Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1991, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1991, Síða 25
24 LAUGARDAGUR 2. MARS 1991. Hatrömm tíu daga barátta - pólitísk nærmynd af formanni og varaformanni Sjálfstæðisflokksins „Svell er á gnípu, eldur geisar und- ir,“ segir Jónas Hallgrímsson í kvæöi sínu, Gunnarshólma. Þessi samlík- ing á vel við Sjálfstæðisflokkinn þessa dagana en hann logar nú stafna á milli. Þeir eldar, sem kviknuðu þegar Davíö Oddsson tilkynnti fram- boð sitt til formanns ílokksins, hafa náö að breiðast út um alla innviði flokksins. Þó flokkurinn virðist á yfirborðinu vera í ró krauma eldar ósættis undir. „Þessar kosningar verða mjög tvísýnar. Það eru mjög margir íhaldsmenn í flokknum sem eru hræddir viö breytingar og vilja ekki að báturinn ruggi. Margir þess- ara manna eru þó ekki ánægðir með Þorstein, telja hann ekki nógu stefnufastan," sagði einn sjálfstæðis- maður í samtali við helgarblaðið. Þegar helgarblaðið kannaði hug nokkurra sjálfstæðismanna til fram- bjóðendanna tveggja kom í ljós að menn vilja ekkert láta hafa eftir sér á opinberum vettvangi, að minnsta kosti ekki undir nafni. Fulltrúar skiptast í þrennt Eftir að hafa rætt við fjölmarga stuðningsmenn beggja aðila má trú- lega skipta landsfundarfulltrúum í þrennt. Stærsti hópurinn eru óá- kveðnir, íhaldssamir landsfundar- fuiitrúar sem munu ganga til þessara kosninga nauðugir viljugir. í hópi þeirra telja margir framboð Daviðs ótímabært og að það muni vinna flokknum tjón, hver sem niöurstað- an verður. Þeir halda fram að slík átök innan flokksins tæpum sex vik- um fyrir kosningar geti ekki kostað neitt nema fylgistap. Nokkuð ljóst þykir þó aö fylgið er að breytast dag frá degi og margir munu ekki gera upp hug sinn fyrr en á síðustu stundu. Margir telja að menn bíði með að finna hvert straumurinn liggi á landsfundinum og fylgi með á síðustu stundu. „Hinu má ekki gleyma að mörgum þessara manna er auðvelt að telja hughvarf," sagði gamalreyndur sjálfstæðismaður í samtali viö DV og bætti við: „Þess vegna veltur það al- farið á baráttu stuöningsmanna beggja áður en fundurinn hefst hvern veg þeir snúast og síðast en ekki síst munu margir ekki gera upp hug sinn fyrr á landsfundinum sjálf- um og getur þar oltið á stemningu eöa hughrifum sem fulltrúar verða fyrir, annaöhvort frá hópnum eða vegna framgöngu eða frammistöðu frambjóðenda á fundinum." Er raun að þessu „Ég vil ekkert um þetta tala. Mér er raun að þessu,“ sagði Einar Oddur Kristjánsson, formaður Vinnuveit- endasambandsins og stundum kall- aður Bjargvætturinn frá Flateyri, í samtali viö DV. Einar sagði í fjöl- miðlum skömmu eftir að Davið gaf kost á sér að atferli hans væri póh- tískt skemmdarverk. Bæði Þorsteinn Pálsson og Davíð Oddsson hafa opn- að kosningaskrifstofur og berjast nú hart um fylgi landsfundarfulltrúa sem eru alls 1.430 talsins. Báðir hafa lýst því yfir að málefnaágreiningur sé enginn svo fyrst og fremst er tek- ist á um persónur. Af því leiöir að baráttan verður afar hörö og tekur á sig ýmsar myndir. „Ef Davið tapar er það vegna þess að fólk kýs Þorstein áfram af samúð- arástæðum," sagði samherji Davíðs. „Davíð hefur enga raunverulega reynslu í stjórnmálum. Hversu mikiö álit sem menn hafa á honum sem væntanlegum framtíðarleiðtoga þá má ekki gleyma því að það er lítill vandi að stjórna fjársterku sveitarfé- lagi eins og Reykjavík með sterkan meirihluta jábræðra að baki sér hjá því að þurfa að stýra ríkisstjórn eða stórum stjórnmálaflokki. Slíkt krefst sáttfýsi og málamiðlunarhæfileika sem Davíð á ekki til,“ sagði ötull stuðningsmaður Þorsteins úr hópi þingmanna í samtali við DV. Hvar er neyðarnúmerið? „Einn helsti ráögjafi Daviðs Odds- sonar er Hannes Hólmsteinn. Hann er ráögjafi hans í að sjá hlutina í víð- ara samhengi. Hannes er mjögfróður og þekkir söguna mjög vel. Ég veit til þess að á borgarráösfundi fyrir nokkru var umræða í gangi um hvort taka ætti upp nýtt neyðarnúmer. Borgarráðsmenn spurðu hver annan um algengustu neyðarnúmer sem flestir vissu en Davíð spurði: „En hvar er neyðamúmeriö 11178?“ Eng- inn borgarráösmaður kannaðist við það en Davíö gaf skýringuna: „Það er heima hjá Hannesi Hólmsteini“,“ sagði einn sjálfstæðismanna. Kunningjar Hannesar segja þó að eftir að Davíð haíl gefið kost á sér opinberlega hafi ráðgjafinn dregið sig í hlé og látið Birni Bjarnasyni eftir aðstoðina á opinberum vett- vangi. Þó þykir ljóst að Hannes Hólmsteinn er ein af drifijöðrum framboðsins. Galli-ekki galli „Davíð fer offari. Hann heföi átt að bíða síns tíma og afla sér þjálfunar í raunverulegum stjórnmálum með setu á þingi eins og eitt kjörtímabil," sagði annar sjálfstæðismaður en sá þriðji sagði: „Davíö er búinn að vera mjög lengi í pólitík. Hann er búinn að vera viðloðandi pólitík alla tíð og hóf afskipti af borgarmálefnum strax 1974 er hann sat í borgarstjórn sem borgarfulltrúi." „Eg gæti best trúað aö það væri mjög gott fyrir Davíð að hafa ekki veriö samofinn ölu því plotti sem viögengst á Alþingi. í öllu sem hann gerir er hann alltaf að hugsa um hag sinna umbjóðenda. Hann lemur ekki í borðið eða er með frekju nema vegna þess að hann vill ekki láta mál tefjast óeðlilega eða fara út af spor- inu. Davíð er mjög stefnufastur. Það er sú reynsla sem mun gera hann að miklu betri foringja en Þorsteinn er. Þorsteinn er diplómat og vill ekki styggja neinn. Landsbyggðarsjálf- stæðismenn eru mjög fúlir yfir lin- kind Þorsteins í landbúnaðarmálum. Það hafa engar lausnir komið frá flokknum í landbúnaðarmálum." „Þorsteinn er vel gefinn, fylginn sér og stefnufastur stjórnmálamaður sem hefur vaxiö með hverri raun,“ sagði Matthías Bjarnason þingmaður í samtali við DV. „Hann er hins veg- ar dálítið fjarlægur og skortir jarð- samband og nánari samskipti við fólk utan flokks og innan.“ Vont að veðja á rangan hest „Margir óttast að veðja á rangan hest og vilja því ekki gefa upp hvorn þeir styðja. Mjög margir í hópi þeirra styðja Davíð í hjarta sínu því þeir skynja að flokkurinn þarf á nýjum formanni að halda, sterkum og ákveönum leiðtoga,“ sagði stuön- ingsmaður Davíös í samtali við DV. „Maður hefur auðvitað heyrt aö Dav- íð haldi öðrum borgarfulltrúum í skugganum af sér. Það gerist sjálf- krafa. Hann er leiðtogi á meðan Þor- steinn er framkvæmdastjóri," sagði annar. Kostir og gallar Vinnusemi, heiðarleiki og fylgni voru kostir sem margir tileinkuöu Þorsteini Pálssyni í samtali við DV. Þeir viðurkenndu jafnframt að í því fælust gallar hans. Sáttfýsi hans leiddi til óhóflegrar málamiðlunar og stjómkænska hans fælist einkum í að finna fleti sem allir gætu sætt sig við. Úkoman yrði bragðdauf logn- molla. Helstu kostir Davíös Oddssonar voru einnig nefndir sem gallar á hon- um. Þannig er stutt bil milli stjórn- semi og röggsemi og einstrengings- háttar og yfirgangs. Hugrekkið, sem stuðningsmenn hans telja felast í því að ganga gegn sitjandi formanni, telja andstæöingar hans merki um valdhroka og oftrú á eigin hæfileika og fylgi. „Menn hafa haldið að Davíð væri ekki málamiðlunarmaður en hann er það. Ég veit varla nokkurn stjórn- málamann sem er eins næmur fyrir þrýstingi og ábendingum borgar- anna og Davíð. í landspólitíkinni skella menn skollaeyrum við halla- rekstri í ríkisbúskapnum og land- búnaðarruglinu á meðan fólk vill fá raunhæfar lausnir og lækkun skatta. Ef Davið verður var við óánægju- raddir í hverfum borgarinnar með einhverjar ráðstafanir borgarinnar þá er hann búinn að kalla þetta fólk á sinn fund umsvifalaust og leitar leiða í samvinnu við það um úrbæt- ur. Gott dæmi um það eru óánægju- raddirnar sem komu upp í Árbænum um sorpböggunarstööina." „Þorsteinn er ótrúlega harður af sér og mikill baráttumaður, meiri en ég held að flestir geri sér grein fyr- ir,“ sagði Hermann Gunnarsson, gamall skólabróðir Þorsteins úr Verslunarskólanum, í samtali við DV. „Hann var að áliti margra einn feimnasti maður í bekknum til hversdags og því rak marga í roga- stans þegar hann stóð upp á mál- fundum og reyndist vera flugmælsk- ur. Skemmtilegustu minningarnar á ég þó frá því að viö sátum saman í 4. bekkjarráði og sömdum saman Eddu sem er skemmtiblað um nem- endur skólans. Þá koin í ljós hve hann er mikili húmoristi. Það er synd að þjóðin skuh aldrei hafa feng- LAUGARDAGUR 2. MARS 1991. 41 ið að njóta þess,“ sagði Hermann. í þessari sömu Eddu fékk Þorsteinn viðurnefnið góði sem átti að vísa í dagfarsprýði hans og hrekkleysi. „Ég er Daviðsmaður en það er þó ekki þar með sagt að ég sé á móti Þorsteini, alls ekki. Þorsteinn varð formaður flokksins vegna þess að hann kom fram á réttu augnabliki á réttum stað. Eins gæti maður litið svo á að Davíð væri núna réttur maður á röngum stað.“ Hver er húmoristi? Einn heimildarmanna blaðsins orðaði það svo, þegar hann bar sam- an kandídatana tvo, aö Þorsteinn væri í pólitík fyrir fjöldann en fynd- inn fyrir sjálfan sig og örfáa aðra. Davíð væri hins vegar fyndinn fyrir íjöldann en í póUtík fyrir sjálfan sig og örfáa aðra. „Ég held að aðalástæðan fyrir því að Davíð býður sig fram núna sé að hann finnur óánægjuraddir og hann er sjálfur óánægður með formann- inn. Honum finnst Þorsteinn ekki keyra flokkinn áfram á neinum dugnaði og fylgið, sem mælist núna, er einungis óánægjufylgi,“ sagði enn einn sjálfstæðismaöurinn sem neitar að koma fram undir nafni. Erú engirvinir „Þorsteinn og Davíð eru ekki eins góðir vinir og haldið hefur verið fram. Þeir yoru kannski ágætis félag- ar en hafa ekki verið það lengi. Klúð- ur eins og þegar ríkisstjórn Þor- steinn sprakk fór mjög í taugarnar á Davið. í stjórnarandstöðu hefur flokkurinn í tíð Þorsteins ekki komið með neinar markvissar, góðar yfir- lýsingar. Hvað ætlar Sjálfstæðis- flokkurinn að bjóða upp á í komandi kosningum? Yfirlýsing landsfundarins er dæmigerð fyrir það hve formaður flokksins er máttlaus í að auglýsa Sjálfstæðisflokkinn. Frelsi og mann- úð segir ekkert og á sennilega eftir aö breytast í frelsi og samúð. Fyrir Davíð er að hrökkva eða stökkva núna.“ Hvað gerir landsbyggðin? Margir segja að Þorsteinn eigi meira fylgi úti á landi en Davíð og fullyrða að margir landsbyggðar- menn sjái í Davíð fulltrúa Reykjavík- urvaldsins sem vill gína yfir öllu. „Ég fullyrði aö 95% Vestfirðinga á landsfundi flokksins styðja Þorstein og ég hef ekki heyrt neinn mæla framboði Davíðs bót,“ sagði lands- fundarfulltrúi af Vestfiörðum í sam- tali við DV. Davíð mun hafa borist skeyti frá Austfiörðum þar sem allir fulltrúar heils byggðarlags lýsa stuðningi við hann. Trygga stuðn- ingsmenn beggja má finna í röðum áhrifamikilla þingmanna Reykjavík- ur- og Reykjaneskjördæma. Áf því virðist ljóst að línur í umræddri skiptingu eru langt frá því að vera skýrar. „Það versta sem hent getur flokk- inn er að Davíð tapi,“ sagði gamal- reyndur sjálfstæðismaður í samtali við DV. „Fari svo þá fer hann í mikla fýlu og veröur í virkri stjórnarand- stöðu eftir kosningar. Hann mun aldrei taka aö sér að verða ráðherra undir forsæti Þorsteins." „Davíð er vinsæll víða úti á landi. Þeir sem hafa sagt að svo sé ekki vilja bara reka þennan flokk eins og huggulegan klúbb. Engan má styggja og allt á að vera í sátt og samlyndi. Það gengur bara ekki í harðri póli- tík.“ Saman í sandkassanum Davíð og Þorsteinn eru á líku reki, Þorsteinn fæddur 1947 en Davíð 1948. Þeir slitu barnsskónum á sama bæj- arhlaðinu austur á Selfossi. Móðir Davíðs var heimagangur hjá foreldr- um Þorsteins og því léku þeir félagar sér í sama sandkassanum og sváfu á tíðum í sömu vöggunni. Þegar for- eldrar Þorsteins fluttu til Reykjavík- ur árið 1956 var Davíð fluttur á möl- ina með móður sinni. Það kom því í hans hlut að einhverju leyti að lóðsa Þorsteinn og Davíð berjast harðri og hatrammri baráttu um æðsta embætti flokksins. sveitadrenginn Þorstein um ókunna stigu borgarinnar og Páll Sigurðsson, faðir Þorsteins, segist muna eftir þeim kumpánum í strætóferðum um borg og bý. Eftir að þeir urðu full- orðnir var hins vegar ekki um náinn vinskap milli þeirra að ræða þó þeir væru samstiga á leið sinni til met- orða innan Sjálfstæðisflokksins." „Það er engin eining í flokknum. Menn hafa lært að vera ekkert að lýsa yfir óánægju með formann sinn en undir niðri kraumar hressilega vegna máttleysis Þorsteins. Mönnum finnst Þorsteinn tala mál sem enginn skilur á meðan Davíð talar tæpi- tungulaust. Það má ekki gleyma því sem Mogg- inn sagöi þegar Þorsteinn var fyrst kjörinn leiðtogi: „Tími hinna miklu leiðtoga er liðinn.“ “ „Það er ekki víst að allir þeir sem telja sig helst kallaða til forystu hefðu sýnt sömu staöfestu og dreng- lund og Þorsteinn Pálsson hefur gért í þrengingum Sjálfstæðisflokksins á undanfórnum árum,“ segir Pétur Kr. Hafstein í grein í Mbl. á fimmtudag og bergmálar þar skoðanir hinna íhaldssamari sjálfstæðismanna, eins og einn viðmælenda DV komst að orði. „... hann hefur stofnað einingu og heill Sjálfstæðisflokksins í meiri hættu en hann hefur siðferöilegan rétt til...,“ segir Pétur síðar um fram- boð Davíðs. „Ég hef grun um að stuðningsmenn Davíðs muni á næstu dögum hringja í alla landsfundarfulltrúa um allt land, útskýra máliö og sannfæra þá um kosti Davíðs. Þar mun margt fara á milli sem ekki er hægt að segja opinberlega," sagði enn einn sjálf- stæðismaðurinn. Annar kosningaslagur „Ef Davíð sigrar kemur upp allt annars konar kosningaslagur og kannski enn harðari. Það er baráttan um borgarstjórastóhnn sem allir borgarfulltrúarnir sækjast eftir. Davíð mun ekki láta eftir stólinn. Hann mun koma því til leiðar að tveir borgarfulltrúar taki að sér borgarstjóraembættiö í fiarveru hans, þau Katrín Ejeldsted og Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsso'n. Hann velur þau tvö með tilllti til þess aö þaú eru ekki líkleg til vinsælda. Davíð mun fiarstýra borginni frá Alþingi. Það er engin spurning að allir borg- arfulltrúar Sjálfstæöisflokksins vilja Davíð út og þar verður hörð barátta um stólinn," sagði einn stuðnings- manna Þorsteins úr ungliðahreyf- ingunni. Að velja hest í straumvatn „Þorsteinn hefur haft eftir ein- hverjum skaftfellskum bónda að það þýði ekki að snúa hestinum við í miðju straumvatninu en málið er að það er verið að velja hest núna til að leggja út í vatnið. Kosningabarátt- an hefst ekki fyrr en eftir lands- fundinn og þá er farið út í straum- vatnið og vilja menn ekki vera á hesti sem þeir treysta betur ef um tvo er að velja?“ „Það var nokkuð gagnrýnt þegar Davíð lýsti yfir stuðningi við Björn Bjarnason fyrir prófkjör en nú virð- ist Bjöm vera að endurgjalda greiö- ann. Davíð hefur fengið sömu að- stöðu og Björn í Hekluhúsinu og þar eru nægir peningar í framboösslag eins og sýndi sig í slag Björns. Heiturog hatrammur slagur Þaö er gífurlega harður kosninga- DV-myndir GVA slagur hafinn og hann á eftir að verða mjög heitur og hatrammur," sagði hlutlaus sjálfstæðismaöur, sem ekki hefur atkvæðisrétt á landsfundinum, og bætti við: „Það er alveg ljóst að Davíð vill Pálma í varaformanns- embættið vegna þess að þar nær hann í landsbyggðarmann. Davíð leitar auðvitað til Pálma vegna þess að hann kemur aldrei til með að ógna formannssætinu. Davíð ætlar að ráða í formannssætinu eins og hann hefur gert í borginni.“ „Að mörgu leyti er gott fyrir flokk- inn að fá Davíð en tíminn er rangur. Davíð er hrokafullur en það er ekki hægt að líta fram hjá því að hann er duglegur,“ sagði stuðningsmaður Þorsteins. Flestir þeir sem DV ræddi við eru sammála um klofning í flokknum eftir að framboð Davíðs varð ljóst. „Samband ungra sjálfstæðismanna er mjög klofið í afstöðu sinni. For- maður SUS er Þorsteinsniaður en fyrsti varaformaöurinn heldur með Davíð. Það var enginn klofningur innan SUS fyrr en Davíð gaf kost á sér þannig að framboðið gjörbreytir öllu innan flokksins í rauninni. Það eru ólíklegustu menn innan flokksins orðnir andstæðingar út af þessu framboði Davíðs.“ -ELA/Pá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.