Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1991, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1991, Qupperneq 32
'■, Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblao FÖSTUDAGUR 1. MARS 1991. Þrír menn í haldi vegna amfetamín- máls Fíkniefnalögregla handtók 34 ára Reykvíking við heimili sitt í Þing- holtunum um hádegisbilið í gær með eitt kíló af amfetamíni í fórum sínum. Tveir aðrir menn voru handteknir síðar í gær vegna málsins. Maðurinn sem tekinn var með fíkniefnin hefur áður komið við sögu fíkniefnamála, meðal annars árið 1988 þegar hann varð uppvís að því að dreifa amfetamíni hér á landi. Þegar DV fór í prentun í morgun var búist við aö dómari yrði búinn að taka afstöðu til kröfu um. gæslu- varðhald yfír manninum fyrir há- degi. Ekki var ljóst hvort krafa yrði lögð fram um varðhald yfir hinum tveimur. Það voru tollverðir í Reykjavík sem fundu amfetamínið falið í plexigler- strendingum í litlu stofuborði í vöru- afgreiðslu Flugleiða. Sendingin kom frá Lúxemborg og var stíluð á annan aðila. Taliö er að efnið hafi verið keypt í Hollandi. Grunur beindist síðan að framangreindum manni og hefur lögreglan fylgst méð honum siðustu vikuna með mikilli vinnu. Hann vitjaöi sendingarinnar hjá Flugfrakt í gær en var handtekinn þegar hann var kominn með pakk- ann heim til sín. Manninum brá mjög þegar lögreglan tók hann. Nokkru síðar voru hinir tveir handteknir. Yfirheyrslur hafa staðið yfir í nótt. Maðurinn sem tekinn var með am- fetamínið í fórum sínum hefur viður- kennt að hafa staðið að innflutningi efnisins. Styrkleiki amfetamínsins hefur ekki verið mældur ennþá en talið er aö söluandvirði hefði' orðið á bilinu 5-10 milljónir króna. Þetta eru því um 1.000-2.000 skammtar. Am- fetamín er hættulegt ávanabindandi örvandi fíkniefni. Algengasti neyslu- mátinn er að sjúga það upp í nefið í duftformi. Sprautur eru einnig not- aðaríþessusambandi. -ÓTT Leikarauppsagnir: „Fasísk vinnubrögö“ LOKI Loks varð Guðni kjaftstopp! Nemandi í MR neitar að greiða skólafélagsgjöld: Rektor hótaði brottrekstri - menntamálaráöuneytið greip inn í og sagði það ólöglegt „Ég tel mig ekki vera í skólafé- laginu og að það sé ekki hægt að neyða mig til að vera í því. í 20. grein Mannréttindasáttmála Sam- einuðu þjóðanna segir aö engan mann megi neyða til að vera í fé- lagi. Þess vegna neíta ég að greiða skólafélagsgjöld," segir Sigriður Andersen, nemandi í 6. bekk Menntaskólans í Reykjavík. Hún stendur nú í striði við Guðna Guð- mundsson rektor skólans sem hef- ur hótað henni brottrekstri ef hún greiði ekki gjöldin og að hún fái ekki stúdentsskírteini í vor. Sigríöur hefur fengið margvísleg- ar hótanir frárektor. Meðal annars var henni hótað því fyrir jólin að hún fengi ekki að taka próf. Sigríð- ur mætti hins vegar og hótuninni var ekki framfylgt. Enþá var henni sagt að ekkí yrði farið yfir prófm hennar. Það var að vísu gért en henni tjáð að hún fengi ekki ein- kunnir eins og aðrir nemendur. „Ég hef ekki fengið einkunna- spjald en allir kennararnir fyrir utan tvo, hafa sagt mér einkunn- irnar. Málið fór í menntamálaráðu- neytið og ég fékk í vikunni bréf þar sem ségir að rektor sé ekki heimilt aö nota svona refsiaðgerðir eins og hann hefur gert. Ráðuneytið segir að rektor eigi að fara eftir almenn- um lögum við innheimtu skulda. En málið er að ég bauðst tíl að borga hluta af þessu gjaidi, svokall- að próf- óg pappírsgjald en rektor neitaöi að taka við því. Ég hins vegar deponeraði það. En sam- kvæmt lögum hefur hann með þessu fyrirgert öllum rétti sínum til að innheimta þessa skuld sem hann þykist eiga hjá mér. í lögum stendur að ef menn neiti að taka við hluta íjárkröfu þá falli hún öll niður,“ segir Sigríður. Guðni Guðmundsson rektor MR segir að Sigriði verði ekki vikið úr skólanum. „Það hafa samt verið viðurlögin við agabrotum hingað til. Ráðuneytið kallaði hins vegar til einhvern lögskýranda sem komst að annarri niðurstöðu en ég viidi fá. Hvað verður gert i fram- haldinu er mitt mál og skólanefnd- arinnar. En ég býst ekki við að gera nokkurn skapaðan Mut. Ef hún tímir ekki aö borga gjöldin getum við alveg eins sett kíkinn á blinda augað með það, ef henni hð- ur betur þannig. En sem prinsipp hefur hún ekki unnið neinn sig- ur,“ segir Guðni. Sigríður fær að öllum líkindum að útskrifast í vor án þess að borga skólafélagsgjöldin. -ns Stefán Baldursson, nýráðinn Þjóð- leikhússtjóri, hefur sagt upp nokkr- um fastráðnum leikurum. Meöal þeirra eru Benedikt Árnason, Hákon Waage, Jón Gunnarsson, Lilja Þóris- dóttir, Þórunn Magnea Magnúsdótt- ir, Helga Jónsdóttir og Agnes Löve. Benedikt Árnason segir að hópur- inn hafi enn ekki hist til að ræða málið. „Viö erum hreinlega lömuð og áttum síst von á þessu. Þjóðleik- húsið er ríkisfyrirtæki og mér finnst þetta vera dálítið fasísk vinnubrögð. Það er verið að segja upp fólki sem hefur unnið í áratugi í leikhúsinu og taka með því botninn úr lífi þess.“ Veðriö á morgun: Þurrt vestanlands Á morgun verður austlæg átt á landinu, nokkuð hvöss við suður- ströndina. Snjó- eða slydduél syðst á landinu, á Austfjörðum og líklega nyrst á Vestfjörðum en þurrt vestanlands.og bjart veður í innsveitum norðanlands. Hiti víöa nálægt frostmarki, hlýjast sunnanlands. Árni leitar í Lónsbugtinni Árni Friðriksson hefur enn ekki fundið neina viðbótarloðnu. í gær mældi skipið 20 þúsund tonna torfu vestur af Dyrhólaey en að sögn Sveins Sveinbjörnssonar fiskifræð- ings mun þetta sama loðna og áður var mæld út af Hvalbak. Árni er nú stadduríLónsbugtinni. -J.Mar Fegurðarsamkeppni: Systur keppa um titilinn Systurnar Rakel, til vinstri, og Svava Haraldsdætur munu báðar taka þátt í keppninni um titilinn fegurðardrottning Reykjavíkur á Hótel íslandi þann 15. mars. Rakel er tvitug en Svava er átján ára. DV-mynd GVA - mjögsérstakttilfelli „Við erum alls ekki í samkeppni hvor við aðra. Það hjálpar okkur hins vega mikið að við erum ekki bara systur heldur miklar vinkonur líka og getum því hjálpast að við undirbúninginn og sagt í hreinskilni hvor við aðra ef eittvað er að,“ sagði Svava Haraldsdóttir, 18 ára þátttak- andi í keppninni um feguröardrottn- ingu Reykjavíkur í samtali við DV í gær. Svava og systir hennar, Rakel, sem er tveimur árum eldri, hafa báðar verið valdar í hóp þeirra átta stúlkna sem keppa um titilinn þann 15. mars á Hótel íslandi. Keppnin er undan- fari að Fegurðarsamkeppni íslands sem fram fer 24. apríl. Að sögn Gróu Ásgeirsdóttur, framkvæmdastjóra keppninnar, er mjög óvenjulegt að systur skuli vera valdar til að taka þátt í sömu keppni. Slíkt hefur ekki gerst áður í sömu keppni. „Við vissum eiginlega lítið um að viö hefðum báðar verið valdar í pruf- ur fyrir keppnina. Ég bjóst við að Svava yrði frekar valin þar sem hún var beðin um að taka þátt í keppn- inni í fyrra en hún bjóst við að ég yrði valin þar sem ég er eldri. Það kom því mjög á óvart þegar hringt var í okkur. Við bjuggumst alls ekki við að aðstandendur keppninnar vildu hafa systur í henni," sagði Rak- el. Systurnar búa saman í íbúð ásamt þriðju systurinni í Árbæjarhverfi. Rakel og Svava eru einnig í sama skóla, Menntaskólanum við Hamra- hlíð. Stúlkurnar segja það mjög lær- dómsríkt að taka þátt í undirbúningi fyrir fegurðarsamkeppnina: „Það hefur alltaf verið eitthvaö í gangi á hverjum degi síðasta mán- uð,“ sagði Svava. Stúlkurnar tóku skýrt fram að þrátt fyrir að þær séu báöar aö keppa um sama titil ríki engin samkeppni á milli þeirra tveggja. „Við finnum ekkert fyrir þessu nema að því leyti að þetta er bara miklu betra. Við getum hjálpað hvor annarri." -ÓTT \4 ý f ý 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.