Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1991, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1991, Qupperneq 25
FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 1991. 33 LífsstOl TÓMATAR +49% SVEPPIR +1% I 3 MJ I 564 363 A VINBER +6% I s c 'O OQ 376 150 P Meðalverð grænmetis hækkaði almennt frá þvi sem það var i síðustu könnun og munaði allt að helmingi á meðal- verði á tómötum og gúrkum. DV kannar grænmetismarkaðinn: Verð flestra tegunda hækkar - mest á tómötum og gúrkum Neytendasíða DV kannaði að þessu sinni verð á grænmeti í eftirtöldum verslunum: Bónusi í Faxafeni, Fjarð- arkaupi í Hafnarfirði, Hagkaupi í Kringlunni, Kjötstöðinni í Glæsibæ og Miklagarði í Garðabæ. Bónusbúðirnar selja sitt grænmeti í stykkjatali en hinar verslanirnar selja eftir vigt. Til að fá samanburð þar á milli er grænmeti í Bónusi vigt- að og umreiknað eftir meðalþyngd yfir í kílóverð. Meðalverð á tómötum er nú 278 krónur og er það hækkun um heil 49% frá síðustu könnun sem var fyr- ir hálfum mánuði. Mikligarður bauð upp á lægsta verðið, 199 krónur, en næst kom Bónus, 200, Fjarðarkaup, 296, Hagkaup, 299, og Kjötstöðin, 398 krónur. Munur á hæsta og lægsta verði var nákvæmlega 100%. Meðalverð á gúrkum hækkaði um heil 54% frá síðustu könnun og er það nú 391 króna. Gúrkur voru ódýr- astar í Bónusi en þar kostaði kílóið 158 krónur. Á eftir fylgir verðið í Hagkaupi, 395, Kjötstöðinni, 398, Fjarðarkaupi, 415, og Miklagarði, 588 krónur. Munur á hæsta og lægsta verði er mjög mikill, eða 272%. Meðalverð á sveppum stóð nánast í stað og er það nú 474 krónur sem er hækkun um einn aThundraði. Sveppir voru á hagstæðasta verðinu í Bónusi en þar kostuðu þeir 363 krónur. Næst kom Mikligarður, 397, Kjötstöðin, 498, Hagkaup, 549, og Fjarðarkaup, 564. Munur á hæsta og lægsta verði á sveppum var 55%. Hækkun um 6 af hundraði varð á meðalverði á grænum vínberjum frá í síðustu könnun og er meðalverðið nú 284 krónur. Vínber voru ódýrust í Bónusi, á 150, en næst kom verðið í Miklagarði, 247, Hagkaupi, 299, Fjarðarkaupi, 350, og Kjötstöðinni, 376 krónur. Munur á hæsta og lægsta verði á grænum vínberjum er 151%. Hækkun um 3% varð á meðalverði á grænni papriku og er- það nú 371 króna. Græn paprika var á lægsta verðinu í Miklagarði en þar kostaði kílóið 198 krónur. Næst kom verðið í Bónusi, 229, Fjarðarkaupi, 434, Hag- kaupi, 495, og Kjötstöðinni, 498. Mun- ur á hæsta og lægsta verði er 152%. Meðalverð á kartöflum var það eina sem lækkaði á samanburðar- vörunum sé miðað við síðustu könn- un. Lækkunin er 8% og meðalverðið er nú 70 krónur. Kartöflur fengust á lægsta verðinu í Bónusi, á 55, síðan koma Hagkaup og Mikligarður, 64, Fjarðarkaup, 75,50, og Kjötstöðin, 89 krónur. Munur á hæsta og lægsta verði var 62 af hundraði. Hækkunin á meðalverði á blómkáli nam 14% og er þaö nú 204 krónur. Blómkál fékkst ekki í Bónusi en lægst var verðiö í Miklagarði, 141. Næst kom verðið í Fiarðarkaupi, 159, Hagkaupi, 225, og Kjötstöðinni, 289 krónur kílóið. Munur á hæsta og lægsta verði er 105%. Meðalverð á hvítkáli hækkaði lítið eitt, um 2%, og er nú 83 krónur. Hvítkál var á lægsta verðinu í Bón- usi, á 48, næst kom verðið í Hag- kaupi og Miklagarði, 75 krónur, 83 í Fjarðarkaupi og 132 í Kjötstöðinni. Munur á hæsta og lægsta verði á hvítkáli er 175%. Meðalverð á gulrótum hækkaði um 6% frá í síðustu könnun og er það nú 150 krónur. Verðið á gulrótum var lægst í Bónusi, 93, gulrætur kostuðu 138 í Fjaröarkaupi, 155 í Hagkaupi, 170 í Miklagarði og 192 í Kjötstöð- inni. Munur á hæsta og lægsta verði er 106%. -ÍS Sértilboð og afsláttur: Campbells súpur Bónusbúðirnar bjóða upp á sértil- boðsverð á 454 g af E1 Marino kaffi á 184, Remia Mayonnaise, 650 g, á 96 krónur, Tupla sælgætisbita í poka, samtals 208 g, á 132 krónur og Prik þvottaefni, 70 dl, á 354 krónur. í Fjarðarkaupi gat að líta blá vín- ber á tilboðsverðinu 223 krónur kíló- ið. Auk þess voru þar á tilboði Camp- bells súpur í dós, allar bragðtegund- ir, 300 g, á 73 krónur stykkið, Choco Quik kókómalt, 800 g, á 266 og Swahns kaffi, 500 g, á 198 krónur. í Hagkaupi voru grænar baunir frá Ora í 450 g dósum á tilboði á 52 krón- ur, Kellogs kornfleks, 750 g pakki, á 259 krónur, Flavorite örbylgjupopp, 3x100 g, á 99 krónur og Gillette Sens- or rakvélarblöð, 5 stk., á 249 krónur. Golden Walley örbylgjupopp, 3x100 g, var á sértilboði á 149 krónur í Kjöt- stöðinni Glæsibæ. Einnig gat að líta tilboðsverð á Havre Fras morgun- korni, 375 g á 189 krónur, Sanitas appelsín, 2 1, á 139 og Busy Baker partíkex með lauk- og beikonbragði, 226 g, á 66 krónur. Mikligarður í Garðabæ var með Honey Nut Cheerios á tilboðsverðinu 179 krónur 400 gramma pakki. Mikla- garðs wc-pappír, 12 rúllur, var á af- sláttarverðinu 209, kílóverðiö af ban- önum er 98 krónur þessa daganá og kílóverðið 398 krónur á kjúklingum í Miklagarði. ÍS ...... Tómatar Verð í krónum Sept.Okt. Nóv. Oes. Jsn. Feb. Mors April

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.