Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1991, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1991, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 1991. Spumingin Hefurðu gaman af slúðri? Björn Harðarson nemi: Já, sérstak- lega um mig sjálfan. Jón Karl Árnason nemi: Já, þegar það er vel sagt og gengur ekki út í öfgar. Halldís Hallsdóttir ritari: Nei, eg sé voðalega lítinn tilgang í því. Lára Kristinsdóttir verslunarm.: Nei, það er mannskemmandi því það vill oft verða neikvætt um náungann. Kjartan Jónsson ellilífeyrisþ.: Nei. Guðrún Daníelsdóttir: Nei, alls ekki. Lesendur Dæmdir saklausir Konráð Friðfinnsson skrifar: Eftir 16 ár bak við lás og slá voru „sexmenningarnir frá Birmingham“ loks látnir lausir. Árið 1975 voru þessir menn dæmdir saklausir til lífstíðarfangelsis fyrir að hafa orðið 21 manneskju að bana og sært og hm- lest yfir 160 í mannskæðasta sprengjutilræði á Bretlandi til þessa. - Sprengjumar sprungu inni á tveimur krám árið 1974. Mennirnir sex, er dæmdir voru, játuðu fyrir rétti en æ síðan héldu þeir því fram að lögreglan hefði neytt þá til þess með ofbeldi og niðurlæg- ingu. Og mál sexmenninganna var tekið fyrir aö nýju, í annað sinn á fjórum ámm, og lauk þannig að ír- arnir voru sýknaðir af öllum ákæra- atriðunum og fengu að fara fijálsir ferða sinna hinn 14. mars sl. í dag eru aftur á móti uppi háværar raddir um að embættismaðurinn, er ber ábyrgðina, verði látinn fjúka. Nær hefði verið að gera kröfu um að allar þær sakfelhngar, er hann hefur kveðið upp á valdatíma sínum, verði kannaðar niður í kjöhnn. Það er nefnilega aldrei að vita nema fleiri vammlausir írar sitji í enskum tukt- húsum fyrir hans orð. Þetta er ein mesta sorgarsaga um götótt réttarkerfi. Þegar því hentar er gripið nærtækt fólk og dæmt til ævilangrar dvalar í svartholi ef ekki næst að handsama ódæðismennina. Þetta er líka saga um það hvernig óvönduð sijórnvöld og lögregla kikna undan trylltum lýð sem krefst þess að fá blóði úthellt fyrir blóð. - Já, jafnvel saklausum dreyra samborg- ara sinna. Huglausir valdsmenn láta Sexmenningarnir lausir úr prisundinni eftir 16 ár - saklausir að sjálfsögðu. slíkt gjarnan eftir lýönum svo að þeir sjálfir fái frið. „Við erum öh bestu skinn inn við beinið og vhjum láta gott eitt af okk- ur leiða,“ heyrist stundum sagt. En eru þessi orð sönn? Því miður ekki og oft snúast þau upp í andhverfu sína á furðu skömmum tíma og eru dæmin mörg og nærtæk. - Sannleik- urinn er vísast sá að það er ekkert gamanmál að vera dæmdur af al- menningi. Miskunnarlausari dómari er vandfundinn. Eða hvað segir ekki rithöfundurinn og núverandi forseti Tékkóslóvakíu í einni af sögum sín- um: „Fólk er mestu drullusokkar.“ M illHærslumeinloka Framsóknar Baddi skrifar: Það er heldur hvimleitt, þegar Framsóknarmenn era að hæla sér af því að hafa sullað út fyrir tveimur árum 7-8 mihjörðum króna til „björgunaraðgerða" fyrir sjávarút- vegsfyrirtæki. - Þetta er enn gert í Tímanum á pálmasunnudag, þrátt fyrir það að sum þessara fyrirtækja sem hefur verið „bjargað“ séu komin í hönk aftur, og jafnvel forsætisráð- herra vhl gefa heil byggðarlög upp á bátinn eins og t.d. Suðureyri. Það er eins og þeim Framsóknar- mönnum æth aldrei að skhjast, að mihifærslusukkið hefur aldrei geng- iö upp, og gerir það ekki í framtíð- inni, á meðan engu er breytt í rekstri þeirra fyrirtækja sem hlut eiga að máh. Vonlaus rekstur heldur áfram að vera vonlaus, þótt hann fái lán th skamms tíma á háum vöxtum. „Gjafafé" frá stjórnmálamönnum kemur alltaf of seint og verður of lít- ið. Það era sömu fyrirtækin (sum með nýju nafni) sem voru að fá þessa sömu ógeðfelldu „björgun“ með al- mannafé fyrir 10-12 áram. Svo er Timinn að reyna að halda því fram að Framsóknarflokkurinn sé samstíga í sjávarútvegsmálum! Vora ekki frambjóðendur og sveitar- stjórnarmenn Framsóknar að hella sér yfir ráðherrann í allan vetur út af smábátakvótanum? Fluttu ekki tveir Framsóknarþingmenn m.a. til- lögu um að rústa fiskveiðistefnu Hahdórs? Nei, það eru Sjálfstæðismenn sem hafa orðið aö bjarga sjávarútvegs- málum Halldórs Ásgrímssonar hvað eftir annað. Það veröur gaman að sjá, hvort hann og aðrir Framsókn- armenn verða eins fúsir til að styðja skynsamleg og réttsýn framfaramál hjá sjávarútvegsráðherra Sjálfstæð- ismanna næstu 12 árin. Þeir af hentu sjálf ir auðlindina Sjálfstæðismaður skrifar: Flokksbræður minir lýstu því sér- staklega yfir á landsfundi flokksins fyrir skömmu að Sjálfstæðisflokkur- inn yrði að fá sjávarútvegsráðuneyt- ið í sinn hlut í næstu ríkisstjórn. Ég hef verið að velta því fyrir mér til hvers í ósköpunum flokkurinn ætli sér að sækjast eftir þessu ráðuneyti. - Flokkurinn hefur ekkert nýtt fram að færa í stefnumótun í sjávarút- vegsmálum okkar. A landsfundinum var því t.d. að- eins lýst yfir að móta þyrfti nýja stefnu í þessum málum! Og forystu- menn Sjálfstæðisflokksins virðast sjálfir vera búnir að gleyma því að það voru einmitt þeir sjálfir sem ásamt Framsóknarflokknum komu á því spihingarkerfi sem við nú búum við. - Þeir hafa afhent fámennum hópi gæðinga ókeypis auðlind þjóð- arinnar allrar. Kannski þeir vilji komast í sjávar- útvegsráðuneytið th þess að geta hyglað þeim enn betur! - Vissulega er löngu tímabært að Halldór Ás- grímsson standi upp úr stóli sjávar- útvegsráðherra. En í hans stað á ekki Engin stefnumörkun Sjálfstæðisflokks í sjávarútvegsmálum, segir meðal annars í bréfinu. að setja einhvem „bróður" hans í þjóðinniafturþvísemafhennihefur spillingunni heldur mann sem hefur verið rænt. réttlætisthfinningu til þess að skila Opnarverslanir- alltannaðiíf Sig. Björnsson hringdi: Ég er einn þeirra sem hef notið góðs af breyttum afgreiðslutíma verslana hér í Reykjavík. Um páskana, t.d. á skírdag, var opið i Miklagarði og ég sá ekki betur en að verslunin, sem ég sæki, væri yfirfull af fóíki allan daginn. - Það hefur sannarlega verið orð- in mikh þörf fyrir breyttan versl- unartíma í svo stóru samfélagi sem borgin er orðin. Nú er einnig opið á sunnudög- um víðast hvar í matvöruversl- unum og sé ég ekki betur en það sé vel þegiö. - Á sunnudögum geta t.d. hjón farið saman og gert ínnkaup í rólegheitum í siað þess að vera ahtaf á síðustu stundu fyrsta virka dag vikunnar. Þetta var orðin hrein kvöl fyrir marga, t.d. útivinnandi foreldra. Endursýnið Líf s- björgíNorður- höfum B.E.Á. skrifar: Nú, þegar óðum styttist í ráð- stefnu Alþjóða hvalveiðiráðsins hér á landi, er ekki úr vegi að endursýna sjónvarpsmyndina Lífsbjörg í Norðurhöfum. Ég hef heyrt að meðlimir Greenpeace- samtakanna ætli nú að fjölmenna hingað th lands til þess að reyna að hafa áhrif á þá sem sækja hval- veiðiráðstefnuna. - Við eigum ekki að láta svona óhehlasamtök hafa áhrif á okkur heldur eigum við sjálf að ákveða hvernig við nýtum náttúruauðhndir okkar umhverfis landið. Þess vegna verðum við að taka strax og kröft- uglega á móti þessum öfgasam- tökum og láta þau finna aö þau séu ekki velkomin hér Sveinbjörggróf- lega misnotuð Ragnhildur skrifar: Við höfum þurft að horfa upp á þá smán og Uthsvirðingu undan- farið í sjónvarpsauglýsingu um verðbréf, að höfða til Sveinbjarg- ar nokkurrar „að vestan“ - eins og segir svo smeðjulega í auglýs- ingunni - fiskvinnslukonu sem veit aht þegar kemur að sparnaði til að kaupa verðbréf. - Hér er verið að gera gys aö okkur fisk- vinnslukonum sem höfum rétt th hnífs og skeiðar í þessari aumu atvinnugrein? Þess er ekki getið í auglýsing- unni, hvort „Sveinbjörg" er ein- hleyp eða gift togaraskipstjóra. Er kannski bara að drepa tímann þar til karlinn kemur að landi með tvöfaldan hásetahlut! - Svona auglýsing niðurlægir al- vöru fiskvinnslukonur. Hættið að draga dár að okkur svona blygð- unarlaust. Vextirogverðiag Lúðvik Eggertsson skrifar: Ég hefi frá byrjun lesið DV, frjálst og óháð dagblað. Var ég ekki lítiö hissa þegar Jónas Kristjánsson hélt því fram að enginn hagfræðingur teldi vexti hækka verðlag. Sem kaupsýslu- maður í meira en hálfa Öld veit ég að þeir gera það. Vaxtahækk- un - líkt og kaupgjaldshækkun - fer beint út í verðlagið. Ef við mættum ekki bæta auknum fjár- magnskostnaði við vöraverð fær- um viö allir á hausinn. Það er furðulegt þegar menn eins og t.d. Hannes Hólmsteinn, sem ekki er hagfræöingur, talar fyrir munn allra hagfræðinga. Skoöanir hagfræðinga skiptast, hkt og skoðanir annarra fræði- manna, fylgja t.d. óhkum stjórn- málaflokkum. Ég las nýlega grein eftir bandarískan hagfræöing sem varaði við vaxtahækkunum því aö þær sköðuðu samkeppnis- stöðu landsins út á við.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.