Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1991, Side 17
FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 1991.
25
• Haukur Eiriksson frá Akureyri brosir breitt eftir sigurinn í 15 km göngu í gær. Það er Sigurgeir Svavarsson frá
Ólafsfirði, sem varð annar, sem óskar honum til hamingju. DV-mynd Brynjar Gauti
Skíðalandsmótið á Isafirði:
Heimamenn fengu
fyrstu verðlaunin
- Ásta vann stórsvig, Haukur, Kristinn og Daníel göngugreinar
Jón Kristján Sigurösson, DV, Lafirði:
ísfirðingar voru fyrstir að vinna til
verðlauna á skíðalandsmótinu sem
hófst á ísaflrði í gær. Hin tvítuga
Ásta Halldórsdóttir sigraði í stórsvigi
kvenna á sannfærandi hátt. Ásta var
í öðru sæti eftir fyrri umferðina en
þá síðari keyrði hún af miklu öryggi
og hlaut samanlagðan tíma 1:14,68
mínútur.
Guðrún Kristjánsdóttir frá Akur-
eyri varð í öðru sæti á tímanum
1:15,61 mínútu en hún hafði forystu
eftir fyrri umferðina. María Magnús-
dóttir frá Akureyri hafnaði í þriðja
sæti, hlaut samanlagðan tíma 1:15,66
mínútur.
Ásta Halldórsdóttir var að vonum
mjög ánægð með sinn fyrsta sigur í
stórsvigi á skíöalandsmóti en hún
lagði mikla rækt við æfingar fyrir
þetta mót og árangurinn varð eftir
því.
„Það er alltaf gaman að vinna sigur
og að því stefndi ég. Samt sem áður
átti ég hálfpartinn ekki von á þessu.
Ég hafði allt að vinna en engu að
tapa eftir fyrri umferðina. Það var
því um að gera að keyra á fullum
krafti í síðari umferðinni," sagði
Ásta Halldórsdóttir í samtali við DV
skömmu eftir að sigurinn var í höfn
í gær.
Ásta sagðist ennfremur ekki sjá
eftir tímanum sem færi í skíðaiðkun-
ina, hún æfði að jafnaði í íjóra tíma
á dag. Ásta mun keppa í öllum alpa-
greinum hér á landsmótinu og verð-
ur fróðlegt að sjá hvort hún nær að
innbyrða fleiri gullverðlaun.
Yfirburðir hjá
Kristni Björnssyni
Kristinn Björnsson frá Ólafsflrði
sýndi fádæma yfirburði í stórsvigi
karla. Kristinn er við nám í skíða-
menntaskóla í Noregi og sýndi 1
stórsviginu í gær að hann er í feikna-
góðu formi. Hann var tæpum þremur
sekúndum á undan næsta skíða-
manni, hlaut samanlagðan tíma
1:10,71 mínútu. Valdemar Valde-
marsson frá Akureyri varð í öðru
sæti á 1:13,74 mínútum og Vilhelm
Þorsteinsson frá Akureyri lenti í
þriðja sæti á 1:15,32 mínútum.
„Ég veit hvar ég stend um þessar
mundir og átti því allt eins von á að
vinna sigur í stórsviginu. Ég æfi í
Noregi við frábærar aðstæður og það
skilar mér sem mun betri skíöa-
manni, sérstaklega hvað stórsvigið
áhrærir. Ég stefni að sjálfsögðu að
því að vinna fleiri sigra á landsmót-
inu,“ sagði hinn geðþekki Kristinn
Björnsson í samtali við DV. Þess má
geta að Kristinn er sonur hins lands-
kunna skíðamanns, Björns Þórs Ól-
afssonar, sem oft hefur verið sagður
faðir skíðaíþróttarinnar hér á landi.
Kristinn Björnsson er aðeins 18 ára
að aldri og ef fram heldur sem horflr
er vert að gefa þessum skíðamanni
gaum í framtíðinni.
Haukurvann
15kmgöngu
Haukur Eiríksson frá Akureyri sigr-
aði í 15 km göngu karla. Haukur seig
fram úr keppinautum sínum síðari
hluta leiðarinnar og kom í mark á
49,20 mínútum. Sigurgeir Svavars-
son frá Ólafsfirði varð í öðru sæti á
50,16 mínútum og Rögnvaldur D. Ing-
þórsson frá Akureyri lenti í þriðja
sæti á 51,31 mínútu.
í 10 km göngu pilta, 17-19 ára, sigr-
aði Daníel Jakobsson frá ísafirði,
hlaut timann 32,39 mínútur. Tryggvi
Sigurðsson frá Ólafsfirði varð annar
á 35,16 mínútum og í þriðja sæti varð
Kristján Ó. Ólafsson frá Akureyri á
36,02 mínútum.
Snjó kyngdi niöur nóttina fyrir
fyrsta dag landsmótsins og var færi
frekar mjúkt. Dró það úr hraða kepp-
enda. Eins var mjög lélegt skyggni.
Af þeim sökum varð töluverð seink-
un á að landsmótið gæti hafist í gær.
• Ásta Halldórsdóttir frá ísafirði
vann sannfærandi sigur í stórsvigi.
DV-mynd Brynjar Gauti
Þórhalhrr Asmundss., DV, Sauðárkróki:
George Nazario, 23 ára gamall
Bandaríkjamaður, er genginn til
liðs við Tindastól og mun leika
með félaginu i 2. deildinni i knatt-
spyrnu í sumar. Hann kemur í
staðinn fyrir Jamaíkabúann
Winston Anglin sem flúði heim
vegna kulda á dögunum eihs og
DV hefur áður sagt frá.
Nazario er varnarmaður og
verður löglegur með Tindastóli í
3. umferð. Hann er annar Banda-
ríkjamaöurinn sem leikur með
Tindastóli í sumar en hinn er
miöjumaðurinn Kevin Grimes.
íþróttir
Einvígiö um íslandsbikarinn í körfubolta:
Semnýtt
lið hjá IBK
- vann Njarðvík, 75-73, og staðan er jöfn
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum;
Það var eins og Keflvíkingar tefldu
fram nýju liði þegar þeir mættu
Njarðvíkingum í öðrum úrslitaleikn-
um um íslandsbikarinn í körfuknatt-
leik í Keflavik í gærkvöldi. Eftir 37
stiga skell á þriðjudagskvöldið sneru
þeir dæminu við og unnu Njarðvík-
inga, 75-73. Þar með eru liðin jöfn,
1-1, og ljóst að minnst fjóra leiki þarf
til að finna íslandsmeistara. Þriðji
leikur lióanna verður í Njarðvík á
morgun klukkan 16.
Njarðvík náði 14 stiga forystu und-
ir lok fyrri hálfleiks en Keflavík lag-
aði þó stöðuna fyrir hlé í 38-43.
Njarðvíkingar voru yfir allan síðari
hálfleik þar til heimamenn jöfnuðu,
70-70, þegar þrjár mínútur voru eft-
ir. Þegar 2,14 mínútur voru eftir stóð
73-73 og í lokin var um mikinn darr-
aðardans að ræða og leikurinn æsi-
spennandi. Falur Haröarson skoraði
síðan tvívegis úr vítaskotum, úr því
síðara þegar 9 sekúndur voru eftir,
og þriggja stiga skot Njarðvíkinga
geigaði í lokin.
„Það voru fyrst og fremst góður
vamarleikur og mikil barátta sem
færðu okkur sigurinn. Ég sagði við
strákana að ef við ynnum myndi fólk
gleyma skellinum á þriðjudag. Það
eru viljinn og dagsformið í hverjum
leik fyrir sig sem ráða úrslitum,"
sagöi Jón Kr. Gíslason, þjálfari ÍBK,
við DV eftir leikinn en hann átti frá-
bæran leik í vörn og sókn.
„Það voru mikil mistök gerð undir
lokin og við fórum ekki rétt í gegnum
leikkerfm. Við reyndum ótímabær
skot þegar við áttum að gefa okkur
tíma. En við verðum tilbúnir að taka
á þeim aftur á laugardaginn," sagði
Friðrik Rúnarsson, þjálfari Njarð-
víkinga.
Keflvíkingar sýndu hvers þeir eru
megnugir en geta meira. Varnarleik-
urinn var góöur, sérstaklega seinni
hluta síðari hálfleiks. Jón Kr. var
hreint frábær og sýndi hve sterkur
varnarmaður hann er með því að
halda Teiti Örlygssyni niðri. Falur,
Albert, Guðjón og Thornton áttu allir
ágætan leik.
Njarðvíkingar urðu fyrir áfalh í
leiknum þegar ísak Tómasson
meiddist á hné og fór af velli í seinni
hálfleik. Liðið datt niður á lokakaf-
lanum og gerði aðeins 10 stig síðustu
10 mínúturnar. Rondey Robinson lék
vel, Friörik Ragnarsson einnig og
Teitur átti ágæta spretti sem og
Kristinn í fyrri hálfleik. ísak stjórn-
aði liðinu vel meðan hans naut við.
• Stig Keflavíkur: Falur Harðar-
son 17, Albert Óskarsson 14, Guðjón
Skúlason 13, Tairone Thornton 11,
Sigurður Ingimundarson 10, Jón Kr.
Gíslason 8, Egill Viðarsson 2.
• Stig Njarðvíkur: Rondey Robin-
son 21, Teitur Örlygsson 17, Friðrik
Ragnarsson 15, Kristinn Einarsson
12, ísak Tómasson 6, Hreiðar Hreið-
arsson 2.
Jón Otti Ólafsson og Bergur Stein-
grímsson dæmdu og skiluðu erfiðu
hlutverki sæmilega.
Guðríður bikarmeist-
ari í tíunda skipti?
- eða vinnur Stjarnan annan bikarsigur sinn?
Fram og Stjarnan, tvö sterkustu
kvennalið landsins, mætast í úrslita-
leik í bikarkeppni kvenna í hand-
knattleik í Laugardalshöllinni á
sunnudaginn og hefst viðureign liö-
anna klukkan 15. Þessi sömu félög
eiga einnig óuppgert einvígi um ís-
landsbikarinn síðar í þessum mán-
uði.
Fram er núverandi íslands- og bik-
armeistari og vann bikarinn í níunda
skipti í fyrra. Guðríður Guðjóns-
dóttir hefur verið með í öll níu skipt-
in og gæti því bætt tíunda sigrinum
í safnið. Ekkert annað lið hefur unn-
ið bikarinn oftar en einu sinni.
Stjarnan hefur einu sinni sigrað, það
var árið 1989.
Leikir hðanna í vetur hafa verið
jafnir og spennandi. Stjarnan hefur
unnið einn, 17-15, en Fram hina tvo,
22-20 og 17-16. Lítið hefur skihð hðin
að og því ómögulegt að spá um úrslit.
-VS
Lokaleikir í blakinu
í kvöld og á morgun fara fram tíu
síðustu leikir íslandsmótsins. Þeir
verða í Hagaskóla og Digranesi og
ætti blakunnendum að gefast kostur
á að berja góðar viöureignir augum.
• í kvennadeildinni stendur bar-
áttan um silfrið og munu Völsungar
og Blikastúlkur vafalaust heyja
harða rimmu um málminn þann í
Digranesi á morgun.
• Karlahð Þróttar R. tryggði sér
annað sætið með auðveldum sigri á
vandræðalegu og vonlausu liði ÍS í
fyrrakvöld (15-10,14-16,15-7,15-11).
Stúdentum tókst að vinna sigur í
annarri hrinu en siðan ekki söguna
meir. í fjórðu hrinu stóð ekki steinn
yfir steini i leik þeirra. Vandræðaleg-
ir og klaufalegir tílburðir urðu ein-
ungis til þess að kitla hláturtaugar
áhorfenda.
HK-ingar eiga enn veikan mögu-
leika á að krækja í verðlaunasæti en
til þess þurfa þeir að vinna bæði
Þrótt Nes. og KA. Verður gaman að
fylgjast með HK og KA í kvöld en það
eru einmitt þessi tvö lið sem mætast
í bikarúrshtunum.
-gje
Víkingar sigruðu Leikni
Víkingur sigraði Leikni, 2-0, í
fyrsta leik Reykjavíkurmótsins í
knattspyrnu sem fram fór á gervi-
grasinu í Laugardal í gærkvöldi.
Guðmundur Steinsson skoraði úr
vítaspyrnu á lokamínútu fyrri hálf-
leiks og Hörður Theodórsson gerði
síðara markið um miðjan síðari hálf-
leik. -VS