Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1991, Blaðsíða 28
36
FÖSTUDAGUR 1. MARS 1991.
Bruðl og óskipulag
á Landspítalanum
í maí ’89 kom fréttabréf spítal-
anna, Púlsinn, út. Tvær síður af
blaði þessu íjalla um „sparnaðar-
aðgerðir". Blaðið Púlsinn er nú
kapítuli út af fyrir sig í bruöli við
Ríkisspítala.
Það er prentaö á fínan pappír í
mörgum litum og sent með nafni á
hvern starfsmann. Innihald hvers
blaös mætti ljósrita á endurunninn
pappír og senda út eitt eintak á
hverja deild og yrði það jafnmikiö
lesið og fína blaðið sem fólk flettir
og hendir svo.
60 ára afmælið
Það fór víst ekki fram hjá neinum
að haldið var upp á 60 ára afmæli
Landspítalans sl. ár. Mikil vinna
var lögð í að mála, bóna og skreyta.
Ljósmypdir hengdar upp, gamlir
munir og tæki tekin fram til sýnis.
Þá var eytt ómældum fúlgum í
trjáplöntur, m.a. í glerskála svo-
kallaðan. Fínt skyldi það vera. -
Síðan var borgurum boðið að skoða
dýrðina og þiggja veitingar, 25/11
’90.
Bamavakt var á spítalanum dag-
inn sem valinn var til þess arna
þannig að gestir streymdu um
bráðamóttöku þar sem aðstand-
endur sátu með sjúk börn og biðu
læknishjálpar. Næsta uppákoma
var svo 7/12 kl. 15.00 þar sem starfs-
fólki var boðið í K-byggingu til þess
að skoða listaverk og borða sæl-
gæti. Þann dag var vakt á spítalan-
um sem þýðir aukið álag á fíestum
deildum. Onnur dagskrá var fyrir
starfsfólk 14/12 og var þá reyndar
ekki vakt á spítalanum.
Veisla fyrir hverja?
Aðalhátíðin „fyrir allt starfsólk",
samkvæmt auglýsingu, var svo
haldin sjálfan afmælisdaginn, -js.
20/12, en þá var bráðavakt á spítal-
anum. Stórar, fínar auglýsingar
um allan spítala, það vantaði ekki.
Dagskrá: ávarp forstjórans, hug-
vekja, upplestur, tónlist og veiting-
ar. Það hljómaði afskaplega vel ef
ekki hefði verið valinn vaktadagur
spítalans, þó það væri sjálfur af-
mælisdagurinn hefði varla skipt
sköpum þó hnikaö væri veisludegi
til eða frá.
Tímasetningin var einnig sú
versta sem hægt var að velja, ef
meiningin var að „allir ættu að
korna", eða kl. 15.30, á vaktaskipt-
KjaHarinn
Kolbrún Sæmundsdóttir
sjúkraliði á Landspítalanum
um sem er annatími á flestum
deildum, alla vega fyrir hjúkrunar-
fólk.
Fyrir hverja var þá þessi veisla?
Ekki fyrir sjúklingana, ekki hjúkr-
unarfólkið, heldur fyrst og fremst
yfirmenn, skrifstofufólk og utanað-
komandi gesti.
Að lokum en e.t.v. það alvarleg-
asta. í allt þetta afmælisfár var
eytt miklum tjármunum og
skammarlegt á tímum þar sem sí-
fellt er tönglast á „fíárþröng" og
„sparnaði". Og ekki síst að samtím-
is fínum stórum auglýsingum um
bruðlið voru hengdar upp tilkynn-
ingar um „lokanir deilda“ spítal-
ans um jólin og jafnvel lengur.
Lokaglaðningurinn
Þar sem árið 1991 er gengið í garð
og hin stórfenglegu áform manna
á Landspítala um að allir hætti að
reykja ætla ég að bæta við III. kafla.
Það er auðvelt aö setja reglur og
láta prenta auglýsingar og bækl-
inga en þeir sem þaö gerðu þurfa
ekki að standa á sinni vakt meðan
stór hluti samstarfsfólks hleypur
út úr húsi til þess að reykja eða
þrasa við ergilega og misjafnlega á
sig komna sjúklinga sem vilja sínar
sígarettur hvað sem tautar. Við
sem ekki reykjum ættum kannski
að fara fram á bónus fyrir aukiö
álag vegna alls þessa.
Boð og bönn kenna fólki ekki að
hætta að reykja. Stöðug fræðsla og
afmörkuð svæði fyrir þá sem ekki
vilja láta sér segjast er að mínu
mati heppilegri lausn. Nú hafa
reykingar á klósettum við búnings-
klefa stóraukist og miður huggu-
legt að gana inn í kófið strax kl.
8.00 á morgnana og geyma svo fótin
sín þar.
Lokaglaðningurinn kom svo fyrir
nokkru þegar stórar bleikar aug-
lýsingar byrjuðu að prýða veggi
sjúkrahússins. Þarna var komin 1.
auglýsing um árshátíð. Og hvaða
dagur var svo valinn? Jú, vakta-
dagur spítalans, virkilega frumlegt.
Fyrir hverja er þá árshátíðin?
Sennilega sama fólkið og afmæli-
sveislan. Einhverjir hugsa eflaust:
Varla er hægt að loka sjúkrahúsi
svo að allir geti farið. Nei, auövitað
ekki. En ef ekki er vakt þá er t.d.
bráðamóttaka lokuð, minna álag á
röntgen, hjá meinatæknum, vakt-
mönnum og svo á legudeildum, svo
að eitthvað sé nefnt.
Þegar þetta loks er sett á blað er
verið aö athuga með breytingu á
árshátíðardegi starfsfólks en það
breytir ekki því að þeir sem staðið
hafa að undirbúningi allra þessa
veisludaga hafa lítið hugsað um
hvað þeir voru að gera á sínum
tíma.
Þaö væri svo fróðlegt ef næsti
„Púls“ birti auglýsingar um hvað
hvert blaö kostar útkomið með
„öllu“. Og jafnvel verð á afmælis-
veislu og fleiru sem nefnt er hér
að framan.
Kolbrún I. Sæmundsdóttir
„Boð og bönn kenna fólki ekki að hætta
að reykja. Stöðug fræðsla og afmörkuð
svæði fyrir þá sem ekki vilja láta sér
segjast er að mínu mati heppilegri
lausn.“
Andlát
Sigríður Faaberg, Laufásvegi 66, lést
á hjartadeild Landspítalans fímmtu-
daginn 28. febrúar.
Jarðarfarir
Bjarni Ólafsson, Hringbraut 51,
Keflavík, sem lést aöfaranótt 23. fe-
brúar, verður jarðsettur laugardag-
inn 2. mars kl. 14 frá Keflavikur-
kirkju.
Guðrún Salómonsdóttir frá Ytri-
Skeljabrekku, síðast til heimilis að
Ytri-Skeljabrekku, Dvalarheimilinu
Höfða, Akranesi, lést 25. febrúar sl.
Hún veröur jarðsett frá Hvanneyri í
Borgarfírði laugardaginn 2. mars kl.
14.
Einar V. Kristjánsson frá Vatnsholti,
er andaðist á sjúkrahúsi Suðurlands
21. febrúar, verður jarðsunginn frá
yillingaholtskirkju 2. mars kl. 14.
Utfór Guðmundar Betúelssonar,
verður gerð frá Flateyrarkirkju laug-
ardaginn 2. mars kl. 14.
Leifur Þorleifsson, Hólkoti, Staðar-
sveit, verður jarðsunginn frá Brim-
ilsvallakirkju, Fróðárhreppi, laugar-
daginn 2. mars kl. 14.
Eysteinn Einarsson frá Brú veröur
jarðsunginn frá Stóradalskirkju,
Vestur-Eyjafjöllum, laugardaginn 2.
mars kl. 14.
Sigríður Helgadóttir lést 24. febrúar.
Hún fæddist 21. júlí árið 1909. For-
eldrar hennar voru þau Helgi Helga-
son og Kristín Sigurðardóttir. Sigríö-
ur giftist Kristjáni Jónssyni en hann
er látinn fyrir allmörgum árum. Þau
hjónin eignuðust eina dóttur. Útför
Sigríðar verður gerð frá Fossvogs-
kapellu í dag kl. 13.30.
Tilkyrmingar
Síðasta sýning í Djúpinu
Um helgina lýkur Effel í Djúpinu (Hom-
inu). Á sýningunni eru átta verk unnin
í Ámsterdam, Köln, Lúxemborg, Ma-
astricht, Reykjavík, Stokkhólmi, Ensc-
hede og Kanarí. Verkin eru ferðasaga og
tileinkuð Leonardo da Vinci. Djúpið er
opið á sama tíma og veitingastaðurinn
Homið. Þetta mun vera síðasta sýning
sem haldin verður í Djúpinu um ein-
hvern tima.
Basar
sunnudaginn 3. mars kl. 15 verður hald-
inn basar í sjómannaheimilinu, Brautar-
holti 29. Á boðstólum verður mikið úrval
fallegra muna, skyndihappdrætti, heima-
bakaðar kökur og fleira.
Æskulýðsdagur
þjóðkirkjunnar
Árlegur æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar
er fyrsti sunnudagur í mars en hann ber
að þessu sinni upp á 3. dag mánaðarins
og 3. sunnudag í föstu. Hann veröur hald-
inn hátíðlegur í kirkjum og söfnuðum
landsins eftir því sem aöstæöur leyfa.
Æskulýðsdagurinn er nú í þriðja sinn
helgaður ábyrgð mannkyns í sköpunar-
verkinu og umhverfisvernd og ber yfir-
skriftina: Sköpun drottins - draslið okk-
ar.
Kabarett í Norræna húsinu
Sunnudaginn 3. mars kl. 16 verður sýning
í fundarsai Norræna hússins á kabarett-
inum „Þeir héldu dálitla heimsstyijöld
lög og ljóö í stríði“. Það em leikararnir
Ása Hlín Svavarsdóttir, Edda Heiðrún
Backman, Egill Ólafsson, Jóhann Sig-
urðsson og tónlistarmaðurinn Jóhann
G. Jóhannsson sem ílytja. Kabarettinn
var fyrst fluttur í maí sl. í Norræna hús-
inu og fékk mjög góðar viðtökur. Að-
göngumiöar verða seldir við innganginn.
Húsdýragarðurinn
Bréfdúfusýning
Áfram verður haldið með kynningar á
dýrategundum í Húsdýragarðinum.
Sunnudaginn 3. mars kl. 13-18 munu fé-
lagar í Bréfdúfufélagi Reykjavíkur halda
sýningu á kappflugs bréfdúfum. Helstu
afreksfuglar síðustu ára verða sýndir á
staðnum. Félagsmenn verða til staðar og
svara fyrirspurnum gesta um bréfdúfna-
rækt. Einnig verður sýnt myndband frá
Menning dv
Þessir flugmenn eru ekki að reyna slá metið hve margir geta komist í
einn G.P. GN gæti haldið athyglinni, þvílíkur skortur er á sögu.
Bíóborgin - Memphis Belle ★
Fjögurra
hreyf la fjörtjón
Þrátt fyrir eflaust mikinn velvilja í garð flugmanna seinni heimsstyrjald-
arinnar, enda er myndin tileinkuð þeim, þá tekst kvikmyndagerðarmönn-
unum ekki að koma gera þeim þann minnisvarða sem þeir eiga skilið.
Reyndar er engum greiði gerður með því að tileinka þeim svona ítarlega
misheppnað verk. Hér skal ekki otað fingri en aö mér læðist sá grunur
að ekki hafl verið farið rétt að verkefninu, heldur hefur ein röng ákvörð-
un á fætur annarri verið tekin og á endanum hefur engu veriö hægt að
bjarga.
Handritið var unnið upp úr heimildarmynd sem Howard Hawks tók í
nokkrum flugferðum með hinni sögufrægu sprengjuflugvél Memphis
Bell sem Ameríkanar flugu frá breskum flugvöllum í sprengiferðir yfir
Þýskaland. Ungur og óreyndur höfundur var fenginn til að smíða utan
um þetta sögu og persónur áhafnarmeðlima og eru þar fyrstu stóru mis-
tökin því hvorugt hefur tekist hjá honum. Sagan hefur ekkert til að bera
sem gæti haldið athyglinni, þvílíkur skortur er á sögutækni hjá höfundin-
um. Þetta byggist allt á einni flugferð sem verður hættulegri eftir því sem
Kvikmyndir
Gísla Einarsson
lengra er haldiö. Persónur áhafnarmeðlima eru með eindæmum flatar
og líflausar, dregnar upp í eins fáum dráttum og mögulegt. Ekki bætir
það að þessir fáu drættir eru öldungis óspennandi og sumir hreint ómerki-
legir.
Næstur í rööinni er leikstjórinn, Michael Caton-Jones, ungur Breti á
uppleið með litla praktíska reynslu í bíómyndum. Hann hefur leikstýrt
einni mynd, Scandal að nafni, þar sem honum tókst ekki að útskýra hið
margslungna Profumo-mál neinum sem ekki til þekkti. Umfang Memphis
Belle hefur reynst honum ofviöa, hann getur hvorki haldið uppi einfold-
um samræðum né skipulagt spennandi áhættuatriði.
Þá kemur leikhópurinn. Þetta e'ru allt ungir og í sumum tilfellum mjög
efnilegir leikarar en þeir hafa ekkert svigrúm, líkt og í vélinni sem þeim
er pakkað inn í. Sá eini sem rétt getur klórað sig upp fyrir hina er Eric
Stoltz sem leikur ljóðelskan íra. Með einni hreyfingu tókst honum að
koma sinni persónu til skila mun betur en aörir. Flugatriðin eru langt
fyrir neöan þær kröfur sem ég geri til slíkra atriða. Það að hafa fjórar
alvöru vélar hefur lítt stoðað og það eru tæknibrellumennirnir með módel-
in sín sem eiga bestu atriöin. Hitt eru bara óskipulögð skot út í loftið
með tilheyrandi hávaða, krísum hjá áhöfninni, og æ ótrúlegri óhöppum
sem sífellt komast nær því að granda vélinni.
Þar er komið að einum ljósum punkti í myndinni því hún sýnir á ansi
kaldhæðin hátt hvernig hver svona ferð var rússnesk rúlletta og hvernig
áhafnarmeðlimir bregðast við auknum líkum á því að mæta dauða sínum.
Breski súperframleiðandinn David Puttnam verður að gera betur en
þetta ef hann á að halda í virðingu sína í Evrópu.
P.S. Ég hef það eftir áreiðanlegum heimildum að það sé mikið um sæta
stráka í myndinni, jafnvel heillar bíóferðar virði, sem sagt hvalreki.
Memphis Belle (bresk - 1990) Framleiöendur: David Puttnam & Catherine Wyler.
Handrit: Monte Merrick. Leikstjórn: Michael Caton-Jones. Leikarar: Matthew Mod-
ine (Birdy, Gross Anatomy), Eric Stoltz (Fly II, Mask), Tate Donovan, D.B. Sweeney
(No Man's Land), Billy Zane (Dead Calm), Sean Astin (Goonies), Harry Connick,
Jr. (Jassari), John Lithgow (Harry and the Hendersons).
i
frægum kappflugskeppnum erlendis.
Kynningin verður i kennslusal Hús-
dýragarðsins í Laugardal og er hún opin
gestum garðsins á meðan húsrúm leyflr.
Heilsuhelgi Náttúrulækninga-
félags Akureyrar
Náttúrulækningaielag Akureyrar heldur
heilsuhelgi dagana 2. og 3. mars. Á laug-
ardeginum verður á Hótel KEA dagskrá
frá kl. 13-17, þar sem flutt verða erindi
um hollustu ýmiss konar, ráð gegn offitu
og streitu, auk þess sem Náttúrulækn-
ingafélagið verður kynnt og staða mála
í Kjarnalundi. Að hverju erindi loknu
geta fundarmenn komið með fyrirspurn-
ir auk almennta umræðna í lokin. Að-
gangur að Hótel KE A er ókeypis og öllum
heimill á meðan húsrúm leyfir. Á laugar-
dag kl. 15 og sunnudag kl. 10 gengst Nátt-
úrulækningafélagið svo fyrir matreiðslu-
námskeiðum í makróbíótík. Þuríður Her-
mannsdóttir leiðbeinir. • Námskeiðin
veröa í Hússtjórnarskólanum. Þátttöku-
gjald er kr. 4000. Þátttaka tilkynnist í
Heilsuhorninu í síma 21889.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað
frá Digranesvegi 12 kl. 10. Markmið
göngunnar er samvera, súrefni og hreyf-
ing. Komið með í skemmtilegan félags-
skap og nýlagað molakaffi.
Baróstrendingafélagið
í Reykjavík
heldur félagsvist og dans í Hreyfílshús-
inu laugardaginn 2. mars kl. 20.30 stund-
víslega.
Húnvetningafélagið
Félagsvist á laugardag kl. 14 í Húnabúð,
Skeifunni 17. Paravist. Allir velkomnir.
Sænsk bókakynning í
Norræna húsinu
Laugardaginn 2. mars kl. 16 verður kynn-
ing á sænskum bókum í Norræna hús-
inu. Gunnel Persson, sendikennari í
sænsku við Háskóla íslands, kynnir
bókaútgáfuna í Svíþjóð 1990 og gestur á
bókakynningunni veröur sænska ljóöa-
skáldið Bodil Malmsten.