Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1991, Page 5
FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 1991.
5
Fréttir
Pirringur vegna fréttar D V um að atvinnulausir Sauðkrækingar höfnuðu vinnu:
Þeir sem haf na vinnu f á
ekki atvinnuleysisbætur
„Þaö var fariö að pirra mann svo-
lítið aö heyra um það aö auglýst
væri eftir fólki í vinnu en enginn
fengist þrátt fyrir atvinnuleysi. Ég
tók mig því til á endanum og baö
fulltrúa verkalýösfélagsins og Fisk-
iðjunnar aö koma saman og hitta
mig. Við ræddum í bróðerni um þaö
hvemig hægt væri að koma þessum
málum svo fyrir aö þeir sem höfnuðu
vinnu dyttu út af atvinnuleysisskrá
og misstu bætur. Við verðum náttúr-
var niðurstaða fundar sem bæiarstjórinn boðaði um málið
lega að reka vinnumiðlun eftir þeim
lögum og reglum sem í gildi eru,“
sagði Snorri Björn Sigurðsson, bæj-
arstjóri ? Sauðárkróki, í samtali við
DV.
Snorri boðaði framkvæmdastjóra
Fiskiðjunnar á Sauðárkróki og for-
mann verkalýðsfélagsins á staðnum
til fundar við sig á miövikudag. Til-
efni fundarins var frétt DV frá því
fyrir páska um að Fiskiðjan fengi
ekki fólk í vinnu þrátt fyrir að fyrir-
tækið auglýsti eftir þvi og 50-60
manns væru á atvinnuleysisskrá.
Bæjarstjórinn sagðist ekki vita til að
þetta tiltekna vandamál ætti við önn-
ur fyrirtæki en Fiskiðjuna.
„Fiskiðjumenn segja að þeir hafi
ekki fengið fólk í vinnu þrátt fyrir
auglýsingar. Hafa þeir hringt í fólk
sem ekki hefur treyst sér til að koma
í vinnu hjá þeim. Hins vegar hafa
þeir, að mér skilst, ekki talið það í
sínum verkahring að koma upplýs-
ingum um hverjir það væru sem
vildu ekki vinnu áfram til vinnu-
miðlunarinnar. Þar með hefur
vinnumiðlunin ekki haft neitt í hönd-
unum yfir hverjir þetta eru. Grunnur
ágreiningsins er þannig skortur á
upplýsingamiðlun."
Snorri Björn sagði að á næstu dög-
um yrði útfært kerfi sem verkar
þannig að nefndar upplýsingar berist
rétta boðleið á milli aðila.
Hann sagði að fiskiðjuna vantaði
aðallega konur í vinnu en fólkið, sem
væri á atvinnuleysisskrá, gæti af ein-
hverjum ástæðum ekki unnið í fiski.
„Ég legg ekki dóm á hvort verið er
að misnota kerfið eða ekki. Ég var
ekki að spá í það. Ég vildi umfram
allt sjá til þess að allir aðilar hefðu
sömu upplýsingarnar. Það fóru allir
sáttir af fundinum."
-hlh
Tillögur húsafriðunamefndar um friðun 24 húsa:
Loks komið að því að ákvörðun verði tekin
Búast má við að eftir ekki mjög
langan tíma verði loks tekin endan-
leg ákvörðun um tillögur húsafrið-
unarnefndar um friðun 24 húsa í
Reykjavík. Tillögurnar hafa verið á
flækingi bæði um borgarkerfið og
menntamálaráðuneytið í marga
mánuði og hafa hlotið umsögn fjöl-
margra nefnda og ráða.
Það var fyrir um ári að húsafriöun-
arnefnd kom með þessar tillögur sem
sendar voru í menntamálaráðuneyt-
ið. Þegar ráðuneytið tók á þeim var
skipuð ný húsafriðunarnefnd þannig
að tillögurnar voru sendar til baka
því nýja nefndin þurfti að fjalla um
þær. Samkvæmt lögum þarf að leggja
slíkar tillögur fyrir borgarminjavörð
og það var gert. Þá fóru tillögumar
á flæking milli nefnda og ráða og
vom loks afgreiddar frá borgarráði
rétt fyrir páska. Þá var máhð sent til
menntamálaráðuneytisins þar sem
það er nú til lokaafgreiðslu_að öllum
líkindum. Hins vegar á eftir að fá
leyfi eigenda húsanna fyrir friðun-
inni.
Húsin, sem lagt er til að verði frið-
ið, að hluta til eða í heilu lagi, era
flest í gamla miðbænum en önnur
eru í Þingholtunum, í vesturbænum
og við Tjörnina. Þetta era flest stein-
steypt hús sem byggð voru um eða
upp úr aldamótum og hafa ýmist
byggingarsögulegt gildi, eða þau
mynda óvenju samsteypta heild, fall-
ega þyrpingu eöa teljast nauösynleg-
ur hluti bæjarhluta.
í gamla miðbænum er lagt til að
þessi hús verði friðuö: Austurstræti
9, Austurstræti 11, Austurstræti 16,
Pósthússtræti 2, Pósthússtræti 5,
Hafnarstræti 1-3, Kirkjutorg 6, Lækj-
argata 10 og Aðalstræti 16. Við Tjarn-
argötu eru það húsin númer 18, 22,
24, 26, 28 og 32. Þá ér það Vonar-
stræti 3 eða Iðnó og Sóleyjargata 1.
í Þingholtunum er lagt til að húsið
að Skálholtsstíg 7 verði friðaö, svo
og Skálholtsstígur 6.
í vesturbænum er lagt til að þrjú
hús verði friðuð. Það eru húsin að
Öldugötu 23, Túngötu 18 og Landa-
kotsskólinn. -ns
m-trnti
Einstakt tækifæri
Á laugardag, frá kl. 14 til 16, veitir Ólafur Már Ásgeirsson dúklagningameíst-
ari persónulega ráðgjöf um lagningar á teppum, dúkum og flísum.
Íí Árni Svavarsson verður á sama tima og sýnir
SKUFUR hreinsun og viðhald á teppum.
FILTTEPPI
4 LITIR, KRM0. wm-
375,
BILATEPPI
MARGIR QQC
LITIR, KR UUjm
LYKKJU-
TEPPI
FRÁ KR.
455.
KERAMIKFLÍSAR BÓMULLARMOTTURMEÐBLÓMAMYNSTRI
10x20, kr. 1560
20x20, kr. 1647
30x30, kr. 1979
75x125, kr. 2950
110x170, kr. 4995
170x230, kr. 10.800
190x290, kr. 15.650
ÁBútmmsm
Vorum áður í
Byggingamarkaði
Vesturbæjar,
Hringbraut 120
Opið laugardag
kl. 10-16
4 Si m m MARLEY GÓLFDÚKUR IIQE enskgæðavara, kr. 1 ru m2 3ja metra breiður - þarf ekki að líma
Fallegar parket- mottur 67x115 1995 100x140 2850 160x230 8470
FALLEGT URVAL
AF GÓLFTEPPUM
MARGAR GERÐIR
Á GÓÐU VERÐI
OM-BUÐItl
Grensásvegi 14, símar 83290 og 68-11-90
Beint á móti Sölunefndinni. Næg bílastæði á baklóð..