Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1991, Page 4
4
LAUGARDAGUR 2. MARS 1991.
Fréttir
Landgræðslan gagnrýnir sjömannanefndina:
Ekki hugsað um gróður
vernd eða byggðamál
- segir Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri
„Sjömannanefndin tók ekkert tillit
til byggðamála eða gróðurverndar-
mála í tillögum um búvörusamning-
inn. Við það er í sjálfu sér ekkert að
athuga en viö höfum mikinn hug á
því að þegar endanlega verður geng-
ið frá þessum búvörusamningum
verði reynt að stuðla að því að fækk-
un fjár verði frekar á þeim svæðum
þar sem gróður og jarðvegur er við-
kvæmur,“ segir Sveinn Runólfsson
landgræðslustjóri.
Gagnrýnt hefur verið að ekkert til-
lit hafi verið tekið til landgræðslu-
sjónarmiða í tillögum sjömanna-
nefndarinnar um niðurskurð bú-
marks í landinu.
„Þegar bændur geta farið að versla
með fullviröisrétt þykir okkur rétt
að reynt verði að sjá til þess að fé
verði ekki fjölgað á þeim jörðum sem
að mati Landgræðsluhnar eru þegar
fullsettar. Við tillögur sjömanna-
nefndarinnar höfum við ekkert að
athuga en bíðum hins vegar spenntir
eftir framhaldinu og leggjum áherslu
á að þrátt fyrir að fé hafi fækkaö
verulega í landinu á undanfórnum
árum þá eru ennþá alltof mörg svæði
sem eru illa farin af jarðvegs- og
gróðureyðingu. Og þau verða það
áfram meðan ekki er um miklu meiri
uppgræðsluaðgerðir að ræða þannig
að fækkun sauðfjár leysir ekki þann
vandasegir Sveinn.
Þau svæði landsins, sem hvað verst
hafa orðið úti í jarðvegs- og gróður-
eyðingu, eru í Þingeyjarsýslum og á
Suður- og Suðvesturlandi.
„En aðstæður bújarða á þessum
svæðum eru samt sem áður mjög
mismunandi. Margar jarðir hafa
meira en nægilegt beitiland fyrir
sinn búfénað en á nokkrum jöröum
er landið að minnsta kosti fullsetið,
oft á tíðum vegna mikils hrossa-
fjölda,“ segir Sveinn.
Þá hefur það vakið athygli að þegar
sjömannanefndin var að vinna
álfangaskýrslu um framleiðslu sauð-
fjárafurða var enginn fulltrúi sauð-
fjárbænda kallaður til skrafs og
ráðagerða. Hins vegar voru fulltrúar
frá hinum ýmsu búgreinasambönd-
um kallaðir til, svo sem frá kjúkl-
ingaframleiðendum, eggjaframleiö-
endum, kúabændum, svínabændum,
kartöflubændum og fleirum. Ekki
var heldur neinn fulltrúi frá Land-
græðslunni né öðrum gróðurvernd-
arsamtökum kallaður til.
-ns
Fimmti bekkur Menntaskólans í Reykjavík hóf maraþonhjólreiðar kl. 16 í gær. Nemarnir ætla að hjóla i 24 tima, þrír
i senn í eina klukkustund. Tilgangur maraþonsins er að safna áheitum fyrir ferðalag í haust. Það var Svavar
Gestsson menntamálaráðherra sem ræsti hjólreiðagarpana. DV-mynd Brynjar Gauti
\
- Akranes:
Þrjú stærstu útgerðar-
fyrirtækin sameinuð
Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi:
Stefnt er að. því að sameina þrjú
stærstu útgerðar- og fiskvinnslu-
fyrirtækin á Akranesi í eitt á næstu
mánuðum. Samkomulag þar að lút-
andi tókst í vikunni meö stærstu
hluthöfum fyrirtækjanna þriggja,
Haraldar Böðvarssonar og Co, Síld-
ar- og fiskimjölsverksmiðju Akra-
ness hf. og Heimaskaga hf„ sem er
dótturfyrirtæki SFÁ.
Boðað verður til hluthafafunda í
þessum fyrirtækjum á næstunni
vegna þessara straumhvarfa í út-
gerðarmálum Akurnesinga. Sam-
hliða sameiningunni hefur verið
ákveðið að hið nýja fyrirtæki verði
opnaö almenningi og hlutafé aukið.
Við sameininguna fæðist nýr „út-
geröarrisi“, ekki aðeins á mæli-
kvarða Akurnesinga heldur einnig
á landsvísu. Hið nýja fyrirtæki
kemur til með að verða eitt fimm
stærstu sinnar tegundar á landinu
og bætist þar í hóp fyrirtækja á
borð við Útgeröarfélag Akur-
eyringa, Granda og Síldarvinnsl-
una í Neskaupstað. Nýja fyrirtækið
verður jafnframt stærsta fyrirtæk-
ið á Akranesi með um 300 manns
í vinnu.
Hið nýja fyrirtæki ræður eftir
sameininguna yfir fjórum togurum
með 10.000 tonna þorskígilda kvóta
og þremur loðnuskipum með fjóra
loðnukvóta. Velta fyrirtækjanna
þriggja, sem sameinuð verða síðar
á árinu gangi allt eftir, var um 2
milljarðar króna á síðasta ári.
Heildarlaunagreiðslur námu í
fyrra rúmlega 600 milljónum
króna.
Valdimar Indriðason, fram-
kvæmdastjóri SFA, og Haraldur
Sturlaugsson, framkvæmdastjóri
HB & Co, sögöu báðir í samtali við
DV í gær að sameiningin væri
vissulega blendin tilfinning en eigi
að síður væri hún besti kosturinn
eins og málum væri nú komið.
Þeir tóku báðir fram að fjár-
hagsstaöa allra fyrirtækjanna
þriggja væri traust. Með breyttum
tímum, ekki aðeins hér á landi
heldur einnig erlendis, væri æski-
legast að sameina fyrirtækin.
„Við erum með þessu að hugsa
20 ár’fram í tímann," sagði Harald-
ur. „Við teljum að með þessu séum
við aö treysta atvinnugrundvöllinn
á Akranesi enn frekar á komandi
árum,“ sagði Valdimar.
Ritstjóri Vökublaðsins:
Ekki vísir
að pólitískum
skrifum
Baldur Þórhallsson, ritstjóri Vöku-
blaðsins, hefur fyrir hönd Vöku, fé-
lags lýðræðissinnaðra stúdenta við
Háskóla íslands, sent frá sér eftirfar-
andi tilkynningu vegna fréttar DV í
gær um Vökublaðið:
„Vaka telur sér skylt að leiðrétta
þann misskilning sem komið hefur
fram vegna hátíðarútgáfu Vöku-
blaðsins sem tileinkuð er 80 ára af-
mæli Háskólans á þessu ári og sam-
. skiptum hans við atvinnulífið.
Vaka, félag lýöræðissinnaðra stúd-
enta, fór þess á leit við forsetaskrif-
stofuna fyrir nokkrum vikum að for-
setinn ritaði kveðju í blað sem gefið
væri út af Vöku í tilefni þess að Há-
skóli íslands á 80 ára afmæli á þessu
ári og var það góðfúslega samþykkt.
Hátíðarútgáfan er tileinkuð Há-
skólanum og samskiptum hans við
atvinnulífið. Sigmundur Guðbjarna-
son háskólarektor skrifar grein í
blaðið um „Háskóla íslands og lífið
í landinu“. Þar er viðtal við forsvars-
menn nokkurra fyrirtækja sem sam-
skipti eiga viö Háskólann, kynning á
þeirri starfsemi sem skrifstofa Stúd-
entaráðs Háskólans veitir, kynning á
öllum háskólarektorum frá upphafi
og svipmyndir úr Háskólasögunni. í
blaðinu er ekki að finna nokkurn
visi aö pólitískum skrifum og þess
var gætt sérstaklega að blaðið fjallaði
eingöngu um starfsemi sem fram
færi innan veggja Háskólans og
þeirra fyrirtækja sem hann hefur
haft samstarf við. Þessari hátíðar-
útgáfu Vökublaðsins er ekki einung-
is dreift til stúdenta heldur er blaðið
prentað í 42 þúsund eintökum og
dreift á öll heimili í Reykjavík. Nefna
má að fyrir 5 árum gaf Vaka einnig
út hátíðarútgáfu af Vökublaðinu í
tilefni þess að Háskóli íslands var
þá 75 ára.
Vaka harmar að reynt sé að blása
upp pólitísku moldviðri í kringum
þessa hátíðarútgáfu og telur leitt að
nafn forseta íslands sé dregið inn í
þessa umræðu.“
!!!«■,., n' bíM hanS ,Ór á hvo1' eftir harðan árekstur
rnotum Hofðatuns og Borgartúns í gær. Meiðsl hans voru ekki alvarl.
Okumaður hins bilsins var grunaður um ölvunarakstur. DV-myn<