verknaðinn og sagði að hann hefði misst stjórn á skapi sínu í rifrildi við hinn myrta. Ástmaður hálfsystur Christians hét Dag Drollet. Foreldrar hans voru í réttarsalnum þegar dómurinn var kveðinn upp en áður haföi faðir hans líkt Christian við skemmt epli sem yrði að fjarlægja. Christian baðst af- sökunar á gjörðum sínum og sagðist mundu vilja gefa mikið fyrir að geta vakið Drollet til lífsins á ný. Reuter Bútaði ást- mann sinn nið- ur með hjólsög Frönsk ekkja á sjötugsaldri var dæmd í 20 ára fangelsi fyrir að myrða ástmann sinn og saga síðan líkið í sundur með hjólsög. Ástmaðurinn hafði verið konunni ótrúr. Ekkjan heitir Simone Weber. Hún var einnig ákærð fyrir að hafa eitrað fyrir eiginmann sinn en dómurinn féllst ekki á ákæruna og sýknaði Weber. Hún féll hvað eftir annað í yfirlið meðan dómarinn flutti tölu sína og þegar dómurinn var kveðinn upp var búið að flytja hana úr réttar- salnum af heilsufarsástæðum. Dómarinn sagði að Weber hefði ekki framið morð að yfirlögðu ráði heldur í afbrýðiskasti og tók tillit til þeirra kringumstæðna þegar hann ákvað refsinguna. Talið er að Weber hati skotið ástmann sinn í höfuðið eftir heiftarlegt rifrildi. Ekki er þó vitað með vissu hvernig dauða hans bar að höndum því að lögreglan fann aldrei höfuðið. Aðrar líkamsleifar mannsins fundust í ferðatösku. Reuter Höfuðvitnið fórst í bílslysi Höfuðvitnið í málinu gegn Manuel Noriega, fyrrum einvaldi í Panama, fórst í bílslysi nú í vikunni. Lögmað- ur hans segir að sér þyki slysið mjög grunsamlegt og vill ekki útiloka að maðurinn hafi verið myrtur. Ramon Navarro var ekki aðeins höfuðvitnið í málinu gegn Noriega heldur var hann einnig reiðubúinn að vitna gegn tveimur eiturlyfja- smyglurum frá .Kólumbíu en þeir höfðu starfað úndír verndarvæng Noriegas. Lögreglan segir að Navarro hafi misst stjórn á bifreiö sinni skammt fyrir sunnan Miami á Flórída og lát- ist eftir að hafa ekið utan í vegrið. Lögmaður hans segir að ekki geti verið einleikið að maðurinn skyldi farast í bílslysi rétt áður en hann átti að bera vitni gegn harðsvíruðum glæpamönnum. MVARAKEPPM ... og það verður spennandi keppni. í kvöld ráöast úrslitin í KARAOKE SÖNGVARAKEPPNI FM 957 OG ÖLVERS. Aö lokinn spennandi undankeppni þar sem 24 söngvarar reyndu meö sér eru nú aöeins 1 0 eftir sem keppa um titilinn: KARAOKE SÖNGVARINN 1991. Úrslitakeppnin fer fram í Danshúsinu Glæsibæ í kvöld og i beinni útsendingu á ú tva rpsstöð i n n i FM 957 (i stereo). Ú rsl itake ppn i n og útsendingin hefjast kl. 22.00 stundvíslega en húsiö opnar kl. 21.00. Tekiö veröur á móti gestum meö Gula Páfagauknum, hátíðarfordrykk í anda keppninnar. Miöaverö er kr. 1.000, ath. takmarkað upplag. Laddi og félagar veröa meö puttana i skipulagningu kvöldsins og því er aldrei að vita hvað gerist. Keppt veröur um glæsileg verölaun og um þátttöku í KARAOKE SÖNGVARAKEPPNI í GLASGOW. • •••••••••••••• l.sæti Ferð fyrir 2 til Glasgow á Karaoke söngvarakeppni og PIONEER samstæða. 2.sæti 21" Elektratec sjónvarpstæki. 3.sæti Elektratec videótæki. Einnig verða sérstök verðlaun veitt fyrir sviðsframkomu á úrslitakvöldinu. KEPPEN D U R 1. Björn Þórisson 2. Heiðrún Anna Björnsdóttir 3. Ásgeir Már Helgason 4. Ingibjörg Jónsdóttir 5. Guðrún Oddsdóttir 6. Jóhanna Harðardóttir 7. Kristín Leifsdóttír 8. Inga Sæland 9. Sólborg Baldursdóttir 10. Árni Jón íggertsson D O M N E F N D 1. Sverrir Hreiðarsson / FM 957 2. Anna Björk Birgisdóttir / FM 957 3. Magnús Páll Halldórsson / Ölver 4. Mark Brink / Ölver 5. Jónatan Garðarsson / Steinar hf. 6. Ragnar Bjarnason / söngvari 7. Ellen Kristjánsdóttir / söngkona 8. Gestir kvöldsins Komdu á spennandi úrslitakeppni í Danshúsinu Glæsibæ í kvöld OG MÆTTU TIMANLEGA, því vegna útsendingar á FM 957 hefst dagskráin kl. 22.00 stundvíslega. Þetta veröur hörö og spennandi keppni milli 10 frábærra söngvara. flöPIOMEER OLVER G L Æ S I B Æ FM#957 ...alltaf einu skrefi framar FRIST/UND fýitujbtL—. 0PIOMEER i Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.