Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1991, Qupperneq 28
r
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
LOKI
Ætli þessu fylgi ekki
vaxtaverkir?
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreífing: Simi 27022
MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 1991.
Veðrið á morgun:
Minnkandi
norðvest-
anátt
Á morgun verður minnkandi
norðvestanátt. É1 verða norðan-
lands, einkum austan til, en létt-
skýjað syðra. Frostlaust verður
sunnanlands yfir hádaginn en
annars 1-6 stiga frost.
Sprenging í ammoníakstanki við Rækjunes í Stykkishólmi:
Sáum stórt ammon-
íaksský stíga upp
- segir Smári Guðbjartsson verkstjóri sem tókst að forða sér
„Við vorum þrír fyrír utan húsið
þegar við heyrðum dúndrandi
sprengingu. Það var engin spurn-
ing um hvað hafði gerst. Við sáum
stórt og hvítt ammoníaksský stíga
upp fyrir húsið. Við náðum að
forða okkur í burtu þarrnig að við
sluppum. Vindáttin stóö út á sjó og
siðan gufaði skýið smám saman
upp,“ sagði Smári Guðbjartsson,
verkstjóri hjá skelfiskvinnslunni
Rækjunesi í morgun.
Lögreglunni var í gær tilkynnt
um mikla sprengingu á ammon-
iakstanki sem stóð fyrir utan véla-
sal Rækjunesverksmiðjunnar. Tal-
ið er að 80 kíló af ammoníaki hafi
gufað upp þegar kúturinn, sem var
fullur, sprakk og stór rifa kom á
hann eftir endilöngu. Engan sak-
aði. Atburðurinn átti sér staö í há-
deginu á föstudag, að sögn Smára.
Þá var fólkið sem vinnur á staðnum
nýfarið i mat.
, ,Ég reikna með að kúturinn verði
sendur suður i dag til Vinnueftir-
lits ríkisins til skoðunar. Þetta
slapp nú allt vel. Anunoníaksskýið
fór í áttina að sjónum þannig að
þetta fór betur en á horfðist. Við
fengum svo lögregluna til að gera
skýrslu um þetta i gær,“ sagði'
Smári í morgun.
Að sögn lögreglunnar er mesta
mildi að ekki urðu slys á fólki, mun
verr hefði farið ef þremennkigamir
hefðu verið inni í húsinu. Tveir
aðrir ammoníakstankar vom á
svæðinu. Ammoníak er vökvi sem
geymdur er undir þrýstingi.
Sprengingin var því gífurlega
mögnuð. Ammoníaksfnykur var
ennþá viö Rækjunesverksmiðjuna
í gær, að sögn lögreglu.
Fólk sem var í nærliggjandi
hverfum sagðist hafa heyrt greini-
lega þegar kúturinn sprakk. Eftir
því sem DV kemst næst hefur eng-
inn orðið fyrir heilsutjóni vegna
ammoníakskýsins sem steig upp
fráRækjunesi. -ÓTT/IH
Ólafur Björnsson:
Hætta á seðla-
prentun
Ólafur Björnsson, fyrrum hag-
fræðiprófessor, segir að aukin
lántaka ríkisins á innlendum
peningamarkaði auki verðbólg-
una í landinu ef ekki komi nægi-
legur sparnaður á móti hjá þjóð-
inni.
„Hættan er auðvitað sú að auk-
in innlend lántaka ríkissjóðs
verði Qármögnuð með aukinni
seðlaprentun og þar meö eykst
verðbólgan," segir Ólafur.
„Aukin eftirspurn ríkisins eftir
lánum á innlendum peninga-
markaði hefur einnig tilhneig-
ingu til að hækka vextina nema
framboð á peningum, sparnaður
þjóðarinnar, aukist að sama
skapi,“ segir Ólafur.
„Halli á ríkissjóði sem fjár-
magnaður er með lánum hefur
einnig tilhneigingu til að hækka
vexti og auka halla á erlendum
viðskiptum," segir Ólafur. -JGH
Kosiðístjórn
Landsvirkjunar
Ekki var kosið í stjórn Lands-
virkjunar í nótt. Á dagskrá þings
klukkan 10 í morgun var kósiö í
stjórn Landsvirkjunar, Kísiliðj-
unnar, Viðlagatryggingar íslands
og Orkuráös. -J.Mar
Þórarinn V. Þórarinsson um lánsfjárlögin:
Stór kosningavíxill
„Þessi lánsfjárlög eru einn af þess-
um stóru kosningavíxlum og þetta
eru vond lög,“ segir Þórarinn V. Þór-
arinsson, framkvæmdastjóri VSÍ,
um lánsfjárlögin sem samþykkt voru
í gær.
„Þessi lánsfjárlög eru sérstök fyrir
tvennt. í fyrsta lagi eru teknar inn
fjárhæöir sem með réttu ættu að
koma inn á fjáraukalögum og lögin
eru þannig notuð til að fela raun-
verulegan halla á ríkissjóði. Hins
vegar er með þessum lögum enn
stefnt að auknum hlut ríkissjóðs í
nýjum peningalegum sparnaði á
þessu ári. Samkvæmt fyrstu hug-
myndum var að því miðað að ríkið
tæki til sín 6 af hverjum 10 krónum
í nýjum sparnaði á þessu ári. Þetta
hlutfall hefur hækkað og það þýðir
hækkun vaxta. Enda hefur lánsfjá-
reftirspurn ríkisins á innlendum
markaði haldið uppi vaxtastiginu.
Grunnurinn að vaxtastiginu í
landinu er og verður vextir sem rík-
issjóður er sjálfur að bjóða og allir
aðrir vextir verða með álagi ofan á
það,“ segir Þórarinn. -ns
Tryggvi Pálsson bankastjóri:
Ríkið heldur uppi vöxtum
Tryggvi Pálsson, bankastjóri ís-
landsbanka, segir að aukin eftir-
spurn ríkisins á innlendum fjár-
magnsmarkaði, komi mjög líklega
fram í hærri raunvöxtum en ella
hefði orðið.
„Ríkið tók til sín stóran hluta af
frjálsum sparnaði í landinu á síðasta
ári. Ég hef ekki séð sundurliðunina
á lánsfjárlögum núna en ef ríkið ætl-
ar aö taka til sín enn stærri hluta af
frjálsum peningalegum sparnaði í
landinu leiðir það til aukins sam-
dráttar í öðrum lánum, samkeppnin
um peningana eykst og áhrifin verða
mjög líklega hærri raunvextir en
ella,“ segir Tryggvi.
-JGH
PéturH. Blöndal:
Þýðir mikla vaxtahækkun
„Þetta þýðir mjög mikla hækkun
vaxta,“ segir Pétur H. Blöndal, Kaup-
þingi, í viötali við DV um afgreiðslu
lánstjárlaga í nótt.
„Erfitt er að spá, hvar jafnvægis-
punkturinn er. En þetta gengur ekki
upp, nema til komi mikil aukning
sparnaðar, sem ekki er unnt að bú-
ast við. Kannski munu vextir hækka
vegna þessa um eitt prósentustig, en
eitt prósent vaxtahækkun er líka gíf-
urlega mikið,“ sagði Pétur. -HH
Sinfóníuhljómsveit æskunnar frum-
f lytur Baldr eftir Jón Leif s á sunnudag
Þegar hið viðamikla tónverk Baldr efti'r Jón Leifs verður frumflutt á sunnu-
daginn verða hátt i tvö hundruð manns á sviðinu í Háskólabíói. Það er
Sinfóníuhljómsveit æskunnar undir stjórn Paul Zukofsky ásamt kór og tleiri
listamönnum sem fiytur verkið sem aldrei hefur heyrst áóur. Ekki er einung-
is notast vió hefðbundin hljóófæri eins og sjá má á þessari mynd, en á
henni handleikur Maria Strand-Borin keðjur af öllum stæróum og Ómar
Guðnason lemur grjót. DV-mynd GVA
.S?A(f Hfy
A/~~i
HEIMSENDINGÍ
1800-23 3C
HELGAR'iaÖb'Ö300 ft’/v
1?
HEIGAR 1800-0300
t
t