Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1991, Síða 3
FÖSTUDAGUR & MARS 1991.
3
dv__________________________________________________________________________________________Fréttir
Til jafnaðar lagt hald á fíkniefni meira en annan hvem dag:
Grunur um fíknief na-
dreif ingu við söluturna
- fjórir handteknir 1 vikimni með hass 1 fórum sínum
Fjórir menn á tveimur bílum voru
handteknir fyrir utan söluturn í
Breiðholti á þriðjudagskvöld grunað-
ir um að hafa fikniefni í fórum sín-
um. Við leit lögreglu kom í ljós að
einn þeirra hafði nokkur grömm af
hassi á sér. Einnig fannst smávægi-
leg hassmylsna í öðrum bílnum.
Að sögn fíkniefnadeildar lögregl-
unnar hefur grunur leikið á um aö
sala á fikniefnum fari fram í ýmsum
söluturnum og samkomustöðum í
borginni. Vitneskja hefur legið fyrir
um að verið sé að selja unglingum
slík efni. Því hefur reglubundið eftir-
lit verið haft með ferðum grunáðra
manna. Ofangreindir fjórmenningar
voru á skrá hjá fíkniefnadeildinni.
Nokkuð er um að farið sé í eftirhts-
ferðir um tiltekin hverfi í allri borg-
inni. Umrætt þriðjudagskvöld fór
lögreglan í eftirlit í Breiðholt. Fjór-
menningarnir, sem handteknir voru
á þriðjudagskvöld, eru búsettir á öðr-
um stöðum en í Breiðholti og höfðu
því gert sér ferð þangað.
Guðmundur Guðjónsson yfirlög-
regluþjónn segir að þátttaka al-
mennra deilda lögreglunnar, það er
annarra en fíkniefnadeildar, sé orðin
mun virkari en áður var við eftirlit
og baráttu gegn fikniefnum. Á síð-
asta ári fundust fikniefni á fólki við
handtökur í 191 skipti. Þetta þýðir
að til jafnaðar hafi verið lagt hald á
fíkniefni meira en annan hvern dag
ársins. Inni í þessum tölum er ekki
stórt mál frá því í fyrravetur þegar
hátt í eitt hundraö manns voru kærð-
ir fyrir að hafa haft fíkniefni undir
höndum. í heild tengdust 225 mál
fíkniefnum hjá lögreglunni á síðasta
ári.
Guðmundur segir að fyrirlestrar
og erindi hafi verið flutt fyrir lög-
regluþjóna á almennum vöktum.
„Menn eru orðnir betur vakandi fyr-
ir þessu en áður," sagði Guðmundur.
-ÓTT
Vona að sladdinn gef i sig
á línuna eftir loðnuátið
Kvennalistinn:
Framboðslisti
á Vesturlandi
Suðurland:
- segir Guðmundur Helgi, skipstjóri á Jónínu IS
Reynir Traustason, DV, Flateyri:
Línubátar á Vestfjarðamiðum eru
farnir að verða varir við steinbít
samhliða því að loðna gengur á mið-
in. Undanfarin ár hefur steinbíts-
veiði verið heldur dræm en nú binda
margir vonir viö að þetta vestfirska
bjargræði gefl sig til.
Mörgum skipstjórum er þó uggur
í brjósti vegna þess að steinbítur er
nánast eina fisktegundin sem er
hægt aö veiða í einhverju magni utan
kvóta. Vitað er að margir sem ekki
hafa sinnt þessum veiðum áður eru
nú að gera sig klára til steinbítsveiða.
Guömundur Helgi Kristjánsson,
skipstjóri á Jónínu ÍS, var aö fá 150
kíló á bala þegar DV ræddi við hann.
„Ég vona að sladdinn komi á eftir
loðnunni og gefi sig til á línuna þegar
hann hefur jafnað sig eftir átið á
loönunni." Guðmundur sagðist hafa
áhyggjur vegna þeirrar auknu sókn-
ar sem fyrirsjáanleg væri. „Það
stefnir í örtröð á miöunum þegar
steinbítsvertíð hefst fyrir alvöru, hér
veröur fjöldi útilegubáta auk þeirra
báta sem stunda þessar veiöar að
heföbundnum hætti."
Þorsteinn Guöbjartsson beitír fyrir sladdann en undir þvi nafni gengur stein-
biturinn hvunndags fyrir vestan. DV-mynd Reynir
Framboðslisti Alþýðuf lokksins
Framboðshsti Alþýðuflokksins á isráði. Efstu sæti hans skipa: Tryggvi Skjaldarson, 5. Eygló Gránz
Suðurlandi til alþingiskosninganna 1. Árni Gunnarsson, 2. Þorbjörn og 6. Sólveig Adolfsdottir.
hefur verið samþykktur í kjördæm- Pálsson, 3. Alda Kristjánsdóttir, 4. -hlh
Framboðslisti Kvennalistans á 2. Snjólaug Guðmundsdóttir, 3.
Vesturlandi hefur verið ákveðinn. Þóra Kristín Magnúsdóttir, 4. Sigr-
Efstu sætin skipa eftirtaldar: ún Jóhannesdóttir og 5. Helga
1. Danfríður Skarphéöinsdóttir, Gunnarsdóttir. -hlh
r
Veitingastaður .
í miðbæ Kópavogs
Tilboð vikunnar
Grafinn lax með hunangssinnepssósu eða rjómalöguð sjávarréttasúpa,
' grísasneið með portvíns-sveppajafningi, grœnmeti og bakaðri kartöflu.
Kr. 1.190,- I
L Veisluþjónusta Hamraborg 11 - sími 42166 =s.l
Einnig tilboð
á garðsalati
KRYDDVÆNGIR
LOGANDISTERKIR
KRYDDVÆNGIR
Opið alla daga 11-
genticky
Fried
Chicken
Hjallahrauni 15
Hafnarfirði
simi 50828
Faxafeni 2
Reykjavik
simi 68-05-88