Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1991, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1991, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 1. MARS 1991. Iþróttir Sport- stúfar John McEnroe er kom- inn í þriöju umferð á Volvo-mótinu í tennis sem stendur yíir þessa dagana í Chicago. McEnroe sigr- aöi Ramesh Krishnan frá Indl- andi, 7-5 og 6-3. í fyrra settinu byrjaði McEnroe illa, var undir, 1-3, en náöi sér á strik í síðari hluta leiksins og þykir nú til alls líklegur. Lið Boston á sigurbraut Larry Bird og félagar hans í Boston Celtic unnu góöan sigur á Minnesota í banda- rísku NBA-deildinni í körfu- knattleik í fyrrinótt. Boston og Chigaco eru meö besta vinnings- hlutfall liöa í austurdeildinni. Úrslit leikjanna í fyrrinótt uröu sem hér segir: Boston - Minnesota......116-111 76ers - Atlanta.........107-103 Indiana - Dallas........104-108 Phoenix - Orlando.......116-124 Utah - Golden State.....118-103 Sacramento - Charlotte... 90-96 • Siguröur Gunnarsson, þjálfari ÍBV, standandi til hægri, ræðir málin við sína menn á æfingu í Eyjum í vikunni. Eyjamenn komu til Reykjavíkur strax í gærkvöldi. DV-mynd Ómar Garðarsson Bikarúrslitaleikurinn 1 handbolta á morgun: Búist við miklu fjöri í Laugardalshöllinni Sundmeistara- mótið í Eyjum í kvöld hefst innanhússmeist- aramót íslands í sundi og fer keppnin fram í sundlauginni í Vestmannaeyjum. Þetta er í fjórða skiptið sem mótiö er haldið í Eyjum og hefur árangur kepp- enda ávallt verið góður enda sundlaugin í Eyjum ein besta keppnislaugin á landinu. Keppendur á mótinu koma frá 14 félögum og verður allt besta sundfólk landsins á meðal þátt- takenda aö undanskildum Ragn- heiði Runólfsdóttur og Arnþóri Ragnarssyni sem ekki eiga heim- angengt. Margir sundmenn eru líklegir til afreka og má þar nefna tvo af okkar bestu sundmönnum, þá Magnús Má ÓMsson og Eð- varð Þór Eðvarðsson, sem er óð- um að nálgast sitt gamla form. Hjá kvenfólkinu hefur lang- sundskonan Ingibjörg Arnardótt- ir sjaldan verið í betra formi og það sama má segja um Helgu Sig- urðardóttur. Mótið 'verður sett kl. 15 í dag, þá hefjast úrslit þann daginn sem og hina dagana, undanrásir hefj-. ast á laugardeginum og sunnu- deginum klukkan 9.30. -GH Ekkert gengur hjá Brössunum Brasilía og Paraguay skildu jöfn, 1-1, í vináttulandsleik í knatt- spyrnu í fyrrakvöld. Þetta var fimmti leikur liðsins undir stjórn Paulo Roberto Falcao, hins nýja þjálfara brasilíska landsliðsins, og hefur liðið enn ekki unnið leik, gert flögur jafntefli og tapað ein- um. Stuöningsmenn landsliös Brasilíu eiga erfitt með að sætta sig við þennan árangur og eru nú farnar aö heyrast gagnrýnis- raddir meðstörf Falcao. Brasilíu- mennirnir voru betri í leiknum og skoruðu á 42. mínútu þegar fyrirliöinn Neto skoraði úr víta- spyrnu. Paraguay jafnaði rétt fyr- ir leikhlé með marki Samanies og þar við sat. Þjófar stálu úri frá Herði Magnússyni Þjófar létu greipar sópa meðan á leik varaliða Nottingham Forest og Sheffield United stóð. Þeir fóru inn í búningsherbergi Sheff. Utd og stálu meðal annars úri frá Herði Magnússyni en peningar og Visa-kort, sem var í plastpoka, var látiö vera. Brian Marwood fór þó einna verst út úr heimsókn þjófanna því að öllu var stolið frá honum. Giftingarhring hans var meira segja stolið. Golfskóli og góð æfingaaðstaða opnuö Breski golfkennarinn Martyn Knipe, sem starfað hefur hér á landi við golfkennslu undanfarin ár, hefur opnað glæsilegan golf- skóla og æfmgaaðstöðu í Héðins- húsinu, Seljavegi 2 í Reykjavík. Martyn hefur þar góða aðstöðu við kennsluna og tekur þar í tíma ■ einn eða fleiri nemendur í einu. Er upplagt fyrir félaga eða vinnu- staðahópa, sem vilja læra galdur golfíþróttarinnar, að fara þarna í tíma. Golfskólinn og æfmgaað- staðan er opin alla daga vikunn- ar, virka daga frá kfc 16 til 22 en á daginn um helgar. Allar nánari upplýsingar er að fá í síma 624788. Knattspyrnuveisla á skjánum Þaö verður sannkölluð knatt- spyrnuveisla á skjám lands- manna um helgina en þá verða sýndir Jirír leikir í beinni útsend- ingu. A laugardag verður leikur Man. Utd. og Everton sýndur í ríkissjónvarpinu. Á sunnudag er stórleikur í ensku knattspyrn- unni þegar Liverpool og Arsenal leiða saman hesta sína og verður hann sýndur í ríkisjónvarpinu og á Stöð 2 er annar stórleikur þegar AC Milano mætir Napoli í ítölsku 1. deildinni. Það má búast við mikilli stemmn- ingu í Laugardalshöllinni á morgun þegar Víkingar og Eyjamenn mætast þar í úrslitaleik bikarkeppni karla í handknattleik. Víkingar eru ný- krýndir deildarmeistarar og ÍBV er það lið sem hváð best hefur staðið sig í 1. deildinni frá áramótum og er að spila sinn fyrsta bikarúrslitaleik. Viðureign hðanna hefst klukkan 16.30. Mikilvægasti leikur ÍBV frá upphafi Sigurður Friðriksson, hornamaður í ÍBV, hefur átt hvern stórleikinn á fætur öðrum undanfarið með liði ÍBV. Sigurður sagði í samtali við DV að úrslitaleikurinn gegn Víkingi væri mikilvægasti leikur sem lið ÍBV hefði leikið frá upphafi. „Við mætum alls óhræddir til leiks gegn Víking- um. Við erum ákveðnir í að gefa okk- ur alla í þennan leik og mætum al- gerlega pressulausir í Höllina. Það búast allir við auðveldum sigri Vík- ings. Við ætlum hins vegar að hafa gaman af þessu og láta þá hafa fyrir hlutunum. Ég vona auðvitað að við sigrum. Ef við náum góðum leik á toppdegi þá verður sigurinn okkar,“ sagði Sigurður Friðriksson. Ætlum að njóta þess að hafa fengið tækifæri Sigurður Gunnarsson segir um leik- inn gegn Víkingi á laugardag: „Auð- vitað ætlum við að vinna leikinn gegn Víkingi. Til þess að svo megi verða þarf allt að smella saman hjá okkur. Víkingar eru með mjög leik- reynt lið og hafa verið bestir í 1. deildiuni í vetur. En við eigum alveg möguleika. Við ætlum fyrst og fremst að njóta þess að hafa fengið tækifæri til að leika til úrshta, skemmta okkur og sýna góðan leik. Við gerum okkur grein fyrir styrkleika Víkinganna en erum alls ekki hræddir við þá. Strák- arnir hafa sýnt að þegar þeir mæta til leiks með.réttu hugarfari geta þeir staðið í hvaða liði sem er.“ Getum sýnt okkar besta þegar með þarf „Stemmningin hjá okkur er góð eins og alltaf fyrir bikarúrslitaleiki og hjá okkur kemur ekkert annað til greina en sigur,“ sagði Karl Þráinsson, fyr- irliði Víkinga. „Við höfum misst dampinn að und- anförnu eftir sigurgönguna í vetur, það hefur orðið hálfgert spennufall en samt náðum við að rífa okkur upp og sýna góðan leik þegar við unnum Haukana í undanúrslitum keppninn- ar. Ég hef þá trú að við getum sýnt okkar besta þegar við þurfum á því að halda. ' Eyjamenn verða mjög erfiðir mót- herjar. Þeir spila öfluga vörn og eru líkamlega mjög sterkir, ÍBV er eitt af erfiðustu liðum deildarinnar. Við verðum að ná undirtökunum strax. Ef það tekst er ég bjartsýnn á að við vinnum öruggan sigur en ef Eyja- menn finna að þeir eiga möguleika verða þeir erfiðir viðureignar," sagði Karl Þráinsson. -ÓG/VS Víkingur Ólafsvík: Þorgrímur með í sumar? - Gylfi ráðinn þjálfari Sveinn-Helgason, DV, Selfosá: Selfyssingurinn Gylfi Þ. Gísla- son hefur verið ráðinn þjálfari hjá 4. deildar liði Víkings frá Ól- afsvík fyrir komandi keppnis- tímabil. Gylfi hefur áður þjálfað lið Víkings en hann stýrði Ölafs- víkingunum til sigurs í 3. deild árið 1974. Víkingarnir ætla sér stóra hluti á komandi íslandsmóti. Til liðs- ins eru komnir tveir snjallir knattspyrnumenn frá Júgóslavíu og mjög hklegt er að Þorgrímur Þráinsson, landsliðsmaður úr Val, leiki með Víkingum í sumar. -SK Stúfar um bikarúrslitaleikinn í handbolta • Úrshtaleikur Víkings og Björgvin Rúnarsson sem lék með upp fyrir leikinn með léttum lög- urreyndaráttsætiistjómVíkings! ÍBV í bikarkeppninni í handknatt- ÍBV síöasta vetur. um. • Tveir leíkmanna ÍBV mega leik á morgun er 18. úrslitaleikur • Mikil stemning er í Vest- • Dagskrá Víkinga verður með ekki spila úrslitaleikirm. Það eru keppninnar frá upphafi. Víkingar mannaeyjum vegna bikarieiksins öðrumhættiþvíþeirhittastklukk- Helgi Bragason og Erlingur Ric- hafa oftast sigrað eöa sex sinnum gegn Víkingi. Arnarflug og Flug- an 15 á félagssvæði sínu í Stjörnu- hardsson, ungir piltar sem hafa í átta úrslitaleikjum, þar af í fjögur leiðir bjóða bæði upp á feröir upp gróf þar sem tekin verður skóflu- látið að sér kveða með hðinu að ár í röð 1983-1986. Eyjamenn hafa á fastalandið og er þegar búið að stunga að nýju íþróttahúsi félags- undanförnu, en þeir spiluðu með aldrei áður náð svona langt í bikar- panta mjög raikið. Einnig er vitað ins. Það verður 44x33 metrar að B-liði ÍBV i bikarkeppninni og eru keppninni. að Vestmannaeyingar á fasta- stærð og fyrsta æfing hefur verið því ekki gjaldgengir. • Víkingar halda í ár upp á 50 landinu ætla aö fjölmenna. Verða boðuð þann 2. nóvember 1991 • Eyjamenn komu til Reykjavík- ára afmæli handknattleiksdeildar stuöningsmenn Víkinga að fjöl- klukkan 14! Það á að rúma um 1200 ur í gærkvöldi til að búa sig undir sinnar. Handknattleiksdeild ÍBV er menna ef þeir ætla að ná að yfir- áhorfendur og kostar 154 milljónir leikinn en þeir gista á Holiday Inn. hins vegar að senda lið i íslands- gnæfa kór Eyjamanna. Stuðnings- króna. Að athöfninni lokinni verð- Þeir æföu í Laugardalshöllinni í mótíeinungisfimmtasinn.enáður menn ÍBV eru sem sagt ákveðnir í ur fylkt liði á leikinn og strætis- morgun. léku Þór og Týr sitt í hvoru lagi. að gera sitt i því að koma bikarnum vagnar fengnir til að flytja þá sem . • Alexej Trufan, Sovétmaðurinn • Sigurður Gunnarsson hefúr til Eyja. _ vilja. _ í hði Víkings, er þriðji útlendingur- náð mjög góðum árangri með lið • Stuðningsmenn ÍBV hafa gefið • Forráðamenn ÍBV reikna með inn sem spilar bikarúrslitaleik hér ÍBV í vetur. ÍBV komst í sex höa út fundarboð fyrir laugardaginn og því aö um 600 Eyjamenh veröi. á landi. Hinir eru Anders-Dahl Ni- úrshtin í 1, deild, auk bikarúrslit- er það í íjórum liðum: meðal áhorfenda í Laugardalshöll- elsen, sem lék með KR, og Per Skár- anna. Sigurður er ekki ókunnugur „1. Kl. 14.00 - Upphitun í mat og inni, ef veður setur ekki strik í up, sem lék með Fram. Danírnir bikarúrslitaleikjum. Hann hefur drykk við undirleik Papanna frá reikninginn. Þar af er um helming- vorubáðirítapliöumásínumtíma. Qórum sinnum leikið til úrslita Vestmannaeyjum. ur væntanlegur frá Eyjum, hinn • ÍBV hefur ekki tapað leik i með Víkingum og orðið bikar- 2. Kl. 15.40 - Haldið til Laugar- helmingurinn er Eyjamenn búsett- Laugardalshöllinni á þessu ári, meistari í öll skiptin. dalshallar. Stuðningsmenn IBV iráfastalandinu. Víkingareigavon gerði þar jafntefli við KR og Fram • Guðmundur Guðmundsson, ætla að koma sér fyrir vestan meg- á svipuöum fjölda af sínum stuön- ogsigraðiVíkingí 1. deildinni. Vík- þjálfari Víkings, hefur leikið alla in á áhorfendastæðunum, sem ingsmönnum og vænta þess að ingar hafa hins vegar tapað tveim- átta úrshtaleikí liðsins í bikar- næst velhnum. Haldið verður hita heildarfjöldi áhorfenda verið ur síðustu leikjum sínum í Höll- keppninni frá upphafi.. Vegna í hópnum með léttum Eyjalögum. 1500-2000 manns. inni, gegn ÍBV og KR. meiösla er óvist um þátttöku hans 3. Kl. 16.30 - Skemmtunin hefst: • Heiðursgestir á leiknum veröa • Ámi Johnsen, Eyjamaðurinn að þessu sinni. Karl Þráinsson, fyr- Úrshtaleikur bikarkeppninnar, ÍB- Davíð Oddsson, borgarstjórí i kunni, verður kynnir á leiknum. irliði Víkinga, leikur sinn 7. úrshta- V-Víkingur. Reykjavík, og Guðjón Hjörleifsson, Árni hefur unnið mikið að undir- leik og nær með því Kristjáni Sig- 4. Kl. 18.00 - Fundi haldið áfram bæjarstjóri f Vestmannaeyjum. búningi leiksins og sagði í gær að mundssyni, núverandi formanni í samræmi viö afgreiðslu næsta Annar þeirra mun afhenda sínum í Eyjum væri bara hugsað um þrjá handknattleiksdeildar félagsins, dagskrárliðar á undan! mönnum bikarinn í leikslok. hluti þessa dagana, loðnu, þorsk sem var með í 7 úrslitaleikjum. Vestmannaeyingar á fasta- • Reikna má með fleiri fyrir- og handbolta! • Tengsl ÍBV og Víkings eru landmu eru hvattir til þess að mennum því Eyjamenn hafa boðið • Forsala aðgöngumiða hefst í mikil. Sígurður Gunnarsson, þjálf- mæta tímanlega og taka virkan þingmönnum Suðurlandskjör- Laugardalshöllinni klukkan 13 á ari ÍBV, lék áður meö Víkingi eins þátt í störfum fundarins. Öll áhöld dæmis á leikinn. í þeiín hópi er morgun. Miðaverð er 800 krónur og áður sagði, en Hilmar Sigur- til hávaðaframleiðslu vel þegin!“ ÞorsteinnPálsson,semnúberstvið fyrir fuhorðna og 200 krónur fyrir gíslason, sem þjálfaði IBV í fyrra, •HljómsveitinPaparmunfylgja Davíö um formennskuna í Sjálf- börn. leikur nú með Víkingi, sem og EyjamönnumíHöllinaoghitarþar stæðisflokknum, en Þorsteinn hef- -ÓG/SK/VS d\ sf b< h( in Þ!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.