Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1991, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 1991.
Fréttir
25 milljarða lánsljárlög samþykkt frá Alþingi:
Býður upp á hækkun
vaxta og verðbólgu
- segir Friðrik Sophusson og talar um kosningalög
„Það er alveg augljóst, eins og
stundum vill gerast í lok kjörtíma-
bils, aö menn fá óskum sínum full-
nægt. Það getur ekki komið fram í
öðru en meiri halla á ríkissjóði en
gert var ráð fyrir. Það sem kannski
er alvarlegast við afgreiðslu láns-
fjárlaganna núna er að ríkissjóður
og opinberir aðilar ætla að taka
24-25 milljarða aö láni. Ef allir
þessir peningar verða teknir að
láni á innlendum markaði hljóta
vextirnir aö hækka. Því er mun lík-
legra að tekin verði erlend lán sem
í tímans rás munu síðan endur-
vekja þann gamla draug sem verð-
bólgan er,“ sagði Friðrik Sophus-
son þegar ljóst var að frumvarp til
lánsfjárlaga fengi afgreiðslu á Al-
þingi í gærkvöldi. Friörik skilaði,
ásamt Matthíasi Bjarnasyni,
minnihlutaáliti frá fjárhags- og við-
skiptanefndar neðri deildar.
Lánsfjárlögin voru samþykkt
með fram komnum breytingartil-
lögum utan þriggja. Það var breyt-
ingartillaga frá Ragnari Arnalds
um að heimild Landsvirkjunar til
að taka 800 milljóna króna lán
vegna raforkuframkvæmda fyrir
álver væri háð því að fyrirvaralaus
raforkusamningur lægi fyrir. Önn-
ur tillagan var frá Ásgeiri Hannesi
Eiríkssyni um aö ríkið tæki eitt
þúsundmilljónir að láni og endur-
lánaöi Ólafi Laufdal svo hann fengi
bú sitt aftur og gæti lokið við bygg-
ingu Hótels Islands. Við lok af-
greiðslu lánsfjárlaga kom fram til-
laga um 35 milljóna lán er færi í
hafnarbætur vegna þilplötuverk-
smiðju í Þorlákshöfn en hún var
felld. Atkvæðagreiðsla um breyt-
ingartillögur í neöri deild var flók-
in og tók mikinn tíma. Sjálfstæðis-
menn og Kvennalistakonur sátu
hjá eða greiddu ekki atkvæði við
nafnakall.
1660 einbýlishús
Samkvæmt lánsfjárlögunum er
fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkis-
sjóðs, heimilt að taka 14.700 millj-
ónir að láni innanlands og auk þess
735 milljónir sem yrðu endurlánað-
ar Fiskveiðasjóði, Byggðastofnun,
Síldarverksmiðjum ríkisins og
Lánasjóði sveitarfélaga. Þá er
Landsvirkjun heimilt að taka 3.400
milljónir að láni vegna raforku-
framkvæmda og 800 milljónir sérs-
taklega vegna fyrirhugaðs álvers.
Heimild er til 100 milljóna lántöku
vegna kaupa á björgunarþyrlu.
1.700 milljónir fara í fækkun bú-
ijár og aðlögun sauðfjárframleiðslu
í samræmi við búvörusamning.
Fjármálaráðherra er heimilt að
yfirtaka skuldir Byggðastofnunar
að fjárhæð allt að 1.200 milljónum.
Samtals er um að ræða heimildir
til að taka 25 milljarða eða 25 þús-
und milljónir að láni. Sú upphæð
jafngildir um 1660 góðum einbýlis-
húsum eða um 29 þúsund nýjum
fjölskyldubílum af smærri gerð.
„Það er staöreynd að rétt fyrir
kosningar virðist vera auðveldara
að ná fram málum sem einstakir
hagsmunahópar reyna að þrýsta á
í krafti þess að kosningar eru fram-
undan. Mér sýnast þessi lánsfjárlög
bera nokkurt mót af því,“ sagði
Friðrik.
-hlh
Lech Walesa, forseti Póllands, ræddi drykklanga stund viö Steingrím Hermannsson forsætisráðherra í Leifsstöð
á leið sinni til Bandaríkjanna. Þar stendur til að semja um eftirgjöf skulda. DV-mynd Brynjar Gauti
Lech Walesa mlllilenti í Keflavík á leið til Bandaríkjanna:
„Er ennþá verkamaður“
- býður íslenskum ráðamönnum að kynna sér ástandið 1 Póllandi
„Ég er ennþá verkamaður þótt ég
hafi skipt um vinnu. Ég hef alltaf
unnið mikið og embætti forseta
krefst einnig mikillar vinnu,“ sagði
Lech Walesa, forseti Póllands, að-
spurður um viðbrigðin fyrir gamlan
rafvirkja að taka við embætti forseta.
Walesa staldraði hér viö í klukku-
stund á leiö sinni vestur um haf þar
sem hann ræðir við ráðamenn og
hittir einnig að máh Ronald Reagan,
fyrrverandi forseta Bandaríkjanna.
Walesa ræddi hér við Steingrím Her-
mannsson forsætisráðherra og Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkisráö-
herra í Betri stofunni í Leifsstöð.
í viðræðum þeirra kom fram að
Walesa vill að íslenskir ráðamenn
komi til Póllands og kynni sér af eig-
in raun hvaða möguleikar bjóðast í
nánari samvinnu íslands og Pól-
lands.
„Það eru miklir möguleikar ónýttir
i Póllandi. Við viljum nánari sam-
vinnu við íslendinga enda gætu verið
um mikilvæg viðskipti að ræða,“
sagði Walesa þegar hann settist nið-
ur ásamt Steingrími og skýrði frá því
sem þeim hafði farið í milli.
Walesa virtist hress í bragði. Hann
er þéttur á velli sem fyrr og nokkuð
farinn að grána í vöngum. Danuta
kona hans -var með honum og vék
ekki frá manni sínum i þröng örygg-
isvarða og embættismanna.
Með Walesa var mikið föruneyti
enda standa fyrir dyrum mikilvægar
viðræður í Bandaríkjunum. Þar á
meðal stendur til aö Bandaríkja-
stjórn láti skera niður að hálfu skuld-
ir Pólverja vestra. Walesa sagði aö
eftirgjöf skulda hefði gífurlega þýð-
ingu fyrir Pólverja og væri forsenda
þess að þeir gætu reist efnahag sinn
úrrústum. -GK
Starfsfólk í frystihúsum:
Hundruð manna mæta
ekki til vinnu í dag
Það er ljóst að hundruð ef ekki
þúsundir starfsmanna í frystihúsum
viða um land hafa lagt niður vinnu
í dag til að minna stjórnvöld á kröfu
sína um hækkun skattleysismarka.
Á ísafirði hefur til að mynda nán-
ast allt fiskverkunarfólk tekið sér frí
frá vinnu enda sagði Aðalheiáur
Steinsdóttir fiskverkunarkona aö
þar hefði myndast víðtæk samstaða
um að leggja niður vinnu. Sömu sögu
er að segja frá Vestmannaeyjum og
Norðfirði, á þessum stöðum ætlar
fiskverkunarfólk að vera í fríi.
Af öðrum stöðum á landinu, þar
sem starfsmenn ákváðu aö leggja
niður vinnu, má nefna Hellissand,
Stykkishólm, Eskifjörð, Skagaströnd
og Sauðárkrók. Hluti af fiskverkun-
arfólki á Ólafsfirði er einnig frá
vinnu.
Það verður hins vegar unnið á
nokkrum stöðum og af samtölum við
fiskvinnslufólk má ráða að það er
einkum á stöðum þar sem atvinnu-
ástand hefur verið ótryggt að undan-
förnu. Þar ætlar fólk að vinna eins
og ekkert hafi ískorist. Annars staðar
var það fellt á starfsmannafundum
að fara í verkfall og svo eru starfs-
menn fiskvinnslunnar ekki á eift
sáttir um að beita þessari aðgerð til
að leggja áherslu á kröfur sínar.
Staðir þar sem vinna verður með
eðlilegum hætti eru til dæmis Reyð-
arfjörður, Hnífsdalur, Flateyri, Þing-
eyri og Grandi í Reykjavík.
Fiskverkunarkona, sem DV ræddi
við hjá Granda, sagði að henni þætti
ekki rétt að vinnustöðvuninni staðið.
Það hefði verið nær að safna undir-
skriftum undir áskorun um að skatt-
leysismörkin yrðu lækkuð og storma
með hana upp í Stjórnarráð eða nið-
ur á Alþingi og afhenda hana þar.
-J.Mar
Hvassviðri 1 Vestmannaeyjum:
23 tonna bátur fauk
á nýlegan plastbát
23 tonna trébátur í Vestmannaeyj-
um, Erlingur VE, fauk á hliðina í
svokölluðum austurslipp við Friöar-
höfn snemma í morgun. Viö hliðina
á bátnum í dráttarbrautinni var tíu
tonna plastbátur sem skemmdist
talsvert þegar Erlingur lagðist aö
honum. Búið var að úrelda Erling
en plastbáturinn er nýlegur.
Mikinn norðvestan vindstreng
byrjaði aö leggja yfir Eiöið í Vest-
mannaeyjum um klukkan fjögur í
nótt. Það voru 11 vindstig og enn
meira í hviðum. Guðbjartur VE sem
lá við skipalyftu í höfninni slitnaði
frá bryggju en fyrir snarræði tókst
að binda hann aftur. Fiskkör og laus-
ir hlutir við höfnina fuku um og stór-
ar huröir í vinnuhúsum opnuðust í
hviðunum. Ekki hafði verið tilkynnt
um tjón á íbúðarhúsum í morgun.
-ÓTT
Lokahrina þingsms:
Fjöldi mála
Fjöldi frumvarpa voru afgreidd
sem lög frá Alþingi á síðustu klukku-
stundum þingstarfa í gærkvöld. Með-
al nýsamþykktra laga má, auk láns-
fjárlaga, nefna lög um grunnskóla,
sem fóru nokkuð breytt í gegnum
þingið eftir samkomulag mennta-
málaráðherra við sjálfstæðismenn
sem unnið höfðu gegn frumvarpinu.
Þá má nefna lög um Húsnæðisstofn-
un ríkisins þar sem húsnæðislána-
kerfið frá 1986 er numið úr giidi, lög
rann í gegn
um Búseta og byggingasamvinnufé-
lög, en þau höfðu velkst í þinginu í
mörg ár, lög um félagsþjónustú sveit-
arfélaga, lög um tekju- og eignaskatt,
lög um frádrátt vegna fjárfestinga í
atvinnurekstri, lög um greiðslujöfn-
un fasteignaveðlána, þjóðminjalög,
lög um almannatryggingar, lög um
ráðstafanir vegna aflabrests í loðnu-
veiðum og lög um ársreikninga og
endurskoðun lífeyrissjóða.
-hlh