Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1991, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 1991.
VERSLUNARMANNAFÉLAG SUÐURNESJA
ALLSHERJAR ATKVÆÐAGREIÐSLA
Samþykkt hefur verið að viðhafa allsherjar atkvæða-
greiðslu um kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs
Verslunarmannafélgas Suðurnesja fyrir árið 1991.
Kosið er um 3 menn í stjórn og 3 til vara, 7 menn
í trúnaðarmannaráð og 7 til vara, 2 endurskoðendur
og 1 til vara.
Framboðslistum sé skilað til formanns kjörstjórnar,
Þórarins Péturssonar, Fífumóa 1 B í Njarðvík, eigi
síðar en kl. 20 miðvikudaginn 27. mars 1991. Öðrum
listum en lista stjórnar og trúnaðarmannaráðs skulu
fylgja meðmæli 50 félagsmanna annarra en í fram-
boði eru.
Kjörstjórn
VERKAMANNAFÉLAGIÐ DAGSBRÚN
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Verkamannafélagsins Dagsbrúnar verður
haldinn þriðjudaginn 26. mars nk. kl. 20.30 í Átthaga-
sal Hótel Sögu.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Samþykkt félagsfundar 4.11.90 um sölu á hluta-
bréfum í Eignarhaldsfélagi Alþýðubankans (Is-
landsbanka).
3. Kosning tveggja manna í laganefnd.
Kaffiveitingar.
Endurskoðaðir reikningar liggja frammi á skrifstofu
félagsins.
Stjórn Dagsbrúnar
Sfafoð
skrafab
L y k i l l a ð l e y n d a r m á l i
Þú getur fylgst meö þessum spennandi leik á
útvarpsstöbinni FM 957 á hverjum degi íþœtti
Ágústar Héöinssonar milli kl. 13.00 og 16.00.
Notaöu þennan miöa til aö finna rétta oröiö og þú
getur oröiö utanlandsferö ríkari.
Þú hlustar bara á FM 957 og veröur meö í leiknum.
Orð/ð sem viö leitum oð » dag:
I 2 .1 4 5 6 7 II 9 III II
□□□□□□□□□□□
12 1.1 14 15 16 17 IK 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 .10 31 32 33 34 35 36 37
□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□
38 39 40 41 42 43 44
□ □ □ □□□□
Nafn:
Sendist til:
STÁFAÐ OC SKRAFAÐ,
FM 957, P.O. BOX 9057,
129 REYKJAVÍK.
1
UÚönd
Stjórnin í Kúvæt
segirafsér
Krónprinsinn í Kúvæt, al-Sabah, 'sem jafnframt er forsætisráðherra lands-
ins, mun mynda nýja stjórn hið fyrsta. Símamynd Reuter
Stjórnin í Kúvæt hefur sagt af sér
í kjölfar mikillar gagnrýni. Hafa
menn einkum verið óánægðir með
að ekki skuli hafa tekist að koma
rafmagnsveitu, vatnsveitu og ann-
arri almennri þjónustu í lag. Sulei-
man al-Mutawa, ráðherra áætlunar-
mála í Kúvæt, sagði í morgun að for-
sætisráðherrann, Saad al-Abdulla
al-Sabah krónprins, ætlaði að mynda
nýja stjórn sem takast ætti á við þann
mikla vanda að endurreisa Kúvæt.
Þrír þeirra ráðherra sem sættu
hvað mestri gagnrýni eru allir af
Sabah ættinni. Fyrir innrás íraka 2.
ágúst báru þeir ábyrgð á varnar-,
innanríkis- og utanríkismálum. Sá
ráðherra, sem fór með mál vatns-
veitu og rafmagnsveitu, hefur einnig
verið harðlega gagnrýndur fyrir að
hafa ekki komið máiunum í lag á
þeim þremur vikum sem liðnar eru
frá því írakar voru hraktir frá Kú-
væt.
í gær stöðvaði stjórnin útgáfu eina
dagblaðsins sem komið hefur út í
Kúvæt eftir frelsun landsins. Á
mánudaginn birtist í blaðinu gagn-
rýni á stjórnina og hún sögð vanhæf
til að takast á við vandann.
Mutawa sagði í morgun aö það
væri undir krónprinsinum komið
hvort hann byði stjórnarandstæð-
ingum sæti í stjóminni. Aðspurður
neitaði hann því að verið væri að
koma til móts við kröfur sumra Kú-
væta um aukið lýðræði.
Herlög hafa veriö sett í Kúvæt til
aðtryggjalögogreglu. Reuter
Reikningurinn vegna Persaflóastríðsins:
Vilja banna vopnasölu til
bandamanna þar til þeir borga
Öldungadeild Bandaríkjaþings
samþykkti í gær 15 milljarða dollara
fjárveitingu vegna kostnaðar við
Persaflóastríðið með því skilyrði að
vopnasala til bandamanna yrði
bönnuð þar til þeir hefðu greitt þau
framlög sem þeir lofuðu. Bandaríkja-
stjórn vonast til að þeir 53,5 milljarð-
ar dollara sem bandamenn hafa lofað
muni standa straum af kostnaðinum
en fór fram á samþykkt þingsins fyr-
ir 15 milljarða dollara fjárveitingu til
að geta greitt strax ýmsa reikninga.
í Hvíta húsinu í Washington vísuðu
menn á bug fullyrðingu leiðtoga
þýskra jafnaðarmanna, Wolfgangs
Roth, um að gróði Bandaríkjamanna
af stríðsrekstrinum næmi 18 mill-
jörðum dollara. Roth hvatti stjórn
Þýskalands til að greiða ekki að fullu
þá 11 milljarða dollara sem hún hefði
lofað.
Formaður íjárveitinganefndar öld-
ungadeildar Bandaríkjaþings, Ro-
bert Byrd, gaf í skyn aö skilyrðið um
bann við vopnasölu til bandamanna
ætti fremur við arabíska bandamenn
en Þjóðveija.
í samþykkt fulltrúadeildar Banda-
rikjaþings fyrir fjárveitingunni er
ekki kveðið á um bann við vopnasölu
til bandamanna. Fulltrúar beggja
deUda munu hittast til að reyna að
ná málamiðlun.
Reuter
Fleiri ísraelar til Gólanhæða
Húsnæðismálaráðherra ísraels,
Ariel Sharon, hét því í gær að tvö-
falda þann fjölda gyðinga sem búsett-
ur er á Gólanhæðunum. ísraelskir
landnemar þar eru nú eUefu þúsund.
Yitzhak Shamir, forsætisráðherra
ísraels, lýsti því yfir á mánudaginn
að ísraelar myndu ekki skila svæð-
inu, sem þeir hertóku 1967, til Sýr-
lands. Yfirvöld í Sýrlandi segja af-
hendingu Gólanhæða skilyrði fyrir
friðarviðræðum.
Þingmaður úr röðum vinstri
manna í ísrael sagði í gær að Sharon
hefði spurt ísraelska landnema á
vesturbakkanum hvar væri laust
land fyrir nýbyggingar. Þingmaður-
inn er sagður hafa skjalfestar sann-
anir fyrir því að áætlanir Sharons
brjóti í bága við loforð til Bakers,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
um að þar verði. ekki reist hús fyrir
sovéska gyðinga sem streyma til
ísraels. Sharon húðskammaði í gær
yfirmann ísraelshers sem gefið hafði
í skyn að ísraelsstjórn kynni að láta
af hendi hertekin svæði til að koma
á friði við arabíska nágranna sína.
Reuter
Suzuki Swift
SPARNEYTINN OG ÓDÝR í REKSTRI
• Framdrif/sídrif (4x4)
• Beinskiptur / sjálfskiptur
• Eyðsla frá 4 I. á 100 km.
Til afgreiðslu strax.
Verð frá 642.000,- kr.
^SUZUKl
SUZUKIBÍLAR HF
SKEIFUNNI 17 SlMI 685100